Morgunblaðið - 21.11.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýninga spennumyndina Fanturinn, The Good
Son, með bamastjömunni Macaulay Culkin í aðalhlutverki. í myndinni
sýnir hann á sér nokkuð aðra hlið en áhorfendur þekkja úr Home Alone myndunum.
Mátar
ÞEIR félagar Mark og Henry eru mestu mátar í byrjun en fljótlega verður Mark
ljóst hið illa innræti frænda síns.
Hugmyndaríkur
UPPÁTÆKI Henrys eru af margvíslegum toga og virðist ímyndunarafli hans vera
lítil takmörk sett.
Hið illa hefur
margar ásjónur
FANTURINN, eða The Good Son, hefur verið ein mest
sótta kvikmyndin í Bandaríkjunum frá því að myndin
var frumsýnd þar í haust og í byijun nóvember hafði
myndin þegar halað inn rúmlega 40 milljónir dollara
i kassann. I myndinni leikur Macaulay Culkin hinn slótt-
uga Henry Evans, ungan dreng sem býr yfir margvís-
legum leyndarmálum. Á yfirborðinu er hann skýr strák-
ur sem er elskur að foreldrum sínum, góður við litlu
systur sína og tryggur vinur vina sinna, en undir engil-
blíðu útlitinu leynast illar hvatir og hugsanir sem myndu
ofbjóða hans nánustu ef þær væru þeim kunnugar. En
það sem hinum fullorðnu reynist hulið getur verið sýni-
legt öðru barni, og þegar Mark Evans (Elijah Wood)
frændi Henrys kemur til að búa hjá ættingjum sínum
eftir að hafa misst móður sína, þá kemst hann að raun
um að hið illa hefur margar ásjónur.
í fyrstu kemur frændun-
um ungu ágætlega saman
þar sem þeir leika sér og
gera margvísleg prakkara-
strik. Það breytist hins
vegar smám saman eftir
því sem samband Marks
og mömmu Henrys verður
nánara, en það er Henry
síður en svo að skapi. Og
eftir því sem Mark kynnist
Henry nánar þeim mun
minna þykir honum til
hans koma. Þetta á sér-
staklega við eftir að Henry
drepur hund nágranna
síns, sendir litlu systur sína
út á ótraustan ís, og verður
þess valdandi að tíu bílar
lenda í árekstri á hrað-
brautinni. Það er því engin
furða að Mark tekur að
efast um að slys hafí vald-
ið því að yngri bróðir Henr-
ys drukknaði eins og álitið
hafði verið á sínum tíma.
Þegar hann svo reynir að
gera hinum fullorðnu grein
fyrir því hvert sé hið raun-
verulega eðli Henrys halda
hins vegar allir að það sé
hann sjálfur sem sé trufl-
aður á geðsmunum og frá-
fall móður hans sé orsökin
fyrir því.
Leikstjóri The Good Son
er Joseph Ruben, en hann
hefur m.a. leikstýrt
spennumyndunum Sleep-
ing With the Enemy, með
Juliu Roberts í aðalhlut-
verki, og The Stepfather.
Hann segir að þótt myndin
fjalli á yfírborðinu um tvo
drengi, annan góðan og
hinn vondan, þá sé hún í
raun og veru um einskæra
óútskýranlega illsku á
óvæntum stað, þ.e. innra
með yndislegum og heill-
andi tólf ára gömlum
dreng, en boðskapurinn sé
að það sé ekki endilega
ástæða fyrir þessari illsku.
„Ég kann vel að meta
spennumyndir vegna þess
að í þeim er hægt að gera
meira á myndrænan hátt
en í flestum öðrum tegund-
um kvikmynda. Það er
hægt að hafa myndavélina
á hreyfingu, leika sér að
lýsingunni og hafa stjóm
á öllum þáttum í mynd-
inni. Það er vissulega
ánægjulegt að geta náð
fram tilfínningalegum við-
brögðum hjá áhorfendum
á þennan hátt og fá þá til
þess að stökkva upp í sæt-
A þunnum ís
HENRY kemur systur sinni í lífshættu með því að
fara með hana út á ótraustan ís.
Vantrú
ÞEGAR Mark reynir að
segja hinum fullorðnum
frá illsku Henrys leggur
enginn trúnað á það sem
hann segir.
unum og öskra,“ segir
Ruben.
Áskorun að breyta
ímynd
barnasljörnunnar
Ruben segist ekki hafa
viljað æfa leikarana ungu
of mikið í hlutverkum sín-
um áður en tökur á kvik-
myndinni hófust, en það
hefði dregið úr ósjálfráðum
viðbrögðum þeirra og eðli-
legri framkomu á hvíta
tjaldinu. Hann segir að það
hafí ekki valdið minnstu
um að hann tók að sér að
leikstýra myndinni að hinn
bjartleiti Macaulay hafði
verið ráðinn til að leika
strákinn með skuggalegu
hliðamar og jafnframt hafí
það verið ákveðin áskorun
að breyta ímynd bama-
stjömunnar í augum
áhorfenda. Þá hafí það
einnig verið spennandi að
kvikmynda söguna frá
sjónarhóli barns og taka
myndina frá lágu sjónar-
horni alls staðar sem því
var komið við, en með því
hafí gefíst tækifæri til að
gæða kvikmyndina magn-
þrunginni hræðslutilfínn-
ingu.
