Morgunblaðið - 27.10.1993, Síða 11

Morgunblaðið - 27.10.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993 11 Frú Emilía frumsýnir ævintýri Trítils LEIKHÚSIÐ Frú Emilía frumsýn- ir barnaleikritið „Ævintýri Trít- ils“ nk. sunnudag kl. 15 í minni sal leikhússins, sem hefur aðsetur sitt á Seljavegi 2 í vesturbæ Reykjavíkur. Þetta er annað verk- efni Frú Emiliu þetta leikár. Leiksýningin „Ævintýri Trítils" er samin af Ásu Hlín Svavarsdóttur og leikurum sýningarinnar en er byggð á sögum hollenska barnabókahöf- undarins Dick Laan. Öll hollensk böm þekkja Trítil og Trítilssögur em fluttar að staðaldri í í hollenska úvarpinu. Trítill á aðdáendur víða um Evrópu, sem ýmist lesa um hann, hlusta á sögur um hann í útvarpinu eða horfa á hann í sjónvarpinu. „Trítill er lítill maður, eins lítill og litli fingur. Trítill býr yfir þeim hæfileika að geta talað við bæði dýr og menn. Öllum þykir vænt um Trít- il, því hann er einstaklega hjálpfús og góðhjartaður. í þessari leiksýn- ingu er ætlunin að leiða börnin inn í ævintýrið og þegar þangað er kom- ið vera þátttakendur í leiksýning- unni, til dæmis með leikhljóðum og fleiru. Leikmynd, grímur og búning- ar em gerð úr einföldum hversdags- legum hlutum, rétt eins og þegar börn eru sjálf að leik. „Ævintýri Trítils" er meðfærileg farandsýning, fjörtíu mínútna löng og ætluð börn- um á leikskólaaldri og yngstu bekkj- um gmnnskóla. Þeir sem standað að sýningunni em: Ása Hlín Svavarsdóttir, leik- stjóm og handritsgerð, Guðrún S. Haraldsdóttir og Guðrún Auðuns- dóttir, leikmynd og búningar, Ólafur Engilbertsson, grímur. Leikarar eru Helga Braga Jónsdóttir, Kjartan Bjargmundsson og Barði Guðmunds- son. Helga Magnúsdóttir: Óður til lifsins (hluti). Helga Magnúsdóttir Myndlist Eiríkur Þorláksson Ungt listafólk er misjafnlega duglegt að koma sér af stað inn á orrustuvöll myndlistarlífsins, og hjá sumum tekur mörg ár að öðlast þann kjark, sem vissulega þarf til að halda sínar fyrstu sýn- ingar. Aðrir hefjast handa fljót- lega eftir að námi lýkur, taka þátt í samsýningum og halda litl- ar einkasýningar, og áður en langt um líður fer reynslan að koma í ljós. Helga Magnúsdóttir er í síðari hópnum. Hún brautskráðist úr málaradeild Myndlista- og hand- íðaskólans 1989, og hefur átt verk á samsýningum árlega síð- an. Hún hélt sína fyrstu einka- sýningu fyrir tveimur ámm, og nýlega hófust tvær einkasýning- ar með verkum listakonunnar; í rúmgóðum sal í Listmunahúsinú að Tryggvagötu 17 sýnir hún fimmtán olíumálverk, en í smærri húsakynnum í Listmunahúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5 sýnir Helga tæplega þijátíu litlar myndir, unnar með vatnslitum, olíupastel eða bleki. Hinir ólíku listmiðlar draga fram mismunandi þætti í þeirri listsköpun, sem Helga kýs að fást við, en þó má segja að sam- eiginlegt einkenni birtist í áhuga hennar á tónum litanna, svo og dýpt þeirra þegar þeir leggjast hver ofan á annan, einkum í pa- stel- og olíuverkunum. Hún vinn- ur að mestu óhlutbundið í mynd- um sínum, þó með tilvísunum til náttúrunnar og hinna ýmsu til- brigða hennar. Olíumálverkin sem listakonan sýnir í Listmunahúsinu við Tryggvagötu eru öll máluð með afar þunnum litum, sem eru lagð- ir á flötinn í mörgum lögum, þannig að við nánari skoðun reynist yfirborðið aðeins þunn skel á því sem undir býr. Hins vegar er sú skel hert með sterkri glansáferð á