Morgunblaðið - 16.09.1993, Síða 52
Wtip% hewlett mL'HÆ packapd
HPÁ iSLANOI H F Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91)671000 Fró möguleika til veruleika
MOHGUNBLADW, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 69IIS1, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Þróun á nefúða í
stað stungulyfja
11 fótboltahetjur og 6.327áhorfendur
Morgunblaðið/Bjami
SKAGAMENN bundu enda á sigurgöngu hollenska meistaraliðsins
Feyenoord með frábærum leik í Laugardal, þar sém ellefu hetjur
Skagamanna á vellinum og 6.327 áhorfendur fögnuðu sætum sigri,
1:0, í Evrópukeppni meistaraliða, en það er mesti áhorfendafjöldi
á Laugardalsvellsvellinum síðan 1990. Þá sáu 8.388 áhorfendur
landsleik íslands og Frakklahds. Það var Ólafur Þórðarson sem
skoraði stórglæsilegt skallamark á 74. mín og tryggði íslands- og
bikarmeisturunum sigur. Hér á myndinni liggur hann á vellinum
og fagnar marki sínu ásamt Haraldi Ingólfssyni.
Sjá bls. 50 og 51.
Tilraunir
-á fólki um
áramótin
ÞRÓUN á nýju lyfjaformi fyrir
bóluefni er vel á veg komin hjá
fyrirtækinu Lyfjaþróun hf. Hug-
myndin er að bólusetja gegn ýms-
um smitsjúkdómum með nefúða í
stað stungulyfs.
Að sögn Sveinbjörns Gizurarson-
ar, verkefnisstjóra Lyfjaþróunar, er
málið komið á það stig að stefnt er
að því að gera fyrstu tilraunir á fólki
um næstu áramót. í lokaathugunum
felst m.a. að athuga hvort bólusetn-
^ ing með nefúða hafi áhrif á hreinsun-
árfærni bifhára. Nú liggur fyrir að
gera siíkar athúganir á froskum sem
fluttir hafa verið til landsins í því
skyni.
Bólusetning með nefúða í stað
stunguefna hefur að sögn Svein-
bjöms þann stærsta kost að bóluefn-
inu er úðað á slímhimnuna og þann-
ig er hægt að ná fram mótefnasvör-
un á öllum slímhimnum líkamans.
Lyfjaþróun hf. hefur gert rann-
sóknar- og þróunarsamning við Stat-
ens Seruminstitut í Danmörku vegna
þessarar bólusetningaraðferðar, en
samningurinn felur að sögn Svein-
bjöms í sér réttláta eignaraðild að
þeim verkefnum sem fyrirtækin
vinna sameiginlega.
Morgunblaðið/Bjarni
Froskar í tilraunir
SVEINBJÖRN Gizurarson, verk-
efnisstjóri Lyfjaþróunar, heldur
hér á einum af froskunum.
Heimilislæknar skora á landlækni, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra
Lög um stera verði í sam-
ræmi við lös* um fíkniefni
Á AÐALFUNDI Félags íslenskra heimilislækna, sem fram fór
í gærkvöldi, var samþykkt ályktun, þar sem skorað er á land-
lækni, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra að beita sér
fyrir því að þegar verði sett lög, sem banna einstaklingum inn-
flutning og dreifingu anabóliskra stera og skyldra efna. Lagt
er til að þau verði í samræmi við lög um fíkniefni.
Síldarútvegsnefnd í samningum við kaupendur í Evrópu
Samið um sölu á 20 þús-
und tunnum til Finnlands
SÍLDARÚTVEGSNEFND á nú í samningum við saltsíldarkaupendur
í Evrópu en þegar hefur verið gengið frá samningi um sölu á 20.000
tunnum til Finnlands. Þetta er ívið meira magn en samið var um í
fyrra er salan nam rúmlega 19.000 tunnum. Viðræður standa yfir
við kaupendur í Svíþjóð og Danmörku.
