Morgunblaðið - 09.01.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
B 19
Japönsk draugagríma. Lokaatriði úr leiksýningu.
JAPANSKAR
ENSKA ER OKKAR MAL
SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR • LIFANDI NÁMSKEIÐ
Linda P.
Samuel
Marie
Ný 7 vikna námskeið
Áhersla á talmál
10 kunnáttustig
Hámark 10 nem. í bekk
Enskuskólinn
TÚNGATA 5 * SÍMI 25330
LJÓSMYNDIR
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Um áramótin var opnuð sýning á
ljósmyndum frá Japan í menning-
arþró Ráðhússins og stendur hún
fram á morgundaginn. Það er eins
og fram hefur komið vináttufélagið
Japan — ísland, sem stendur fyrir
sýningunni, en það var stofnað 1991
í tengslum við opinbera heimsókn
Vigdísar Finnbogadóttur.
Það er víða hefð að efna til list-
kynninga í ráðhúsum stórborga sbr.
íslenzku sýninguna í Bonn á sl. ári,
og sjálfur átti ég nær 30 myndverk
á listkynningu í ráðhúsi Tókýóborg-
ar í desember 1992. Slíkar sýningar
standa yfirleitt stutt yfir, sjaldan
lengur en 3-7 daga, en til eru sér-
stakar undantekningar eins og sýn-
ingin í Bonn. Gefst því sjaldan tóm
til að geta þeirra sérstaklega svo'
sem þó iðulega er tilefni til og von-
andi verður reglan sú hér í borg að
þær standi ofurlítið lengur, því að
fólk er nokkuð seint að átta sig á
menningarviðburðum, nema um sé
að ræða jeppasýningar (!) og viðlíka
veraldlega hluti.
Það er mikið safn ljósmynda sem
til sýnis er í listaþrónni og litríkar
myndirnar lyfta óneitanlega upp
hinni hráu og grámóskulegu
stemmningu er þar ríkir að jafnaði.
Margar þeirra eru afburða vel tekn-
ar og bregða upp sannferðugri mynd
af ýmsu í japönsku þjóðlífi og
gleymist ekki að kynna þátt bif-
reiðamenningarinnar, sem Islend-
ingar ættu að kunna vel að meta.
Þannig sjáum við sýnishorn af hin-
um hrikalegu steinsteyptu hrað-
brautum, sem eru einkenni japan-
skra stórborga og þá ekki síst Os-
aka, sem er mjög nútímaleg borg.
Minnist ég þess hvernig hraðbraut-
imar liðuðust um allt, yfir hús og
jafnvel undir, og stóð mér nokkur
beygur af þeim.
Annars kom mér framkvæmdin
svo fyrir sjónir, að hér væri um
ósköp almenna kynningarsýningu á
Japan og japönsku þjóðlífí að ræða
og ég saknaði margs, sem ég var
uppnuminn af á ferðum mínum og
þá einkum japanskrar listar og þess
sem getur að líta á hvers konar
söfnum. Til dæmis er stórkostlegt
þjóðhátta- og þjóðminjasafn í
Tókýó, sem tekur marga daga að
skoða vel, og svo eru risastórir
höggmyndagarðar í Osaka og Ha-
kone, sem er í nágrenni Tókýóborg-
ar. Þá ber einnig að geta garðanna
í Tókýó, en mér þótti stemmningin
í þeim mögnuð í desembermánuði
1992, og vafalítið er hún mögnuð á
öllum árstíðum. Þar er sköpunin sem
mikilfenglegur söngur fyrir augað.
Það fór líka svo að minnisstæð-
asta ljósmyndin á sýningunni var
af risastórri grímu af leikhúsdraug,
en hér hafa Japanar af miklum sjóði
að ausa. Óskipta athygli mína vöktu
svo einnig myndir af börnum og
blómum, svo og þeim sem bjuggu
yfir þeirri leikrænu og glettnislegu
kímni sem er svo ágætur eðliskostur
í fari Japana.
Dregið saman í hnotskurn er um
frekar einhæfa og staðlaða sýningu
að ræða fyrir mann, sem veit sitt-
hvað um undur Japans, en vafalítið
á hún mikið erindi til þeirra er minna
þekkja til landsins, og þannig séð
ber að þakka framkvæmdina með
virktum.
Suzuki Vitara
Góður kostur fyrir veturinn
Suzuki Vitara er einstaklega lipur og sparneytinn jeppi, byggður á grind og búinn
frábærri íjöðrun
Vitara er með vandaðri innréttingu, vökvastýri, rafdrifnum rúðuvindum og samlæs-
ingum auk fjölda annarra kosta. Hann fæst 5 gíra, beinskiptur eða með
$ SUZUKI
—-----------
SUZUKIBÍLAR HF.
sjálfskiptingu
Verð, 3 dyra, kr. 1.785.000.
Verð, 5 dyra, kr. 2.180.000.
Komið og reynsluakið
SKEIFUNNI 17 • SÍMI 685100
* Billinn á myndinni er með aukabúnaði sem ekki er inni-
falinn í vcrði.
Húnakórinn
Æfingar
hefjast eftir
hátíðarhlé
SÍÐAN í haust hefur verið starf-
ræktur innan Húnvetningafé-
lagsins í Reykjavík sönghópur
sem æft hefur einu sinni í viku.
Hinn 17. desember sl. var svo
formlega stofnaður kór og
nefndur liúnakórinn. Voru stofn-
félagar tæplega 30. Söngstjóri
er Bjarney Ingibjörg Gunnlaugs-
dóttir.
Æfingar hefjast eftir hátíðarhlé
þriðjudaginn 11. janúar og verður
æft í Húnabúð, Skeifunni 17.
Reykjavík, alla þriðjudaga kl. 20
til kl. 22. Hópurinn þyrfti að vera
stærri, sérstaídega vantar í sópran
og bassa. Allir þeir sem áhuga hafa
á að ganga til liðs við kórinn eru
hvattir til að mæta I Húnabúð á
næstu æfingu.
Stjórn Húnakórsins skipa Sæunn
Grímsdóttir, Ólafur Þórarinsson,
Steinunn Guðjónsdóttir og Gréta
Konráðsdóttir.
Krakkadeildin er ný deild innan Söngsmiðjunnar fyrir börn
allt niður í 4 ára aldur. Viðfangsefni hópanna eru:
4-5 ára Tónlist og hreyfing.
6-8 ára Tónlist úr Karnival dýranna.
9-10 ára Vinsæl lög úr Disney myndinni Litia Hafmeyjan
11-12 ára Tónlistin úr Disney myndinni Aladdín sem nú
er verið að sýna við frábærar vinsældir. /s
13-15 ára Hress rokktónlist frá árunum 1950-1960. Jlí
©Disney
Áhersla er lögð á skapandi starf barnsins í tónlistar
og hreyfiuppeldi. Unnið er með grunnþætti tónlistar
s.s. blæ, hraða, púls, hryn, styrk og laglínu. Nálgun
á viðfangsefninu með hlustun, leikrænni tjáningu,
söngi, dans og hreyfingu. Félagslegi þátturinn
vegur stóran sess, þar sem kennslan fer fram í hóp.
Upplýsingar og innritun í s: 61 24 55 • Fax: 61 24 56
SÖNGSMIÐJAN - Skipholti 25 W