„Þegar þú ert krakki er
allt risavaxnara og til
dæmis þegar þú vaknar
upp um miðja nótt þá eru
skuggarnir á veggjunum
orðnir að algjörum ófreskj-
um. Og þegar þú ert krakki
þá óttastu það hvað mest
að enginn trúi því sem þú
segir. Þennan ótta förum
við með á ystu nöf í mynd-
inni. Mark veit hvað Henry
er að bralla, en hins vegar
vill enginn hlusta á hann
því það sem hann sakar
Henry um er of ótrúlegt
til þess að hægt sé að
leggja á það trúnað,“ segir
hann.
Handritið að The Good
Son skrifaði breski skáld-
sagnahöfundurinn Ian
McEwan. Hann hefur
skrifað fimm skáldsögur
og hafá tvær þeirra, The
Comfort Of Strangers og
Black Dogs, verið tilnefnd-
ar til Booker-bókmennta-
verðlaunanna. Kvikmyndir
hafa verið gerðar eftir sög-
um hans og hefur hann í
nokkrum tilfellum skrifað
kvikmyndahandritin sjálf-
ur.
Ný hlið á barnastjörnunni
MACAULAY Culkin sýnir svo sannarlega á sér aðra
hlið I The Good Son heldur en í gamanmyndinni Home
Alone 2: Lost in New York, þar sem hann fór á nýjan
leik með hlutverk hins hugprúða Kevins McCallisters
úr Home Alone, sem er fjórða mest sótta kvikmynd
allra tíma. Það var Kit Culkin, faðir bamastjörnunnar
og umboðsmaður, sem fékk því framgengt að Mac-
aulay fengi hlutverk hins illa innrætta Henrys, en
með því vakti fyrir honum að opna dymar fyrir hinn
þrettán ára gamla son sinn að fullorðinshlutverkum.
Kit Culkin er álitinn einn
af áhrifamestu mönnum í
Hollywood vegna vel-
gengni og vinsælda sonar
hans og þvf hefur hann
getað fengið því framgengt
sem hann hefur óskað.
Þannig fékk hann hlutverk
fyrir sjö ára gamla dóttur
sína, Quinn, í The Good
Son, en í myndinni leikur
hún litlu systur Henrys.
Gagnrýnendur vestan hafs
telja flestir hveijir að með
áræðni sinni hafi Kit Culk-
in ekki stefnt ímynd sonar
síns í hættu með því að
láta hann leika í The Good
Son, heldur hafí honum
þvert á móti tekist að sýna
fram á að Macaulay sé
ákaflega hæfíleikaríkur
leikari. Sjálfur sýndi strák-
ur að hann bar engan kvíð-
boga fyrir hlutverki sínu í
mjmdinni og ekki varð vart
neinna stjömustæla hjá
honum eins og kannski
mætti búast við hjá 13 ára
strák sem fékk ríflega
fímm milljónir dollara
greiddar fyrir hlutverk sitt
í myndinni.
Macaulay Culkin kom
fyrst fram opinberlega á
sviði þegar hann var fjög-
urra ára gamall, en það var
í New York J)ar sem hann
er fæddur. Á næstu árum
kom hann fram í ýmsum
leikritum og þá oftast nær
í aðalhlutverki, en fyrsta
kvikmyndahlutverkið fékk
hann árið 1987. Það var í
kvikmyndinni Rocket Gi-
braltar þar sem hann lék á
móti Burt Lancaster, en
skömmu síðar lék hann son
Jeff Bridges og Farrah
Fawcett f mynd Alans J.
Pakulas, See You in the
Morning. Þá lék hann með
Tim Robbins í Jacob’s
Ladder og með John Candy
í Uncle Buck, en það var
síðan í Home Alone sem
hann sló í gegn fyrir al-
vöru. Culkin hefur nýlega
lokið við að leika í Hnetu-
bijótnum, kvikmynd sem
gerð er eftir einu frægasta
verki Tsjajkovskís, og um
þessar mundir er hann að
leika í gamanmyndinni
Getting Even With Dad þar
sem hann leikur á móti Ted
Danson.
Milljónasnáðinn
MACAULAY Culkin sýnir
á sér nýja hlið í The Good
Son, og þykir þessi há-
launaða barnastjarna þar
með hafa sýnt fram á að
hún eigi framtíð fyrir sér
í kvikmyndum.