Morgunblaðið - 16.09.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 16.09.1993, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 Minning Arent Claessen framkvæmdasijóri Fæddur 1. apríl 1924 Dáinn 7. september 1993 Slit æviþráðarins verða ekki umflúin. Við andlát breytast ýmsir þættir í lífí fjölskyldna. Þeir sem eftir lifa verða að horfast í augu við vissar staðreyndir og tómarúmið er stórt. Fjölskylda og aðstandendur Arents Claessens standa nú frammi fyrir þessum raunveruleika. Barátta hans við alvarlegan sjúkdóm var orðin löng. Endalokin eru þó alltaf jafn óvægin. Arent naut mikillar og einlægrar umhyggju lækna og hjúkrunarfólks Landspítalans. Fyrir það þakkar fjölskylda hans af alhug. Lífsþræðir okkar Arents fléttuð- ust saman í hart nær fjóra áratugi. Við vorum svilar og vinir. Fjöl- skyldutengsl eru þýðingarmikil og dýrmæt en vinátta, og sá drengskap- ur sem henni fylgir, verður aldrei fullþökkuð. Við Arent tengdumst vináttuböndum. Fyrir það á hann meiri þakkir skildar en sá sem þetta ritar. Aldrei varð okkur sundurorða, þó að við værum ekki ávallt sam- mála um menn og máiefni. Um eitt atriði í lífi okkar vorum vð þó ætíð sammála, en það var að mikil gæfu- spor stigum við þegar við giftumst sytrunum Sigurlaugu og Ragnheiði, dætrum Línu og Sigurðar S. Grön- dal. Fjölskyldutengslin við þau hjón- in, syni þeirra og þeirra fjölskyldur mátum við mikils. Nú stendur sæti Arents við það fjölskylduborð autt. í það getur enginn sest. Haft er á orði, að bamsaugun og barnssálin skynji innsta eðli manns- ins betur en fullorðnir. Börnin eru mörg í fjölskyldum okkar Arents, og áttu það sammerkt að laðast að honum. Þau sáu hið góða sem í hon- um bjó og fundu hlýju, einlægni og alúð. Þessa nutu ekki síst dætur hans, Hjördís og Hildur, í ríkum mæli og síðar synir þeirra. Það er ekki algengt að grunnt sé á þessum góðu eiginleikum hjá mönnum með jafn höfðinglega og fágaða fram- komu og Arent hafði til að bera. Þau voru glæsileg á velli hjónin Sig- urlaug og Arent. Frá þeim stafaði umhyggja og birta. Það er ekki ætlan mín með þess- um kveðjuorðum að rekja einstaka atburði eða þætti frá hinum fjöl- mörgu samverustundum okkar Ar- ents, enda þótt af mörgu og ágætu sé að taka. Minningamar frá þeim mun ég gleyma með þakklæti og virðingu fyrir vini mínum og svila, Arent Claessen. Við Ragnheiður sendum Sigurlaugu, bömum og öðr- um aðstandendum samúðarkveðjur. Birgir Þorgilsson. Þegar andlátsfregn vinar og venslamanns berst, stöðvast hjól hversdagslífsins í einni svipan og taka að snúast aftur á bak hægt og hikandi. Minningar um hinn látna vekja til lífsins horfna daga og um- hverfí sem ekki er lengur til. Á hernámsárunum sælu, mesta breytingaskeiði í sögu íslensku þjóð- arinnar, stóð bemskuheimili fjöl- skyldu minnar vestur á Melum í Reykjavík á efri hæð hússins Skál- holti sem umlukt var hermanna- bröggum og aðskiiið frá þeim með himinhárri gaddavírsgirðingu. Til að komast að húsinu þurfti að beygja fram hjá skýli þar sem vopnaðir hermenn stóðu vörð dag út og dag inn og aka síðan upp afleggjara frá Kaplaskjólsvegi. Þegar ég var að leik við skýlið, sjö ára gamall snáði, bar það oft við að svartur fólksbíll af Buick-gerð stansaði, rúða var dregin niður og til mín kallað: „Viltu sitja í?“ Leikbræður mínir litu mig öfund- araugum, er ég sté upp í glæsivagn- inn og fékk að aka stuttan spöl með verðandi mági mínum, Arent Claess- en yngri. Þetta var upphafíð að ævilöngum kynnum okkar, og mig langar til að þakka fyrir þau fáum orðum að leiðarlokum. Arent Claessen fæddist 1. apríl árið 1924 og var því 69 ára gamall er hann lést. Foreldrar hans voru Arent Claessen, stórkaupmaður og t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, RÓSAMUNDA HERMANNSDÓTTIR, Rauðalæk 39, sem lést á heimili sínu 7. september verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 17. september kl. 15.00. Sigurgeir Jónsson, Viðar Sigurgeirsson, Áslaug Pétursdóttir, Jakobína