^e. í fyn-a var samið um sölu á 24.000
tunnum til Svíþjóðar og 17.000 tunn-
um til Danmerkur en ekki tókst að
standa við þá samninga sökum þess
hve mikið af síldaraflanum fór í
bræðslu. Alls vantaði um 10.000
tunnur upp á að hægt væri að standa
við alla samninga. Gunnar Jóakims-
son framkvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar segir að nefndin eigi örugg-
lega eftir að súpa seyðið af því. „Það
liggur fyrir að stærstu kaupendumir
í Svíþjóð og Danmörku voru mjög
óánægðir með að okkur tókst ekki
að standa við þá samninga sem gerð-
ir voru í fyrra,“ segir Gunnar. „Og
það er ekki spurning að slíkt kemur
niður á okkur nú. Við höfum verið
þekktir fyrir að standa við gerða
samninga og það álit beið hnekki.“
Hvað varðar verð fyrir síldina sem
samið hefur verið um til Finnlands
segir Gunnar að miðað við hið erfiða
efnahagsástand í landinu megi telja
verðið viðunandi. Hvað varðar verð
á saltsíld til Svíþjóðar og Danmerkur
segir Gunnar að samningar séu ekki
það langt á veg komnir að hægt sé
að greina frá því.
Síldarvertíð að hefjast
Síldarvertíð hefst væntanlega um
mánaðamótin september/október.
Heija má veiðamar 1. september en
undanfarin ár hefur síldin ekki gefið
sig fyrr en undir lok mánaðarins. í
fyrra kom fyrsta síldin á land þann
21. september. Kvótinn nú nemur
100.000 tonnum.
Margrét Georgsdóttir fylgdi til-
lögunni úr hlaði á aðalfundi Félags
ísl. heimilislækna og sagði hún í
samtali við Morgunblaðið að lengi
hefði verið rætt um nauðsyn þess
að breyta lögunum í þessa vera,
en erfíðlega hefði gengið að koma
breytingunum í gegn. Fréttir und-
anfama daga af miklum sterainn-
flutningi hefðu fyllt mælinn og því
hefði hún ákveðið að leggja tillög-
una fram.
40 lyfjapróf frá áramótum
Lyíjamisnotkun í íþróttum er
þekkt víða um heim, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er mik-
ill meirihluti notkunar utan keppn-
isíþrótta. Lyfíaeftirlitsnefnd
íþróttasambands Islands hefur
t.a.m. tekið liðlega 40 lyijapróf frá
áramótum á íslenskum íþrótta-
mönnum innan vébanda ISÍ og
hafa þau öll verið neikvæð, þ.e.
ekkert athugavert hefur komið í
ljós. Anabólískir sterar era mest
misnotaðir og getur mikil hætta
stafað af notkun þeirra, m.a.
hjartasjúkdómar og æðakölkun,
sem getur valdið kransæðastíflu
og skyndidauða.
Samstarf hefur verið með land-
læknisembættinu, menntamála-
ráðuneytinu og íþróttasambandi
íslands um fyrirbyggjandi aðgerðir
og fyrir tveimur mánuðum gaf
samstarfshópurinn út veggspjald,
sem varar við hættu af steranotk-
un, og hefur því verið dreift í
íþróttahús, skóla og líkamsræktar-
stöðvar.
I fyrmefndri ályktun er m.a.
lagt til að notkun umræddra lyfja
verði óheimil nema samkvæmt
ávísun frá lækni og slíkar ávísanir
verði eftirritunarskyldar.
----- ♦ ♦ ♦----------
Bónus flytur
inn dansk-
an kalkún
UM HELGINA fær Jóhannes
Jónsson í Bónus um 200 kíló af
dönskum kalkúnalærum til
landsins með flugi og mun kílóið
kosta 260 krónur í Bónus.
Fram til þessa hefur landbúnað-
arráðherra sagt innflutning á svína-
kjöti óþarfan þar sem birgðir í land-
inu væru nægar. Ekki munu þau
rök eiga við þegar kalkúnakjöt er
annars vegar því einungis einn
kalkúnaframleiðandi er á íslandi og
hefur hann hingað til ekki náð að
anna eftirspum.
Sjá bls. 22: „Jóhannes . . .“