Morgunblaðið - 09.01.1994, Síða 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
MEISTARAKOKIiARNIR
/OSKAR OGINGVAR
Verðlaunaréttir
Eftirfarandi ísréttir eru verð-
launaréttir úr uppskriftasam-
keppni Rásar 2 um besta áramótaís-
inn. Sigurvegarinn fékk í verðlaun
6 rétta veislu fyrir '6 manns. Meist-
arakokkarnir Óskar og Ingvar
mættu heim til vinningshafans og
sáu um matreiðslu og þjónn frá
Argentínu steikhúsi sá um fram-
reiðslu veitinga.
Hátíóarís
1. verdlaun
10 stk. egg (heil egg)
100 g sykur
1 I rjómi
1 tsk. vanilludropar
50 g Mars
50 g Snickers
50 g Toblerone
50 g marsipan
2 cl Baileys líkjör
2 cl Tia Maria/Kahlua
Aðferð:
Egg og sykur þeytt saman uns
verður létt og Ijóst. Rjómi þeyttur.
Súkkulaðið og marsipanið brytjað
niður. Rjóminn sleginn saman við
eggjahræruna með sleif og öllu
súkkulaðinu og bragðefnunum
blandað varlega saman við. Sett í
form og fryst.
Höfundur: Margrét Guðjóns-
dóttir, Mosfellsbæ.
ís-kropp
2. verðlaun
6 stk. eggjarauður
1 bolli sykur
1 msk. vanillusykur
'h I rjómi
150 g Nóa-kropp
Aðferð:
Þeytið saman eggjarauðum og
sykri, uns eggin verða létt og Ijós,
því næst er vanillusykrinum bætt
útí. Rjóminn þeyttur og er því
næst settur varlega saman við
eggjahræruna með sleif og að lok-
um er Nóa-kroppinu bætt í. Setjið
hræruna í form og beint í frysti.
Höfundur: Hafdís Gísladóttir,
Akureyri.
Englaþytur
3. verölaun
100 g heslihnetukjarnar, malaðir
2 stk. eggjarauður
_______1 stk. egg_______
6 dl rjómi, þeyttur
2-3 msk. sykur
3-4 msk. kaffilíkjör
2 msk. sterkt kaffi
2 blöð matarlím
100 g súkkulaði (brætt)
Aðferð:
Egg og sykur þeytt saman þar
til eggin verða freyðandi. Matar-
límið er leyst upp í kaffinu eftir að
hafa verið bleytt upp, líkjörnum svo
blandað saman við, sett út í eggja-
hræruna ásamt hnetunum pg
þessu blandað vel saman. Út í
þessa blöndu er bætt 4/6 af rjóm-
anum, en síðast er restinni af rjóm-
anum bætt útí með sleif þannig
að rjóminn myndi rendur í kaffi/
rjómahræruna. Sett í mót og fryst
í 4-5 tíma og síðan sett á fat með
skeið þannig að myndist ísfjall og
yfir er síðan hellt bræddu súkkul-
aði til skrauts. ísinn verður að bíða
smástund þannig að hann sé að-
einsfarinn að þiðna. .
Kristín Halldórsdóttir,
Bolungarvík.
Undir bláhimni
aukaverðlaun
300 g frosin aðalbláber
100 g sykur
3'h dl rjómaskyr, hreint
2 dl vatn
2 stk. eggjahvítur
4 msk. flórsykur
2'h dl rjómi
Aðferð:
Aðalbláber, sykur, skyr og vatn
hrært saman í hnífahræru. Berin
eiga ekki að fara alveg í mauk.
Eggjahvítur stífþeyttar og flórsykri
bætt út í. Rjóminn þeyttur. Öllu
blandað varlega saman. Sett í 1
lítra form. Fryst í a.m.k. 5 tíma við
-M8C.
íslenskt —játakkl!!!
Höfundar: GuðmundurÖrn Ing-
ólfsson og Sigríður Sigurjónsdótt-
ir, Sauðárkróki.