G. Sigurgeirsdóttir, Sigurgeir Birgisson, Stella Þórisdóttir, Pétur Viðarsson, Rósa Viðarsdóttir, Jóakim ÞórGrue, og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, ARNÓR LÚÐVÍK SIGURÐSSON skipstjóri, Fjarðarstræti 17, ísafirði, lést í sjúkrahúsinu (safirði þriðjudaginn 14. september. Hulda Jónsdóttir, Gunnar Arnórsson, Jóna Arnórsdóttir, Sigurður Arnórsson, Sölvi Arnórsson, Marinó Arnórsson og barnabörn Guðmunda Bæringsdóttir, Sigurbjörg Þorkelsdóttir, Gunnar M. Gunnarsson, Sandra Arnórsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, t Móðir mín og tengdamóðir, GUÐRÚN FR. GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. september kl. 15.00. Njáll Þorsteinsson, Lovísa M. Marinósdóttir. aðalræðismaður (1887-1968), og kona hans, Helga Kristín (1889- 1962), dóttir Þórðar Guðmundssonar verslunarmanns frá Hól í Reykjavík. Arent eldri gerðist ungur fulítrúi hjá fyrirtækinu 0. Johnson & Kaaber, en varð síðan einn af eigendum þess, forstjóri og stjómarformaður. Hann var sonur Valgards Claessens og síðari konu hans, Önnu Möller. Valg- ard var fæddur í Danmörku, en sett- ist að hér á landi, var fyrst kaupmað- ur á Sauðárkróki, en síðan landsfé- hirðir í Reykjavík. Hálfbræður Ar- ents eldri voru Eggert Claessen málflutningsmaður og Gunnlaugur Claessen yfirlæknir. í æsku kom ég á heimili þeirra mætu hjóna Helgu og Arents Claess- ens á Laufásvegi 40 og einnig í sum- arbústað þeirra á Þingvöllum. Sann- kallaður menningarbragur ríkti í rík- mannlegum húskynnum þeirra og þar var gestum sýnd meiri rausn og alúð en ég hafði áður kynnst. Þeim hjónum varð fímm barna auðið. Elstur var Jean, fram- kvæmdastjóri Kaffíbrennslu 0. Johnsons & Kaaber, en hann kvænt- ist Jóhönnu Guðbjartsdóttur; önnur í röðinni var Sigríður, sem giftist Þórði Þorbjarnarsyni fískifræðingi; þriðji var Haukur, lögfræðingur og varaflugmálastjóri, sem kvæntist Guðrúnu Ambjarnardóttur, en hann lést sviplega í flugslysi 26. mars 1973; næstyngst er Helga, gift Frið- riki Dungal, en hún er nú ein á lífi af systkinunum fímm, og yngstur var Arent sem jarðsunginn er í dag. Arent Claessen og Sigurlaug Gröndal giftu sig að stríðinu loknu, hinn 3. nóvember 1945. í brúðkaup- inu var hlegið að mér, sakleysingjan- um, þegar ég heimtaði að systir mín kæmi aftur heim í Skálholt og héldi áfram að eiga þar heima, þótt hún væri gift. Ungu hjónin hófu búskap sinn erlendis en fluttust á Vatnsnesveg 11 í Keflavík 1947, og undu þar hag sínum vel. Síðar bjuggu þau í Reykjavík, lengst af við Flókagötu og í Rauðagerði. Arent var útgerðar- maður um árabil, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur, en gerðist síðan stórkaupmaður. Hann var athafnamaður af lífí og sál og viðskipti og framkvæmdir áttu hug hans allan. Áhugi hans á tæknileg- um nýjungum, sem til framfara horfðu, var jafnan mikill og oft var hann fljótur að tileinka sér þær. Arent var fríður sýnum og líktist mjög föður sínum í útliti; yfírbragð- ið höfðinglegt, svipurinn hreinn og lundin létt. Honum léku ævinlega spaugsyrði á vörum og nærvera hans hafði þægileg og uppörvandi áhrif. Fátt var Arent dýrmætara en heill og hamingja fjölskyldunnar; því kynntist ég vel, er ég bjó andspænis honum á Flókagötu, ungur mennta- skólanemi í föðurhúsum. Umhyggju hans og nærgætni nutu vel dætur hans og Sigurlaugar, en þær eru tvær: Hjördís, lyfjafræðingur, gift Jóni Eyjólfí Jónssyni lækni, og Hild- ur, skrifstofutæknir, en maður henn- ar er Skapti Steinbjörnsson og búa þau myndarbúi á Hafsteinsstöðum í Skagafirði. Síðustu tólf ár ævi sinnar átti Arent við alvarleg veikindi að stríða og þurfti oft að dveljast langdvölum á sjúkrahúsum. Undravert var, hve vel og karlmannlega hann bar sjúk- leika sinn; jafnvel nokkrum dögum áður en hann lagðist banaleguna var hann hress í bragði og æðraðist ekki. Ég vil ljúka þessum fáu línum með því að votta systur minni, dætr- um hennar og fjölskyldum þeirra innilega samúð okkar hjóna og kveð Arent Claessen hinstu kveðju með orðum Einars Benediktssonar skálds: Að eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þunp greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. Gylfi Gröndal. t Okkar kaera systir, mágkona og frænka, ÁGÚSTA SVEINSDÓTTIR, Miðtúni 3, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 16. september, kl. 15.00. Sigurjón Sveinsson, Halla Hersir, Edda Sigurjónsdóttir, Viðar Sigurjónsson, Selma Abasí, Ómar Sigurjónsson, Sveinn Sigurjónsson. