Morgunblaðið - 12.12.1993, Síða 41

Morgunblaðið - 12.12.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993 41 vel fyrir hana seinna í lífinu. Fyrst þegar hún var við nám í Englandi, þá launaði hún fyrir sig með listileg- um púðum og dúkum. Seinna setti hún á stofn saumastofu ásamt skólasystur sinni, frú Margréti Ólafsson. Þar voru framleidd silki- nærföt ísaumuð með blúndum, nátt- kjólar og sloppar með púffum og pifum o.fl. og þá dugði ekkert minna en útflutningur. Frú Halldóra móðir hennar giftist 1908 Davíð Kristjánssyni, verzlun- arstjóra hjá Þorsteini Arnljóts mági sínum. Árið 1932 fluttust þau til Reykjavíkur og settu á stofn Versl- un Davíðs Kristjánssonar á Skóla- vörðustíg 13 og bjuggu þar til ævi- loka. Þar þótti gott að koma, Bryn- dís dóttir þeirra aðstoðaði þau alla tíð við að halda þessu gestrisna heimili opnu fyrir öllu vensla- og vinafólki, en því miður auðnaðist mér ekki að kynnast því þar eð ég kom seinna inn í þessa fjölskyldu, en sjaldan hef ég heyrt fallegra talað um nokkra móður en frú Halldóru. Systkini Margrétar eru Arnljótur, Hólmfríður, Snæfríður, Bryndís og Þorsteinn. Eftir lifa Snæfríður, Bryndís og Þorsteinn. Margrét byijaði snemma að ferð- ast, strax í bernsku og voru margar ferðimar farnar sjóleiðis, fyrst til Húsavíkur þar sem hún gekk einn vetur í barnaskóla og var oft vitnað í þann tíma, er hún bjó hjá Guðjohn- sens-fólkinu. Síðan var siglt til Blönduóss og Skagastrandar og dvaldist hún til skiptis hjá móður- systrum sínum, frú Sigríði Arnljóts og frú Jóhönnu Hemmert. Á ungl- ingsámm dvaldist hún oft á Akur- eyri hjá frændfólki sínu. Þar átti hún góðar vinkonur og frænkur og þá hljóma nöfn eins og Þóra Stein- gríms, Hulla Ragnars o.fl. og var unað sér við leik og dans. Ung að aldri sigldi hún til Reykjavíkur til að stunda nám í Kvennaskólanum og á þeim árum dvaldist hún hjá frændfólki sínu, Sighvati Bjarna- syni bankastjóra og fjölskyldu. Seinna lá leið hennar í verslunar- skóla í Englandi, en Snæbjörn Arn- ljóts móðurbróðir hennar studdi hana fjárhagslega og var einkar kært með þeim og Borghildi konu hans. í einni skipsferðinni suður til Reykjavíkur varð á vegi hennar ungur og myndarlegur maður, Blómastofa FnÖfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiðöllkvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. Hjalti Björnsson stórkaupmaður, og örlögin höguðu því svo þannig til að þau vora bæði á leið til útlanda með sama skipi, hún í nám til Eng- lands og hann í verslunarferð til Þýskalands. Og er ekki að spyija að því eftir miklar bréfaskriftir tókst honum að vinna hug þessarar ungu og fallegu stúlku og giftu þau sig árið 1925. Oft sagði tengdafaðir minn okkur frá því þegar hann sá hana í fyrsta sinn, og var hann strax ákveðinn í að þessa konu og enga aðra vildi hann eiga. Hjalti Björnsson var fæddur að Ríp í Skagafirði, sonur hjónanna Bjöms Jónssonar skip- stjóra og Guðríðar Hjaltadóttur. Bjuggu þau alla sinn búskap á Karlsstöðum. Hjalti var stórglæsi- legur maður og harðduglegur. Af eigin rammleik tókst honum að komast suður til Reykjavíkur. Þá vora ekki til neinir peningar og kom hann gangandi í snjó og frosti. Slík var harkan. Hann tók inntökupróf í Verslunarskóla íslands og lauk þar verslunarskólanámi. Síðar stofnaði hann sinn eiginn rekstur og vann við hann allt þar til hann andaðist 30. apríl 1986, daginn sem hann átti að vera heiðursgestur