flestum myndanna, þannig að verkin verða afar háð réttri lýsingu, ef of mikill glampi á ekki að_ eyðileggja það sem undir býr. Í flestum tilvikum hef- ur lýsing verkanna tekið mið af þessu, þá ekki njóti allar mynd- irnar sín sem skyldi. Flest vísa málverkin með óbeinum hætti til náttúrunnar, og meðferð litanna í verkinu end- urspeglar það ágætlega. í „Skin og skúrir“ (nr. 3) má sjá vand- lega uppbyggingu hvítra og blárra lita, þar sem tónar litanna ráða mestu um þann þokka, sem verkið býður af sér. „Blik“ (nr. 12) birtist hins vegar sem daufur ljósgeisli í bláu myrkrinu, og „Farvegur" (nr. 5) hefur til að bera mikla dýpt í bláum og dimm- rauðum litunum. Það verk sem skipar öndvegi á endavegg er jafnframt sterk- asta mynd sýningarinnar. „Óður- inn til lífsins" (nr. 8) sýnir rauð- an lífsþráðinn liðast í gegnum birtu og skugga, gleði og erfið- leika, uns hann deyr út; þó er eftirtektarvert að leiðin liggur upp á við í lokin, líkt og vonin um annað líf geri síðustu skugg- ana léttvægari. Hér hefur lista- konunni tekist að skapa ágæta líkingu, sem helst allt tii enda. í Listmunahúsi Ófeigs draga einkum að sér athygli litiar vatnslitamyndir, sem listakonan kýs að kalla „Sól rís, sól sest“ (nr. 1-4). Lárétt formið hentar viðfangsefninu ágætlega, og hógværir litirnir njóta sín vel, t.d. í mynd nr. 1. Olíupastelmynd- irnar nefnir Helga „Hugarflug“, en þær eru allar óhutbundnar, unnar á svartan pappír. í þessum verkum koma sterkari litirnir einna best út, t.d. í nr. 7 og nr. 15. Loks ber að nefna nokkrar smáar pennaskiSsur, líkast til gerðar á ferðalögum um landið; þarna nýtur auga listakonunnar fyrir hinu einfalda í myndskipan sín einna best, eins og sést t.d. á „Tvíhyrningur“ (nr. 22). Helga Magnúsdóttir tekur vissa áhættu með því að leggja tvær sýningar undir á sama tíma. Dæmið gengur hins vegar upp, þar sem sýningarnar styrkja hvor aðra, þrátt fyrir, eða ef til vill vegna hinna ólíku miðla sem hún beitir hér við listsköpun sína, og einnig vegna hins ólíka umhverf- is, sem verkin koma fram í. Sýningar Helgu Magnúsdóttur í Listmunahúsinu að Tryggva- götu 17 og Listmunahúsi Ofeigs að Skólavörðustíg 5 standa báðar til sunnudagsins 7. nóvember. Nýjarbækur ■ „Land sem auðlind" kallast nýtt rit eftir Trausta Valsson skipulagsfræðing um „Mótun byggðamynsturs á Suðvestur- landi“. í fréttatilkynningu frá útgef- anda segir: „Rit þetta má kallast hugmyndalegur grundvöllur þeirra miklu skipulagsbreytinga og sam- einingar, sem nú er að verða á Reykjavíkursvæðinu og brátt einn- ig á Vesturlandi, Suðumesjum og Suðurlandi, sem koma til með að hafa byltingarkennd áhrif á þjóðlíf- ið á næstunni. í „Land sem auðlind" er tekið til meðferðar framtíðarskipulag suðvesturhluta landsins eða allt svæðið frá Borgarfirði og austur í Mýrdal. Rætt er um það frá öllu hliðum, rakin söguleg þróun og málið krufið til mergjar eftir lög- málum formrænna kerfa, fjallað um stjómsýslukerfi, vegakerfi og samgöngur, hverskyns mat á auð- lindum landsins og hvaða takmark- anir era á landnýtingu. Efnið er viðamikið og skiptist bókin í 12 kafla. Þar er fjallað um framtíðarvegakerfi, eflingu ferða- mála, hvar verðmætustu sumarbú- staðalöndin verða, útivistarsvæði, lögð áhersla á varðveislu bestu landbúnaðarsvæða, fjallað um náttúraminjar, menningarminjar, göngusvæði og framlandslag og ótal margt fleira. Öllum þessum þáttum fylgja