Morgunblaðið - 21.11.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.11.1993, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993 ERLEIMT INNLENT Keyptur varanlegur kvóti eign í skilningi skattalaga Hæstiréttur staðfesti þá niður- stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fjármálaráðherra gegn útgerðarfélagsinu Hrönn á ísafirði að fyrirtækið skuli í bók- um sínum færa keyptan varan- legan aflakvóta sem eign og af- skrifa um 20% á ári, þar sem með kaupum á varanlegri afla- hlutdeild hafi fyrirtækið öðlast réttindi sem falli undir eignar: hugtak 73. greinar skattalaga. í dóminum er fjallað um keyptan langtímakvóta, ekki þær afla- heimildir sem útgerðarfyrirtæki fá úthlutað endurgjaldslaust á ári hverju. Skattalög hefta árangur af viðskiptafrelsi Núgildandi skattalög taka ekki með viðunandi hætti til ýmissa breytinga sem orðið hafa. í atvinnu- og viðskiptalífí íslend- inga undanfarin 15 til 30 ár, að mati skattamálanefndar Félags löggiltra endurskoðenda. Nefnd- in telur að ákvæði laga um tekju- og eignarskatt og framkvæmd þeirra séu hvorki fallin til að örva þátttöku íslendinga í at- vinnurekstri erlendis né útlend- inga til fjárfestinga hérlendis og hefti framgang annarra laga sem stefni að auknu frelsi í viðskipt- um milli landa. Nefndin telur að mikið vanti á að samræmi sé í framkvæmd milli skattstjóra- embætta og jafnvel innan emb- ætta og betur þurfí að tryggja jafnræði í viðskiptum almenn- ings og yfírvalda og eyða skatta- legum ójöfnuði milli mismunandi rekstrarforma og hópa einstakl- inga. Lá við árekstri breiðþotna vegna mistaka Röð mistaka í flugumferðar- ERLENT NAFTA samþykkt Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti á miðvikudag með miklum meirihluta Fríverslunar- sáttmála Norður-Ameríku, NAFTA. Er þetta talinn mikill sigur fyrir Bill Clinton, Banda- ríkjaforseta, sem hafði lagt mik- ið undir til að knýja sáttmálann í gegnum þingið. Sagði Clinton eftir að niðurstaða atkvæða- greiðslunnar lá fyrir að Banda- ríkjamenn hefðu þarna hafnað einangrunarhyggju og gefíð tón- inn fyrir framhald GATT-við- ræðnanna. Samkomulag um s-afríska sijórnarskrá Stjórn F.W. de Klerks, for- seta Suður-Afríku, og Afríska þjóðarráðið náðu á miðvikudag samkomulag um drög að nýrri bráðabirgðastjórnarskrá, sem kveður á um jafnrétti allra kyn- þátta í landinu. Litir íbúar lands- ins fá kosningarétt á við hvíta og eru fyrstu frjálsu kosningarn- ar fyrirhugaðar í lok apríl á næsta ári. Þá náðist einnig sam- stjóm olli því að tvær farþega- þotur frá SAS og Air Canada flugu svo nærri hvor annarri yfír íslensku flugumferðarsvæði skömmu fyrir hádegi 11. ágúst sl. að lá við árekstri, segir í skýrslu flugslysanefndar. Megin- orsök atviksins var að skeyti flugumferðarstjóra með heimild til annarrar flugvélarinnar um að hækka flugið var sent rangri vél. Árekstrarvari um borð í Boeing 767 þotu SAS lét fiug- stjórann vita af yfírvofandi árekstri og gat hann hækkað flugið í tæka tíð. Flugstjórinn telur að ekki hafí verið meira en 500 metra fjarlægð á milli vél- anna og að þær hafí verið í beinni flugstefnu hvor á aðra. Nú er unnið að því að setja árekstrar- vara í þrjár Boeing 757 þotur