Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA
f
UEFA-keppnin
Trabzon, Tyrklandi: AHHk
Trabzonspor - Valetta, Möltu.......3:1
Bistrita, Rúmeníu:
Bistria - Branik (Slóveníu)........0:0
Kocaeii, Tyrklandi:
JKocaelispor - Sporting Lissabon....0:0
Bratislava, Slóvakía:
Slovan - Aston Villa...............0:0
Plovdiv, Búlgaría:
Botev - Olympiakos Piraeus..........2:3
Dortmund, Þýskalandi:
Borussia Dortm. - Spartak Vladikavkaz
(Rússl.)........................0:0
Moskva:
Torpedo - Maecabi (fsrael)..........1:0
Prag, Tékklandi:
Slavia - OFI (Grikklandi)..........1:1
Norrköping:
Norrköping — Mechelen (Belgíu)......0:1
- Alex Czemiatynski (45.). 5.557.
Vaxjo, Svíþjóð:
Östers IF — Kongsvinger (Noregi)....1:3
Niclas Persson (36.) - Amfinn Engerbakk
(33.), Caieb Francis (57.), Geir Frigard
(59.). 1.956.
Rómaborg, Ítalíu:
Lazio - Lokomotiv Plovdiv (Búlgaríu)2:0
Casiragbi..(22.)r.C£av££a.(554.ú5J}00...
Kaupmannahöfn:
Bröndby - Dundee Utd. (Skotl.)......2:0
Kim Vilfort (20.), Kristensen (46.) 5.756
Bologna, ítallu:
Juventus - Lokomotiv Moskvu (Rússl.)3:0
Baggio..2.(A9r..86.),.Ravaiu?IJi463.).dj0-000
Enscbede, Hollandi:
FC Twente - Bayem MUnchen...........3:4
Michel Boerebach (64.), Prince Polley (70.),
Edwin Vurens (75.) - Markus Schupp (11.),
Christian Ziege 2 (27., 90.), Mehmet Scholl
(65.) 18.000
Mílanó, Ítalíu:
Inter - Rapid Búkarest (Rúmeníu)....3:0
Denis Bergkamp 3 (11., 66., 78.) 25.000
HNorwich, Englandi:
Norwich City - Vitesse (Hollandi)...3:0
Efan Ekoku (51.), Jeremy Goss (68.), John
Polston (71.) 16.818
Tenerife, Spáni:
Tenerife - Auxerre (Frakklandi).....2:2
Antonio Pinillá (19., vsp.), Felipe (70.) -
Pascal Vahima (16.), Moussa Saib (21.)
Evrópukeppni
bikarhafa
Craiova, Rúmeníu:
Craiova - HB, Færeyjum...............4:0
Sofia, Búlgaríu:
CSKA Sofía - BalzersýLith.st.).......8:0
Aþena, Grikklandi:
Panathanikos — Shelbourne (frl.).....3:0
Donis (12.), Saravakos (37.), Warzicha
(48.). 30.000.
Kosice, Slóvakíu:
FC Kosice — Besitkas (Tyrkl.)........2:1
Madrid, Spáni:
Real Madrid - Lugano (Sviss).........3:0
Peter Dubovsky (45.), Michel Gonzalez (67.,
vsp.), Walter Femandez (70., sjálfsm.)
37.600
Lissabon, Portúgal:
Benfica - GKS Katowice (Póllandi)....1:0
Osló, Noregi:
Lilleström - Tórinó..................0:2
- Andrea Silenzi (26.), Robert Jami (58.)
5.056
Liege, Belgíu:
■ Standard Liege - Cardiff (Wales)....5:2
Roberto Bisconti (13.), Marc Wilmots 2
(63., 84.), Andre Cruz (71., vsp.), Patrick
Asselman (76.) - Tony Bird 2 (39., 62.)
Innsbruck, Austurríki:
Innsbruck - Ferencvaros (Ungverjal.)3:0
Daiu?k,J48.),..ffiestezthaler.45&.),.Gamacedo
(65.) 7.500
Óðinsvéum, Danmörku:
Odense BK - Arsenal (Englandi).......1:2
Martin Keown (18., sjálfsm.) - Ian Wright
'(35.), Pau! Merson (68.) 9.580
Akranes - Feyenoord 1:0
Laugardalsvöllurinn, Evrópukeppni meistara-
liða — fyrri leikur, 1. umferð, miðvikudagur
15. september 1993.
Aðstæður: Logn og hlítt í veðri. Leikið á
góðum^velli í flóðljósum.
Mark IA: Ólafur Þórðarson (74. mín.).
Ahorfendur: 6.327 greiddu aðgangseyri.
