Morgunblaðið - 27.10.1993, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
■30
Ófriður Georgíu-
manna og Apkaza
eftir Grigol
Matsjavariani
Oft lýsa hinar sterku fréttastof-
ur Rússlands georgískum málefn-
um með sínu móti og sníða þau
* eftir óskum sínum. Þetta stafar
af pólitísku viðhorfí þeirra, ekki
fáfræði. Því miður er fréttastofa
Georgíu ekki alltaf samkeppnisfær
við ofangreindar fréttastofur við
að neita afmynduðum upplýsing-
um um þau. Það er mjög erfitt
að koma-sannleikanum til útlendra
lesenda eða áheyrenda. Þessi örð-
ugleiki heitir „fréttabarátta“ í
gömlu Sovétríkjunum og við þetta
vandamál kannast og önnur fyrr-
verandi sovétríki.
Morgunblaðið er fyrsta stofnun
á Norðurlöndum sem gefur Ge-
orgíumönnum tækifæri til að segja
íslenskum bræðrum og systrum
v frá atburðarásinni í landi þeirra.
Stutt sögulegt yfirlit
Apkazar settust að í norðvestur
Georgíu hér um bil á 1. öld e. Kr.
Þeir komu frá Norður-Kákasus.
Þá voru þeir ekki ein þjóð ennþá,
heldur Apsilar og Abazgar sem
töluðu svipuð tungumál. Síðan
blönduðust tungumálin. Apkazska
er í adige-tsjerkezskum flokki og
er gerólík georgísku (sem fyrir
sitt leyti líkist engu tungumáli í
neiminum).
Svæðið sem Apkazar byggðu
hafði alltaf verið hluti af Kolk-
heti, þ.e.a.s. hinni fornu Vestur-
Georgíu. Þetta herma forngrískir
sagnfræðingar á 6.-1. öld f. Kr.
Á 3. öld var öll Vestur-Georgía
sameinuð og nú hét þetta ríki
Egrisi. Síðan varð norðvestur hluti
ríkisins skilyrt kallaður Apkazeti
(eða Apkazía á alþjóðlegum
tungumálum. Apkazar sjálfir kalla
hana Apsni). Þetta svæði var allt-
af óaðskiljanleg landspilda í Ge-
orgíu. Á ófriðartímum og í innan-
landseijum, þegar Georgía liðaðist
í sundur, varð Apkazía samt innan
— ,samfélags Georgíu bæði stjóm-
málalega og menningarlega. Þetta
umdæmi, eins og önnur héruð,
átti jarl sem laut georgískum
kóngum frá alda öðli. Meginþorri
íbúanna hafði ætíð verið georgísk-
ur að þjóðerni, en apkazkar fjöl-
skyldur voru að mestu leyti bland-
aðar. Tungumál menningarinnar,
aðalsins eða kristilegu kirkjunnar
var georgíska (apkazskt ritmál
varð til á 20. öld).
Georgíumenn og Apkazar höfðu
ætíð verið góðir grannar, bjuggu
að mestu leyti í friði og börðust
oft gegn útlendum óvinum hlið við
hlið. Fyrir kom að Apkazar fós-
- . .truðu georgísk böm og öfugt. Það
er kannski enginn Apkazi til sem
ekki hefur georgískt blóð í æðum.
Líka er talsverður fjöldi Georgíu-
manna apkazi í föður- eða móður-
ætt.
Söguleg samskipti, vináttu eða
samúð þessara tveggja þjóða, gæti
maður borið saman við samskipti
íslendinga og Færeyinga.
Tímasprengja
Á 19. öld hemam Rússland
Georgíu og öll vitum við hvernig
-^fkommar tóku við af Rússakeisur-
um á 20. öld.
Allt hófst þegar í Georgíu komst
á kommúnískt vald eða „rauða-
sótt“ á talmáli. Það var árið 1921.
Kommar lýstu yfir jafnrétti milli
þjóðanna, veittu mörgum þjóðum
heimastjórn (jafnvel sumum þjóð-
arbrotum sem aidrei höfðu sögu-
lega haft sjálfstæði eða sterka
þjóðernistilfinningu) og stofnuðu
fleiri en 20 heimastjórnarumdæmi
á víðlendu svæði Sovétríkjanna.
Frá pólitísku sjónarmiði voru
þau umdæmi minni leppríki en hin
15 „sovétlýðveldin“ og samt hétu
þau „repúblik“. Þessi „ríki“ eða
„lýðveldi“ áttu ekki annað en nafn-
ið sem jafnvel margir „sovét“-
menn könnuðust ekki við. Með því
vildu kommar sýna gæsku og
„sýndar“-lýðræði. Þetta var vita-
skuld brella og blindandi pólitískt
leikrit fyrir augum þrælbundinna
þjóða til þess að halda þeim í auð-.
mýkt.
