Morgunblaðið - 21.11.1993, Page 1
72 SIÐUR B/C
266. tbl. 81. árg.
Konur masa
mest í síma
KONNUN á vegum rannsóknastofnunar
Berlínarháskóla hefur leitt í ljós að kon-
ur tala lengur og oftar í síma en karlar,
að sögn danska dagblaðsins Berlingske
Tidende. Niðurstaða könnunarinnar var
að konur taka þátt í 83,7% allra símtala
og af þeim sem tala oftar en tuttugu
sinnum í síma á viku eru 89,2% konur.
Þá kom fram að símtöl milli karla vara
að meðaltali í 7,8 mínútur en milli kvenna
í 10,4 mínútur.
Hluti danska
ríkisins sagð-
ur „til sölu“
EYJAN Borgundarhólmur hefur verið
auglýst tii sölu í International Herald
Tribune. Ekki er það þó danska ríkis-
stjórnin, sem stendur á bak við auglýs-
inguna, heldur framkvæmdamaður á
Borgundarhólmi, sem vill með þessu
vekja athygli á slæmri stöðu eyjanna og
áhugaleysi stjórnarinnar til að hjálpa. I
auglýsingunni er sagt að eyjan sé á stærð
við Singapore og danska stjórnin hafi
Iátið eyjuna lönd og leið. Sagt er að þar
séu miklir möguleikar á fríhöfn og henti
vel fyrir fjárfestingar í bankastarfsemi,
hágæða landbúnaði, inn- og útflutningi
og framleiðslu, þar sem íbúamir séu vel
menntaðir. Kaupverð sé ekki undir hund-
rað milljónum dollara. Engir kaupendur
höfðu gefið sig fram siðast þegar fréttist.
Clintonrettur
ekki vinsælar
VINDLINGAR, sem bera vöramerkið
„Clinton,“ hafa undanfarið verið til sölu
í verslunum í borginni Kramatorsk í
austurhluta Úkraínu. Vonuðust kaup-
menn til að þessir vindlingar myndu ná
sömu vinsældum og vestrænn tóbaks-
vamingur en að sögn fréttastofunnar
Itar-Tass hefur þeim ekki orðið af þeirri
ósk sinni. „Clintonretturnar“ eru sagðar
of bragðlitlar fyrir slavneska stórreyk-
ingamenn og hafa þjóðernissinnar í
þeirra röðum lagt til að hafin verði frain-
leiðsla á vindlingum kenndum við Leóníd
Kravtsjúk, forseta Úkraínu. „Ef þeir
væru bara nógu, ódýrir, sterkir og án
filters myndu þeir líka eflaust auka vin-
sældir forsetans," segir fréttastofan.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
VETRARGANGA
Framtíð flugfélagsins Alcazar verður ákveðin í næstu viku
Sameimng flugfólagaima
er talin sífellt ólíklegri
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞÓ AÐ FORYSTA SAS flugfélagsins hafi lagt mikla áherslu á að aðalstöðvar Alcaz-
ar, flugfélagsins sem SAS freistar að stofna með Swissair, Austrian Airlines og
KLM, verði í Kaupmannahöfn, virðist nú sem sú von muni ekki ganga eftir, heldur
verði þær í Amsterdam. Kemur þetta fram í frétt í Svenska Dagbladet. I vikunni
hafa starfsmannafélög SAS á Kastrup í Kaupmannahöfn fundað til að ræða hvernig
hægt verði að bregðast við ef þungamiðja nýja flugfélagsins verði í Amsterdam en
ekki Kaupmannahöfn. Gert verður út um áætlunina í vikunni, en í Amsterdam þyk-
ir ósennilegt að af sameiningunni verði vegna ágreinings um samstarfsaðila nýja
flugfélagsins í Bandaríkjunum. Sagði Ruud Lubbers, forsætisráðherra Hollands, á
föstudag að hugsanlega myndu viðræðurnar, sem staðið hafa í tíu mánuði, renna út
í sandinn. Hollenska ríkið á 38,2% hlut í KLM.
Af hálfu SAS verður ekki látið neitt uppi
um hvar höfuðstöðvar hins nýja fyrirtækis
verða, ef af sameiningu verður, fyrr en í
fyrsta lagi eftir helgi. Samkvæmt fréttum
danska útvarpsins er meirihluti stjórnar SAS
hlynntur sameiningaráformunum, en full-
trúar danskra og norskra starfsmanna SAS
eru á móti. Ljóst er að ef af sameiningu
verður, má búast við að flugfélögin fjögur
fækki starfsmönnum um sjö þúsund manns
á öllum starfssviðum og að niðurskurðurinn
muni ná jafnt til flugmanna, skrifstofufólks
og annarra. Jan Carlzon, fyrrum fram-
kvæmdastjóri SAS, sem leiðir samningavið-
ræðurnar fyrir hönd SAS, hefur áður lýst
því yfir að ekki verði tekið tillit til neins
annars við niðurskurðinn en áhrifa á rekst-
ur og afkomu og ekki komi til greina að
fara að jafna út áhrifum milli landa á póli-
tískum forsendum.
Carlzon hefur þegar lýst því yfir að gert
verði út um sameininguna í næstu viku.
Enn hefur ekki verið ákveðið hver verður
samstarfsaðili Alcazar í Bandaríkjunum og
virðist það vera helsta hindrunin. KLM er
sagt vilja samstarf við Northwest Airlines
en hin þijú við Delta. Óttast Hollendingar
að samstarf við Delta muni ógna starfsemi
á Schipholflugvelli þar sem miðstöð banda-
ríska flugfélagsins í Evrópu sé í Frankfurt.
Ef félögin koma sér ekki saman um banda-
rískan samstarfsaðila, verður ekki hægt að
halda áfram. í Hollandi er talið ólíklegt að
úr sameiningunni verði þar sem KLM sé
orðið áhugaiítið, eftir að samstarfsmöguleik-
ar við önnur flugfélög hafi boðist.
Einnig mun Swissair standa til boða sam-
starf við önnur flugfélög. SAS virðist ekki
hafa fengið neitt slíkt tilboð og ýmsir álíta
að SS eigi ekki annarra kosta völ en Alcazar.