Morgunblaðið - 21.11.1993, Page 2
2 FRETTIR/IIMNLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
EFNI
Fáír kjósa um sameininguna
ÞÁTTTAKA í Reykjavík í at-
kvæðagreiðslu vegua sameining-
ar sveitarfélaga taldist dræm
þegar upplýsinga var leitað um
miðjan dag í gær. Kosningaþátt-
taka á landsvísu þótti einnig
dræm, hálfdrættingur á við það
sem veqja er við Alþingis- og
sveitarstjómakosningar eins og
það var orðað.
Á hádegi fengust þær upplýs-
ingar hjá Jónasi Egilssyni fram-
kvæmdastjóra Samtaka sveitarfé-
laga að 1.393 hefðu greitt atkvæðí
í Reykjavík. 73.759 eru _á kjörskrá
og þátttakan því 1,89%. í Alþingis-
og sveitarstjómakosningum er þátt-
taka yfirleitt um 10% á hádegi. Á
Seltjamamesi höfðu 227 greitt at-
kvæði, þar af 62 í utankjörfundarat-
kvæðagreiðslu, af 3.109, sem er
7,30%. í Mosfellsbæ höfðu 182
greitt atkvæði af 3.129 á kjörskrá
sem telst 5,82% .kjörsókn. í Kjalar-
neshreppi hafði 21 af 322 greitt
atkvæði, sem er 6,52% þátttaka.
Kjörstaðir vom opnaðir á hádegi í
Kjósarhreppi. í Bessastaðahreppi
höfðu 38 af 726 greitt atkvæði og
telst það 5,23% kjörsókn. í Garðabæ
höfðu 127 af 5.305 á kjörskrá neytt
atkvæðisréttar síns, sem er 2,39%
þátttaka.
Þær upplýsingar fengust á Akur-
eyri hjá Ásgeiri Pétri Ásgeirssyni,
formanni yfirkjörstjómar, að 366
hefðu kosið á hádegi eða 3% at-
kvæðisbærra. Við síðustu Alþingis-
kosningar var þátttakan 12,2%
klukkan 13. Sagði hann veður hafa
verið slæmt um morguninn en færi
skánandi og gæti það hugsanlega
hafa haft eitthvað að segja.
Flugfélagið Atlanta
Erlendar
miðlanir
útvega
flugliða
FLUGÁHAFNIR og aðrir
sem starfa við flug flugfé-
lagsins Atlanta erlendis eru
ráðnir hjá erlendum áhafna-
leigum, einkum áhafnaleig-
unni FCCI í Bretlandi til
timabundinna verkefna.
Launagreiðslur em á vegum
og á ábyrgð þessara erlendu
fyrirtækja, að sögn Jóns
Rafns Péturssonar, fjármála-
stjóra Atlanta.
Hann sagði að félagið borg-
aði erlenda félaginu tiltekna
upphæð fyrir að fá fólk til tíma-
bundinna starfa, en bessar er-
lendu áhafnaleigur sæju um
ráðningu fólksins og áhafnimar
væm á launaskrá hjá þeim.
Þetta væri gmndvallaratriði í
rekstri eins og Atlanta stund-
aði. Verkefni væm mjög sveiflu-
kennd frá einum tíma til ann-
ars. Þegar mest hefði verið
umleikis í sumar hefðu 240
manns verið í verkefnum fyrir
félagið af 12-14 þjóðemum og
þar af hefði líklega um helming-
urinn verið íslendingar.
Aðspurður sagði hann að ís-
lenskum skattayfírvöldum væri
kunnugt um þetta fyrirkomulag.
Það væri hins vegar á ábyrgð
viðkomandi einstaklinga og þess
erlenda fyrirtækis sem þeir
störfuðu hjá að skila af sér
sköttum og skyldum í þessum
efnum. Flugfélagið Atlanta sæi
síðan að sjálfsögðu um að skila
sköttum og skyldum af þeim
starfsmönnum sem væru á
launaskrá þess.
Skúli Eggert Þórðarson,
skattrannsóknastjóri ríkisins,
vildi ekkert tjá sig um málið og
sagðist aldrei tjá sig um málefni
einstakra skattaðila.
A Akureyri
BENEDIKT Sigurðarson, skólastjóri Barnaskólans á Akureyri, lét
rokið ekki aftra sér í gærmorgun og var einn af þeim fyrstu á lqör-
stað í gærmorgun.
---------------------—------------------------------
í Reykjavík
ÞESSI litla stúlka lagði sitt af
mörkum í kosningum um samein-
ingu sveitarfélaga í gær.
