Morgunblaðið - 27.10.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
31
Fljúgandi furðuhlutir
eftir Gunnar
Þorsteinsson
Það er nokkuð ljóst að tíðni þeirra
fyrirbæra sem menn kenna við fljúg-
andi furðuhluti (FF) hefur farið mjög
vaxandi á liðnum áratugum. Arið
1947 markar upphaf þeirra bylgju
FF sem nú er að ná hámarki. Þar
átti hlut að máii einkaflugmaður
nokkur á flugi nálægt Mount Rainer
i Wasingtonfylki í Bandaríkjunum
sem taldi sig sjá níu fljúgandi furðu-
hluti á reiki. Frásögn mannsins, Ken-
neths Arnolds, vakti athygli ijölmiðla
og þar með fór boltinn að rúlla. A
því ári einu vori skráð meira en 800
tilfelli er menn töldu sig hafa vitn-
eskju af FF í Bandaríkjunum. Síðan
þetta var hafa milljónir manna talið
sig hafa séð FF og er þar að finna
margan misjafnan sauð eins og ger-
ist og gengur. Fjöldi félaga hefur
verið stofnaður til að brjóta þetta
fyrirbæri til mergjar og ógrynni
prentaðs máls hefur komið út í sama
tilgangi. Þrátt fyrir áralangar vanga-
veltur eru menn nánast litlu nærri
um eðli og tilgang FF.
Dulhyggjan og trúarþörfin
Það hefur gerst á síðari árum að
FF tengjast æ meir dultrú og þeirri
hreyfingu sem menn kenna við Nýja
öld. Það er ljóst að trúarþörfin er
eðlislæg hjá manninum og því fer
fjarri að veraldarhyggja samtímans
fullnægi þeirri þörf hans. Á Vestur-
Iöndum hefur maðurinn sjálfur verið
settur í öndvegi og trú á Guð hefur
fallið í skuggann eða afskræmst í
boðun þeirra sem vilja gera eilíf sann-
indi að reiðskjóta sínum í burtreiðum
átakanna um hina réttu kenningu.
Það tóm sem hefur myndast í þessu
ástandi reyna sumir menn að fylla
með því að beina athygli sinni að
FF og er ekki að undra í sjálfu sér.
í átrúnaði á 'FF fínna menn eitt og
annað sem trúin á lifandi Guð gefur
manninum, s.s. að handan þessa
heims séu vitsmunaverur sem geti
gripið inn í líf mannsins og að hin
ÁRNAÐ HEILLA
„Að framansögðu tel ég
að menn hljóti að virða
mér það til vorkunnar
að ég hef glapist til að
nefna fljúgandi furðu-
hluti „ljúgandi furðu-
hluti“ og hvetji menn
til að hugsa sig um
tvisvar áður en þeir láta
glepjast.“
dulda vídd hafí að geyma tilveru sem
tekur öllu því fram sem við þekkjum
og jafnframt að þessar verur vaki
yfir hverri hreyfíngu okkar og hafi
verið megináhrifavaldar í gegnum
söguna alla.
Ný öld og FF
Svokallað Nýaldarfólk er í vaxandi
mæli að taka trú á FF, ég segi trú,
þar sem tæpast er hægt að skil-
greina afstöðu þeirra með öðrum
hætti, þar sem vísindalegar sannanir
fyrir fyrirbærunum eru ekki fyrir
hendi. Kom það glögglega í ljós nú
á dögunum þegar haldin var ráð-
stefna um þessi mál í Háskólabíói.
Málsvarar ráðstefnunnar reyndust
vera fólk sem stendur í forystu Ný-
aldarhreyfingarinnar og áhangendur
dulhyggju. Þetta endurspeglar ein-
ungis það sem er að gerast á þessu
sviði annars staðar í heiminum. Ný-
aldarfólk hvarvetna er að taka FF
inn í átrúnað sinn og má með sanni
segja að FF-hyggja sé orðin að trúar-
hreyfíngu sem á vaxandi fylgi að
fagna. Þessi trúarhreyfing hefur það
að markmiði sínu að breyta heimin-
um og til að svo megi verða þurfa
menn að hafna hefðbundnum kristin-
dómi og þeirri siðferðisviðmiðun sem
honum tengist.
