Morgunblaðið - 21.11.1993, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 21.11.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBBR 1993 39 KNATTSPYRNA íslenskir strákar á æfingum með unglingaliðum atvinnumannafélaga í Evrópu Besti skólinn semvölerá - segir Ásgeir Sigurvinsson í Stuttgart ÞRÍR efnilegir íslenskir knattspyrnumenn eru hjá þýskum knattspyrnuliðum ívetur; Andri Sigþórsson hjá Bayern Munchen, Björgvin Magnússon hjá Werder Bremen og Sigurvin Olafsson hjá Stuttgart. Þar taka þeir þátt í upp- byggingu eins og hún best gerist og öðlast reynslu á einu ári, sem þeir eiga ekki möguleika á heima. „Þetta er besti skólinn, sem þessir strákar geta fengið,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson í Stuttgart við Morgunblaðið, en hann þekk- ir innviði þýskrar knattspyrnu betur en nokkur annar ís- lendingur. Gífurlegur fjöldi ungra knatt- spymumanna sækist eftir því að komast að hjá þýskum félögum ■■^■■B og aðeins fáir út- Eftir valdir komast að. Steinþór Sérstakir menn hjá Guðbjartsson atvinnumannafé. lögunum fylgjast með efnilegum strákum og bjóða þeim til sín. Asgeir sagði að Stuttgart hefði augun opin í nánasta umhverfi og einkum á minni stöðum. „Flest allir efnilegir strákar koma frá hálfgerðum sveitaþorpum," sagði Asgeir. „Þar eru opin svæði og sparkvellir og strákarnir eru komn- ir lengra en þeir, sem búa í stærri bæjarfélögum eða borgum.“ Hæfileikamótunin gott átak Ásgeir sagði hæfileikamótun KSÍ þarft og gott skref, en svipað fyrirkomulag hefði verið við líði í mörg ár hjá sambandinu í Baden- Wiirttemberg og hefði það gefið góða raun. Stuttgart hefði verið öflugast allra félaga á unglinga- sviðinu og sigrað í landskeppninni sjö sinnum á síðustu 10 árum. Stuttgart ætti tiltölulega marga unglingalandsliðsmenn og fengju þeir góða tilsögn, dags daglega hjá félaginu og vikulega hjá samband- inu. Fjariægur draumur Ásgeir sagði að markmiðið með unglingastarfi þýsku félaganna væri að gera drengina að betri knattspyrnumönnum, móta þá á tímanum, sem væri mikilvægastur. Þeir kynntust atvinnumennskunni án þess að litið væri á þá sem at- vinnumenn eða verðandi atvinnu- menn enda væru margir kallaðir en sárafáir útvaldir. „Ef einn á ári skilar sér upp í atvinnumennskuna hjá Stuttgart er það mjög gott, en félagið reynir að koma tveimur til þremur strák- um áfram árlega," sagði Ásgeir um gang mála hjá Stuttgart. „Strákarnir fá smjörþefinn af at- vinnumennskunni og kynnast því hvað hún er hörð og miskunnar- laus, sem styrkir þá sálarlega. Til dæmis finnst leikmanni að hann standi sig vel, en samt verður hann að horfast í augu við það að sitja á bekknum eða vera ekki í hópn- um. Það þarf sterkan „karakter" til að taka þessu, en þeir sem standast ekki álagið verða að víkja fyrir öðrum, því efnilegir strákar bíða í kippum eftir því að komast að.“ Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Þeir voru hjá Feyenoord FYRIR skömmu valdi hæfileikanefnd KSÍ leikmenn framtíðar. Liður í uppbyggingunni er að gefa leikmönnum kost á að æfa með erlepdum atvinnumannaliðum og undanfamar tvær vikur voru þrír strákar við æfingar hjá Feyenoord í Hol- landi ásamt Ásgeiri Elíassyni, landsliðsþjálfara, sem er fremstur á myndinni. Fyrir aftan hann frá vinstri era Þorbjörn Sveinsson, Eiður Guðjohnsen og Valur Gíslason. Ásgeir Sigurvinsson Golf vinsælt med- al afreksmanna í ödrum greinum Michael Jordan með 8 í forgjöf Golf er íþrótt sem margir stunda og það hefur sífellt færst í vöxt að íþróttamenn úr öðrum greinum grípi í golfið sér til skemmtunar og einnig til að halda sér við. í þýska blaðinu Kicker var fyrir skömmu listi yfir nokkra fræga íþróttamenn sem eru jafn- framt í golfinu. Blaðið sagði frá forgjöf íþróttamannanna og fylgir hún hér á eftir. Mario Lemieux, íshokkí..........1 Hansi Hinterseer, skíði.........3 Nigel Mansell, kappakstur.......3 Franz Klammer, skíði............6 MaxJulen, skíði.................6 Franz Roth, knattspyrna.........7 Toni Sailer, skíði..............7 Franz Beckenbauer, knattspyrna ..7 Willi Neuberger, knattspyrna....7 Ivan Lendl, tennis..............7 Willy Bogner, skíði.............8 Michael Jordan, karfa...........8 Armin Hary, fijálsar............8 Rod