Morgunblaðið - 27.10.1993, Qupperneq 42
-42
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTiR
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER 1993
faémR
FOLK
■ BERNARD Tapie, eigandi
Marseille, sagði frá því í viðtali í
franska blaðinu L’Equipe í gær, að
hann ætli að hætta sem forseti fé-
lagsins eftir þetta keppnistímabil
og snúa sér á ný að stjórnmálum.
Hann hyggst leiða lista róttækra
vinstrimanna í kosningum til Evr-
ópuþingsins í'júní.
■ KENNY Dalglish, fram-
kvæmdstjóri Blackburn, keypti í
gær enska landsliðsmanninn
David Batty á 2,75 millj. punda.
Batty er 24 ára miðvallarspilari,
sem hefur leikið 14 landsleiki fynr
Wales og yfir 200 leiki fyrir Leeds.
■ MARSEILLE stendur í viðræð-
um við Inter Milan um að fá mið-
heijann Darko Pancev lánaðan í
óáHveðinn tíma.
■ MICHAEL Laudrup sat á
bekknum hjá Barcelona í 1:0 sigri
gegn Real Oviedo í spænsku deild-
inni um helgina. Daninn var félög-
um sínum sem sönn fyrirmynd og
lét þetta ekki raska ró sinni. „Ég
átti um þrennt að velja; í fyrsta
lagi gat ég látið þetta bitna á leik-
manninum, sem tók stöðu mína. í
öðru lagi gat ég ásakað þjálfarann
og sagst taka hatt minn og skó. í
þriðja lagi gat ég fengið mér gott
vínglas með eiginkonunni yfir kvöld-
matnum. Ég valdi þriðja kostinn."
■ PACO Llano, markvörður Dep-
ortivo Coruna, hefur aðeins fengið
á sig eitt mark í átta leikjum og
er það met í spænsku deildinni.
Engu að síður er félagið á höttunum
eftir öðrum markverði. „Ég skil
þetta ekki, því ég hef verið að spila
vel,“ sagði Llano. „En stundum er
það þannig, að sá, sem er ekki á
náum launum, er ekki metinn eins
og þeir tekjuháu."
■ PHIL Neal, fyrrum leikmaður
Liverpool, sem var aðstoðarmaður
Bobby Gould hjá Coventry, hefur
tekið við stjórninni hjá félaginu.
Hann hefur ráðið fyrrum félaga sinn
hjá Liverpool, Phil Thompson,
sem aðstoðarmann sinn.
■ SHEFFIELD Utd. hefur keypt
norska landsliðsmanninn Roger
Nilsson, bakvörð frá Víking í Sta-
vangri á 350 þús. pund.
■ DEAN Saunders mun ekki
leika með Aston Villa næstu tvær
vikumar, vegna veikinda.
■ KEVIN Keegan, framkvæmda-
stjóri Newcastle, setti Lee Clarke
-strax í varaliðíð á mánudaginn og
hann verður ekki í leikmannahópi
félagsins í kvöld í deildarbikarleik
gegn Wimbledon. Eins og og sagt
var frá í gær, þá mótmælti Clarke
þegar hann var tekinn af leikvelli á
laugardaginn.
^2Aeikvika^^3^M^okt^99^^
Nr. Leikur:
Röðin:
1. AIK - Trelleborg 1 - -
2. Brage - Örebro - - 2
3. Degerfors - Norrköping 1 - -
4. Hacken - Helsingborg - X -
5. Malmö FF - Frölunda - - 2
6. Örgryte - Halmstad 1 - -
7. Öster - Göteborg
8. Aston Villa - Chelsea
9. Everton - Man. Utd.
- 2
10. Leeds - Blackbum - X -
11. Man. City - Liverpool - X -
12. Oidham - Arscnal - X -
13. Sheff. Utd - Sheff. Wed - X -
Heildarvinningsupphæðin:
90 milljón krónur |
13 réttir: 3.453.640 1 kr.
12 réttir: 44.630 1 kr.
11 réttir: 2.930 1 kr.
10 réttir: 680 J kr.
KNATTSPYRNA
GullK vill aftur
í landsliðið
RUUD Gullit er tilbúinn að leika
aftur með hollenska landslið-
inu í knattspyrnu og finnst við
hæfi að Ijúka landsliðsferlinum
í úrslitakeppninni f Bandaríkj-
unum næsta sumar.
Eg hef ekki varpað hugmyndinni
frá mér um að gefa aftur kost
Hart baríst
| ikil spenna er nú í Asíuriðli
heimsmeistarakeppninnar í
knattspymu, sem stendur yfir • í
Qater. Þegar þrír leikir eru eftir
eiga fimm þjóðir af sex sem leika
um tvo farseðla til Bandaríkjanna,
möguleika á að hreppa hnossið. Á
mánudaginn vann Iran N-Kóreu
2:1, Japan vann S-Kóreu 1:0 og á
sunnudag gerðu Saudi-Arabía og
írak jafntefli, 1:1.