+
ÚR MYNDASAFNINV
Olafur K. Magnússon
BROTIÐ BLAÐI
FLUGSÖGUNNI
Brotið var blað í flugsögu íslend-
inga hinn 15. júní 1947 þegar
Skymaster-vél Loftleiða,
Hekla, lenti á Reykjavík-
urflugvelli eftir tíu stunda
og tuttugu mínútna flug
frá Ganderflugvelli á Ný-
fundnalandi. Með vélinni
voru 27 farþegar og voru
meðal þeirra nokkrir Vest-
ur-íslendingar. Hekla var
fullkomnasta farþegaflug-
vél í millilandaflugi sem Islendingar
höfðu eignast fram að þeim tíma og
í ávarpi þáverandi samgöngumála-
ráðherra, Emils Jónssonar, sem hann
flutti við komu vélarinnar, líkti hann
komu Heklu við komu Gullfoss gamla
á sínum tíma. Það var
því að vonum að fjöldi
fólks var samankominn
á flugvellinum til að
fagna komu vélarinnar.
Skömmu eftir komu
Heklu var blaðamanni og
ljósmyndara Morgun-
blaðsins boðið í farþega-
flug til Kaupmannahafn-
ar og voru þrjár myndanna teknar
við það tækifæri, en ein var tekin á
Reykjavíkurflugvelli daginn sem
Hekla kom til landsins í fyrsta sinn.
Séð yfir afgreiðslusalinn á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn á því
herrans ári 1947. Umsvifin hafa vissulega aukist síðan þá.
Mánaðaheiti
ogmannanöfh
SVO VIRÐIST sem Iangt hafi
verið liðið á 18. öldina þegar
íslenskur almenningur fór að
nota rómversku mánaðanöfnin
janúar — desember, eftir því
sem segir í Sögu daganna eftir
Arna Björnsson.
Rómversku mánaðanöfnin eru
ýmist nöfn guða, keisara eða
dregin af töluorðum. Þannig var
september hinn sjöundi mánuður,
október sá áttundi, nóvember
níundi og desember hinn tíundi
að rómversku tímatali. í bókinni
Nöfn íslendinga er gerð grein
fyrir uppruna mannanafna og eru
mörg dregin af rómversku mán-
aðanöfnunum.
Mánuðurinn janúar tekur nafn
af guðinum Janusi, sem réði gangi
tímans og upphafi alls. Karl-
mannsnöfnin Janus og Janúaríus
eru bæði af sama uppruna. Mars
var rómverskur herguð og árið
1989 báru átta karlar nafnið, árið
1910 var í manntali karl sem hét
Marsíus, sem mun af sama stofni.
Kvennafnið Maídís er eina
nafnið sem við fundum og dregið
var af nafni vormánaðanna en
júní, júlí og ágúst hafa reynst
dijúg uppspretta mannanafna.
Nöfn dregin af heitum þessara
mánaða eru meðal annars Júna,
Júní, Júnía, Júníana, Júníus, Jún-
Guðinn Janus skegglaus á róm-
verskum peningi
us, Júlí, Júlía, Júlíana, Júlíanna,
Júlíanus, Júlína, Júlínus, Júlíus,
Ágúst, Ágústa, Ágústína og Ág-
ústus.
Haustmánuðirnir sem kenndir
eru við töluorð hafa orðið tilefni
nokkurra nafngjafa hér á landi.
Þeirra á meðal September, Sept-
emborg, Septimus, Septíma og
Septína. Október á mörg skyld
eiginnöfn. Oktavía, Oktavíana,
Oktavíanus, Oktavíus, Októ,
Október, Októína, Októlína, Októ-
vía og Októvína. Samkvæmt
manntali 1910 báru þá fjórir karl-
ar nafnið Nóvember, en vinsældir
þess virðast hafa þorrið í áranna
rás.
ÞANNIG...