Nú á dögum koma meiri klók-
indi, undirferli og framvísi komm-
únista í ljós. Undir stofnun heima-
stjórnarumdæmis fólst neðanjarð-
arkjörorð: „Deildu og drottnaðu“.
Með öðrum orðum ef kommúnískt
Rússland missti völdin og ríkin lið-
uðust í sundur, þá myndu óumflýj-
anlegir bardagar og blóðsúthell-
ingar skella á milli þjóðanna til
þess að endurnýja gömlu landa-
mærin og hins vegar varðveita
„sjálfstæði" sem sumar þjóðir
höfðu einungis í orði. Einmitt þá
væri stórkostlegt tækifæri til að
vasast í málefnum þeirra á nýjan
leik og birtast þeim líkt og frelsar-
ar, verndarar og dómarar og á
þann hátt endurreisa veldið. Þetta
ráðabrugg og afleiðingar þess er
nú kallað „tímasprengja", þ.e.a.s.
ósýnileg sprengja sem verður að
springa sjálf þegar „þörf“ er á.
Frægasta „tímasprengjan“ er
Karabakh og árið 1989 sprakk hún
í Georgíu líka.
Ánauð?
Kommar deildu Georgíu og fóru
að drottna þar eftir ofangreindu
kjörorði, en unga tímasprengjan
svaf í vöggunni vært og rótt. Nú
fengu Apkazar „sjálfstæði“ og
hétu nú „repúblík" sem átti stjórn-
arskrá jafnvel. í stjórnarskránni
stóð að ríkismál Ápkazíu væri
apkazska, georgíska og rússneska.
En þetta var meiri blekking en
„repúblíka" sjálf. Ríkisskjölin voru
skrifuð á rússnesku og þetta
tungumál drottnaði bæði í háskól-
anum og öðrum skólum. Nýja
apkazska kynslóðin fór að gleyma
ekki einungis georgísku, heldur
apközsku líka. íbúarnir urðu nauð-
ugir að skrifa á rússnesku, en
apkazska sjálf ef nú kennd í
grunnskólum aðeins í þrjú ár og
hún er ekki annað en talmál.
Spurningin er hvort apkazski há-
skólinn er apközsk stofnun í raun
og veru þegar apkazskir stúdentar
læra þar á rússnesku. í dag kann
þriðjungur Apkaza ekki móður-
málið, aðrir tala eitthvað sambland
og mjög fáir (mestmegnis gamlir
menn) tala tungumálið hreint.
Fyrir georgísku er nú ekkert pláss
eftir opinberlega í Apkazíu (nema
georgískar fjölskyldur) þó að
Apkazía sé hluti Georgíu og Ge-
orgíumenn séu þar meirihluti íbú-
anna. Hlutfall þjóðanna í Apkazíu
er: Georgíumenn 43,9%, Apkazar
17,1% (þeir eru um 85 þúsund og
búa eingöngu í tveimur héruðum
af 10 á þessu landsvæði), Rússar
16,4% (nú eru margir þeirra að
flytja til Rússlands), Armenar
15,1%. Þrátt fyrir þennan mismun
voru alltaf 8 ráðherrar Apkazar
að þjóðerni af 12 í „lýðveldinu“
og höfðu yfirburði í alla staði.
Apkazar voru einnig í meirihluta
á þingi umdæmisins. Rússland
Grigol Matsjavariani
vasaðist augsýnilega í málefnum
Georgíu svo hún gat ekki stjórnað
Apkazíu sjálf. Rússnesku komm-
arnir léku hlutverk réttlátra vernd-
ara allra lítilla þjóða, en sjálfir
héldu þeir þjóðunum í taumi. Þetta
var kallað „leninínsk vinátta þjóð-
anna“. Þannig varð Georgía óþarf-
leg viðbót í apközs'kum pólitískum
málefnum, með öðrum orðum —
hvorki lagalegur stjórnandi né eft-
irbátur. Smám saman vakti þessi
skemmdarpólitík spurningu hjá
róttækum Apközum: „Hvað eigum
við sameiginlegt með Georgíu þeg-
ar við erum ekki háðir henni og
kunnum ekki georgísku framar?“
Hins vegar vakti missir sögu-
legs landshluta mikla óánægju hjá
Georgíumönnum en mótmæli
myndu örugglega talin þjóðremba
eftir kommúnískum kenningum.
Þannig skildu „frelsararnir“
þessar tvær þjóðir hvora frá ann-
arri í nafni sjálfstæðis, lýðræðis
og jafnréttis og sáðu ósætti.