Loftnet Fjölvarps ætluð
fyrir 2,5 GHz tíðnisvið
EF ÚTSENDINGAR verða hafnar á 40,5-42,5 GHz tíðnisviði hérlend-
is verður ekki hægt að nota þann loftnetsútbúnað sem nú er nauðsyn-
legur til þess að taka á móti útsendingum Fjölvarps. Sá búnaður
er eingöngu gerður fyrir móttöku útsendinga á 2,5 GHz tíðnisviði.
Guðmundur Olafsson forstöðumaður Fjarskiptaeftirlits sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hugsanlega yrðu Islendingar að hliðra til
á 2,5 GHz tíðnisviði í framtíðinni en það yrði ekki á næstu fimm
árum. Búið er að taka frá 40,5-42,5 GHz tíðnisvið til dreifingar sjón-
varpsefnis.
Guðmundur Ólafsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
í öðrum löndum Evrópu færi endur-
varp gervihnattasendinga yfírleitt í
gegnum kapalkerfi. Hér væru engin
kapalkerfí fyrir hendi og mikill
kostnaður samfara því að grafa
kapla í jörðu. Á sínum tíma hefði
verið til útbúnaður til móttöku og
útsendingar á 2,5 GHz tíðnisviði
sem þróaður hafði verið í Bandaríkj-
unum í sambandi við kennslusjón-
varp. Auðvelt hefði verið að hliðra
til á þessu tíðnisviði hérlendis og
menn því ákveðið að nýta sér þessa
tæknilegu lausn.
„Ef mönnum hefði ekki legið á
hefði verið skynsamlegra að bíða
eftir tæknibúnaði fyrir sjónvarps-
dreifíngu á 40,5-42,5 GHz tíðni-
sviði,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði jafnframt að búið væri að
taka frá þetta tíðnisvið í Evrópu
og hérlendis fyrir dreifíngu sjón-
varpsefnis eða hliðstæða notkun en
ekki væri víst að til notkunar þess
kæmi því þróunin í fjarskiptatækni
væri ör. Enginn vissi hver tækniþró-
unin yrði. „Þetta svið hefur verið
eymamerkt en það er enginn sem
segir að á því þurfí að halda,“ sagði
forstöðumaður Fjarskiptaeftirlits.
Hann sagði jafnframt að hægt yrði
að senda út á 2,5 GHz til alda-
móta. Eftir það væri hugsanlegt
að þyrfti að hliðra til á tíðnisviðinu
í krafti alþjóðlegrar samvinnu en
bætti jafnframt við að hugsanlegt
væri að þá yrðu aðstæður aðrar,
ljósleiðarinn allsráðandi og enginn
áhugi fyrir því að senda út í gegn-
um loftið.
Framsóknarflokkur veit-
ir Tímamim fjárstuðning
MÓTVÆGI hf., útgáfufélag dagblaðsins Tímans, á við lausafjárerfið-
leika að etja og er talið að áætlanir um rekstur blaðsins hafi brost-
ið. Framsóknarflokkurinn hefur heitið fjárstuðningi til að hægt verði
að tryggja útkomu blaðsins, að því er Bjarni Óskarsson, nýkjörinn
stjórnarformaður Mótvægis, staðfesti við Morgunblaðið í gær. Hann
vildi ekki tjá sig um hvernig sá stuðningur yrði og hvort hann væri
bundinn við ákveðna fjárhæð. Hann kvaðst vonast til að staða og
framtíð blaðsins skýrðust í næstu viku.
„Ég tel að allt bendi til þess að
þetta hafi ekki gengið eins og menn
voru að vona,“ sagði Bjami í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann vildi
ekki tjá sig um það hvaða þættir í
rekstrinum hefðu bmgðist; sagði
að verið væri að kanna það og yrðu
þær upplýsingar lagðar fyrir hlut-
hafafund þegar þær væm tiltækar.
„Staðan er þröng og við þurfum
smá andrými til að fá að vita hver
hún raunvemlega er,“ sagði Bjami
Óskarsson. „Það er það sem verið
er að vinna að. Menn gerðu ráð
fyrir að þetta gæti gengið miðað
við innborgað hlutafé og það em
einhver líkindi til að það hafí ekki
gengið alveg eftir.“
Hrólfur Olvisson, framkvæmda-
stjóri blaðsins, sagði upp störfum
nýlega og daglegur rekstur blaðsins
er nú í höndum Ásgeirs Þórs Áma-
sonar í umboði Bjama Óskarsson-
ar, nýkjörins stjómarformanns.