Kenningin
Þeir sem telja sig vera í sambandi
við FF koma gjaman með skilaboð
frá geimverum sem fjalla um síðustu
tíma og heimsslit. í mörgum greinum
er frásögn þessara svokölluðu geim-
vera að mestu í samhljoðan við það
sem Biblían kennir um endurkomu
Krists, en í þeirra útgáfu hefur Krist-
ur misst aðalhlutverkið og þær,
geimverurnar, hafa tekið það að sér.
Menn og konur, sérstaklega úr röð-
um Nýaldarfólks, grípa þessi hindur-
vitni og boða sem heilagan sann-
leika, jafnvel undir formerkjum vís-
inda, án þess að nokkur óyggjandi
rök eða sannanir liggi þar að baki.
Rök þeirra eru oftast svp loftkennd
að ekki er hægt að festa á þau hend-
ur. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að
henda reiður á hveijar þessar verur
eru eða hvaðan þær koma eru menn
reiðubúnir að leggja líf sitt og fram-
tíð í hendur þeirra. Slík vinnubrögð
kunna ekki góðri lukku að stýra.
Hvaðan eru FF?
Á fimmta áratugnum, er fyrst fór
að bera á þessum fyrirbærum í veru-
legum mæli, gáfu geimverurnar það
til kynna að heimkynni þeirra væru
í okkar sólkerfí og gjarnan var talað
um Marsbúa í því samhengi. Eðli
þessara vera var þá annað í hugum
manna, því að menn óttuðust að
verur þessar hefðu þann tilgang með
komu sinni hingað að taka völdin
hér á jörðu. En með þróun geim-
ferðaáætlunar Bandaríkjanna hafa
heimkynni þessara geimvera breyst
og nú er meira vísað til heimkynna
í öðrum sólkerfum eða öðrum vídd-
um. Einnig hefur það gerst að eðli
þessara vera hefur breyst og nú tala
menn ekki um ógnun sem steðjar
að, heldur er sagt að hinir miídu
hjálparar séu hér á reiki og bíði eft-
ir rétta tækifærinu til að grípa inn
í atburðarásina hjá okkur hjálpar-
vana jarðarbúum.
Framan af birtust geimverumar í
geimskipum sem vom að útliti eins
og risavaxnir vindlar, síðan fóm hin-
ir frægu diskar að gera vart við sig,
en nú skilst mér að vemrnar sjáist
fyrst og fremst í þríhyrningslaga
farkostum og er það í stil við annað
Gunnar Þorsteinsson
í FF-fræðunum.
Fremstir í flokki við að breyta
ímynd geimveranna í hugum jarð-
arbúa hafa verið kvikmyndaframleið-
endur í Hollywood og hefur Steven
Spielberg átt þar stærstan hlut að
máli með myndum sínum „ET“ og
„Close Encounters of the Third
Kind“. Nú er svo komið að meiri
hluti Bandaríkjamanna trúir á tilvist
geimvera. Einhvern tíma var sagt
ef sama lygin væri endurtekin nógu
oft færu menn að trúa. Ef til vill á
það við í þessu samhengi.
Einn boðberi FF-hyggjunnar,
Frank Sranges, lét þó ekki geim-
ferðaáætlunina og stjömufræðina slá
sig út af laginu. Hann taldi sig hafa
verið í sambandi við veru frá Venus
með því rammíslenska nafni Val
Thor, en í stað þess að játa sig sigrað-
an í ljósi aukinnar þekkingar, menn
voru búnir að kortleggja Venus og
auk þess er mörg hundruð gráða
hiti á yfirborði plánetunnar, lýsti
hann því yfir að Val Thor og félagar
byggju nú undir yfirborði Venusar í
góðu yfírlæti.
Maður er nefndur Philip J. Klass
og er hann ritstjóri „Aviation Week
and Space Technology". Hann hefur
lýst því yfir að fjöldinn allur af fljúg-
andi furðuhlutum sé í raun ekki
furðuhlutir og hefur hann skorað á
boðbera FF-hyggjunnar að leggja á
borðið sannanir og hefur hann hejtið
hveijum sem það gerir vænni fjár-
fúlgu að launum. Þeir íjármunir eru
enn ósóttir.
Dulhyggjan og FF
Fjölmörg boð hafa borist mann-
anna bömum frá hinum svokölluðu
geimverum og með ýmsum hætti.
Það má segja að flest þeirra segi í
grundvallaratriðum hið sama. Boð-
skapurinn fjallar um hina miklu
stökkbreytingu sem framundan er
til handa mannkyninu til hins æðra
vitundarstigs, þegar því verður í
burtu rýmt sem nú heldur aftur af.
