Morgunblaðið - 16.09.1993, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.09.1993, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 Helgi Hróbjartsson hefur starfað sem kristniboði í Eþíópíu í 18 mánuði Flestum kirkjum verið skilað á ný „MÉR FANNST í senn gledilegt og sorglegt að komast aftur til starfa í Waddera í suðurhluta Eþíópíu þar sem ég var fyrir nærri 20 árum. Það var gleðilegt að sjá að þrátt fyrir byltingu og and- stöðu hafði ekki tekist að brjóta niður kirkjuna. En það var síður gleðilegt að sumir höfðu yfirgefið hana. Margir urðu að þola ofsókn- ir og aðrir voru hreinlega myrtir," sagði Helgi Hróbjartsson kristni- boði í samtaii við Morgunblaðið en hann hefur síðasta eitt og hálfa árið starfað í Eþíópíu. Helgi var staddur á Isiandi í stuttu leyfi og fyrir skömmu og er farinn á ný til Waddera um en héraðið liggur nærri 500 km austur af Konsó þar sem margir ísienskir kristniboð- ar hafa starfað gegnum árin. Helgi er spurður nánar um ástandið í landinu og hvaða augum núverandi valdhafar líti á starf kirkjunn- ar og kristniboðsins: „Kirkjan og kristniboðið hafa fengið að starfa áfram og nú hefur víða verið skilað þeim kirkjum sem teknar voru undir aðra starfsemi meðan Mengistu réði ríkjum. Svo var til dæmis um kirkjuna í Wadd- era, hún þjónaði í 17 ár sem mið- stöð stjórnvalda kommúnista í hér- aðinu og þar höfðu myndir af Marx, Lenin og Engels verið málaðar yfir Kristsmýnd á altaristöflunni. Þegar við fengum kirkjuna aftur urðum við að lagfæra hana alla og mála yfir myndimar af þessum þremur herramönnun og síðan vígðum við kirkjuna á ný eftir að hafa málað Kristsmyndina að nýju.“ Helgi segir að vígslan hafi verið áhrifamikil en þar talaði Immanúel Abraham sem var ráðherra í stjórn keisarans fyrrverandi og sá eini sem ekki var skotinn þegar Meng- istu braust til valda. Þeir höfðu ekki fundið neina spillingu í fari hans og því slapp hann. Abraham þessi var lengi forseti lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu. En hvernig fór safnaðarstarfið fram í öll þessi ár meðan kirkjan mátti í raun ekki hafa neina starfsemi með höndum? Ofsóknir og fangelsanir „Það gekk furðu vel í Waddera og meðal annars vegna þess að við áttum þar menn eins og Aga. Hann var klæðskeri og ég kynntist hon- um á fyrri árum mínum í héraðinu þegar hann gekk til liðs við kristni- boðið og kirkjuna og gerðist prédik- ari. Hann hringdi gömlu kirkju- klukkunni á messutíma þegar kirkjunni hafði verið lokað og aðrir starfsmenn voru famir frá Wadd- era og og þá kom fram hópur safn- aðarbama sem hafði alltaf sótt guðsþjónustur. Aga var eins og hirðir safnaðarins á þessum tíma, hélt hópnum saman í öll þessi ár. Það sýndi mér hversu sterka trú fólkið átti þrátt fyrir hættu og jafn- vel ofsóknir og fangelsanir. Það hélt áfram að koma saman og en við kristniboðamir vorum beðnir um að snúa heim.