Morgunblaðið - 16.09.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993
Bjóða saumaskapinn
ókeypis ef efnið er keypt hjá þeim
STARFSSTÚLKUR Saumasporsins i Kópavogi eru önnum kafnar
við afgreiðslu ella silja þær við saumavélarnar og sauma í gríð og
erg; vöggusett, joggingboli, úlpur, barnakjóia og sitthvað fleira.
Framleiðsluna hafa þær til sýnis í versluninni og bjóða hana til
kaups á því verði sem efnið kostar.
_ ^ í Saumasporinu fæst allt til ur á börn og unglinga. Efni í
VI
■gj sauma; saumavélar, gínur,
■D efni, rennilásar, tvinni, tölur,
CL snið, saumablöð og ýmis
Shandavinna. „Auk mín vinna
hérna fjórar stúlkur og allar
höfum við óskaplega gaman
af að sauma og leiðbeina við-
skiptavinum okkar um það
er varðar saumaskap. Við
kappkostum að gefa vjð-
skiptavinum góðan tíma. Við
hvetjum fólk til að spara og
sauma sjálft og ef einhver lendir í
ógöngum í miðju kafi reynum við
að aðstoða. Hérna eru saumavélar
og allt til alls svo við getum lagað
það sem fer úrskeiðis. Það er alveg
óhætt að koma með börn þvi við
höfum sjónvarp og myndband þeim
til afþreyingar," segir Ema Helga-
dóttir annar eigandi verslunarinn-
ar.
Erna og eiginmaður hennar,
Halldór Valgeirsson endurskoð-
andi, byijuðu fyrir níu árum að
flytja inn saumavélar. Umsvifín
jukust og ári síðar opnuðu þau
Saumasporið. Ema sér um rekstur
en Halldór um bókhaldið.
Aðspurð segir Ema að sauma-
þjónustan sé ekki stærsti liðurinn.
„Við gerum þetta mest okkur til
ánægju, prófum okkur áfram og
fínnst spennandi að sjá hvemig
fólki líst á framleiðsluna. Þetta er
engin klæðskeraþjónusta, því við
saumum aðallega einfaldan fatnað
og eingöngu úr efnum frá okkur.
Ef um flókin snið er að ræða bjóð-
um við aðstoð. í sumar höfðum við
varla undan að sauma útvíðar bux-
minnstu buxumar kostaði 1.000
kr. og tilbúnar kostuðu þær það
sama. Mér finnst konur hafa meiri
áhuga á að sauma en áður og oft
vilja þær fremur sprejTa sig sjálfar
heldur en kaupa tilbúnar flíkur hjá
okkur á sama verði.“ Þeir sem
kaupa saumavélar hjá Saumaspor-
inu geta alltaf komið og fengið
ókeypis kennslu, jafnvel mörgum
árum eftir að vélarnar vom keypt-
ar. Erna segir að þjónusta af þessu
tagi margborgi sig, sérstaklega
vegna ánægjunnar. „Við höfum
Morgunblaðið/SVE
Erna Helgadóttir fremst til hægri ásamt starfsfólki sínu.
Dömu- og herrasaumagínur.
okkar föstu viðskiptavini og sífellt
bætast fleiri við.“
Saumagínur
Margir sem sauma kannast við
ýmis vandkvæði við að fá sniðin
til að passa. Númer 38 passar e.t.v.
að öllu leyti nema yfir bijóstin. í
Saumasporinu fást þijár gerðir af
saumagínum. Hveija gínu er hægt
að stilla í íjórar stærðir og er þá
hægt að hafa hlutföllin eins og
hveijum hentar, t.d. mjaðma- og
axlamál nr. 38 en bijóstamál nr.
42. „Hægt er að stilla gínuna ná-
kvæmlega samkvæmt eigin vaxtar-
lagi. Gínumar kosta rúmlega sext-
án þúsund," segir Ema. ■
@#A barnaföt
+ verð
= mrnm Kaup
Berið saman verð og gæði.
Útkoman er einföla - kaupin
gerast ekki betri!
