Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 34

Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 Dæmi: KGV2601 150 sm Stgr. verð 58.333, BOSCH BOSCH BOSCH Jóhann Olafsson & Co Og þá hló marbend- ill í fjórða sinn a _ Islenskur landbúnaður / Byrði eða bjargvættur? eftir Erlend Arna Garðarsson Munið þið eftir sögunni um mar- bendil sem hló að heimsku manns- ins? Fyrst datt maðurinn um þúfu ■^og bölvaði þúfunni, þá hló marbend- ill í fyrsta sinn því þúfan hafði að geyma gullsjóð. Þá lét hundur mannsins vel að honum, en maðurinn kastaði honum frá sér, þá hló mar- bendill enda skildi maðurinn ekki trygglyndi skepnunnar. í þriðja sinn hló marbendill þegar maðurinn lét sér vel líka kjass og fleðulæti konu sinnar, sem var bæði fölsk og fláráð. Þessi saga hefur komið æ oftar upp í huga minn síðustu vikur vegna þeirra miklu umræðna sem átt hafa sér stað um íslenskan landbúnað. Eins og oft vill verða þegar menn deila um málefni festist umræðan oft í einkennilegu svart/hvítu fari. Nauðsynleg skoðun á endurbótum ^gamals kerfís sem ekki gekk Ieng- ur, viðurkenning á vanhæfni einok- unarfyrirtækja til að standa að öflugu markaðsstarfi og skilningur á að bændur voru að sligast undan ýmsum milliliðakostnaði hefur vikið fyrir alhæfingum um að veita óhefta samkeppni og jafnvel raddir um að best sé að leggja íslenskan landbún- að niður. Ég ætla ekki að bæta við þær fjölmörgu greinar og fréttir um landbúnaðarkerfið sem slíkt og hvort þetta eða hitt eigi að vera á þennan eða hinn mátann. Mig langar þó að ^/ekja athygli á einum þætti sem mér hefur fundist hafa gleymst í umræðunni. Það er sú staðreynd að íslenskar landbúnaðarafurðir eru meðal þeirra hreinustu og ómenguð- ustu í heimi. Sjálfsagt fínnst mörg- um það léttvægt þegar krónur og aurar eru annarsvegar. En er það virkilega svo? Varúð, kjötið getur verið banvænt Mengun matvæla er í dag raun- veruleiki en ekki einhver hræðileg framtíðarsýn. Notkun lyfja, eiturs, hormóna og gríðarleg mengun vatns hefur orðið til þess að vestræn ríki standa gagnvart gífurlegum vanda. ■•Samhliða' síauknum upplýsingum um hvaða aukaefni eru í matvælum hafa neytendur einnig verið fræddir um hvaða áhrif þessi efni hafa á lík- amann. Fúkkalyfjagjafir mjólkurkúa hefur t.d. orðið til þess að víða er- lendis eru böm frá unga aldri á stöð- ugum fúkkalyfjakúr. Læknar og vís- indamenn óttast mjög afleiðingar þessa og sem dæmi um óheppilega þróun í þessum efnum má benda á þá uggvænlegu staðreynd að í októ- ber nk. munu bandarísk heilbrigðis- yfirvöld fara fram á að allt hrátt kjöt verði merkt með viðvörunar- límmiðum. Ástæðan er ný tegund fúkkalyfjaþolinna saurgerla sem búpeningur, á stöðugum lyfja- skömmtum, hefur þróað með sér (E Coly 0157). Þegar þessi gerill berst í mannfólk getur ekkert lyf slegið á virkni hans. Nú þegar hafa þó nokkr- ir látist og þúsundir veikst. Við erum það sem við etum Þessi örfáu orð eru til að undir- strika það mat erlendra sérfræðinga að íslenskir búskaparhættir eru með vistvænni búskaparháttum í heimi, ef ekki einstakir. Þessir sömu sér- fræðingar teija að kringumstæður hér