Mesta aðsókn á Laugardalsvellinum síðan
1990, þegar Island og Frakkland iéku í Evr-
ópukeppni landsliða.
Gul spjöld: Sigursteinn Gíslason (72. mín. -
brot), John van Loen (49. mín., brot).
Dóinari: Vaska, Ungverjalandi.
Lið ÍA: Kristján Finnbogason — Sturlaugur
Haraldsson, Lúkas Kostic, Ólafur Adolfsson,
Sigursteinn Gíslason, Ólafur Þórðarson, Sig-
urður Jónsson, Alexander Högnason, Harald-
ur Ingólfsson — Mihajle Bibacic, Þórður
Guðjónsson.
Lið Feyenoord: De Goey, Refos, De Wolf,
Metgod, Maas, Bosz, Scholten, Tauhent, Van
Loen, Rob Witschge, Amar Gunnlaugsson.
Ætlum að bijóta blað í sögu KR
- sagði þjálfari KR, um Evrópuleikinn gegn MTK kl. 17.30 á KR-velli ídag
KR og MTK frá Búdapest í Ungverjalandi eigast við ífyrri leik
sínum í 1. umferð íUEFA-keppninni á KR-velli ídag kl. 17.30.
Ungverska liðinu hefur gengið illa það sem af er deildarkeppn-
inni í heimalandinu, hefur aðeins þrjú stig eftir þrjú jafntefli og
tvö töp. Möguleikar KR-inga ættu þvi að vara þó nokkrir. „Við
förum í þennan leik tii að sigra og brjóta þannig blað í sögu
KR-inga í Evrópukeppni," sagði Janus Guðlaugsson, þjálfari, en
KR hefur aldrei unnið leik í Evrópukeppni.
MTK er sögufrægt félag og er
105 ára á þessu ári. Þrátt
fyrir erfiðleika tveggja heimsstytj-
alda hefur MTK haldið uppi öflugu
íþróttastarfi í hinum ýmsu íþrótta-
greinum. Aðstaða félagsins hefur
ýmist verið brennd til grunna eða
skotin í tætlur, en félagið hefur lif-
að þetta allt af. MTK hefur einu
sinni leikið til úrslita í Evrópu-
keppni bikarahafa, en það var árið
1964. Liðið hefur nítjan sinnum
orðið ungverskur meistari, síðast
árið 1987.
KR-ingar komu saman í gær og
borðuðu kvöldmat á Naustinu og
síðan héldu þeir til Nesjavalla þar
sem þeir gistu í nótt og verða þar
fram að leik. Janus sagðist bjart-
sýnn fyrir leikinn. „Leikurinn leggst
vel í okkur. Þetta er tímamótaleikur
því þetta verður fyrsti heimaleikur
KR-inga í Evrópukeppni. Við teljum
okkur þekkja þetta ungverska lið
ágætlega því Atli Eðvaldsson og
Óskar Hrafn Þorvaldsson jóru til
Ungvetjalands á dögunum og sáu
liðið spila í deildarkeppninni og
hafa miðlað því sem þeir sáu til
okkar. Miðað við það eigum við
möguleika. Liðinu hefur ekki gegn-
ið vel í deildinni, kannski ekki ólíkt
okkur KR-ingum,“ sagði Janus.
Janus sagði að sínir menn færu
í þennan leik án allra hindrana og
ætluðu þeir sér að spila með tvo
leikmenn frammi og gaf hann til
kynna að Atli Eðvaldsson yrði
fremsti maður. „Ég á von á því að
Atli láti ljós sitt skína í leiknum
hvar svo sem hann verður á vellin-
um,“ sagði Janus.
Þjálfarinn sagði að KR-ingar
myndu tefla fram ungum og efni-
legum leikmanni, Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni, í fyrsta sinn í dag.
„Hann er aðeins sextán ára og er
í þriðja flokki. Þetta verður fyrsti
leikur hans með meistaraflokki og
það er ekki ónýtt að byija á Evrópu-
leik,“ sagði Janus. „Ætli við segjum
ekki að hann verði leynivopnið okk-
ar í leiknum."
Morgunblaðið/Sverrir
Slgurstelnn Gíslason átti mjög góðan leik í gær. Hann bar enga virðingu fyrir hollensku meisturunum og fór oft illa með þá eins og sést hér
á myndinni þar sem Rob Maas varð að játa sig sigraðan.