Nokkur dæmi um verð:
GaUabuxur
Gallaúlpur
Leggings
Náttföt
Regnföt
Úipur
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
990
1.990
890
790
1.890
2.990
Borgar
BORN
Laugavegi 20, sími 25040.
Opið kl. 10-18 virka daga, kl. 10-19 föstudaga, kl. 10-16 laugardaga.
Fóiraðar
ralla-smekkbuxur
kr. 1.690
Ungbamafatnaöur
(100% bimull)
h. 390-790 A
Sokkarkr. 180
FóSraiar
gallabuxur
kr. 1.590
hvítlauksseyði virðist
hafa bætandi áhrif á heilsuna
GÖMUL alþýðufræði segja að hvítlaukur búi yfir miklum krafti og
hafi bætandi áhrif á heilsuna. Á síðustu árum hafa augu vísindamanna
beinst í auknum mæli að rannsóknum á áhrifamætti hvítlauks og ný-
lega kom út bókin Hollusta hvítiauks eftir dr. Benjamin Lau lækni og
prófessor við læknaháskólann i Loma Linda í Kaliforníu.
621, í bókinni er sagt frá rann-
sóknum dr. Benjamins og
S5 samstarfsmanna hans, m.a. á
JJJ sveppahamlandi áhrifum
hvítlauks. Seyði úr Sehilling-
hvítlauksdufi reyndist stöðva vöxt
þruskusvepps, Candida albicans og
„kaldþroskaður" hvítlaukur stuðl-
aði að fækkun örvera í líkamanum
og hjálpaði honum þ.a.l. að beijast
gegn sýkingu.
Jafnframt er greint frá rann-
sóknum á áhrifum hvítlauks á
streitu. Tilraunin var gerð á mús-
um sem haldnar voru krabba-
meini. Útbúin var streituvél til að
framkalla streitu hjá dýrunum og
voru tveir hópar músa notaðir við
tilraunina. Annar hópur
fékk 25 mg af hvít-
lauksdufti en áð
öðru leyti
voru
hóparnir fóðraðir á sama hátt. Á
hveijum degi var framkölluð
streita hjá dýrunum og að viku lið-
inni reyndust streituhormónin
barkasterar hjá „hvítlauksætun-
um“ vera 20% af því magni sem
fannst í samanburðarhópnum.
Munur var á vexti og stærð æxla:
„Æxiin stækkuðu talsvert hjá
músum á hefðbundnu fæði, en
æxli hvítlauksmúsana stækkuðu
lítillega í fyrstu eða allt fram að
þriðju viku, en síðan minnkuðu þau
eilítið," segir í niðurlagi umfjöllun-
ar í bókinni.
í „Hollustu hvítlauks" eru einnig
kaflar um kólesteról, vernd gegn
men- gun í umhverfinu, geislun
og krabbameini svo
eitthvað sé nefnt.
Bókin er í kilju og
32 síður að stærð.
Bókaútgáfan
Fræðslurit gefur
bókina út en hana
þýddi Hálfdan
Ómar Hálfdan-
arson líffræð-
ingur. ■
Morgunblaðið/RAX
Afskomar rósir
á að setja í heitt vatn
TIL að afskomar rósir lifi lengur heima hjá okkur, er best að setja þær
í 35-40 gráðu heitt vatn.
Garðyrkjustöðin í Fagrahvammi í
Hveragerði hefur látið útbúa leið-
beiningar um meðhöndlun rósa. Eru
þær skráðar á spjöld sem sumar
blómabúðir láta fylgja með rósavönd-
um sem keyptir eru. Á spjaldinu
kemur m.a. fram að gott sé að láta
eina teskeið af borðediki og einn
sykurmola í 35-40 gráðu vatn sem
ætlað er rósunum. Að öðrum kosti
má nota Crysal-næringu sem stund-
um fylgir afskomum blómum.
Þá er ráðlagt að skera 1 sentí-
metra neðan af rósastilkum um leið
og rósimar eru settar í vasa. Á
spjaldinu segir: „Rósir þola ekki að
standa í sól eða nálægt heitum ofni.
Látið blómin standa á svölum stað
yfir nóttina.“ ■