Morgunblaðið - 27.10.1993, Síða 20

Morgunblaðið - 27.10.1993, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993 Ihaldsflokkurinn í Kanada geldur afhroð í þingkosningum Fijálslyndir boða ríkisaf- skipti gegn atvinnuleysinu Krefjast breytinga á NAFTA en ólíklegt að samkomulagið sé í hættu BREYTINGAR A KJORJFYLGII KANADA Þingkosningar 1988 Fjöldi þingsæta Þingkosningar 1993 Fjöldi þingsæta 50 100 150 íhaldsflokkurinn var næstum horfinn af þingi. Einmenn- ingskjördæmi eru í landinu, sá fær sætið sem flest hlýtur alkvæðin. . Aðskilnaðarsinnar í Quebec eru nú í forysfu stjórnar andstöðufiokka. 2 Ihaldsmenn 54 Aðskilnaðarsinnar (í Quebec) 52 Umbótaflokkurinn I 9 Nýi lýðræðisflokkurinn 1 Sjálfstæður þingmaður REUTER Volvo-Ren- ault samruni gagnrýndur NEFND starfsmanna Volvo- verksmiðjanna í Svíþjóð kvaðst í fyrrakvöld ætla að greiða at- kvæði gegn áformum um sam- runa Volvo og franska bílafyr- irtækisins Renault á sérstökum hluthafafundi 9. nóvember. Tvö áhrifamikil sænsk dagblöð, Svenska Dagbladet og Dagens Industri, gagnrýndu áformin harðlega í forystugreinum og annað þeirra hvatti til þess að ríkisstjómin skærist í leikinn. Ný sljórn í Póllandi WALDEMAR Pawlak sór í gær embættiseið forsætisráðherra Póllands og tuttugu manna stjórn hans tók formlega við völdum. Þetta er fyrsta vinstri- stjórn landsins frá því kommún- istar fóru frá völdum árið 1989 en nýi fjármálaráðherrann, Marek Borowski, lofaði að flýta markaðsumbótum og beita sér fyrir einkavæðingu ríkisfyrir- tækja. Vincent Price látinn VINCENT Price, kon- ungur hryll- ingsmynd- anna, lést á mánudags- kvöld á heimili sínu í Los Angeles. Price lést af völdum lungna- krabbameins, 82 ára gamall. Vaxtalækkun í Noregi SEÐLABANKI Noregs fór í gær að dæmi þýska seðlabank- ans og fleiri evrópskra banka og lækkaði vexti sína um hálft prósentustig, úr 5,5% í 5%. Stöðugt gengi norsku krónunn- ar gagnvart helstu gjaldmiðlum gerði þetta mögulegt. Kohl svarar Thatcher HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, svaraði í gær um- mælum Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, þess efnis að Þjóð- vetjar vildu verða ráðandi afl f Evrópu. „Við getum sagt að munurinn á okkur er sá að ég lifi á tímanum eftir Winston Churchill en hún á tímanum fyrir Winston Churchill," sagði Kohl. Azerar flýja til írans ALLT að 20.000 Azerar hafa flúið til írans í bifreiðum, drátt- arvélum eða fótgangandi vegna árása Armena á suðvesturhluta Azerbajdzhans. „Margir fleiri, aðallega fótgangandi fólk, voru drepnir á leiðinni eða drukkn- uðu í þverám Aras-fljóts í Az- erbajdzhan," hafði útvapið í Teheran eftir flóttamönnum. Georgíuher sækir fram VARNARMÁLARÁÐUNEYT- IÐ í Georgíu sagði í gær að stjórnarher landsins hefði náð borginni Senaki í vesturhluta landsins á sitt vald og einnig mikilvægri brú í grennd við hafnarborgina Poti við Svarta- haf. Ottawa, Toronto. Reuter. FRJÁLSLYNDI flokkurinn í Kanada vann yfirburðasigur í kosningunum á mánudag og er talið að óánægja kjósenda með kreppu og mikið atvinnuleysi hafi ráðið úrslitum. íhaldsflokk- urinn, sem verið hefur við völd í níu ár, hlaut einhveija verstu útreið sem sögur fara af hjá sljórnarflokki á Vesturlöndum, fékk tvö sæti af 295 en hafði þingmeirihluta. Stærsti