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN JÓHANNESSON byggingameistari, Patreksfirði, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 18. sept- ember kl. 14.00. Erla Guðjónsdóttir, Friðrik Vagn Guðjónsson, Kristin S. Ámadóttir, Hermann Guðjónsson, Bertha S. Sigurðardóttir, Guðjón Jóhannes Guðjónsson, Vivienne Iverson, Björgvin Guðjónsson, Hjördís Hjartardóttir, Dýrleif Guðjónsdóttir, Óðinn Þórarinsson og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÖRUNDURPÁLSSON arkitekt, verður jarðsunginn föstudaginn 17. september nk. frá Hallgríms- kirkju kl. 13.30. Guðrún Stefánsdóttir og börn. Arent Claessen stórkaupmaður fæddist 1. apríl 1924. Hann andað- ist 7. september sl. Foreldrar hans voru Arent Claessen stórkaupmaður og kona hans Helga Þórðardóttir. Börn þeirra voru fimm, tvær stúlkur og þrír drengir. Arent byijaði ungur að starfa við ( verslun föður síns. Þá hóf hann nám í Verslunarskóla íslands og lauk prófí þaðan. Vann hann fyrst nokkuð ( sjálfstætt við heildsölu, en fljótlega tók hann þá stefnu að starfa við fisk- verkun og útgerð. | Árið 1947 flyst hann með konu sinni til Keflavíkur. Það má segja, að þessi breyting á störfum hans hafí orðið honum sem eins konar. nýr skóli. Hann var fljótur áð setja sig inn í hinar ýmsu fískverkanir, salt eða frystingu og útgerð. í þessu sambandi hafði hann með frystihús að jgera. Arið 1960 breytir hann aftur til og flyst til Reykjavíkur. Tekur upp þráðinn þar sem fyrr var frá horfíð, heildsölu. Var ekki annað að sjá, en að lífið mundi blasa við honum. Hann var kominn með mikla lífs- reynslu og var sjálfur á góðum aldri. . Nokkru síðar fór að bera á því, að hann gengi ekki heill til skógar. ( Leitað var lækninga, bæði hér heima og erlendis. Bati fékkst um nokkra stund, og bjartar vonir, en svo sæk- ( ir í gamla farið. Vonir bregðast og aftur eru læknarnir að lækna, og vonin kemur aftur — og aftur bregð- ( ast vonir. Batinn stendur alltaf svo stutt, að ekki vinnst tími til að takast á við lífið sjálft og störf. Svona vonir og vonbrigði geta myndað sálarstríð, ef sjúklingurinn er^kki því sterkari. í samtölum við Arent, hvort held- ur hann var í lægð eða hæð líkam- lega eða andlega séð, var hann allt- af jafn bjartsýnn og gerði ráð fyrir að þetta mundi lagast fljótlega. Ég tel líkur á því, að einmitt þessi bjart- sýni hans hafí gefíð honum lengra líf — sem um leið gaf honum tæki- færi til að auka yfírsýn yfír hið margbreytilega líf okkar allra. Á svona erfiðum tímamótum vilja margir bugast og falla fyrir aldur fram vegna svartsýni. Ég tel að Arent hafí staðist þetta próf. Arent var mjög góður í allri við- I kynningu og gaman að ræða við hann um hin ýmsu mál. Arent var kvæntur Sigurlaugu | Gröndal. Hún var hans stoð og stytta. Sigurlaug var venjulega köll- uð Laulau. Hún er kona sérstaklega mikið þroskuð, ég vil segja svo að af ber. Það er ánægjulegt að ræða við Laulau, hún er einhvern veginn þannig, að maður fer sem betri maður af hennar fundi, það er eins konar andleg hressing. Þau hjón eignuðust tvær fóstur- dætur og hafa þær orðið þeim mikið gleðiefni. Meðan þau hjónin bjuggu í Keflavík mynduðust með okkur sterk vináttubönd sem við af alhug þökkum. Blessuð sé minning Arents. Huxley Ólafsson. ERFIDRYKKJUR * Verð frá kr. 850- P E R L A ín sími 620200 Erfidrykkjur Glæsileg kiiiii- IilaðÍKirð íidlegir sídir og mjög góö þjónustit Uþplýsingar í sínta 2 23 22 0 , FLUGLEIDIR Utel uminiK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.