Morgunblaðið - 21.11.1993, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
Róbert Arnfinnsson og Hjálmar Hjálmarsson í hlutverkum sínum í
Allir synir mínir eftir Arthúr Miller.
Jóladagskrá
LeikhúskjaUarans
Um 100 listamenn taka þátt í dagskránni
Á mánudaginn hefur göngu sína
í Leikhúskjallaranum dagskrá
menningarefnis sem í boði verður
nær öll kvöld vikunnar fram til jóla.
Dagskrá þessi samanstendur af
upplestrum, Ijóðalestrum, leik, söng
og dansi. Nk. mánudags- og mið-
vikudagskvöld verða kynntar nýjar
íslenskar bækur. Aðgangur er
ókeypis. Á fímmtudagskvöldum
leika nokkrir tónlistarmenn lög af
nýútkomnum geisladiskum. Það
eru: KK-band, Megas, Bubbi, Páll
Óskar og hljómsveitin Pís of keik.
Jólahlaðborð verður á boðstólum
um helgar og mun sönghópurinn
Óskaböm skemmta matargestum á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Á sunnudagskvöldum munu söng-
konumar Margrét Pálmadóttir, Jó-
hanna Þórhallsdóttir og Margrét
Eir syngja jólalög og önnur létt lög.
Mánudaginn 13. desember munu
leikkonumar Margrét Ákadóttir og
Bríet Héðinsdóttir flytja leikþáttinn
Hin sterkari eftir Ágúst Strindberg
og sama kvöld syngur Ásgerður
Júníusdóttir við undirleik Margrétar
Ömólfsdóttur lög Söru Leander.
Eins og áður sagði hefst dagskrá
þessi á mánudaginn. Þá mun Stein-
unn Sigurðardóttir lesa úr bók sinni
Astir fískanna, Njörður P. Njarðvík
les úr bók sinni Hafborg, Þórarinn
Eyfjörð les ljóð úr Ijóðabókinni Eld-
hylur eftir Hannes Pétursson og
lesið verður úr bókinni 4. hæðin
eftir Kristján Kristjánsson, Hljóm-
sveit Jarþrúðar kemur fram en heið-
ursgestur kvöldsins verður Róbert
Amfínnsson. Eðvarð Ingólfsson
segir frá kynnum sínum af Róbert,
en hann skráði bókina Róbert —
ævisaga listamanns. Róbert les val-
inn kafla úr bókinni og leiklesið
verður atriði úr leikritinu Allir syn-
ir mínir sem nýlega var fmmsýnt
í Þjóðleikhúsinu í leikstjóm Þórs
Tulinius. Að bókakynningunni á
mánudagskvöldið standa bókafor-
lögin Iðunn og Æskan. Hefst hún
kl. 20.30, er ókeypis og öllum heim-
Lofsamlegur dómur
HINRIK D. Bjarnason gitar-
leikari fær lofsamlegan dóm
fyrir tónleika sem hann hélt í
Heinsberg í Þýskalandi á dög-
unum.
í dagblaðinu Augsburger Zeit-
ung segir að aðsókn að tónleikun-
um hafí verið góð. Enginn hafí
þó fyrir tónleikana vitað hver Hin-
rik væri en þeim mun kunnari
væri hann eftir þá. „Allir voru
undrandi á háþróuðum leik unga
mannsins og minni. Nótur komu
aldrei fyrir hans augu á meðan
spilað var. Leikurinn varð þeim
mun tjáningarríkari enda gat lík-
amsstellingin miðast við hann ein-
göngu. Ennfremur gat hann þar
með horfst í augu við áhorfendur
og einbeitt sér fyllilega."
Á efnisskránni vora verk eftir
J.S. Bach, Femando Sor, Lennox
Berkeley, Joaquim Rodrigo og A.b.
Mangore.
í blaðinu segir að í öllum
verkunum hafí snilli Hinriks komið
skýrt fram.
Hinrik Daníel Bjamason hóf
nám við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar í janúar 1982. Þaðan
lauk hann kennaraprófi í gítarleik.
í nóvember 1988 hélt hann
burtfarartónleika.
Hinrik D. Bjarnason.
Krislján Kristjánsson.
Nýjar bækur
ÚT ER komin ný skáldsaga eftir
Kristján Kristjánsson og nefnist
hún Fjórða hæðin.
Kristján hefur áður sent frá sér
þijár ljóðabækur og árið 1989 kom
út skáldsagan Minningar elds, sem
fékk góða dóma gagnrýnenda.
í kynningu útgefanda segir:
„Fjórða hæðin er margræð saga þar
sem meðal annars er varpað fram
Tímarit.