Staðan er þessi:
Japan..............4 2 1 1 5:2 5
S-Arabía...........4 1 3 0 4:3
S-K6rea......... 4 1 2 1 6:4 4
írak...............4 1 2 1 7:7 4
íran...............4 2 0 2 5:7 4
N-Kórea............4 1 0 3 5:9 2
■Á morgun fara fram þrír síðustu leikim-
ir: S-Kórea - N-Kórea, Saudi Arabía - íran,
Irak - Japan.
Áhugayerðasti
leikur Ástralíu
ÆT
Astralía og Argentína mætast í
Sydney n.k. sunnudag, en um er
að ræða fyrri leik þjóðanna um réttinn
til að leika í úrslitakeppni heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu í Banda-
ríkjunum næsta sumar. Leiknum verður
sjónvarpað beint til a.m.k. 18 landa.
á mér í landsliðið," sagði hann í
viðtali við blaðið Corriere dello
Sport í gær „og þar hefur endur-
koma [Johans] Cruyffs, helsta
nafns í sögu Hollands, mikið að
segja.“
Gullit, sem er 31s árs, lenti uppá
kant við Dick Advocaat, landsliðs-
þjálfara, í apríl sem leið eftir að
hafa verið skipt útaf í HM-leiknum
við Englendinga, og hefur ekki gef-
ið kost á sér í landsliðið síðan. Hins
vegar hefur hann farið á kostum
með Sampdoria á Ítalíu og sýnt
gamla takta.
Holland þarf stig í Póllandi 17.
nóvember til að tryggja sér þátt-
tökurétt í úrslitakeppni HM, en fari
svo tekur Cruyff við stjórn lands-
liðsins og stýrir því í Bandaríkjun-
um.
Ruud Gullit.
HANDKNATTLEIKUR
Athugasemd
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, bað Morgunblaðið um
að birta eftirfarandi athuga-
semd:
„I frétt í Morgunblaðinu s.l.
miðvikudag um aðstöðuleysi
landsliðsins í handknattleik,
benti undirritaður á vandamál,
sem eiga sér stað, þegar landsl-
iðið er kallað saman yfir vetrar-
mánuðina. Tilgangurinn var að
vekja athygli á vandamálinu, en
ekki að draga einhvern einn til
ábyrgðar. Samstarfið við FH
hefur verið mjög gott í gegnum
tíðina og sérstaklega við Krist-
ján Arason, þjálfara meistara-
flokks karla. I því sambandi má
geta þess að FH felldi niður
húsaleigu vegna Evrópuleiks Is-
lands og Króatíu og um 30
manns frá félaginu unnu í sjálf-
boðavinnu á leiknum.
Undirrituðum finnst leiðinlegt
að FH sé gert að blóraböggli í
þessu máli, en engu að síður er
um að ræða vandamál, sem þarf
að taka á á skynsamlegan hátt.
Virðingarfyllst,
Þorbergur Aðalsteinsson.“
GOLF / HM I HOLUKEPPNI
Pavin fagnaði sigri
COREY Pavin varð fyrstur
Bandaríkjamanna í 14 ár til að
sigra í heimsmeistarakeppn-
inni í holukeppni í golfi. Hann
stóð upp sem sigurvegari í
Wentworth í Englandi um helg-
ina eftir harða keppni við Bret-
ann Nick Faldo, sem átti titil
að verja.
Faldo, sem er efstur á afrekalist-
anum, var tveimur höggum
undir síðasta keppnisdag, en jafnaði
metin með sigri á 16. og 17. holu.
Hins vegar brást honum bogalistin
á 18. og síðustu holu, en Pavin fór
á pari og fagnaði sigri. Þetta var
þriðji sigur Bandaríkjamanna gegn
Evrópubúum á skömmum tíma,
kom í kjölfarið á glæstum árangri
í Dunhill-bikarnum og Ryder
keppninni.
„Það er sérstaklega ánægjuleg
tilfmning að sigra frábæran spilara
eins og Nick Faldo,“ sagði Pavin,
sem er 33 ára. „Hann gafst aldrei
upp og því er leiðinlegt að þetta
skyldi fara svona í lokin, en leikur-
inn var frábær. Hvað mig varðar
þá kemur þessi keppni næst á eftir
stóru mótunum og tekur miklu
meira á, því ekki er hægt að sila
svona í hverri viku.“
j
ISLAIVDSMOT 1994
í KIUATTSPYRIUU IIUIUAIUHÚSS
Þátttaka tilkynnist fyrir 5. nóvember.
Sérstök athygli er vakin á þeirri breytingu að
fyrst verður leikin svæðakeppni í yngri
flokkum karla og kvenna.
Eyðublað fyrir þátttökutilkynningu og nánari
upplýsingar fást á skrifstofu KSÍ,
sími814444.