sljórnar- andstöðuflokkurinn er nú að- skilnaðarflokkur Quebec-búa sem vill sjálfstæði fylkisins þar sem frönskumælandi íbúar eru í miklum meirihluta. Umbóta- flokkurinn, nýr hægriflokkur sem einkum sækir fylgi tdl íbúa í vesturfylkjunum, er þriðji í röð- inni en hann boðar aðhaldsstefnu í efnahagsmálunum og er and- vígur frekari tilslökunum gagn- vart sérkröfum Quebec. Jean Chretien, leiðtogi Frjáls- lynda flokksins, boðar aukin framlög til velferðarkerfisins, ríkisafskipti til að draga úr atvinnuleysi og koma efnahagslífinu í gang, vill auk þess breytingar á fyrirhuguðum fríversl- unarsamningi Kanada, Bandaríkj- anna og Mexíkó, NAFTA. Hann síó nokkuð á strengi þjóðarstoltsins í kosningabaráttunni. Margir Kanadamenn voru lítt hrifnir af því að leiðtogar Ihaldsflokksins skyldu eiga náið samstarf við bandaríska forystumenn. „Takmark mitt í lífinu er ekki að veiða fisk með forseta Bandaríkjanna", sagði Chretien fyrr á árinu. Hinum nýja leiðtoga íhalds- flokksins og fyrstu konunni sem gegnt hefur embætti forsætisráð- herra Kanada, Kim Campbell, tókst ekki að breyta þessari ímynd á stutt- um valdaferli sínum. Hún tók við af Brian Mulroney sem einkum er kennt um ófarir íhaldsmanna. NAFTA-samningi breytt? Þingmeirihluti íhaldsflokksins hefur þegar samþykkt NAFTA en eftir er að lýsa formlega yfir sam- þykktinni. Þótt aðeins sé þar um formsatriði að ræða gefur það frjáls- lyndum nokkurt svigrúm til að reyna að koma breytingum í gegn. Þeir greiddu atkvæði gegn fríverslunar- samningi Kanada og Bandaríkjanna, sem tók gildi 1989, segja að hann hafi aukið mjög atvinnuleysi í land- inu þar sem mörg fyrirtæki hafi flutt starfsemina suður yfir landamærin. Atvinnuleysið er nú um 11% og er helsta áhyggjuefni flestra kjósenda. NAFTA er víðtækara samkomu- lag. Þegar hafa verið gerðar nokkrar breytingar á ákvæðum þess um umhverfisvernd og réttindi launþega sem uppfylla að hluta til kröfur gagnrýnenda úr röðum fijálslyndra. Þeir kreflast hins vegar að auki hertra reglna til að koma í veg fyrir undirboð og óréttmæta ríkisstyrki við útflutningsfyrirtæki, ótvíræðari ákvæði um aðferðir til að úrskurða í deilumálum og loks að Kanada fái að vernda orkulindir sínar með sama hætti og Mexíkó. Þrátt fyrir kröfugerðina hafa fijálslyndir forðast að mæla með því að Kanadamenn hætti við þátttöku í NAFTA, sögðu í kosningabarátt- unni að til slíkra ráða yrði aðeins gripið ef allt annað þryti og engar lagfæringar fengjust í gegn. Skýrt var frá því í kanadískum blöðum í kosningahríðinni að ráða- menn í Fijálslynda flokknum hefðu með leynd sagt fulltrúum Banda- ríkjamanna og Mexíkana að þeir þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur af NAFTA-samningnum. Á hinn bóginn verða frjálslyndir a.m.k. að knýja fram einhveijar málamynda- breytingar til að missa ekki andlitið gagnvart kjósendum. Óttast hrinu hefndar- morða Belfast. Reuter. ÖFGAMENN úr flókki mót- mælenda skutu tvo menn og særðu fimm í Belfast á Norður- írlandi í gær. Voru þeir að hefna þeirra 10 manna, sem létu lífið í sprengjuárás írska Iýðveldishersins, IRA, um síð- ustu helgi. í yfirlýsingu frá Frelsisflokki Ulsters, útlægum öfgasamtökum mótmælenda, sagði, að morðin í gær væru aðeins byrjunin. Mikil spenna ríkir í Belfast og óttast