Morgunblaðið - 27.10.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
H
fclk f
fréttum
GOLF
Islandsmeistarinn
styrktur
Morgunblaðið/Sverrir
Feðgarnir Bjarni Björnsson og Brynjólfur Bjarnason (t.v.) ásamt
mökum sínum Kristjönu Brynjólfsdóttur og Þorbjörgu K. Jónsdóttur
(t.h.). Fyrir miðri mynd eru Gunnhildur Gunnarsdóttir og Magnús
Gunnarsson.
Þorsteini Hallgrímssyni, ís-
landsmeistara í golfi, og Golf-
klúbbi Vestmannaeyja voru fyrir
skömmu' færðir veglegir styrkir í
viðurkenningarskyni fyrir frammi-
stöðu Þorsteins á íslandsmeistara-
mótinu þar sem hann sigraði með
glæsibrag.
Flugleiðir í Vestmannaeyjum
færðu Þorsteini að gjöf ókeypis
ferðir á öll golfmót sem hann tek-
ur þátt í á næsta ári, en Þorsteinn
hefur eytt óhemju tíma og fjár-
munum á undanförnum árum í
golfið og hefur sótt marga keppni
á fastalandið. Að sögn Gunnars
Más Sigurfínnssonar hjá Flugleið-
um í Eyjum líta þeir á þennan
styrk til Þorsteins sem viðurkenn-
ingu til Golfklúbbs Vestmannaeyja
og vilja einnig með þessu þakka
golfklúbbnum fyrir mikil og góð
viðskipti á undanförnum árum.
„Þetta gerir það líka að verkum
að golfklúbburinn getur styrkt
Þorstein á annan hátt en að greiða
fyrir hann eitthvað af ferðakostn-
aði ef þeir vilja hjálpa honum eitt-
hvað,“ sagði Gunnar Már.
Við sama tækifæri afhenti
Magnús Sveinsson, umboðsmaður
Olís í Eyjum, Þorsteini, fyrir hönd
Frú Vigdís Finnbogadóttir ræðir hér við hjónin Margréti Guðmunds-
dóttur leikhúsritara og Kjartan Ragnarsson leikara og leikstjóra.
BORG ARLEIKHU SIÐ
Frumsýning á
Englunum
Leikritið Englar í Ameríku eftir
Tony Kushner var frumsýnt í
Borgarleikhúsinu síðastliðið föstu-
dagskvöld. Fjallar leikritið um
homma, pólitík og ástir, svo eitt-
hvað sé nefnt. Til stóð að hafa
„drag-show“ í hléi, þ.e. að karlmað-
ur klæddist kvenmannsfötum og
syngi nokkur lög fyrir gesti. Af
þessu varð ekki af óþekktum ástæð-
um, en meðfylgjadni myndir eru
teknar í leikhléi.
KVIKMYNDIR
Tók kvenhlutverki
Steven Seagal kom mönnum í
Hollywood á óvart þegar hann
ákvað að taka að sér hlutverk sem
í upphafi var skrifað fyrir kven-
mann. Seagal er þekktur fyrir allt
annað en kvenlegheit og leikur yfír-
leitt harða nagla, nú síðast í mynd-
inni „Under Siege“. Nýja myndin
heitir „Dead Reckoning" en er ekki
sama mynd og Humphrey Bogart
lék í árið 1947. Myndin fjallar um
lögmann sem býr í Washington og
blandast inn í samsæri um morð á
þekktum þingmanni. Handritið
komst fyrir tilviljun í hendur Seag-
al og segir sagan að til að fá eitt-
hvert hlutverk hafí hann beðið um
að hlutvekinu yrði breytt í karl-
mannshlutverk. Var það gert og
hefjast upptökur snemma næsta
árs. Hins vegar höfðu Geena Davis
og Jodie Foster báðar verið að íhuga
hlutverkið þegar því var breytt.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Tekur við gjöf
Þorsteinn tekur við gjöfinni frá Flugleiðum í Eyjum úr hendi Gunn-
ars Más Sigurfinnssonar.
LEIKARAR
Fengu sprengjuhótun
golfklúbbsins, 70.000 króna styrk
Olís til klúbbsins vegna íslands-
meistaratitils Þorsteins.
Þá afhentu konur úr golf-
klúbbnum Þorsteini 100 þúsund
krónur að gjöf en það er hagnaður
af fimmtudagsmótum sem þær
hafa staðið fyrir í sumar og fleiri
fjáröflunum sem þær hafa efnt
til, til styrktar Þorsteini.
Grímur
Það er ekki alltaf tekið út með
sældinni að vera frægur. Fyr-
ir því fundu leikaramir í sjónvarps-
þáttunum „Beverly Hills 90210“
fyrir nokkm. Þau fengu sprengju-
hótun meðan verið var að taka upp
þátt í myndverinu. Sprengjan
fannst áður en hún gerði nokkum
skaða og varð gerð óvirk. Leikur-
unum brá að vonum við og segist
Brian Austin Green hafa fengið
sér lífvörð og nú gefur hann ekki
hveijum sem er upp heimilisfangið
sitt.
Þrátt fyrir að Brian sé einungis
19 ára veður hann í seðlum, enda
em árslaun hans í kringum 30
milljónir íslenskra króna. Þannig
keypti hann tvo bíla samdægurs
fyrir nokkru, Lexus og Porsche,
auk þess sem hann keypti sér nýtt
mótorhjól. Þá er hann einnig nýbú-
inn að kaupa einbýlishús skammt
frá foreldmm sínum. Þar sem hann
segist ekki vera sérlega góður í
tiltektinni fékk hann sér ráðskonu.
Hún býr einnig að mestu til mat-
inn, en hann segist vera góður að
matbúa ítalska rétti. Besta vinkona
hans er Soleil Moon Frye, sem leik-
ur táninginn Punky Brewster úr
samnefndum sjónvarpsþáttum.
„Hún er besti vinur sem ég á og
fær alltaf að heyra lögin mín fyrst
allra,“ segir Brian sem í daglega
lífínu er alltaf að reyna að semja
líkt og í sjónvarpsþáttunum.
Brian hefur leikið í sjónvarpi frá
níu ára aldri. Hann segir að það
Frye úr „Punky
Brewster-þáttunum“ er besta
vinkona Brians.
Lifi Brians Austins
Green og félaga var
ógnað.
sé erfitt og hann verði að standa
sig, einkum í Beverly Hills-þáttun-
um því ungir leikarar standi í bið-
röðum eftir að fá hlutverk.
<
i
í
<
<
<
<
<
<
<
<
<
I
<
i