Laver, tennis...............8 Christian Neureuther, skíði....10 Gerd Zewe, knattspyrna.........10 Alain Prost, kappakstur........11 Jean-Claude Killy, skíði.......11 Jacques Laffite, kappakstur....12 Alan Mclnally, knattspyrna.....12 Pete Sampras, tennis...........12 Boris Becker, tennis...........12 Júrgen Grabowski, knattspyrna ..12 Werner Grissmann, skíði........12 Hans-Jörg Tauscher, skíði......14 Ron Fisher, íshokkí............14 Sylvia Hanika, tennis..........18 Stefan Edberg, tennis..........18 Helmut Höflehner, skíði........18 Michael Stich, tennis..........18 Michaela Gerg, skíði...........19 Dieter Höness, knattspyrna.....19 Sepp Maier, knattspyrna........19 Karl Schranz, skíði............22 Manfred Kaltz, knattspyrna.....23 Bernd Nickel, knattspyrna......25 Rosi Mittermaier, skíði........26 Dieter Múller, knattspyrna.....26 Thomas Berthold, knattspyrna....26 Andreas Brehme, knattspyrna ....26 Karl Allgöwer, knattspyrna.....28 Henri Leconte, tennis..........30 Michael Jordan á golfvellinum. Er hann hætti með Chicago Bulls í NBA- deildinni sagðist hann einmitt ætla að eyða miklum tíma í golf. Karin Dedler, skíði...........30 Yannick Noah, tennis..........35 Michel Platini, knattspyrna...35 M. Schumacher, kappakstur.....36 Katja Seizinger, skíði........36 Miriam Vogt, skíði............36 Katrin Gutensahn, skíði.......36 Doktorsritgerð í íþróttasálfræði frá Lundi í Svíþjóð Bestu vamarmenn- imir þeir biíðlyndu ÞAÐ er ekki nóg að hafa hæfileikana til þess að ná langt í knattspyrnu, persónu- legir eiginieikar sem grunnur er lagður að í bernsku hafa mikla þýðingu fyrir það hvort viðkomandi nær langt á knattspyrnuvellinum, segir í nýrri doktorsritgerð í íþrótta- sálfræði Lundi í Svíþjóð. Höfundarnir, Erwin Apitzsch og Bengt Berggren hófu starfið árið 1987 með því að kort- leggja persónu- lega eiginleika 223 leikmanna í „Alls- venskan“, sænsku úrvalsdeildinni. í kjölfarið hafa fylgt ýmis próf og viðtöl og nú sex árum síðar liggja niðurstöður fyrir. Þeir telja sig hafa fundið út ýmsa persónulega eiginleika sem skapa skilyrði fyrir því að menn nái langt í íþróttinni og segjast geta gert próf á því hvort líklegt sé að leikmenn muni ná langt í afreksíþróttum. Það er fullyrt að persónueigin- leikar hafi mikið að segja um í Grétar Þór Eyþórsson skrifar frá Sviþjóð hvaða stöðu á vellinum leikmenn ná árangri. Þannig eru einkenni sóknar- manns eigingirni, hugmyndaflug og að vera óútreiknanlegur. Sókn- armaður lætur gjarnan undan barnslundinni í sér, eldhuganum og hnýtir skóþveng sinn ekki allt- af sömu hnútum og samferða- mennirnir. Markverðir eru gjarnan þeir sem eru bældir og hafa að auki miklar sveiflur í lundarfari; sveifl- ast milli orkusprenginga og ró- lyndis. Markverðir fá líka oft að standa verkefnalitlir langtímum saman en verða síðan að leysa alla sína orku úr læðingi, fyrir- varalaust. Miðvallarleikmenn eru „vinnu- maurarnir“, stöðugir og upp- byggjandi. Persónuleg einkenni varnar- manna komu kannske hvað mest á óvart, þar töldu vísindamennirn- ir sig hafa fundið að blíðlyndi og auðmýkt væru einkennandi! Eins og nærri má geta hafa þær niður- stöður einna helst mætt gagnrýni þjálfara og leikmanna, sem hafa bent á að í öftustu vörn séu jafn- an mestu hörkutólin og líkamlega sterkustu leikmennirnir. En vís- indamennirnir benda á á móti að góður varnarmaður nýti oft á sér kvenlegu hliðina sem fínnist í öll- um mönnum; sé fljótur að aðlag- ast nýjum aðstæðum og ólíkum leikaðferðum andstæðinganna. Og undir þetta tekur sænski landsliðsmaðurinn Jan Eriksson atvinnumaður og varnarmaður í Kaiserslautern í Þýskalandi. Hann segir að varnarmenn hafi á sér meiri ábyrgð, séu óeigingjarnari og hafi hæfileikann að vinna með öllum félögunum í liðinu, hvort heldur sem þeim falli hveijum við annan eða ekki. Og vísindamennirnir segja að við vissar aðstæður nái varnar- maðurinn að yfirvinna blíðuna og beita hörku að vissu marki. Per- sónuleikinn geri það þó að verkum að honum hætti til að verða of passívur. Sænsk blöð sem fjallað hafa um ritgerðina spyija þeirrar spurningar hvort þjálfarar al- mennt séu nógu meðvitaðir um mikilvægi sálfræðihliðarinnar í þjálfuninni. GOLF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.