allir, að sprengjutilræði, morð og mannvíg muni verða næstum daglegir viðburðir á næst- unni. Hefur verið fjölgað í her- og lögregluliði borgarinnar enda gengur enginn að því gruflandi, að öfgasamtök mótmælenda hyggja á grimmilegar hefndir fyr- ir morðin á laugardag og IRA- menn munu þá ekki láta sinn hlut eftir liggja. Mennirnir tveir, sem skotnir voru í gær, voru að mæta til vinnu sinnar í kaþólsku hverfi í Belfast en nokkrum klukkustundum áður hafði 72 ára gamall, kaþólskur ellilífeyrisþegi verið drepinn. Sagði í yfírlýsingu „Sjálboðaliðasamtaka Ulsters", öðrum öfgasamtökum, að gamli maðurinn hefði verið yfir- heyrður í klukkutíma, „játað glæpi sína og verið tekinn af lífi“. Chretíen bindiir enda á eyði- merkur göngu Frjálslyndra Reuter Sigri hrósandi VERÐANDI forsætisráðherra Kanada, Jean Chretien, og eigin- kona hans, Aline Chretien, veifa til stuðningsmanna sinna í heimabæ Chretiens, Shawinigan, á mánudag er úrslitin voru ljós. Shawinigan í Quebec. Reuter. LEIÐTOGA Fijálslynda flokksins í Kanada, Jean Chretien, tókst á mánudag að leiða flokk sinn til sigurs eftir níu ára pólitíska eyðimerkur- göngu. Næstu tvo áratugina þar á undan voru Frjálslyndir óslitið við völd og sigurinn nú er því kærkominn. Sjálfur hef- ur Chretien, sem er 59 ára gamall, verið virkur sljórn- málamaður frá því um þrítugt en kunnáttumönnum þótti hann ekki sigurstranglegur leiðtogi er hann tók við flokks- forystunni 1990. Chretien er lögfræðingur, ætt- aður frá smábænum Shawinigan í Quebec, fylkinu þar sem frön- skumælandi Kanadamenn eru í meirihluta. Móðurmál hans er franska og var hann næst-yngst- ur af nítján systkinum. Chretien segist hafa verið svarti sauðurinn í fjölskyldunni, viðurkennir að hafa oft skrópað í skóla en tók þó á sig rögg á fullorðinsárunum og lauk laga- námi. Hann var kjörinn á þing 29 ára gamall og gegndi ráðher- rastöðum í ríkisstjórnum Fijáls- lynda flokksins en stundaði á ný lögfræðistörf 1986-1990. Honum hefur oft verið núið því um nasir að hann sé heimóttarlegur sveita- maður sein eigi lítið erindi inn á vettvang heimsmálanna. Aðrir sögðu að hann boðaði gamlar, úreltar lausnir á vandamálum nútímans, væri í reynd útbrunn- inn. Chretien lét þessa gagnrýni ekki á sig fá, heldur ekki grun- semdir þess efnis að hann væri heilsuveill. Hann reyndi að sanna hreysti sína með því leika hafna- bolta og lét taka af sér myndir á vatnaskíðum. Verðandi forsæt- isráðherra er heymarlaus á öðru eyra og með undarlegan munn- svip sem stafar af fæðingargalla. Andstæðingunum varð fótaskort- ur er þeir gerðu gys að honum fyrir málhelti, sögðu hann jafn- færan um að misþyrma frönsku og ensku. Kjósendur fengu aukna samúð með Chretien er hann sagðist hafa átt við málhelti að stríða frá æsku og væri löngu búinn að sætta sig við hana. Undir lok kosningabaráttunnar naut hann vaxandi hylli um allt landið að undanskildu heimafylk- inu Quebee. Þar er hann sakaður um að hafa skaðað hagsmuni frönskumælandi manna er hann aðstoðaði Pierre Trudeau, þáver- andi forsætisráðherra og leiðtoga fijálsyndra, við að setja landinu stjórnarskrá 1982 án samþykkis Quebec. Chretien hélt þó þing- sæti sínu í Quebec sem var betri árangur en margir höfðu spáð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.