“ Morgunblaðið/Sverrir Metfjöldi kristniboða að starfi HELGI Hróbjartsson kristniboði (t.v.) er nú á leið til Eþíópíu á ný eftir stutt frí síðustu vikurnar. Skúii Svavarsson formaður Samband ísl. kristniboðsfélaga segir að starfið á árinu kosti kring- um 17 milljónir króna. Helgi segir að nokkur órói sé enn í landinu og víða hafi ræningj- ar setið um ferðalanga. Hann seg- ist þó sjálfur hafa sloppið en oft heyrt um bíla sem voru stöðvaðir og rændir rétt áður eða rétt eftir að hann fór um sama veg. „Einu sinni var ég þó stöðvaður. Með mér var fyrrverandi eþíópskur hermað- ur. Það gerðist þannig að allt í einu stóð maður með byssu framan við bílinn, miðaði á okkur og skipaði okkur að stöðva og hef ég aldrei séð eins greinilegan morðsvip í augum nokkurs manns og þama. Maðurinn sem var með mér heils- aði strax á máli innfæddra og byssumaðurinn vildi þá vita hver ég væri. Samferðamaðurinn minn sagði honum það og þá heyrðist kallað utan úr skóginum að við mættum fara. Ég lít á þetta sem varðveislu Guðs á ferðum mínum.“ Helgi segir að í Waddera-héraði séu nú 33 kirkjur starfandi og nýjar séu stöðugt að bætast í hópinn. Nokkrir erfiðleikar voru í héraðinu á liðnum vetri vegna hungursneyð- ar en ástandið er mun betra núna. Um þessar mundir eru 11 kristniboðar starfandi í Eþíópíu og Kenýju á vegum Sambands ísi. kristniboðsfélaga og eru þeir fleiri nú en nokkru sinni. Síðast bættust í hópinn hjónin Elísabet Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og Bjarni Gíslason kennari sem ráðinn er til kennslustarfa við skóla kristniboðs- ins í Addis Abeba. Þar eru nú kringum 40 nemendur, þar af 8 íslenskir og hefur Bjami m.a. með höndum íslenskukennslu fyrir þau. Starf Kristniboðssambandsins á þessu ári mun kosta kringum 17 milljónir króna og vantar um þess- ar mundir ennþá um 11 milljónir á að endar nái saman á þessu ári. jt Ný barnaföt með 15% afslætti VERSLUNIN Stjörnur, Laugavegi 89, býður viðskiptavinum sínum að koma með notuð föt, sem eru heil og hrein, og fá 15% afslátt af sambærilegri nýrri vöru. Fatn- aður sem safnast rennur til hjálp- arstarfs Rauða krossins. í fréttatilkynningu segir að í fata- söfnunum Rauða krossins hafi ávallt safnast vel en einhverra hluta vegna minna af barnafatnaði, sem þó sé mikil þörf fyrir, sérstaklega á átaka- svæðum víða um heim og í þróunar- löndum. Fólk sem vill taka þátt í þessu átaksverkefni getur gefið göm- ul föt til Rauða krossins án þess að kaupa ný. Sigrún _ Árnadóttir framkvæmda- stjóri RKI og Kristín Kvaran kaup- maður verða til viðtals í versluninni í dag frá klukkan 14.30 - 15.30. Söfnunin stendur til 1. nóvember. -----♦ ♦ ♦---- Danskeppni atvinnumanna Lamb - hjón- in meistarar HEIMSMEISTARAKEPPNI í 10 dönsum atvinnumanna fór fram á Fountain Blue hótelinu á Miami á Flórída á sunnudag. Heimsmeist- arar urðu Englendingarnir Martin og Alison Lamb, sem hafa verið reglulegir gestakennarar við Nýja Dansskólann og eru væntanleg hingað til lands í lok mánaðarins. Fulltrúar íslenskra atvinnudans- ara á mótinu voru Haukur Ragnars- son og Esther Níelsdóttir. Þeim gekk vel í keppninni, en vantaði örfá stig til að komast í íjórðungsúrslit. saetin til Kanan læqra verbi en 'fytra _ —-—■ ■■■ LJ í fwi'ir iiaIi n'inn 4 ÍT O O * G /\ /-vr* l/Amínn I ll Kanaríbæklingur Heimsferða fyrir veturinn 1993-‘94 er kominn út. Okkur er ánægja að kynna frábæra nýja valkosti í gistingu og hreint ótrúlega hagstæð kjör, því með einstökum samningum okkar, hefur okkur tekist að lækka verðið frá því í fyrra, jafnvel í krónum talið og er verðlækkunin allt að 18% á milli ára. Þeir sem bóka og staðfesta ferðina fyrir 1. október, eða fyrstu 250 sætin, njóta þessara sérkjara. 