Morgunblaðið - 09.01.1994, Qupperneq 29
MORGU,\’BLAÐ11) VELVAKAWÐIíSlRN’i\'Oa.\GT3R-.9. JAXÚAU 1994 ,
B i 29
Vaxandi tölvufyrirtæki og mis-
vel greindir forstjórar þeirra
Frá Erni Asgeirssyni:
ÁSTÆÐA þess að ég rita þessar
línur er atvik sem ég lenti í 22. des-
ember 1993. Þá fór ég með tölvu í
athugun hjá tölvufyrirtækinu Boð-
eind á Seltjarnarnesi. Tölvan var
keypt hjá þeim í mars 1993 og er
því enn í ábyrgð.
Eftir að hafa keypt mér aukahlut
í tölvuna hjá öðrum tölvusala kom
upp sú staða að tölvan neitaði að
taka við honum. Stutt samtal við
söluaðila aukahlutarins leiddi í Ijós
að smáatriði í tölvunni þyrfti _að
breyta til að dæmið gengi upp. Ég
breytti því skv. leiðarvísi sem fylgdi
tölvunni en ekkert gerðist.
Hafði ég þá samband við verk-
stæði Boðeindar til að spyrja við-
gerðarmann þar hvort ég væri að
gera einhveija vitleysu. Skv. ítarlegu
símasamtali kom í ljós að það var
eitthvað sem ekki virkaði rétt í tölv-
unni sjálfri og það viðurkenndi við-
gerðarmaðurinn fúslega. Eina ráðið
var því að fara með tölvuna til verk-
stæðis Boðeindar og láta athuga
hvort tölvan væri gölluð. Málið var
lagfært á verkstæðinu fljótt og ör-
ugglega.
Síðan kemur að því sem fær mig
til að skrifa þetta miður skemmtilega
bréf. Þegar ég ætlaði að sækja tölv-
una átti ég að gjöra svo vel að greiða
viðgerðarkostnað. Ég sætti mig ekki
við það þar sem ég taldi þetta vera
athugun á því hvort vélin væri göll-
uð en skv. fyrmefndu símtali benti
allt til þess. Ég lenti því í smá orða-
sennu við forstjóra Boðeindar sem
afgreiddi í versluninni á þessum
tíma. Misskilningur hafði komið upp
á milli mín og viðgerðarmannsins
um viðgerðina. Ég bað aldrei um
að tölvan og aukahluturinn yrðu
sett upp til að dæmið myndi virka.
Ég vildi einungis að athugað yrði
hvort tölvan væri gölluð. Ef enginn
galli hefði fundist hefði ég haldið
áfram að prófa mig áfram og fengið
frekari leiðbeiningar frá söluaðila
aukahlutarins sem hann var fús að
veita.
Þessi senna á milli mín og forstjór-
ans var á skjön við alla heilbrigða
skynsemi. Hann viðurkenndi að
þarna væri um misskilning að ræða,
viðgerðarmaðurinn hefði gert meira
en það sem honum var ætlað. En
hver var látinn borga fyrir þennan
misskilning? Enginn annar en undir-
ritaður. Ég fékk ekki tölvuna fyrr
en næsta dag og þá eftir að rætt
hafði verið um þennan misskilning
við viðgerðarmanninn. En hvers átti
ég að gjalda?
Allir með einhveija skynjun á því
hvað ánægðir viðskiptavinir þýða
fyrir vaxandi smáfyrirtæki hefðu
umsvifalaust látið mig hafa vélina
og rætt síðan málið við viðgerðar-
manninn daginn eftir, en hann var
farinn þegar þetta atvik átti sér stað.
Satt best að segja trúði ég því
ekki að ég stæði þarna í stappi við
sjálfan forstjóra fyrirtækisins um
upphæð sem ennþá erfiðara er að
trúa: 4.500 kr. m/vsk.
Gaman þætti mér að vita í hvaða
bananalýðveldi viðkomandi forstjóri
hafði lært sína markaðsfræði og
framkomu við viðskiptavini.
Kenning segir að einn óánægður
viðskiptavinur segi 13 öðrum frá.
Ég er óánægður. Núna þegar ég
skrifa þetta bréf er mér yarla runn-
in reiðin, því að missir tölvunnar er
mér mjög bagalegur, þó svo að ekki
sé um að ræða nema einn dag. En
eftir á að hyggja er þetta í raun
stórfyndið. Núna hlær maður orðið
að þessari skammsýni sem þarna var
uppi á teningnum. Algert kennslu-
bókardæmi um hvernig ekki á að
koma fram við viðskiptavini.
