Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 17

Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 17 Siðfræði náttúrunnar Yiðamikil ráðstefna um umhverfismál NÁTTÚRUSÝN kallast ráðstefna um siðfræði náttúrunnar sem hald- in verður á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla íslands um helgina. Fjallað verður um efnið frá fjórum sjónarhólum; Náttúra og sið- ferði, Náttúra og listir, Náttúra og vísindi og Náttúra og trú. Flutt- ir verða rúmlega tuttugu fyrirlestrar á tveimur dögum og er þetta einhver viðamesta ráðstefna um verið hérlendis. Ráðstefnan verður í sal 3 í Há- skólabíói og stendur frá 9-16 laug- ardag og sunnudag. Reyndar mun Frakkinn Francois Terrason flytja fyrirlestur um tengt efni á kl. 17 á morgun föstudag í stofu 101 í Odda og nefnist hann Óttinn við náttúr- una. Terrason er sérfræðingur við náttúrúsögusafnið í París. Fyrirles- arar á laugardag eru þessir og er heiti erindis innan sviga: Páll Skúla- son (Maðurinn í spegli náttúrunnar), Sigrún Helgadóttir (Kvenlæg vist- fræði), Þorsteinn Hilmarsson (Þekk- ing og siðfræði í umgengni við nátt- úruna), Jórunn Sörensen (Dýrin - hluti lifandi náttúru íslands), Stefán Bergmann (Umhverfismenntun og Fundur um skylduaðild VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, heldur fund í Odda, stofu 101, á morgun, föstudaginn 17. september. Umræðuefnið er skylduað- ild/fijáls aðild að félögum og sam- tökum. Gestir fundarins verða Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, og Gunnar Jóhann Birgisson lög- fræðingur. Fundurinn hefst kl. 12 á hádegi og eru allir velkomnir. umhverfismál sem haldin hefur siðfræði í skólum), Björn Guðbrand- ur Jónsson (Umhverfismál sem meg- inatriði ákvarðanatöku í lýðræðis- samfélagi), Guðrún Nordal (Náttúr- an í skáldskapnum), Gunnar J. Árna- son (Heimurinn án mannsins. Nátt- úra í myndlist og myndlist í náttúr- unni), Ólafur Halldórsson (Umhverf- ishyggja og mannhyggja — tvenns konar náttúrusýn), Ólafur J. Engil- bertsson (Náttúran í list Bólu-Hjálm- ars, Sölva Helgasonar, ísleifs Konr- áðssonar og Grímu), Ingólfur Á Jó- hannesson (Innra eðli náttúrunnar — hvað er nú það? Gagnrýni á róman- tískar hugmyndir um náttúru og útivist), Þorvarður Árnason (Kvika — um lifandi og lífvana náttúru.) Þessir tala á sunnudag: Arnþór Garðarsson (Mannskepnan og nátt- úran), Guðmundur Sigvaldason (Náttúrusýn jarðfræðings), Skúli Skúlason (Sköpun veruleika), Ari Trausti Guðmundsson (Náttúruvís- indi og almenningur), Skúli Sigurðs- son (Hliðstæður, samlíkingar og myndhvörf náttúrunnar), María Ág- ústsdóttir („Hyggið að liljum vallar- ins“ — af skynjun manns í sköpun guðs), Bolli Gústavsson (Er trúin á ógæfuna íslensk þjóðtrú?), Sigurður Árni Þórðarson („Allt eins og blóm- strið eina“), Mikael Karlsson (Nátt- úran sem skepna) og Bjöm Björns- son (Maðurinn í gagnvirkum tengsl- um við náttúruna). Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson „Litli refurinn“ RENAULT Twingo hefur notið mikillar hylli í Evrópu en hann er væntanlegur til íslands um miðjan október. HANN er rúmgóður að innan og sætin eru þægileg. Litli ref- urinn Renault Twingo EINN þeirra smábíla sem vakti verulega athygli sýningargesta á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt var Iitli „refurinn", Renault Twingo. Bíllinn er æði sérstakur útlits og líkist eigin- lega ekki öðrum bílum í sama stærðarflokki en gífurleg eftir- spurn hefur verið eftir bílnum í Evrópu frá því hann kom á markað þar í byijun árs og verk- smiðjurnar hafa aukið fram- leiðsluna úr 800 bílum á dag upp í 1.800. Twingo kemur til íslands um miðjan október og kostar hann á bilinu 800-850 þúsund kr. Áætlað hafði verið að Belgíu- markaður einn tæki 3 þúsund Re- nault Twingo á þessu ári en fyrstu helgina sem hann var kynntur þar seldust 1.700 bílar. Twingo er minnsti bíllinn í Renault-fjölskyld- unni, minni og ódýrari en Renauit Clio og gerður fyrir arnian kaup- endahóp. Twingo er 3,43 metra langur og 1,63 metrar á breidd. Hann er með 1,2 lítra, 55 hestafla vél sem dugar þessum litla skrokki mjög vel og hann er fljótur upp. Hámarkshraði er hins vegar aðeins 150 km á klst. Bíllinn er ekki byggður á öðrum gerðum Renault bíla, hvorki Re- nault 5 né Clio heldur hefur hann verið sérhannaður alveg frá fyrstu strokum. Þrátt fyrir smæð sína er Twingo merkilega rúmgóður að innan og fer vel um ökumann og farþega í sérhönnuðum sætunum. FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU & FERÐATILBOÐ í VIKU $ FERÐATILBOÐ í VIKU Nú færðu ofángreindar vörur á einstöku ferðatilboði ( viku,frá fimmtudegi til miðvikudags. Lyftu þér nú upp og nýttu þér ferðatilboð í verslunum Hagkaups í vikunni. Ef Hagkaup er ekki í byggðarlaginu þá er hægt að notfæra sér þjónustu Póstverslunar Hagkaups, grænt símanúmer 99 66 80. Tilboðið gildir á meðan birgðir endast. HAGKAUP - allt í einni ferð Taktu Fcrdatilboó 1.493,- Feróatilboð 1.29,y Barnngallabuxttr "nliii I ??r Ferðatilboó 1.495, 1.995 Dömiiboliir hnepptnr Am Dömubolur meó rennilás ■Amu 2.V7TT- Dömnbolnr rúllnkraga 2.órr- Ferðatilboð Nýtt kortatimabil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.