hundruð uppdrátta og skýringarmynda." Bókin Land sem auðlind er í stóru broti, 108 bls. mikið mynd- skreytt. Hún er gefin út. af Fjölva, kápugerð vann Korpus, en prentun og band annaðist GBen Prentstofa. Verð 2280 krónur. I Mál og menning hefur sent frá sér bókina Á skólasafni - handbók eftir Kristínu Unnsteins- dóttur og Ragnhildi Helgadótt- ur, skólasafnskennara við Æfinga- skóla Kennaraháskóla íslands. I fréttatilkynningu frá útgef- anda segir: „I þessari handbók er starfssviði skólasafnskennara lýst rækilega, hvað varðar kennslu, ráðgjöf, stjórnun og bókasafns- fræðileg störf. Sérstök áhersla er lögð á að miðla hugmyndum um það hvernig bækur og önnur gögn megi best nýtast í skólastarfínu. Bókin geymir ennfremur ágrip af sögu og þróun skólasafna á Islandi og íjallar um lög og reglugerðir sem tengjast söfnunum. Dæmi um námskrá skólasafns er birt í við- auka í bókarlok." Bókin er 106 bls. unnin í GBen Prentstofu hf., Anna Cynthia Leplar vann kápu og mynd- skreytingar. Bókin kostar kr. 1899. ■ Mál og menning hefur sent frá sér ritið Bók af bók - Bók- menntasögu og sýnisbók frá 1550- 1918, eftir Silju Aðalsteinsdótt- ur. í fréttatilkynningu frá útgef- anda segir: „Bókmenntatextamir í þessari sýnisbók era tengdir með ágripi af íslenskri bókmenntasögu þar sem getið er helstu höfunda og verka þeirra. Bókin er ætluð framhaldsskólanemum fyrst og fremst, en nýtist þó öllum þeim sem vilja fá glöggt yfirlit yfír þró- un íslenskra bókmennta frá siða- skiptum til 1918 þegar ísland varð fullvaxta ríki. Venjulegri skiptingu bókmenntasögunnar í tímabil er haldið og skáldum er ekki skipað niður á óvænta staði - en mann- eskjan skiptir hér meira máli en stefnur, bæði í vali á textum og umíjöllun um höfunda. List alþýðu- skáldanna og bókmenntir sem ætl- aðar era bömum fá einnig meira rúm en tíðkast í sambærilegum bókum. Höfundur hefur ennfremur kappkostað að geta nýjustu rann- sókna á bókmenntum þessara tímabila, bæði til að örva ímyndun- arafl og umræður þeirra sem nota bókina og til að staðfesta að eldri bókmenntir era stöðugt undir smá- sjá.“ Bókin er 360 bls. unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. Verð kr. 3499. NYJA BILAHOLL-IN FUNAHORÐA 1 S:672277 BÍLATOFtG FUNAHOFÐA 1 VEGNA GÓDRAR SÖLU VANTAR NÝLEGA BÍLA Á STADINN - INNISALUR MMC Galant GLSi árg. '89, hvítur, sjálfsk., ek. 114 þ. km. Verð 980.000 - skipti. Ford Explorer sport árg. '91, vinrauður, 5 g., ek. 43 þ. km. Verð kr. 2.450.000 - skipti á ódýrari. Toyota 4Runner árg. '88, blásans, 33“ dekk, sjálfsk., V6. Verð kr. 1.480.000 - skipti. Suzuki Vltara JLXi árg. '92, grár, álfelgur, 33“ dekk, ek. 15 þ. km. Verð kr. 1.550.000 - skipti. Nlssan Sunny 1.3 Van árg. '90, rauður, vsk-bíll, ek. 55 þ. km. Verð kr. 580.000. * MMC Gaiant GLSi HB árg. '91, ek. 38 þ. km., grænn, sóllúga, central, álfelgur, r/ö. Verð kr. 1.390.000 stgr., ath. skipti. Toyota Corolla XL árg. '91, ek. 38 þ. km., hvítur, 3D. Verð kr. 770.000 stgr., ath. skipti. Daihatsu Feroza EL-II árg. '91, ek. 37 þ. km., grár. Verð kr. 1.240.000 stgr., ath. skipti. MMC Pajero langur SW árg. '92, ek. 26 þ. km., vfnrauður, sjálfsk., álfelgur, central, sóllúga. Verð kr. 3.390.000 stgr., ath. skipti. Nissan Patrol diesel árg. '92, ek. 50 þ. km., grænn, álfelgur, 33" dekk. Verð kr. 3.190.000 stgr., ath. skipti. /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.