séu það sérstakar að trúlega geti fáar eða engin þjóð keppt við okkur varðandi hreinar afurðir. Sem dæmi um fullyrðingar um innihald kjötafurða, sem íslendingar geta staðið við, eru: * Engar lyfjaleifar. * Engar hormónaleifar. * Engar skordýraeitursleifar. * Engar illgresiseiturleifar. * Engir fúkkalyfjaþolnir gerlar. Nú eru bændur víðsvegar um heiminn að beijast við að mæta stöð- ugt aukinni eftirspurn eftir vistvæn- um vörum. Sem dæmi um sérstæðni okkar á íslandi þá hafa þessir er- lendu bændur lagt mikið á sig til að tryggja aðeins tvö fyrstu ofan- greindra atriða. í velflestum tilfell- um dreymir þá ekki um að glíma við skordýra- og illgresiseiturleifar í kjöti. Sem fyrr segir er eftirspurn eftir hreinum vörum að stóraukast og má til dæmis benda á þróun í Hollandi í þeim efnum. Fyrir tveimur árum voru aðeins tvær kjötverslanir í Hollandi sem sérhæfðu sig í vist- vænni vöru. Nú, tveimur árum seinna, eru þær yfir 100. Það sem vekur einnig athygli er að þessar verslanir bjóða vöru sína á 15-25% hærra verði en aðrar kjötverslanir. Þessar verslanir sjá fram á mikinn skort á hráefni vegna síaukinnar eftirspurnar neytenda. Á næstu árum mun eftirspum aukast eftir vistvænum (hreinum) vörum, en eðli málsins vegna mun framleiðsla ekki geta fylgt þessari aukningu. Þetta þýðir aðeins eitt: Verðhækkun. Þegar rætt er um heimsmarkaðsverð á landbúnaðar- afurðum þá eru sérvörur, eins og þær vistvænu, ekki á því verði. Það væri fróðlegt að vita hvort íslenskur almenningur flykktist útí búð til að kaupa kjöt sem væri merkt með við- vörunarlímmiðum. Ég held ekki. Einnig væri fróðlegt að vita hvaða innihaldsreglur íslensk yfirvöld ætla að setja varðandi væntanlegan inn- flutning á landbúnaðarafurðum. Verður t.d. gerð krafa um að ekki sé skordýraeitur eða hormónaleifar í innfluttum matvælum? Og þá hlær marbendill í fjórða sinn Samkeppni er holl, einokun er Erlendur Árni Garðarsson „Mengnn matvæla er í dag raunveruleiki en ekki einhver hræðileg framtíðarsýn. Notkun lyfja, eiturs, hormóna og gríðarleg mengun vatns hefur orðið til þess að vestræn ríki standa gagnvart gífur- legum vanda.“ óholl. í þessum frasa býr mikill sann- leikur, en sem fyrr er varasamt að alhæfa. Óheft fijálsræði getur hrein- lega verið hættulegt. Okkur dytti t.d. ekki til hugar að veita kvik- myndahúsum eða sjónvarpsstöðvum algjört fijálsræði í vali á myndum til að sýna börnum okkar. Það er ekki vegna þess að við treystum ekki þessum aðilum, nei, við viljum setja varnagla. Við setjum varnagla víða svo að samfélagið og umhverfíð verði okkur ekki hættulegt. Var- nagla er nauðsynlegt að negla þegar skoðaður er innflutningur á matvæl- um. Ekki er úr vegi að benda á að nýjustu upplýsingar benda til að útlendingar horfí einmitt á þessar hreinu vörur okkar ágirndaraugum. Fyrir stuttu kom til landsins Mich- elle Da Via, en hún kom frá Banda- ríkjunum til að skoða möguleika á að fá íslenskar landbúnaðarvörur samþykktar í Bandaríkjunum sem vistvænar. Þegar hún var búin að kynna sér landbúnað hér á landi sagði hún eftirfarandi: „Það er dálít- ið skrítið að við Bandaríkjamenn sem höfum