sem elsti þálifandi verslunarskólanem- inn og vora þá liðin 70 ár frá því hann útskrifaðist. Margrét og Hjalti byijuðu sinn búskap í Vonarstræti 4 í Reykjavík. Valgerður móður- systir Margrétar fluttist fljótlega suður til þeirra og bjó hjá þeim þar til hún andaðist. Síðan þyggðu þau sér heimili á Hagamel 8 eftir ýmsa flutninga í millitíðinni og bjuggu þar allt til dauðadags. Þau eignuðust fjögur börn, Hall- dóru Valgerði, Snæbjörn Arnljóts, Braga Bjöm Orra og Guðríði Val- borgu og er ættboginn orðinn æði stór. Eins og ég hef minnst á var frú Margrét glæsileg kona. Hún var einkar kurteis í orðum og háttum og mikill fyrirmennskubragur á öllu hennar fasi. Hún hafði næman feg- urðarsmekk og átti hún glæsilega hatta í öskjum og flotta kjóla sem hún hafði keypt sér á árum áður „ytra“ eins og þún sagði alltaf. Hún vildi hafa vítt til veggja og hátt til lofts, húsbúnað að hætti drottninga og þannig varð það. Svo vildi hún hafa veislur og helst láta dansa og segja mér systur hennar að þær hafi verið annálaðar veislurnar hennar Möggu systur. En umfram allt þá var hún góð manneskja og einkar skilningsrík og full samúðar ef komið var til hennar með raunir sínar og mikill trúnaðarvinur. Að við skyldum verða svona góð- ar vinkonur held ég að sé mikið að þakka því hversu greind og skemmtileg kona hún var. Hún naut þess svo innilega að vera í góðra vina hópi og var alltaf sjálf- sagt að hún væri með þegar góða gesti bar að garði, ekki bara hjá okkur hjónunum, heldur hjá öllum börnunum sínum og tengdabömum. Hún laðaðist að unga fólkinu og var það gagnkvæmt. Ég hef nú dvalið lengst við æsku og uppeldisár Margrétar, en eins og ég sagði í upphafi þá mótaðist hún einstaklega af sínu uppeldi, sem fylgdi henni alla ævi og þegar hún þverfur af sjónarsviðinu þá finnst mér hverfa með henni and- blær þess tíma sem svifið hefur um hér á Hagamel 8. Nú er komið að leiðarlokum. Þótt árin séu orðin mörg þá hélt Margrét vel bæði líkamlegri og andlegri heilsu fram á síðustu stund. Bjó alltaf á sínu eigin heim- ili og gat tekið á móti fólkinu sínu. Hún fékk áfall fyrir tveimur mánuð- um og lá á Borgarspítalanum um- vafin ástúð barna sinna og umönn- un yndislegs hjúkrunarfólks. Ég vil fá að kveðja hana með eftirfarandi minningarljóði, sem sr. Matthías Jochumsson orti um ömmu hennar. Kalt er haustið: hússins sólarljómi horfinn er að Alvalds dómi, litum bregður loft og jörð og sær. Móðir, systir, kona, kvennasómi! Kalt er lífið, horfinn allur blómi, drúpur sveit, en hnípir höfðingsbær. Hjartans þakkir, hjartans vinan kæra! Hjartað ríka, stóra, hvílstu nú. Glóðheit tár þér grátnir vinir færa: Guð þér launi dygð og trú! Við kveðjum þig með klökkum róm. Heba Guðmundsdóttir. Amma mín, Margrét, er farin úr þessum heimi. Við bjuggum undir sama þaki fyrstu 25 ár ævi minnar og mynduð- ust sterk tengsl á milli okkar. Minn- ingar um hana eru margar og allar góðar. Amma var meira en bara amma, hún var félagi og vinur, ein af okkur, hvort sem það var í félags- skap fjölskyldu eða vina. Amma gerði víðreist, hafði komið á alla þá staði í Evrópu sem að ég kunni að nefna. Hún var sem gluggi úti í heiminn fyrir strákinn, heims- borgari í eðli sínu, víðsýn. Amma var viðræðuhæf um nánast alla skapaða hluti. Við hana gat ég rætt mörg hugðarefni og oft var ekki til annarra að leita. Amma var aldurslaus, var ein- faldlega á þeim aldri sem hæfði hveijum