Boðskapur geimveranna, en hann
kemur fyrst og fremst fyrir tilstilli
miðla og annarra áhangenda huliðs-
heima, gengur í berhögg yið grund-
vallarboðun hinnar helgu bókar, sem
hefur verið leiðarljós manna í hinum
vestræna heimi í þeim efnum sem
heyra undir hið ósýnilega og sam-
band mannsins við heim andans.
Boðskapur geimveranna er í mörgum
greinum hinn sami og miðlanna, lófa-
lesaranna, Tarotspilarýnendanna,
töframannanna, gjörningamann-
anna, særingamannanna, kristalsk-
úlulesaranna og stjömuspámann-
anna og hann, eins og boðskapur
hinna, þolir illa skoðun. í ljósi þess
verðum við að draga þá ályktun að
hann eigi sér rætur í myrkrinu og
sé runninn frá höfðingja þess.
Páll postuli segir í sjötta kaflanum
í Efesusbréfinu: „Því að baráttan,
sem við eigum í, er ekki við menn
af holdi og blóði, heldur við tignirnar
og völdin, við heimsdrottna þessa
myrkurs, við andavemr vonskunnar
í himingeimnum."
Að framansögðu tel ég að menn
hljóti að virða mér það til vorkunnar
að ég hef glapist til að nefna fljúg-
andi furðuhluti „ljúgandi furðuhluti“
og hvetji menn til að hugsa sig um
tvisvar áður en þeir láta glepjast.
Höfundur er forstöðumaður
Krossins í Kópavogi.
Ljjósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman |
í hjónaband 14. ágúst sl. í Víði-
staðakirkju af sr. Sigurði Helga
Guðmundssyni Ólöf Björk Halldórs-
dóttir og Jónas Friðrik Hjartarson.
Heimili þeirra er á Sléttahrauni 19,
Hafnarfirði.
Ljósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 14. ágúst sl. í
Víðistaðakirkju af sr. Ægi Sigur-
geirssyni, Sesselja Unnur Vil-
hjálmsdóttir og Valgeir Guðbjarts-
son. Heimili þeirra er í Traðarbergi
23, Hafnarfírði.
Ljósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 14. ágúst sl. í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði af sr.
Einari Eyjólfssyni, Þórunn Arin-
bjarnardóttir og Hilmar Þór Hilm-
arsson. Heimili þeirra er í Stekkjar-
hvammi 50, Hafnarfirði.
Ijósm. Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 17. júlí sl. í Bú-
staðakirkju af sr. Pálma Matthías-
syni, Sigríður Sara Sigurðardóttir
og Guðmundur Björnsson. Heimili
þeirra er í Hverafold 116, Reykja-
vík.
fíjósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband 14. ágúst sl. í Veginum
af sr. Stefáni Ágústssyni Laufey
Birgisdóttir og Björgvin Þór Ósk-
arsson. Þau eru búsett í Sviþjóð.
Ljjósmynd Jón Haukur
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 24. júlí sl. í Ás-
kirkju af sr. Árna Bergi Sigur-
björnssyni Erla S. Jensdóttir og
Gunnar Fr. Birgisson. Heimili
þeirra er í Lækjarási 5, Reykjavík.
Ljósm. Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 14. ágúst sl. í
Bústaðakirkju af sr. Pálma Matthí-
assyni, Ósk Viðisdóttir og Kristján
Fjeldsted Jónsson. Heimili þeirra
er í Hrauntungu 64, Kópavogi.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 21. ágúst sl. í
Háteigskirkju af sr. Arngrími Jóns-
syni, Fjóla Jónsdóttir og Sigmar
Metúsalemsson. Heimili þeirra er
að Hvannalundi 2, Garðabæ.
Ljósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 28. ágúst sl. í
Háteigskirkju af Hafliða Kristins-
syni, forstöðumanni Hvítasunnu-
kirkjunnar, Þóra Sólbjörg Hall-
grímsdóttir og Björgvin Smári Guð-
mundsson. Heimili þeirra er að
Eyrarholti 5, Hafnarfirði.
Ljósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband þann 21. ágúst sl. í
Víðistaðakirkju af sr. Sigurði Helga
Guðmundssyni, Aðalbjörg Óladóttir
og Björn Sigurðsson. Heimili þeirra
er á Hringbraut 33, Hafparfirði.