talið okkur þróaðasta land- búnaðarveldi í heimi skulum líta á ykkar framleiðslu með öfundaraug- um. Það er engin furða þó þið íslend- ingar skulið verða svona fjörgamlir þegar þið borðið jafnhreina og holla matvöru." Það er skoðun mín að á næstu árum mun aukin eftirspurn eftir hreinum, vistvænum matvörum verða til þess að íslenskar landbún- aðarafurðir verði ekki aðeins eftir- sóttar heldur munu erlendir neytend- ur vera tilbúnir að greiða hátt verð fyrir þau forréttindi að fá að borða þessa vöru, en það fer að sjálfsögðu eftir því hvort ennþá verði stundaður landbúnaður á íslandi. Það er skoðun margra, og ekki aðeins íslendinga, að íslenskur landbúnaður geti orðið að verðmætri viðbót í útflutnings- flóru landsins. Ég vona að heitar umræður um landbúnað verði ekki til þess að marbendill fái enn eina ástæðuna til að hlæja. HSfundur er framkvæmdastjóri Kaupsýslunnar hf. og hefur unnið við markaðsöflun á íslenskum landbúnaðarvörum erlendis. Eru þeir að eta útsæðið? eftir Sigurð S. Bjarnason Undanfamar vikur hefur átt sér stað allmikil umræða og blaðaskrif um leiðir til nýsköpunar í atvinnulíf- inu og stöðu íslenskra hugvitsmanna í dag. Gera verður ráð fyrir því að ástæða þessarar umræðu sé í beinum tengslum við sívaxandi atvinnuleysi og nauðsynjar á uppbyggingu nýiðn- aðar á Islandi. Áðrar menningar- þjóðir en íslendingar hafa fyrir löngu áttað sig á kostum nýsköpunar sem einu raunhæfu leiðinni til útrýming- ar atvinnuleysis. Þær þjóðir hafa veitt fé í formi styrkja og áhættul- ána til hugvitsmanna í áratugi og uppskorið ríkulega í auknum at- vinnutækifærum og auknum tekjum fyrir sín þjóðarbú. I Danmörku, sem er nærtækasta dæmið fyrir okkur, er fullyrt að hver króna sem lögð er fram af stjórnvöldum til hugvits- manna skili sér til baka sem rúmlega sjötíu krónur í ríkissjóð. Góð fjárfest- ing það. Því miður hafa íslenskir ráðamenn ekki ennþá komið auga á þessa hagkvæmu fjárfestingu og einmitt þess vegna hafa íslenskir hugvitsmenn einfaldlega snúið sér annað. Þeir hafa selt hugmyndir sín- ar og uppfínningar, margar mjög snjallar, til framleiðenda erlendis. Auk þess hafa nokkrir íslenskir hug- vitsmenn flutt brott af landinu og gera það gott víða um heim. Þannig verður þetta áfram, nema stjórnvöld taki í taumana. Þegar þetta er skrif- að eru nokkrir félagar í Félagi ís- lenskra hugvitsmanna að semja eða leita samninga við erlenda fjárfesta um kaup á uppfinningum þeirra. Það er raunalegt á tímum atvinnuleysis að þurfa að horfa á eftir góðum hugmyndum út úr landinu, hug- myndum sem annars hefðu verið framleiddar hérlendis, öllum til heilla. Nú kann einhver að spyija: er ekki Iðnlánasjóður og Iðnþróunar- sjóður ásamt ótal mörgum öðrum sjóðum til þess að renna styrkari stoðum undir atvinnulífið í landinu? Því er fljótsvarað. í fyrsta lagi hafa þeir ekki yfir áhættulánsfjármagni að ráða. I öðru lagi kreflast þeir veðsetninga sem fæstir hugvitsmenn ráða við. I þriðja lagi virðist oft vera um geðþóttaákvarðanir sjóðsstjóma að ræða þegar lánsumsóknir eru afgreiddar. Nýlegt dæmi: Borgar- kringlan og fleiri mætti nefna. Það er því