Flugleiða. Giftusamleg björgun úr eldi Helgu Bjömsdóttir tókst með snarræði sínu og aðstoð tengda- föður og eiginmanns að koma sjálfri sér og ungum bömum undan eldtungunum er eldri bærinn á Haukagili í HVítársíðu brann til kaldra kola í vikunni. Helga var að bræða tólg í potti í eldhúsi hússins þegar eldur kviknaði. Samkomulag um GATT Samkomulag tókst milli land- búnaðarráðherra og utanríkis- ráðherra um efni skuldbindinga íslands vegna landbúnaðarkafla GATT-samninganna. Hafa verið gerðar ráðstafanir til að koma tilboði íslands á framfæri við GATT, en ljúka þarf viðræðum fyrir 15. desember næstkom- andi. Ef það tekst má gera ráð fyrir að íslendingar þurfí að svara fyrir tilboð sitt í febrúar á næsta ári. Samningurinn á að taka gildi í ársbyijun 1995 og verður dregið úr tollvemd í áföngum til 2001. íslandsbanki lækkar vexti íslandsbanki mun lækka vexti á verðtryggðum lánum í dag, 21. nóvember um 0,15%. Bankinn hefur þá á 10 dögum lækkað vexti á öllum útistandandi verð- tryggðum lánum um 2,15% og eftir lækkunina á sunnudag verða kjörvextir 5,50%. komulag um skiptingu valda í bráðabirgðastjórn fram að kosn- ingum og tilhögun lögreglu- og vamarmála á sama tímabili. Hjálpargögn tíl Bosníu BÍLALESTIR Sameinuðu þjóð- anna hófu í vikunni að flytja hjálp- argögn til Bosníu á ný eftir að um það hafði náðst samkomulag við leiðtoga stríðandi fylkinga í landinu. Þetta samkomulag jafn- gildir þó ekki vopnahléi. Flutning- unum hafði verið hætt eftir að danskur bílstjóri léf lífíð í árás á bílalest SÞ í síðasta mánuði. Kosið I Rússiandi í júní? BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, sagði í blaðaviðtali á mánudag að til- skipun hans um að forsetakosn- ingar ættu að fara fram í júní væri enn í gildi þar til að hann myndi ógilda hana. Jeltsín sagðist þó vera tregur til að sækjast eftir endur- kjöri áður en kjörtímabili hans lyki. Þingkosningar fara fram í Rússlandi þann 12. desember. Reuter. Kennedy-fjölskyldan selur „vetrarbústaðinn“ KENNEDY-fjölskyldan hefur ákveðið að selja hinn fræga „vetrarbústað" ættarinnar í Palm Beach á Flórida. Hjónin Joseph og Rose Kennedy keyptu eignina árið 1933 og greiddu fyrir 120 þúsund dollara. Þegar sonur þeirra, John F. Kennedy, varð forseti dvaldi hann þar margsinnis og var húsið þá kallað „Vetrar Hvíta húsið“. Húsið komst aftur í fréttir árið 1991 er kona sakaði William Kennedy Smith, frænda forsetans fyrrverandi, um að hafa nauðgað sér á ströndinni fyrir framan húsið. Hann var sýknaður af þeirri ákæm. Að sögn Renee Harris, framkvæmdastjóra Sotheby’s í Palm Beach, sem fengið hefur húsið í einkasölu, fer fjölskyldan fram á sjö milljónir dollara fyrir eignina. EB ákveður að setja lágmarksverð á lax Ósló. Fré Jan Gunnar Furuty, fréttaritara Morgunblaðsins. FRAMKVÆMDASTJORN Evrópubandalagsins hefur ákveðið að setja lágmarksverð á lax, sem seldur er innan bandalagsins og verður það að öllum líkindum rúmar 300 krónur. Var þetta gert í kjölfar kvartana um undirboð norskra Iaxeldisfyrirtækja. Fulltrúar laxeldis í Skotlandi og írlandi höfðu krafíst þess að settar yrðu magntakmarkanir á norskan lax en það hefði komið mjög illa við norska útflytjendur, ekki síst þar sem nú