Morgunblaðið - 27.10.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.10.1993, Blaðsíða 43
43 KNATTSPYRNA KORFUKNATTLEIKUR ÚRSLIT Handknattleikur KR-Grótta......................21:21 Laugardalshöll, 1. deild kvenna í handknatt- leik, þriðjudaginn 26. október 1993. Gangur leiksins: 0:4, 3:6, 5:7, 6:9, 8:10, 12:12, 14:14, 17:16, 19:18, 19:19, 21:21. Mörk KRSigríður Pálsdóttir 8/1, Anna Steinsen 4/1, Brynja Steinsen 4, Laufey Kristjánsdóttir 4, Nellý Pálsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Finnsdóttir 12/2. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Gróttu: Laufey Sigvaldadóttir 5/1, Sigríður Snorradóttir 5, Krassimira Tallieva 4, BrynhildUr Þorgeirsdóttir 3, Unnur Hail- dórsdóttir 1, Þórdís Lilja Ævarsdóttir 1, Elísabet Þorgeirsdóttir 1, Björk Brynjólfs- dóttir 1. Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 15/2. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Óskar M. Jónsson og Högni Þ. Júlíusson. BGrótta var með yfirhöndina lengst af en KR-ingar gáfust ekki upp og komust yfir í fyrsta skiptið um miðjan seinni hálfleik. Það sem eftir var leiks voru KR-ingar allt- af fyrri til að skora en Grótta jafnaði ætíð. Lokasekúndumar voru mjög spennandi og náði Brynhildur að jafna fyrir Gróttu þegar 15 sekúndur voru til leiksloka. KR-liðið barðist mjög vel en atkvæðamestar voru Sigríður Pálsdóttir (sérstaklega í seinni hátfleik), Anna og Brynja Steinsen. Mark- maður KR, Vigdís Finnsdóttir, varði líka mjög vel. Fanney Rúnarsdóttir var best í liði Gróttu. Fram - Víkingur................19:22 Gangur leiksins: 0:5, 3:6, 5:8, 7:12, 11:13, 13:14, 16:17, 16:18, 18:20, 19:22. Mörk Fram: Zelka Tosic 5/3, Díana Guð- jónsdóttir 5/5, Margrét Blöndal 4, Ósk Víð- isdóttir 2, Guðríður Guðjónsdóttir 2, Kristfn Ragnarsdóttir 1. Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir 11/2. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Víkings: Halla M. Helgadóttir 10/5, Inga Lára Þórisdóttir 5/2, Svava Sigurðar- dóttir 3, Heiða Erlingsdóttir 2, Hanna M. ' Einarsdóttir 1, Svava Ýr Baldvinsdóttir 1. Varin skot: Hjördís Guðmundsdóttir 7. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Ingvar Georgsson og Jóhann Júlíusson. BVíkingar byijuðu leikinn mjög vel og komust í 5:0 en Fram náði að rétta úr kútnum og staðan í hálfleik var 11:13 fyrir Víking. Snemma í seinni hálfleik náðu Framarar að minnka muninn í eitt mark en náðu aldrei að jafna. Best í liði Fram var Kolbrún Jóhannsdóttir, markvörður. Hjá Víkingi Halla María Helgadóttir og Inga Lára Þórisdóttir atkvæðamestar. Guðrún R. Kristjánsdóttir. Körfuknattleikur ÍBK-ÍS.........................91:56 íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið — 1. deild kvenna, þriðjudaginn 26. október 1993. Stig ÍBK: Björg Hafsteinsdóttir 21, Anna María Sveinsdóttir 18, Hanna Kjartansdótt- ir 15, Olga Færseth 10, Þórdís Ingólfsdótt- ir 10, Anna María Sigurðardóttir 7, Guð- laug Sveinsdóttir 6, Elínborg Herbertsdóttir 2 og Lóa Björg Gestsdóttir 2. Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 23, Ásta Ósk- arsdóttir 21, Kristín Sigurðardóttir 5, Elín- borg Guðnadóttir 4, María Guðmundsdóttir 2, Sóley Pásdóttir 1. BLeikurinn var jafn í upphafi, en ÍBK hafði þó alltaf yfirhöndina og seig jafnt og þétt framúr. Sigur Keflvíkinga var aldrei í hættu, liðið spilaði mjög góða vöm og var með góða skotnýtingu. Bestar í liði ÍS voru Hafdís og Ásta, en liðsheildin var sterk hjá Keflavík. Anna Maria Sveinsdóttir Valur-KR.......................56:75 Hlíðarendi: Stigahæstar þjá Val: Linda Stefánsdóttir 17 og Sigrún Hauksdóttir 11. Stigahæstar hjá KR: Helga Þorvaldsdóttir 14, Eva Havlikova og