Ótrúlegt að þetta
séu áhugamenn
- sagði Errol Refos, hægri bakvörður Feyenoord
Geert Mayer, annar þjálfari
Feyenoord, var ekki ánægður
með úrslitin. „Það var vissulega
slæmt fyrir okkur að tapa þessum
leik. En þeir nýttu sér mistökin í
vöminni og skoruðu þvert á gang
leiksins. Við stjómuðum leiknum
lengst af og fengum færin til að
klára þetta," sagði þjálfarinn.
„Við eigum níutíu mínútur eftir
á heimavelli og ég er ekki í nokkr-
um vafa um að við förum áfram
í næstu umferð. Vissulega hefði
verið betra að ná jafntefli hér, en
Skagamenn era með gott lið og
það var ekkert vanmat að okkar
hálfu í þessum leik. Ég var búinn
að sjá þá leika gegn Partizan á
Akranesi og því kom leikur þeirra
mér ekki á óvart. Það má búast
við þijátíu þúsund áhorfendum í
Rotterdam og þeir verða ekki á
bandi Skagamanna," sagði Mayer.
Vissi ekkl hvort ég var
aö fara eöa koma
„Skagamenn spiluðu mjög vel
og náðu að loka vel svæðum. Ég
fékk ekki mikið rými á kantin-
um,“ sagði Amar Gunnlaugsson,
Skagamaður og leikmaður Fey-
enoord. „Mér leið mjög undarlega
í leiknum. Það var skrýtið að leika
gegn sínum gömlu félögum. Satt
að segja vissi ég stundum ekki
hvort ég væri að fara eða koma.
En seinni leikurinn er eftir og ég
veit að það býr miklu meira í okk-
ar liði en það sýndi í kvöld. Völlur-
inn í Rotterdam er mun stærri en
hér í Laugardalnum og það verður
erfitt fyrir Skagamenn að veijast
þar.“
Óf rúlegt að þetta
sóu áhugamenn
„Við eram aldrei ánægðir með
tap, en Skagamenn léku mjög vel
og miklu betur en við bjuggumst
við. Það er ótrúlegt að þessir leik-
menn skuli vera áhugamenn. Það
eru margir góðir leikmenn í liðinu
sem ráða yfir góðri knatttækni.
Seinni leikurinn er eftir og við
ætlum okkur áfram. Til þess verð-
um við að gera tvö mörk og það
ætti að takast á okkar heimavelli
sem er mjög sterkur. Við höfum
ekki tapað heima nema fyrir
Ajax,“ sagði Errol Refos (nr. 2).
Hann sagði að Bibercic hafí verið
besti leikmaður ÍA.
Evrópukeppni
meistaraliða
Kiev, Úkraínu:
Dynamo Kiev - Barcelona.............3:1
Pavlo Shkapenko (6.), Viktor Leonenko 2
(45.- vítasp., 56.) — Ronald Koeman (28.
- vítasp.). 60.000.
Riga, Lettlandi:
Skonto Riga - Spartak Moskva........0:5
Poznan, Póllandi:
Lech - Bcitar (ísrael)..............3:0
Búkarest, Rúmeníu:
Steaua Búkarest — Króatía Zagreb....1:2
Basarab Nica Panduru (35.) - Igor Cvit-
anovic (19.), Josko Jelicic (62.). 12.000.
Stokkhólmur:
AIK - Sparta Prag (Tékkl.)..........1:0
Dick Lidman (36.). 5.854.
Búdapest, Ungverjalandi:
Honved - Manchester United..........2:3
Jozsef Sabados (40.), Istvan Stefanov (70.)
- Roy Keane 2 (9., 43.), Eric Cantona (44.)
9.000
Helsinki, Finnlandi:
HJK - Anderlecht (Belgiu)...........0:3
Oporto, Portúgal:
Porto - Floriana (Möltu)............2:1
Þrándheimur, Noregi:
Rosenborg -Austria Vín (Austurr.)...3:1
Rune Tangen (29. vsp.), Öyyvind Leon-
hardsen (35.), Karl-Petter Löken (42.) -
Manfred Zsak (33. vsp.) 9.619
Istanbul, Tyrklandi:
Galatasaray - Cork City (trlandi)...2:1
Kubilay (31.), Arif (51.) - Barry (62.) 18.000
Ziirich, Sviss:
FC Aarau - AC Milan (ítalfu)........0:1
- Jean-Pierre Papin (56.) 9.000
Mónakó:
Mónakó - AEK Aþenu (Grikki.)........1:0
Mihalis Vlahos (sjálfsmark, 81.) 10.000
Glasgow, Skotlandi:
Glasgow Rangers - Levski (Búlgaríu)..3:2
Dave McPherson (45.), Mark Hateley 2
(56., 79.) - Borimirov (77.), Todorov (83.)
37.013
UEFA-KEPPNIN