félagsskap fyrir sig. Sterk minning úr bernsku, við spiluðum kasínu daginn út og inn, ég fimm ára. Keppnin var áköf og voru öll leyfileg sem og óleyfileg brögð not- uð. Alllöngu síðar þegar snilldar- verk tónlistar vora afhjúpuð á Hagamelnum var amma vel með á nótunum. Amma vissi hvert stefndi. Síðasta samtal okkar vora vangaveltur um spumingu hennar hvað tæki svo við. Hún var haldin efa um að til væri framhaldslíf en, eins og við flest, útilokaði hún ekkert. Nú veit hún svarið. Nú er hún farin, söknuðurinn er mikill. Megi hún njóta góðrar dval- ar á hinum nýja stað. Örn Orrason. t Bróðir okkar, EINAR AHRENS, lést á Vífilstaðahæli 3. desember, Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki Kópavogshælis, þar sem hann dvaldist mikinn hluta ævi sinnar, frábæra hjúkrun og umönnun. Ágústa Ahrens, Erlendur Ahrens. ‘ t Elskulega litla dóttir okkar, GABRIELA JASONARDÓTTIR, Miðholti 11, Mosfeilsbæ, andaðist á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans fimmtudaginn 9. desember sl. Heiena Björk Magnúsdóttir, Jason Kristinn Ólafsson. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, KARÓLÍNA LÁRUSDÓTTIR, Sólvallagötu 2, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 14. desember kl. 10.30. Lárus Sigurðsson, Valdfs Atladóttir, Karólína Lárusdóttir og Sigurður Hólm Lárusson. t Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, ARNFRÍÐUR INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR SÖRENSEN frá Seyðisfirði, lést í Kaupmannahöfn 26. nóvember síðastliðinn. Útförin hefur ferið fram. Kristinn Erlendur Kaldal, Kirsten Vilborg Jensen, Birgitt Erla Thorsbro, Friðjón Árnason, Þórunn Árnadóttir Larssen, Bjarnheiður Björnsdóttir, Kurt Jensen, Gudmund Thorsbro, Huld Árnadóttir, Margrét Árnadóttir Clapson. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, YNGVI GRÉTAR GUÐJÓNSSON, Löngumýri 24, Garðabæ áður Skólavörðustíg 44, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. desember kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hans, láti Landssamtök hjartasjúklinga njóta þess. Valdís Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Pétur Yngvason, Berglind Bragadóttir, Elvar Andri Guðmundsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGILEIF GUÐMUNDSDÓTTIR frá Þjótanda, Hraunbæ 103, sem lést á heimili sínu 5. desember, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 14. desember kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Einar Ólafsson, Guðrún Jónsdóttir, Sesselja Ólafsdóttir, Gunnar Ólafsson, Sólveig Gyða Guðmundsdóttir, Árni Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓN STEFÁNSSON, Gyðufelli 12, sem lést 6. desember, verður jarðsunginn frá ríkissal votta Jehóva, Sogavegi 71 mánudaginn 13. desember kl. 13.30. Margrét Jóna Jónasdóttir, Jónas P. Sigurðsson, Ólöf María Guðbjartsdóttir, Karl Á. Sigurðsson, Bera Pétursdóttir, Steinunn H. Sigurðardóttir, Alfreð Alfreðsson, Stefán E. Sigurðsson, Bára Baldursdóttir, Ágústa G. Sigurðardóttir, Sigurður Jóhannesson, Aron Þ. Sigurðsson, Kristin Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÚLFAR V. ÞORKELSSON vélstjóri, siðast til heimilis á Kumbaravogi, lést 4. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. desember kl. 13.30. LaawHnmnn Kolbrún Úlfarsdóttir, Örn V. Úlfarsson, SævarV. Úlfarsson, Þorkell I. Úlfarsson, tengdadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.