Það besta við þetta er að sam-
skipti mín við sölumenn og viðgerð-
armann Boðeindar hafa alltaf verið
til fýrirmyndar en þetta atvik mun
binda enda á þau.
Það er alveg með ólíkindum hvað
einn aðili getur skemmt fyrir heilu
fyrirtæki. Með viðskiptum við Boð-
eind get ég ekki mælt.
ÖRN ÁSGEIRSSON,
Kötlufelli 7,
Reykjavík.
Hörmungar í Sómalíu og
hræsnarar í Hvíta húsinu
Frá Amal Qase:
Hörmungar í Sómalíu sem við
fylgjumst með í fjölmiðlum eru orðn-
ar daglegt brauð. Maður er meira
að segja hættur að tárast þegar
maður sér lítil sómölsk börn deyja
úr hungri í beinni útsendingu. Það
venst allt. Það er eitt að sjá stríðs-
hörmungar í fjarlægum löndum,
meðal fólks sem maður veit lítið sem
ekekrt um, annað er að sjá óhugnan-
legar ófarir meðal landa sinna. Það
veldur manni ólýsanlegri sorg að sjá
böm hlaupandi undan sprengingum
árásarmanna og lík út um allt á
götum þar sem ég lék mér sem bam.
Maður reynir að rifja upp fallegar
minningar frá æskuárum, hugsa um
mömmu og aðrar borgarkonur gróð-
ursetja blóm í sjálfboðavinnu, lista-
menn að selja verk sín niðri í bæ
eða fallegu stúlkurnar í þjóðbúning-
unum, sem sungu og dönsuðu út um
allan bæ á þjóðhátíðardeginum, en
maður kemst ekki undan raunvem-
leikanum.
Þegar Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra fóm til Sómalíu á sínum
tíma til að „hjálpa hjálparstofnunum
að dreifa matvælum“ eins og þeir
orðuðu það vissu allir sem þekkja
til starfshátta Bandaríkjamanna
hvað var að gerast. Þeir fóru þangað
fyrst og fremst vegna þess _að þeir
eiga hagsmuna að gæta þar. í stríðs-
hijáðu landi eins og Sómalíu er stór
markaður fyrir vopn sem Banda-
ríkjamenn framleiða í stómm stíl.
Bandaríkjamenn em löngu orðnir
LIFSHYATI
TIL ÞÍN, kæri vinur, sem lest
þessar línur og finnur þig ein-
mana og yfirgefinn. Beindu huga
þínum til Jesú, þú er mikilvægt
barn Guðs á hvaða aldri sem þú
ert, hvernig sem kringumstæður
þínar era á þessari stundu. Láttu
sjá þig þar sem Guðs andi er, í
samfélagi trúaðra. Eigir þú ekki
heimangengt er Guðs andi hjá
þér og umlykur þig á bak og
bijóst, og hönd sína hefur hann
frægir fyrir að gera innrás í lönd
sem eiga við vandamál að stríða og
hverfa síðan á brott eftir að „viðun-
andi ríkisstjórn" er komin til valda
þar. M.ö.o. þeir fara ekki fyrr en
þeir em búnir að sjá til þess að
menn sem þóknast þeim komast tií
valda. Þetta snýst allt um viðskipti.
Það er staðreynd að vopnaframleið-
endur í Bandaríkjunum era valda-
miklir og hafa mikil áhrif á utan-
rfkisstefnu landsins. Þeir hafa stór
grætt á hörmungum heimsins og era
efnaðir mjög. Þeir fjármagna kosn-
ingabaráttu stjómmálamanna og
enginn stjórnmálamaður hefur efni
á að sniðganga hagsmuni þeirra, ef
hann á annað borð vill komast í
áhrifastöðu í Bandaríkjunum.
Áætlun Bandaríkjamanna mis-
tókst hrapallega þegar þeir reyndu
að handtaka Caydiid (eða Aidid eins
og útlendingár skrifa nafn hans).
Þeir gerðu þetta vegna þess að þeir
vissu ekkert um hvernig Sómalar
hugsa. Sómalar standa alltaf saman
gegn útlendingum þótt þeir séu
verstu óvinir innbyrðis. Þeir myndu
aldrei afhenda Caydiid eða annan
sómalskan foringja útlendingum,
þótt Caydiid sé versti morðingi í
sögu landsins eftir Said Barre (Said
Barre stjórnaði Sómaliu með valdi
1969-91), en hræsnarar í Hvíta
húsinu vissu það ekki. Þeir voru
vanir að fara til hvaða lands sem
er og skipta sér af innanríkismálum
þeirra án minnstu virðingar fyrir
menningu og lifnaðarháttum við-
lagt á þig til þess að styrkja þig.