■ Tíunda hefti af ljóðatímarit-
inu Skýi er komið út. Fyrst má
nefna ljóðaþýðingar. Geirlaugur
Magnússon þýðir sex ljóð eftir
franska súrrealistann Pierre Rev-
erdy. ímyndaði maðurinn nefnist
ljóð eftir chíleanska skáldið Nica-
nor Parra og birtist hér í þýðingu
Óskars Áma Óskarssonar. Þá þýð-
ir Jón Stefánsson þijú ljóð eftir
bandaríska blökkuskáldið Langs-
ton Hughes og Stfán Steinsson
birtir hluta úr þýðingu sinni á
ljóðaflokknum Boðið upp í dans
eftir fínnska skáldið Pentti Saari-
koski. Einnig era í þessu tíunda
hefti framsamin ljóð eftir Önnu
spurningum um það hversu sönn
sú mynd sé sem einstaklingurinn
grefur úr hugskoti sínu þegar for-
tíðin er rifjuð upp, því aldrei verður
öll sagan sögð þegar aðeins einn
er til frásagnar."
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
prentuð í Prentbæ hf. Bókin
kostar krónur 2.980.
Lára Steindal, Ágúst Borgþór
Sverrisson, Baldur Óskarsson,
Geirlaug Magnússon, Hlyn Halls-
son, Jón Egil Bergþórsson, Jón
Stefánsson, . Magnús Gezzon og
Þórhall Þórhallsson.
Ritstjórar og útgefendur Skýs
eru Óskar Árni Oskarsson og
Jón Hallur Stefánsson. Tímarit-
ið fæst í stærri bókaverslunum
og kostar 400 krónur.
■ Út er komið tímaritið Bjart-
ur og frú Emilía - tímarit um
bókmenntir og leiklist, 3. tölublað
1993. í kynningu útgefanda seg-
ir: „Að þessu sinni er tímaritið
margbrotið. Ritstjóm Bjarts og frú
Emilíu ákvað að bijóta sitt heild-
stæða tímarit niður í mörg ósam-
stæð tímarit. Lesendum er boðið
upp í gleðiríka ferð til undirheima
undirtímaritanna. Snemma á þessu
ári hafði ritstjóm samband við sjö
mæta höfðingja sem guma af því
að stýra stórbrotnum undirtímarit-
um og fór fram á að fá að birta
nokkur sýnishom af því sem rit-
stjórar undirtímaritanna flagga í
tíma og ótíma. Ritstjóramir sjö
era: Ásta Ólafsdóttir, Bragi Ólafs-
son, Gretar Reynissonj Guðbergur
Bergsson, Kristín Ómarsdóttir,
Magnús Þór Þorbergsson og Þór-
unn Valdimarsdóttir. Hver ritstjóri
fékk fijálsar hendur um val á efni
og efnismeðferð.“
Útgefandi er Bjartur. Tíma-
ritið Bjartur og frú Emilía kem-
ur út fjórum sinnum á ári. Ár-
gangurinn kostar 1.993 krónur.
Prentsmiðja Áma Valdemars-
sonar prentaði og Gretar
Reynisson sá um kápu.
Ný skáldsaga eftir
Kristján Kristjánsson
Viðarrimi 26
Stórglæsilegt 176 fm einbýli á einni hæð.
Innbyggður tvöfaldur bílskúr. Húsið skilast fullbúið
án gólfefna. Baðherbergi flísalagt með vönduðum
hitastýrðum tækjum, baðkari og sturtu. Fataskápar
í öllum herbergjum. Vönduð eldhúsinnrétting með
vönduðum tækjum, hillur í geymslu og bílskúr
sem er með sjálfvirkum hurðaropnara.
Að utan skilast húsið fullbúið, einangrað með stein-
ull og múrað með marmarasalla, þak, niðurföll og
rennur með lituðu stáli.
Samþykki fyrir sólstofu.
Afhending í febrúar '94.
Staðgreiðsluverð 12.850 þús., margir lánamöguleikar.
Arkitekt Jóhannes Pétursson, byggingaraðili Guðmundur Kristinsson.
^FASTEIGNA
MIÐSTÖÐIN
62 20 30
SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
Vantarþig góða íbúð strax?
í nágrenni Landspítalans
- 4ra herb. íbúð - laus
Til sölu 4ra herb. íbúð á 3. hæð í steinhúsi við Braga-
götu 16, Rvík. Húsið er byggt 1960. íbúðin er öll ný-
standsett og mjög vönduð. Suðursvalir. Mjög gott út-
sýni. Sérhiti. íbúðin er laus nú þegar. Mjög hagstætt
verð 7,8 millj. Áhv. tæplega 5 millj. í hagstæðum lang-
tímalánum. Möguleiki að taka minni eign uppí kaupin.
Ibúðin verðurtil sýnis idag, sunnudag, frá kl. 13-16
EIGNASALAN, lngólfsstrætH2,
símar 19540,19191 og 619191.
Húsnæði/Akureyri
ætlað til veitingareksturs
Til sölu er húsnæði við Kaupvangsstræti á Akureyri.
Húsnæðið er um 143 fm að stærð.
Mjög góðar innréttingar fyigja.
Upplýsingar gefur:
Fasteignasalan Eignakjör, Akureyri,
sími 96-26441, fax 96-11444.
EIGNAKJÖR