Guðbjörg Noröfjörð 12 stig hvor. Knattspyrna England Deildarbikarinn, 3. umferð: Arsenal — Norwich.................1:1 lan Wright (78.) - Ian Crook (33.). Blackburn — Shrewsbury............0:0 Blackpool — Peterborough..........2:2 Everton — Crystal Palace..........2:2 Peter Beagrie (56.), Dave Watson (90.) - Andy Thom (48.), Gareth Southgate (54.) Manchester City — Chelsea.........1:0 David White (83.) Oldham — Coventiy.................2:0 Portsmouth — Swindon..............2:0 Sunderland — Aston Villa.........1:4 - Dalina Atkinson 2, Kevin Richardson, Ray Houghton. Tranmere — Grimsby................4:1 ■John Aldridge gerði tvö marka Tran- mere, en hann var að leika fyrsta leik f fjór- ar vikur vegna meiðsla. íkvöld Handknattleikur 1. deild karla Garðabær: Stjaman - Þór.......20 KA-hús: KA - Víkingur......20.30 Kaplakriki: FH-KR..........20.30 Seljaskóli: ÍR-Selfoss........20 íþróttah. Garði: Valur - UMFA....20 ■ Sætaferðir verða frá Valsheimilinu kl. 18.30. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993 Ólafur með tilboð frá þýsku liði ÓLAFUR Gottskálksson, mark- vörður KR-inga, er með tiiboð frá þýska liðinu SuT Pederborn- Neuhaus sem leikur í 3. deild. „Ég hef fengið tilboð frá félaginu og þjálfarinn leggur mikla áherslu á að fá mig út sem fyrst, en þetta skýrist á næstu dög- um,“ sagði Ólafur. Olafur lýsti því yfir í viðtali við Morgonblaðið í gær að hann ætlaði sér að fara frá KR og hafa fjögur fyrstu deildarfélög þegar sett sig í samband við hann, auk þýska liðsins. „Ef samningar nást við þýska lið- ið reikna ég með að vera í viku í Þýskalandi til að byija með til að kynna mér aðstæður hjá liðinu, en gert er ráð fyrir að ég verði eitt ár hjá félaginu," sagði Olafur. SuT Paderborn-Nauhaus leikur í 3. deild, eða áhugamanna deildinni, og er í Westfalen riðli og er þar í þriðja sæti af 16 eftir 9 leiki — hef- ur 13 stig og hefur sett 22 mörk og fengið á sig 13. SKIÐI VETRAROLYMPIULEIKAR Smokkum drerft í Lilleliammer Framkvæmdaaðilar Vetrarólympíuleikanna í Lillehammer hafa ákveðið að dreifa 40 þúsund smokkum á leikunum. Það verða íþróttamenn, fréttamenn, tæknimenn og sjálfboðaliðar sem vinna við leikana sem fá smokkana afhenta í litlum poka sem inniheldur tvo smokka auk upplýs- inga um heilbrigðismál. David McDonagh, sem hefur eftirlit með heilbrygðismálum á leikun- um, segir þetta gert til að sporna við útbreiðslu HIV veirunnar. „Fyrir- mennin á leikunum [VIPs] munu ekki fá smokkana við komuna til Nor- egs eins og hinir, en við munum meta hvert mál fyrir sig,“ sagði McDo- nagh. Þess má geta að á sfðustu leikum, sem voru í Albertsvilie, stóð fólki 36 þúsund smokkar til boða, en það var aðeins íþróttafólkið sem fékk þá fría. Jón Kr. Gíslason, fyrirliði landsliðsins, klæðist hann landsliðsbúningnum næst í maí? Verkefnaskorlur hja landsliðinu KKÍ hefur komið með uppástungur um að Evrópukeppni lands- liða verði með svipuðu sniði og hjá knattspyrnumönnum ISLENSKA landsliðsins í körfuknattleik bíða ekki mörg verkefni á næstu árum — engir landsleikir á heimavelli eru í sjónmáli næstu tvö árin. Framundan er opna Norðurlandamótið, sem verður í Svíþjóð f maf og Evrópukeppni landsliðs, sem verður vorið 1995. Þess á miili hafa ekki verið ákveðnir neinir landsleikir, en nú er stefnt að því að reyna að fá landsleiki gegn tveimur þjóðum um áramót. Það er mjög erfitt að fá landsleiki hingað til íslands, þar sem þær breytingar hafa orðið á körfuknatt- leiknum í Evrópu að félagsliðin eru byrjuð að ráða ferðinni. Félögin sjálf eru byijuð að keppa svo mikið, að þau gefa leikmenn sína ekki lausa í landsleiki, nema það séu leikir í Evr- ópukeppni," sagði Pétur