Sá sem leitar Guðs mun ekki
burtu rekinn. Jesús lætur dyr
standa opnar fyrir þér sem eng-
inn getur lokað, hann þekkir
verkin þín og veit að þú hefur
lítinn mátt og ekki afneitað Guði
sem hefur leyst þig úr nauðum.
Þökk sé Guði fyrir Drottin vorn
Jesúm Krist sem gaf okkur sinn
heilaga anda og leiddi okkur út
úr myrkinu til ljóssins.
Kærleikskveðja.
ÁVE
komandi fólks. Mönnum er í fersku
minni hvernig þeir ruddust inn í
Panama og handtóku þar leiðtoga
sjálfstæðrar þjóðar og ótrúlegt en
satt kom hann fyrir rétt í Bandaríkj-
unum þar sem harm situr í fangelsi.
Það var dýrkeypt lexía og hin
versta skömm fyrir Bandaríkjamenn
þegar sómalska þjóðin lét í ljós að
þeir væru ekki velkomnir í Sómalíu
í beinni útsendingu um allan heim.
Borgarastyijöldin í Sómalíu sem
hófst 1988 hefur farið úr öllum
böndum og ástandið er hræðilegt,
en það er fyrir Sómala að koma sér
saman og leysa þetta vandamál en
ekki utanaðkomandi.
AMAL QASE
frá Sómalíu.
LEIÐRÉTTINGAR
Röng mynd
Röng mynd birt-
ist með grein
Tómasar Þor-
valdsson, hdl.,
„Reynt að kæfa
vaxtarbrodd“ um
málefni kvik-
myndasjóðs sem
birtist í blaðinu í
gær. í staðinn
birtist mynd af alnafna hans og út-
gerðarmanni i Grindavík. Hér er
myndin sem átti að fylgja greininni
og er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
Rangt nafn
Þau leiðu mistök urðu við birtingu
fréttar um útför Stefáns íslandi í gær
að nafn prestsins, sr. Guðmundar
Óskars Ólafssonar, misritaðist. Er
hann beðinn afsökunar á þessum
mistökum.
Mistök í dag-
skrárkynningu
Þau mistök áttu sér stað í dagskrár-
kynningu á fimmtudag að bútur féll
úr kynningunni á Djáknanum á
Myrká. Rétt er setningin: „Öll undir-
búningsvinna, teiknun persóna og
málun bakgrunna var unnin á ís-
landi 1991-92, en hreyfiteikning,
málun á glærar og kvikmyndataka
var unnin í Lettlandi á fyrri hluta
þessa árs.“ Eru aðstandendur mynd-
arinnar beðnir velvirðingar á þessu.
VELVAKANDI
Sjálfsrækt
Námskeið, sem íjallar um uppeldi, sjálísvirðingu, ást og
samskipti, líkamsrœkt, matarœði, jákvœða hugsun,
markmiðasetningu, öndunarœfingar, slökun, hugleiðslu
og lögmál velgengni. Kennslubók, œfingar og einkatími.
15. jcmúar til 12. febrúar.
Leiðbeinandi er Gunnlaugur Guðmundsson
Stjörnuspekistöðin, Laugavegi 59, sími 10377.
SUMARÉÍNU '94
KYNNI R I KVOLD. SUNNUDAGSKVÖI.D
* ÉRT M
einn af þeim sem ætluðu að byrja nýtt
líf eftir áramót? Ef svo er, þá ættir (?ó
að líta til okkar því lífið er allt svo
miklu auðveldara viðfangs og skemmtilegra
ef maður lætur það eftir sér að sofa vel!
Dæmi:
Teg. Korafort 90 x 200 kr. 12.860,-
Tej. Medíó 90 * 200 kr. 22.360,-
Teg. Sufer 90 x 200 kr. 33.280,-
Teg. Ultraflex 90 x 200 kr. 42.860,-
Teg. Softyflex 90 x 200 kr. 45.120,-
Sænsku fjaðradýnurnar frá SCANDISLEEP og SCAPA,
tveimur stærstu dýnuverksmiðjum Norðurlanda sem
Húsgagnahöllin er einkaumboðsaðili fyrir, eru alltaf
jafn vinsælar. í hinni stóru dýnuútstillingardeild
okkar er um margar gerðir og stærðir að velja.
Hjá velútsofnu starfsfólki okkar færðu góða þjónustu
og aðstoð við að velja rétta dýnu og bestu fréttirnar
eru þær að það er ekki dýrt ao sofa vel. Við bjóðum
besta verðið á markaðnum -það muntu strax sjá.
Er ekki kominn tími til að líta til okkar ?
Húsgagnahollin
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REVKJAVÍK - SÍMI 81-68118»