Reuter
Corey Pavln hampar bikarnum sem
heimsmeistaratitlinum fýlgir.
KORFUBOLTI
Leiðrétt staða
Staðan í a-riðli úrvalsdeildarinnar í körfu-
knattleik var ekki rétt í biaðinu í gær. Leik-
ur Snæfells og ÍA, 114:105, var ekki með
í töflunni og er beðist velvirðingar á mistök-
unum. Snæfell er efst vegna sigurs í leikn-
um gegn Skallagrími og að sama skapi er
ÍA ofar en Valur vegna sigurs nýliðanna í
innbyrðis leik félaganna. Rétt staða er eftir-
farandi:
......
Fj. leikja U T Stig Stig
SNÆFELL 4 3 1 361: 362 6
SKALLAGR. 4 3 1 317: 298 6
IBK 4 2 2 405: 325 4
ÍA 4 1 3 320: 397 2
VALUR 4 1 3 354: 375 2
LYFTINGAR
Tveir
Rússarí
ævilangt
bann
Alþjóða lyftingasambandið,
IWF, hefur dæmt tvo Rússa
í ævilangt keppnisbann vegna mis-
notkunar lyfja og sá þriðji á yfir
höfði sér árs bann af sömu orsök-
um.
Samkvæmt frétt í dagblaðinu
Sovietsky Sport lyfjaprófaði IWF
nokkra keppendur á rússneska
meistaramótinu í lyftingum, sem
fram fór í St. Petersburg í septem-
ber sem leið. Rannsókn leiddi mis-
notkun lyfja í ljós hjá þremenning-
unum og í kjölfarið voru Maxim
Agapitov, Rússlandsmeistari, og
silfurhafinn Andrej Matveyev úti-
lokaðir frá frekari keppni, en
Ramzan Musayev, brosnhafi frá
síðasta Evrópumóti, sleppur senni-
lega með árs bann. Rússneska sam-
bandið var einnig með lyfjapróf á
sínum snærum og fann fjóra kepp-
endur, sem höfðu misnotað lyf, en
fyrrnefndir þremenningar voru
ekki þar á meðal. Forseti sam-
bandsins kenndi um ófullnægjandi
aðferðum eða óhæfum sérfræðing-
um.
Fyrr á árinu var rússneskur lyft-
ingamaður, Vyacheslav Osiov, sem
er heimsmeistari unglinga, dæmd-
ur í ævilangt keppnisbann vegna
misnotkunar lyfja og stendur Lyft-
ingasamband Rússland frammi fyr-
ir því að greiða 50.000 dollara (um
3,5 millj. kr.) í sekt vegna fjór-
menninganna eða þátttökubanni í
eitt ár í mótum á vegum IWF, en
heimsmeistarakeppnin verður hald-
in í Melbourne í Ástralíu í næsta
mánuði. Rússar hafa verið mjög
sigursælir á alþjóða mótum í lyft-
ingum og keppendur frá fyrrum
Sovétríkjum sigruðu í öllum grein-
um á Evrópumótinu í Búlgaríu í
apríl s.l., en þá féll enginn kepp-
andi á lyfjaprófí.
FERÐIR
Ferð á opnunar-
leikina í London
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-
Landsýn gengst fyrir í samvinnu við
Bylgjuna og Stöð 2 ferð á opnunarleiki
NBA-deildarinnar, sem fara fram í
London um helgina. Brottför n.k. föstu-
dag og heimkoma mánudaginn 1. nóv-
ember, en leikir Oriando Magic og Atl-
anta Hawks verða á laugardags- og
sunnudagskvöld. Heimir Karlsson og
Einar Bollason verða fararstjórar, en
aðeins 40 sæti eru í boði.
Hópferð til New
York í desember
Ferðaskrifstofan Ferðabær efnir til
fjögurra daga ferðar til New York 9.
desember n.k. og gefst kostur á að sjá
leik New Jersey og meistara Chicago
föstudaginn 10. desember. Nánari upp-
lýsingar hjá Ferðabæ, sem getur auk
þess útvegað miða á aðra leiki í NBA-
deildinni í samvinnu við bandaríska
NBA-söluskrifstofu.
Hópferð á leik
Essen og FH
Úrval/Útsýn verður með hópferð á
leik Essen og FH í Evrópukeppni borg-
arliða í handknattleik 6. nóvember.
Ferðin stendur yfir frá 4.-7. nóvember
og kostar kr. 82.500.
FELAGSLIF
Sælkerakvöld Víkings
Víkingsveit Víkings gengst fyrir sælkera-
kvöldi í Vfkinni næstkomandi laugardag.
Fjölbreyttir réttir verða fram reiddir frá
kiukkan 20, en húsið opnar klukkan 18.30.
Ýmis skemmtiatriði verða og diskótek er
líður á kvöld. Nánari upplýsingar og skrán-
ing hjá Guðjóni Steinssyni, Jóhannesi Guð-
mundssuyni og í Víkinni.