augljóst að við erum að missa af lestinni og við munum halda áfram að missa bestu hug- myndimar og hugvitsmenn úr landi ef ekkert verður að gert. Þetta er stórmál sem þolir enga bið með að verða afgreitt af viðkomandi stjóm- völdum. Á skrifstofum Félags íslenskra hugvitsmanna er geymdur fjöldi nýrra hugmynda sem trúlega mundu leysa atvinnuvanda þjóðarinnar ef fjármagn fengist til þess að hrinda þeim í framkvæmd. Til þess þarf að koma opinbert áhættulánsfjármagn eins og áður sagði. Varanleg atvinna er það sem Islendinga vantar og hún fæst aðeins með því að styrkja undir- stöður varanlegra framleiðsluat- Sigurður S. Bjarnason * „A skrifstofum Félag’s íslenskra hugvits- manna er geymdur fjöldi nýrra hugmynda sem trúlega mundu leysa atvinnuvanda þjóðarinnar ef fjár- magn fengist til þess að hrinda þeim í fram- kvæmd.“ vinnugreina. Hugmyndir og stór- snjallar uppfínningar eru fyrir hendi og ekki eftir neinu að bíða, nema vilji sé til þess að viðhalda núver- andi atvinnuleysi. Margnefndur milljarður sem átti að fara til atvinnuuppbyggingar samkvæmt nýgerðum kjarasamn- ingum virðist allur fara í skamm- tímaviðhaldsverkefni eða svokallaða atvinnubótavinnu sem trúlega verð- ur lokið fyrir næstu jól. Hvað tekur þá við? Þessi ráðstöfun á fjármunum minnir helst á bóndann sem át úts- æðið sitt. Það uppsker jú enginn sem ekki sáir. Nær hefði verið að styrkja íslenskar uppfínningar og koma þeim á framleiðslustig og skapa þannig varanlega atvinnu við smá- iðnað víða um land. Stóriðjudraumar stjómvalda breyttust eins og allir vita í slæma martröð, en benda má á gamalt máltæki sem segir: „margt smátt gerir eitt stórt“. í fyrsta sinn frá stofnum Félags íslenskra hugvitsmanna virðist nú hafa kviknað lítið Ijós í langvarandi myrkrinu. Nefnd um stuðningsað- gerðir við nýsköpun í atvinnulífinu skilaði áliti sínu á ríkisstjómarfundi þann 3. septmber sl. Tillögur nefnd- arinnar gera ráð fyrir því að komið verði á fót áhættulánasjóði ásamt ýmiss konar aðstoð við hugvitsmenn. Verði þessar tillögur samþykktar af stjómvöldum munu þær valda bylt- ingu fyrir íslenska hugvitsmenn, at- vinnulífið í landinu og síðast en ekki síst þjóðarbúið. Því eins og fyrr sagði er það reynsla annarra þjóða að það fjármagn sem lagt er fram til hug- vitsins skilar sér margfalt til baka. Það er von íslenskra hugvitsmanna að stjómvöld taki fullt tillit til nefnd- arálitsins og samþykki tillögur nefndarinnar hið fyrsta. Árið 1989 var lagt fram frumvarp á Alþingi um stofnun sérstaks áhættulánasjóðs sem íslenskir hug- vitsmenn gætu leitað til í þeim fil- gungi að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og á framleiðslustig. Frumvarpið varð aldrei að lögum og mun nú vera gleymt og rykfallið í skjalageymslum Alþingis. Ég vil leyfa mér að skora á hæstvirta þing- menn, þá sem áhuga hafa á að efla atvinnulífið í landinu, að dusta rykið af þessu frumvarpi og endurflytja það strax og Alþingi kemur saman. Við höfum ekki efni á því að halda áfram að éta útsæðið okkar. Höfundur er upplýsingafulitrúi Félags íslenskra hugvitsmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.