Bjarni var kjörinn stjómarformaður
nýlega í stað Jóns Sigurðssonar sem
sagði af sér stjómarformennsku um
svipað leyti og gengið var frá ráðn-
ingu Þórs Jónssonar í starf ritstjóra
síðla sumars. Eftir afsögn Jóns
gegndi Steingrímur Gunnarsson
varaformaður starfí stjómarfor-
manns þar til Bjami var kosinn
nýlega.
í DV í gær var haft eftir Stein-
grími Hermannssyni, formanni
Framsóknarflokksins, að algjört
ráðaleysi ríkti hjá stjómendum
Tímans, af og frá væri að flokkur-
inn tæki við útgáfunni á nýjan leik
en flokkurinn tæki af heilindum
þátt í að byggja blaðið upp. Til
greina kæmi að gefa út nýtt blað
fari núverandi eigendur í þrot.
Innborgað hlutafé Mótvægis er
20 milljónir króna, að sögn Bjama
Óskarssonar, þar af fímm milljónir
í öðram verðmætum en peningum.
Heimild liggur fyrir til hlutafjár-
aukningar um fímm milljónir króna
í viðbót.
Lögum um Fasteigna-
matíð verði breytt
TILLAGA frá Sigrúnu Magnúsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, um að þingmenn Reykjavíkur beiti sér fyrir breytingum
á lögum um Fasteignamat ríkisins, var samþykkt á borgarsljórnar-
fundi á fimmtudag.
A fundinum var rætt um hvernig
það gæti gerst að hús væra ekki
skráð og því ekki greidd af þeim
eðlileg gjöld, eins og ný dæmi sönn-
uðu. Sigrún Magnúsdóttir lagði
fram tillögu, þar sem þingmenn
Reykjavíkur era hvattir til að beita
sér fyrir setningu laga um að Fast-
eignamat ríkisins verði breytt í B-
hlutastofnun og stjóm þess skipuð
fulltrúum sveitarfélaga. Borgar-
stjóm samþykkti tillöguna sam-
hljóða.
Skuldasúpa —- nagla-
súpa
►Verða Landsbankinn, sjóðir og
olíufélög stærstu eigendur sjávar-
útvegsfyrirtækja á næstu mánuð-
um? /10
Endir upphafsins I
S-Afríku
►Ný stjómarskrá bindur enda á
350 ára alræði hvíta mannsins./14
Dansað inn í nóttina
►í næstu viku spilar Rafn Jónsson
í síðasta sinn á trommumar. Hann
heyr daglega baráttu við skæðan
sjúkdóm og er staðráðinn að leggja
sitt af mörkum til að fella þennan
illskeytta óvin./ 14
Hugarflug íhönnun
►Æ fleiri fyrirtæki og stofnanir
halla sér að innlendum húsgagna-
og innréttingahönnuðum./16
í kvikmyndahúsunum
►Bamastjaman Macaulay Culkin
sýnir á sér nýjar hliðar í kvikmynd-
inni Fanturinn./20
B
► 1-24
Árin með Jökli
►Í bókinni Perlum og steinum
sem er að koma út þessa dagana
lýsir Jóhanna Kristjónsdóttir ámn-
um með Jökli Jakobssyni, rithöf-
undi, fyrstu kynnunum og 11 ára
hjónabandi, þar sem skiptust á
skin og skúrir, frami og frægð,
angist og ósigrar. /1
Afiífiog sál
►Stefán Hilmarsson söngvari hef-
ur sent frá sér fyrstu sólóplötu
sína þar sem hann íjallar meðal
annars um lífsviðhorf sín og fólk
sem er honum nákomið. /12
BÍLAR______________
► 1-4
Mesta ævintýri sem
ég hef upplifað
►íslendingarnir stóðu sig vel í
undankeppni frumskógaleiðang-
ursins./2
Nýir bílar
►Reynsluakstur á Nissan Primera
með sprækari vél./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist lOb
Leiðari 22 F61k í fréttum 14b
Helgispjall 22 Myndasögur 16b
Reykjavíkurbréf 22 Brids 16b
Minningar 24 Stjömuspá 16b
Menning 28 Skák 16b
fþróttir 39 Bíó/dans 17b
Útvarp/sjónvarp 40 Bréftil blaðsins 20b
Gárur 43 Velvakandi 20b
Mannlífsstr. 6b Samsafnið 22b
Kvikmyndir 8b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2—6—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4