Morgunblaðið - 27.10.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gefðu þér nægan tíma til
umhugsunar áður en þú
tekur mikilvæga ákvörðun
í peningamálum. Ástarsam-
band styrkist í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vanhugsuð orð vinar geta
sært þigi dag. Það er betra
að ræða málin í einlægni
en að byrgja gremju þína
inni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinnan hefur algeran for-
gang í dag. Það eru miklar
kröfur gerðar til þín og þú
kemur miklu í verk en í
kvöld slapparðu af.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$6
Ástvinir ráðgera að fara
saman í ferðalag, en kvöldið
er helgað heimili og fjöl-
skyldu eftir annríki dagsins.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) <ef
Kynntu þér vel verðlag áður
en þú gerir innkaup. Ætt-
ingi ætlast til mikils af þér.
Helgin framundan lofar
góðu.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Hamingja ríkir í ástarsam-
bandi og ástvinir undirbúa
ferðalag. Einhver smáá-
greiningur getur komið upp
milli vina.
Vog
(23. sept. - 22. október)
\
Fáguð framkoma veitir þér
brautargengi í dag. Farðu
samt varlega í samningum
um fjármál því ekki eru all-
ir heiðarlegir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Verkefni sem þú vinnur að
er erfiðara viðfangs en þú
ætlaðir. Að vinnudegi lokn-
um kjósa ástvinir að vera
út af fyrir sig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) SffO
Vandaðu valið á þeim sem
þú umgengst í dag því ann-
ars gætir þú setið uppi með
einhvern sem hefur sáralítið
að segja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Persónuleiki þinn reynist
þér styrkur í starfi. Nú
gefst gott tækifæri til að
bjóða heim gestum í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) Ö7Z
Vertu vel á verði ef einhver
reynir að misnota sér að-
stöðu þína í vinnunni. Góðra
frétta er að vænta frá fjar-
stöddum vini.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Tajjt
Þótt þú hafir fé handa á
milli er ástæðulaust að sóa
því í óþarfa. Athugaðu vel
kostnaðarhliðina á fyrir-
huguðu ferðalagi.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staóreynda.
^DC ITID
UKC 1 1 IK
TOMMI OG JENIMI
LJOSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
ARE VOU THE KIP
UiHO HIT THE
HOME KUN OFF
ME YE5TEK17AY? *
Ert þú strákurinn sem
slóst heimahöfnina
frá mér í gær?
WELL.1 H0PE VY0UCAME
YOU'RE 5ATI5FIEP!/ CLEAR 0VEK
YOURUINEP HERET0TELL
MYUOHOLELIFE! [ METHAT?
V
NO, I OJAS JUST KINP
OFCURIOU5TO 5EE OJHERE
YOU UVE..Y0U PR0BABLY
HAVE A POG,TOO,
Jæja, ég vona að þú sért ánægð-
ur! Þú eyðilagðir allt mitt líf!.
Komstu hingað til að segja mér
það?
Nei, ég var eiginlega bara forvitin að sjá hvar þú
byggir. Þú átt sennilega hund líka, er. það ekki?
Eiginlega. Hvað áttu við með eiginlega?
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Jón Baldursson náði einu
„Zia-dobli“ á spilakvöldi hjá BR
í síðustu viku. Makker hans var
Sverrir Ármannsson, en and-
stæðingarnir Eiríkur Hjaltason
og Ragnar Hermannsson.
Austur gefur; enginn á
hættu., Norður ♦ ÁD972 y ÁK3
♦ 3 ♦ G1093
Vestur Austur
♦ 63 ♦ KG54
y 98 y G10754
♦ D10985 ♦ K62
♦ ÁD52 Suður ♦ 108 ♦ D62 ♦ ÁG74 ♦ K874. ♦ 6
Vestur Norður Austur Suður
Sverrir Ragnar Jón Eiríkur
- - Pass Pass
Pass 1 ^paði Pass 1 grand*
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 hjörtu Dobl 3 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Með KGxx í spaða á eftir
opnara sá Jón að geim myndi
tæplega vinnast í NS eftir þessa
hægfara byrjun. Þegar Eiríkur
sagði 2Gr. tók hann því ákvörð-
un um að dobla þijú. En var þó
hræddur um að fá út lauf, eða
jafnvel spaða, því doblið er aug-
ljóslega byggt á spaðastyrk.
Hann greip því fegins hendi
tækifærið að dobla þijú hjörtu
til að tryggja útspil í þeim lit.
Sverrir kom út með hjartaníu.
Eiríkur tók slaginn í borði og
svínaði fyrir laufdrottningu.
Sverrir átti þann slag og hélt
áfram með hjarta. Næst prófaði
Eiríkur að láta spaðatíuna rúlla,
en var ekki hissa þegar Jón drap
á gosa og fríaði hjartað. Fram-
haldið var sjálfgefið: Eiríkur
fríaði laufið og tók sína 7 slagi:
2 niður og 300.
Á hinu borðii)u spiluðu NS
einnig 3 grönd (ódobluð) og
sluppu einn niður.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Bandaríska undrabamið Gata
Kamsky sýndi frábær tilþrif á
útsláttarmótinu í Tilburg um dag-
inn þangað til hann var sleginn út
í undanúrslitum af Boris Gelfand,
Hvíta-Rússlandi. Þessi staða kom
upp í viðureign Kamskys (2.655),
sem hafði hvítt og átti leik gegn
næstöflugasta skákmanni Búlg-
ara, V. Spasov (2.535).
37. Rh6+! — Kf6 (Svartur er mát
eftir 37. — Kxh7 en það bjargaði
engu að taka ekki riddarann:) 38.
Rg4 mát. Kamsky lenti vinningi
undir á móti Belganum Winants,
Rússanum Júsupov og næst stiga-
hæsta skákmanni heims, ívant-
sjúk. Sá síðastnefndi náði meira
að segja tvisvar vinningsforskoti.
í öll skiptin náði Kamsky að jafna
metin og hafa sigur að lokum.
Þetta sýnir mikinn taugastyrk og
keppnishörku sem gæti fleytt hin-
um 17 ára gamla Kamsky langt
í framtíðinni.