fyrir jól er eitt helsta sölutímabilið á laxi að hefjast. Lágmarksverðið mun ná til alls þess lax sem seldur verður innan Evrópubandalagsins og er því ekki um sérstaka mismunun á norskum lax að ræða. Telja Norðmenn að með þessu hafí framkvæmda- stjórnin vísað ásökunum Skota og íra á hendur Norðmönnum um undirboð á bug. Evrópuþingið hafði einnig samþykkt ályktun á miðvikudag þar sem Norðmönn- um er alfarið kennt um kreppuna á markaðinum fyrir laxafurðir. í kjölfar kvartana frá skoskum og írskum framleiðendum reyndi framkvæmdastjómin að fá norsk stjómvöld til að samþykkja höml- ur á útflutning á norskum laxi. Þessu höfnuðu Norðmenn á fundi á fímmtudag og gerðu þar einnig grein fyrir þeim aðgerðum sem norsk laxeldisfyrirtæki hafa gripið til til að draga úr offramleiðslu og þar með hækka verð. Atlanta, San Franciseo. Reutcr. EYÐNI er nú orðin algengasta orsök þess að karlar á aldrinum 25-44 ára í Bandaríkjunum deyja fyrir aldur fram. Áður voru slys, þ. á m. bílslys, algengasta orsökin í þessum aldurshópi. Þetta kom fram í skýrslu sjúkdómsvamastofnunar landsins á fimmtudag og sagði þar að eyðni hefði þegar í fyrra orðið áttunda algengasta dánarorsök landsmanna. Fjórða hvert andlát meðal svartra karla er nú af völdum eyðni í Bandaríkjunum. Eyðni er nú ofar á áðurnefndum lista yfír dánarorsök en manndráp og sjálfsvíg og rétt fyrir neðan lifrar- sjúkdóma. Meðal kvenna á aldrin- um 25-44 ára er eyðni í fjórða sæti og um bæði kynin gildir að sjúkdómurinn er enn skæðari meðal svartra og fólks af suður- og miðamerískum uppruna en hvítra. Bandarískir vísindamenn við Stanford-háskóla í Kaliforníu skýrðu frá því í gær að þeir hefðu fundið upp nýja aðferð til að greina undirflokka HlV-veirunnar sem yeldur eyðni og væri hún mun hraðvirkari og ódýrari en fyrri aðferðir. Framvegis myndi það aðeins taka nokkrar klukkustund- ir í stað vikna að greina flokkinn og þetta myndi létta mjög róður- inn við að fínna mótefni gegn sjúkdómnum. Fullyrt var að að- ferðin væri ekki flóknari en „að sjóða egg“. Flestir vísindamenn telja að þegar m'ótefni verði loksins upp- götvað muni reynast nauðsynlegt að fínna upp margvísleg afbrigði af mótefninu en þegar hafa greinst sjö afbrigði af eyðni. Reynt að hindra glæpi Washington. Reuter. LÖG sem ætlað er að stuðla að fækkun ofbeldisverka í Banda- ríkjunum voru samþykkt í öldungadeild Bandaríkjaþings á föstudag. Frumvarpið var samþykkt með 95 atkvæðum gegn fjórum. Að því frágengnu tók öldungadeildin svonefnd Brady-lög til meðferðar en þau voru samþykkt í fulltrúa- deildinni í síðustu viku og sam- kvæmt þeim verða að líða fimm dagar frá því falast er eftir skammbyssu og þar til kaupin geta farið fram. Jafnvel var búist við samþykkt þeirra í deildinni í gær. Samkvæmt frumvarpinu er ætl- unin að fjölga lögreglumönnum um 100.000 og reisa 10 svæðis- fangelsi og betrunarbúðir víða um land fyrir unga afbrotamenn. Búðimar eru sagðar koma til með að líkjast helst þjálfunarstöðvum fyrir nýiiða í hernum. í frumvarp- inu var gert ráð fyrir því að sam- þykkt þess hefði í för með sér 22ja milljarða dollara útgjöld, jafnvirði 1.562 milljarða króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.