6. janúar - 3 vikur 43.900, 4.v. hjón með 2 börn, 2—11 56.800, pr. mann. M.v. 2 í ibúð. Verðfrákr. TWliíVVj' pr. mann. M.v. hjón með 2 börn, 2—11 ára. Verð kr. Jólaferð 17. des. - 20 dagar 59.800,- M.v. hjón meö 2 böm, 2-11 árs 75.200, Verð frá kr.' pr. mann. M.v. hjón meö 2 böm, 2-11 árá. Verð kr. pr. mann. M.v. 2 i íbúð, Las Isas. Fyrsta 250 sertln á scrillboði StiltH hfiit* d ktjpl tvril ! vmaaéfi Maxiun idtJhjpdS n ifM, trUo Hwd'td*i iW SOb ». KMtriíjjd tj tKfidi 4 ifX Ifd Mdf ririiheritr-itmf va v/M.*- k-m ‘Wtj .V>Min'infj(ll«>.i,;^.lfi^tfe potddt *w imp vi ptifcm n)pt ■aOnti ( itiLl IVufljWf ydfd rindrtut m’iíU’ titvt A- lum feijtt* i riif wpm ti Knrri. t,jvdt, em UdMdUdt^He-iiiMlKMdtJrrit ^ltihdattMlrdJhkpiyabvrf, it « Uiajymtúvi 1W M mt JrKd . 18% J HEIMSSEKÐIR Hf. VSvaUAVÍK •" *rái. ,, air europa TURAUIA VISA HEIMSFERDIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 þatt í Elitekeppni LOVÍSA Guðmundsdóttir tók þátt í Elite keppninni á Flórída um helgina en komst ekki í úrslit. Lovísa komst ekki í úrslit Elitekeppmnnar LOVÍSA Guðmundsdóttir, 18 ára stúlka frá Keflavík, sem tók þátt í alþjóðlegu Elite keppninni „Look of the year“ í Florida um heigina komst ekki í úrslit. Um sjötíu stúlkur tóku þátt í keppninni og var það stúlka frá Danmörku sem vann til fyrstu verðlauna sem eru 150 þúsund Bandaríkjadalir auk samnings um fyrirsætustörf. Að sögn Auðar Bjarkar Guð- lega. Allar stúlkurnar sem komast mundsdóttur hjá íslenskum fyrir- sætum komust sautján stúlkur í úrslit nú og er það það óvenju- margt. Hún sagði að Lovísa hefði fengið tilboð um fyrirsætustörf á Ítalíu, í Griklandi og Þýskalandi og héldi hún væntanlega til Ítalíu fljót- úrslit fá tveggja ára samning um fyrirsætustörf auk verðlaunafjár. Sú sem lendir í öðru sæti fær 100 þúsund dali, sú í 3. sæti 75 þúsund dali og aðrar stúlkur sem komast í úrslit 50 þúsund dali. Fundur um Stafafellsfjöll FUNDUR um Stafafellsfjöll í Loni verður haldinn laugardaginn 18. september kl. 14 að Hótel Höfn. Til fundarins er boðað af Ferðaþjónustunni Stafafelli í samvinnu við áhugamenn um vernd- un og skipulag Lónsöræfa. Fimm framsögumenn taka til máls á fundinum. Gunnlaugur Ólafsson talar um ferðaþjónustu, friðland og sumarbústaðabyggð í Lóni. Skarphéðinn Þórisson fjallar um náttúruvernd og Lónsöræfí. Höskuldur Jónsson taiar um stefnu Ferðafélags íslands. Hjör- leifur Guttormsson talar um Lóns- öræfi sem friðland og útivistar- svæði og Gísli Gíslason talar úm skipulag fiðlands að Fjallabaki. Einnig verður fjallað um skipulag og hagsmunamál sumarbústaða- byggðar í Stafafellsfjöllum. í lok fundarins verða fyrirspurnir og umræður. Allir eru velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.