Nú vilja róttækir apkazskir
„öfgamenn" slíta allt samband við
Georgíu. Eftir þeirra sögn voru
Sovétríkin eingöngu tímabundið
ástand eða fyrsta skref til fullveld-
is og nú þegar Sovétríkin eru úr
Hörmung stríðsins.
sögunni gefst tækifæri til að segja
sig úr lögum við Georgíu, enda
eru þeir sko „repúblik" og munu
aldrei missa „sjálfstæðið“. Nú búa
þeir til kjánalegar kenningar um
ánauð af hálfu Georgíumanna til
þess að sýna sig í hlutverki píslar-
votta. En það er deginum ljósara
á hvers klafa þeir hafa verið
bundnir. Georgíumenn þvinguðu
þá aldrei til að verða hálfrússar.
Tímasprengjan sprakk
Fyrir örfáum árum, þegar allt
fór á ringulreið í Sovétríkjunum
lýstu „öfgamennirnir“ yfir full-
veldi Ápkazíu, en þáverandi (og
núverandi) ríkisstjórn Georgíu
reyndist ekki eins örlát og rúss-
nesku kommarnir til að úthluta
landshlutanum sem Georgía hefur
átt síðan á 6. öld fyrir Kr. Þá
sprakk tímasprengjan. Hinn 5.
júlí 1989 skutu „öfgamenn“ sak-
lausa og berskjaldaða Georgíu-
menn í Súkúmi, en sumir ofstækis-
fullir apkazskir læknar synjuðu
að taka við særðu mönnunum í
sjúkrahús. Þetta var fyrsti blóðugi
dagurinn í sögu þessara tveggja
þjóða.
Fyrir einu ári, um nótt, ráku
„öfgamenn" hálfsofandi íbúa út
úr húsum í Gagra, létu þá flykkj-
ast á leikvöllinn og drápu menn
hundruðum saman bæði með skot-
vopnum og stingvopnum. Síðan
söfnuðu þeir líkunum með dráttar-
vélum og brenndu þau. Þetta er
best dæmi grimmdar og miskunn-
arleysis. Það er eðlilegt að eftir
þetta sat georgíski herinn ekki
auðum höndum og þá skall á ófrið-
ur í alvöru.
Spurningin er hvernig þetta litla
þjóðarbrot hefur bolmagn til að
heyja stríð við stjórnarher ef
Apkazar eru miklu færri og liðs-
munurinn er ótrúlega mikill.
Stuðningur þeirra er fyrst og
fremst svokallað þriðja aflið,
þ.e.a.s. rússneskir neðanjarðar
valdamenn sem grípa til allra ráða
til að missa ekki völdin. Með fullt-
ingi þeirra ráða „öfgamenn" mál-
aliða til „vinnu“. Fjöldi þessara
málaliða hefur þjónað í Afganist-
an, en sumir þeirra eru nýkomnir
frá Austur-Evrópu og eru atvinnu-
lausir í Rússlandi. Margir í
„apkazska“ hernum eru norður-
kákasískir múhameðstrúarmenn.
„Ofgamenn“ heita þeim bæði hús-
næði og alls konar þægindum við
Svartahaf eftir stríðið.
Rússland tók aftúr að sér hlut-
verk geðgóðs dómara en fyrsti
friðarsamningur Shevardnadze og
Jeltsíns fór út um þúfur; þriðja
aflið æsti „öfgamenn" áfram.
í ágúst var gerður annar mikil-
vægur friðarsamningur milli Ge-
orgíu, Rússlands og forystumanna
apközsku „öfgamannanna“. Sam-
kvæmt samningnum skulu stríð-
andi aðilamir afvopnast, fjarlægja
vígtólin hver frá öðrum og skipta
herföngum. Þetta fer fram með
eftirliti fulltrúa Sameinuðu þjóð-
anna.
Enginn getur ábyrgst að allt sé
komið í kring, enda veit Guð einn
hvort tímasprengjan tifar enn. Eða
hver veit hvað „dómaranum" og
öðrum óvinum býr í brjósti?
Ástandið er ennþá afar órólegt
í norðvestur Georgíu þó að skot-
hríð heyrist ekki þar um slóðir.
Það eina sem liggur milli Georgíu-
manna og Apkaza er eintómt hat-
ur og fyrirlitning. Hvaða samning-
ur getur sætt þá persónulega þeg-
ar þúsundir georgískra og apkaz-
skra mæðra syrgja syni sína?
Skæðar tungur segja að friðar-
samningnum megi ekki treysta og
strax og síðasti georgíski hermað-
urinn yfirgefi Apkazíu, þá muni
þessi hluti Georgíu vera glataður.
Við sjáum nú til. Nú verða Guð,
framtíð og örlög að kveða upp
afgerandi dóm, ekki útlendir
„gerðarmenn".
Tbílísi, Georgíu.
Höfundur er fræðimaður frá
Georgíu.
Georgískir hermenn búast til orrustu.
í rústum heimilis síns.