AFHIÚPA BRESKAR KONUR MAKA SÍNA
Varast ber
fljóðinfógru
Skrifstofuteitin, jólaglöggin, vinnufélagar kvaddir, síðasti vinnudag-
ur ársins. Allt eru þetta uppákomur þar sem áfengi flæðir gjarnan
ótæpilega og „gleðin er við völd“, eins og það er gjarnan orðað.
Mjög oft eru þetta svokallaðar „makalausar" uppákomur, þ.e.a.s.
gift fólk og sambýlingar skilja annaðhvort betri helminginn eftir
heima eða sleppa fjörinu. Reynslan sýnir að mörgum verður hált á
svellinu er Bakkus sækir djarfar fram er á kvöldið líður og fær þá
gjarnan Eros í lið með sér. Er Bakkus molar niður múrana sleppa
menn sér og þá á sá síðarnefndi stundum greiða leið. Sambönd sem
byggst hafa mánuðum saman á augnagotum verða annað og meira.
Stundum miklu meira. Haft er fyrir satt að undirrót margra skilnað-
armála sé að finna í „hálkuslysum" vinnustaðateita. I Bretlandi er
vaxandi hópur kvenna sem notar teiti þessi til að finna út hversu
traustverðugir kærastarnir og eiginmennirnir raunverulega eru.
Skal nú greint frá því með hvaða hætti.
Nokkur einkaspæjarafyrirtæki
hafa ráðið nokkrar fallegar
stúlkur og þjálfað þær til sérhæfðra
verkefna. Þær klæða sig í stutta
og flegna samkvæmiskjóla og með
einum hætti eða öðrum annaðhvort
koma þær sér í teitin eða á þá krá
eða skemmtistað sem teitin hellast
yfir á. Þegar á hólminn er komið
finna þær fórnarlambið. Fyrsta að-
gerðin er sú að ná augnsambandi
við karlinn. Láta á sér skiljast að
þær vilji ræða málin. Sýni karlinn
ekki frumkvæði finna stúlkurnar
leið til þess að stofna til kynna.
Þegar það er búið fikra þær sig
áfram, allt eftir undirtektum karls-
ins. Ef karlarnir eru tregir og gefa
engin færi á sér er það þrautalend-
ingin að sýna áræði og stinga upp
á skyndikynnum. Stúlkurnar látast
þá vera hífaðar og ýmsar snerting-
ar eru ætlaðar til að bijóta niður
vilja karlmannsins. Dugi það ekki,
slíta þær samtalinu og hverfa á
braut. Nái þær taki á karlinum,
halda þær leiknum áfram allt þar
til að komið er fram í anddyri
skemmtistaðarins, eða að hurð
leigubíls. Þá þykjast þær hafa
gleymt einhveiju innan dyra, laum-
ast burt og láta sig hverfa. Innan
klæða er þær með segulband sem
nemur allar samræður og er orða-
og setningaval kvennanna einmitt
staðlað og sérstaklega valið til þess
Varast ber fljóðin fögru...
að ekki geti farið á milli mála hvað
verið sé að ræða um.
Hvort sem karlarnir standast
prófið eða falla á þeim, þá eru
kærusturnar og eiginkonurnar sem
heima sátu yfirleitt komnar með
upptökuna og skýrslu „sjensins" í
hendumar áður en karlinn er laus
við timburmennina.
Sem fyrr segir sækja æ fleiri
eigin- og sambýliskonur eftir þjón-
ustu af þessu tagi og sem nærri
má geta eru niðurstöður hvers
máls um sig með ýmsum hætti.
Karlar sem legið hafa undir grun
um árabil hafa fengið fyrstu ein-
kunn á sama tíma og hinir mestu
sakleysingjar hafa kolfallið. Jafnvel
gengið svo langt að svífa á spæjar-
ana áður en þeir höfðu áttað sig á
því hveijum þeir voru sjálfir að leita
að! Virðist þjónusta af þessu tagi
eiga framtíð fyrir sér. En eitt öðru
fremur heldur henni þó nokkuð í
skefjum. Þetta er rokdýrt ...