Hrafn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Körfu: knattleikssambands íslands, en KKÍ hefur ekki haft landsliðsþjálfara starfandi síðan Torfí Magnússon hætti eftir Evrópukeppnina sl. sum- ar. „Við erum ekki á þeim buxunum að gefast upp, þó að það sé erfitt að- fá landsleiki. Það hefur ekki verið gengið frá ráðningu landsliðsþjálf- ara, þar sem engin verkefni hafa legið fyrir. Þjálfari verður ráðinn á næstunni og landsliðið mun koma saman milli jóla og nýárs,“ sagði Pétur Hrafn. „Þessi þróun og fækkun á landsleikjum hefur átt sér stað í Evrópu tvö síðastliðin ár. Þetta er hættuleg þróun og við hjá KKI höfum bent á að það sé kominn tími til að gera breytingar — breyta Evrópu- keppni landsliða í þann farveg, sem er í knattspymunni og handknatt- leikurinn hefur tekið upp, að leikið sé í riðlum; heima og heiman. Stóru þjóðimar hafa ekki tekið vel í þær breytingar, en við höfum fengið fylgi hjá Norðurlandaþjóðunum, þjóðun- um á Bretlandseyjum og mörgum öðrum. Það em fleiri en við sem hafa áttað sig á þeirri hættu sem þróunin hefur skapað. Það verður að koma á laggimar sterkri og skemmtilegri Evrópukeppni, sem yrði lyftistöng fyrir körfuknattleik- inn í Evrópu. Því fyrr, þvi betra. Það er ekki skemmtilegt að sitja upp með landslið, sem er verkefnalaust tímun- um saman,“ sagði Pétur Hrafn. Eins og fyrr segir þá eiga bestu körfuknattleiksmennimir möguleika á að leika landsleiki í maí 1994 og síðan aftur ári síðar, eða vorið 1995. Þeir leikir fara ekki fram á íslandi. HANDBOLTl Heimaleik- ur Vals íGarði | slandsmeistarar Vals mæta Aftureldingu í 1. deildar- keppninni í handknattleik í kvöld og verður leikið í Graðin- um, en það er fyrsti opinberi handknattleiksleikurinn, sem leikinn verður þar í nýrri íþróttamiðstöð, sem vígð var 16. október s.l. Síðan hefur farið þar fram kynning á ýms- um íþróttagreinum, sem um 2.500 manns hafa fylgst með auk þátttakenda, en á sama tíma hafatæplega 1.300 manns nýtt sér sundlaugina. Starfsemin hófst með innan- hússmóti Víðis í knattspymu, en körfubolti, badminton, blak, fimleikar, boccia, erobikk og tónleikar fylgdu í kjölfarið. Handknattieikur er næst á dag- skrá og hefst viðureign íslands- og bikarmeistara Vals og nýliða Aftureldingar kl. 20 í kvöld. Wassberq aðstoðar Daníel DANÍEL Jakobsson, skfða- göngumaður frá ísafirði, und- irbýr sig nú af kappi fyrir Ólympíuleikana í Lillehammer sem fram fara í febrúar á næsta ári. Thomas Wass- berg, fyrrum ólympíu- og heimsmeistari Svía, er orðinn tæknilegur þjálfari hjá félagi Daníels í Svíþjóð, Ásarna. „Wassberg hefur tekið göngstíl minn sérstaklega fyrir að undanförnu. Hann brosti bara er hann sá mig fyrst ganga með hefðbund- inni aðferð og sagðist geta lagað stílinn töluvert," sagði Daníel. Daníelhefur flutt sig frá Jerpen til Östersund. Þar er hann í námi, tekur tvö fög — starfræði Daníel Jakobsson Thomas Wassberg og lífeðlsfræði, samhliða æfingum með Ásarna, sem er eitt sterkasta skíðagöngufélag Svía. Daníel sagði að Wassberg hefði byijað á því áð stytta skíðastafina hjá sér um 4 sntímetra er hann var í æfíngabúð- um með Ásarna í Austurríki í síð- asta mánuði. „Ég hef ekki verið eins sterkur í hefbundnu aðferðinni og þeirri fijálsu. Wassberg hefur verið þekktur fyrir góðan göngu- stíl og veit því hvað hann er að segja. Vonandi kemur þekking hans mér til góða,“ sagði Daníel. Keppnistímabilið hefst hjá Daní- el 14. nóvember en þá ætlar hann að keppa á FlS-móti í Svíþjóð. Það er einnig ákveðið að hann taki þátt í sínu fyrsta heimsbikarmóti á Ítalíu í desember. Landsliðsþjálf- arinn Bo Eirikson fer með honum til Ítalíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.