Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
Hagræðingarsj óður
781 skip
fær kvóta
FISKISTOFA hóf í gær úthlut-
un 12 þús. þorkígildislesta
afiaheimildum Hagræðingar-
sjóðs. Alls var útgerðum 781
skips send tilkynning um út-
hlutunina. Miðað er við að skip
sem urðu fyrir meira en 9,8%
skerðingu fái skerðingu um-
fram það að fullu bætta.
Fiskistofa reiknaði aflamark
fyrir hveija tegund, bæði fyrir
seinasta fiskveiðiár og yfirstand-
andi, miðað við aflahlutdeild við-
komandi skips af hverri tegund
þann 7. desember sl. Er aflaheim-
ildum skipt á milli tegunda í sam-
ræmi við hlutfallslega skiptingu
aflaheimilda Hagræðingarsjóðs.
Þetta leiðir til að 'sum skip fá
aflaheimildir af öðrum tegundum
en þeim sem þau stunda alla
jafna veiðar á. Útgerðum þeirra
er heimilt að framselja þær til
annarra skipa eða skipta á þeim.
Forsætisráðherra vill hafa þrjá bankastjóra í Seðlabankanum
Skynsamlegt að viðhalda
jafnvægi í stj órn bankans
Ólafur Ragnar sakar viðskiptaráðherra
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að engin formleg álitsumleit-
un hafi verið við þingflokkana um breytta skipan bankastjórnar
Seðlabankans en í Morgunblaðinu í gær sagðist viðskiptaráðherra
hafa rætt við forsvarsmenn þingflokkanna um þessi mál áður en
hann tók ákvörðun um að leggja fram tillögu um að bankastjórarn-
ir yrðu þrír þar sem jjóst hafi verið að tillaga hans um að ráða einn
bankasljóra í stað þriggja myndi ekki njóta stuðnings meirihluta
Alþingis. Davíð segist vera hlynntur því að þrír bankasijórar verði
við bankann til að viðhalda ákveðnu jafnvægi í bankanum.
„Ég er þeirrar skoðunar að það
sé skynsamlegt að hafa ákveðið
jafnvægi í bankanum. Hugmyndin
um einn öflugan bankastjóra fól það
í sér að það yrði komið upp all
öflugu kerfi aðstoðarbankastjóra,
þannig að í kerfinu fólst enginn
spamaður, og jafnframt var búist
við því að þar með yrði bankaráðið
gert pólitískara. Það var undirliggj-
andi að afskipti flokka kæmu fram
með þeim hætti,“ sagði Davíð.
Davíð sagði að það hefði gefist
vel að viðhalda ákveðnu jafnvægi í
stjórn bankans og sagðist ekki telja
að flokkamir eða forystumenn
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
/ * r *
Heimíld: Veðurslofa íslands
(Byggt á voðurspá kl. 16.30 (gær)
VEÐURHORFUR I DAG. 12. JANUAR
YFIRUT: Yfir Grænlandi er 1.032 mb næð en um 600 km suðvestur
af Reykjanesi er víðáttumikil 960 mb lægð, sem hreyfist austur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Suðvesturmiðum, Faxaflóamíð-
um, Breiðafjarðarmiðum, Vestfjarðamiðum, Norðvesturmiðum, Norð-
austurmiðum, Vesturdjúpi, Norðurdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi.
8PÁ: Austan- og norðaustanátt. 9-10 vindstig og snjókoma á Vestfjörð-
um,en nokkuð hægari vindur vfðast annars staðar. Rigning á láglendi
um landið auatanvert og eins vfða á Norðurlandi, en úrkomulítið suðvest-
antíl. Hægt kólnandi á morgun, einkum um landið norðvestanvert.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðaustanátt, sums staðar nokkuð hvöss
og kólnandi, þó líklega frostlaust sunnanlands og austan. Snjókoma eða
éljagangurnorðanlands og á Vestfjörðum.slydda með köflum austan-
lands en bjart veður suðvestanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustanátt og frost um mestallt land. Dálít-
il él norðanlands og austan en bjart veður sunnanlands og vestan.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o <á & ■g£> o Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
r r r * r * * * * • JL * 10° Hitastig
r r r r r * / r * r * * * * * V V V V Súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka '
"9 ■ æ: ■ ■ - : ■ ■ ' ■ 1 .... ,,:,. ...... ■ ■ •: -
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær)
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Hrtl veður
Akureyri 3 alskýjaö
Reykjavik 7 rignlng
Björgvin S hálfskýjað
Helsinki +6 komsnjór
Kaupmannahöfn 2 súld
Narssarssuaq •f3 heiðskírt
Nuuk +e heiðskírt
Ósló +3 snjókoma
Stokkhólmur +1 hálfskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 6 þokaésfð.klst.
Barcelons 13 heiðskírt
Berlín 2 súld
Chicago 1 þokumóða
Feneyjar 10 rigning
Frankfurt 5 skýjað
Glasgow 7 skúrásið. Idst.
Hamborg 2 þokumóða
London 9 skýjað
LosAngeles vantar
Lúxemborg 5 skýjað
Madrid 6 alskýjað
Malaga vantar
Mallorca 14 léttskýjað
Montreal +18 skýjað
NewYork +4 skýjað
Orlando 16 skýjað
Parfa 4 alskýjað
Madelra 18 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Vfn 8 alskýjað
Washington +3 alskýjað
Winnipeg +31 helðskfrt
um hrínglandahátt
þeirra reyndu með nokkrum hætti
að fjarstýra Seðlabankanum. „Þetta
hefur hins vegar skapað ákveðið
traust á málefnum bankans og ég
tel ástæðulaust að rjúfa þá hefð að
það verði þriggja manna banka-
stjórn. Ég held að það hafi gefist
ágætlega og þannig er það víða í
heiminum og ég tel enga ástæðu
til að breyta því sem vel hefur
reynst," sagði Davíð.
Forystumenn Alþýðubandalags
og Kvennalista segja að Sighvatur
Björgvinsson viðskiptaráðherra hafí
ekki haft samband við þessa flokka
um breytingar á skipan banka-
stjómar Seðlabankans. Viðskipta-
ráðherra lagði fram frumvarp á
Alþingi í nóvember um heimild til
að fresta í eitt ár ráðningu nýs
seðlabankastjóra í stað Tómasar
Árnasonar, sem lét af störfum um
áramót, á meðan leitt yrði í ljós
hvaða breytingar yrðu gerðar á
starfssviði og fjölda bankastjóra við
endurskoðun seðlabankalaganna en
frumvarpið var í þingnefnd þegar
Alþingi fór í jólaleyfi. I Morgunblað-
inu í gær sagði ráðherra hins vegar
ástæðulaust að bíða með að ráða
bankastjóra í stað Tómasar.
Þvertá
frumvarp ráðherra
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
alþýðubandalagsmenn mjög undr-
andi á yfírlýsingu Sighvats sem
gengi þvert á það frumvarp sem
hann hefði lagt fram á Alþingi í
nóvember. „Það eina sem hefur far-
ið okkar á milli um þetta efni var
í bytjun desember þegar ég sagði
honum í lauslegu spjalli í hliðarsal
Alþingis að við værum eindregið
þeirrar skoðunar að það ætti að
vera eínn bankastjóri við Seðlabank-
ann og við myndum fylgja þeirri
stefnu í þinginu og værum reiðubú-
in að styðja stjórnarfrumvarp um
það efni,“ segir Ólafur Ragnar.
Ólafur gagnrýndi Sighvat fyrir
hringlandahátt í málefnum Seðla-
bankans og sagði óþarft að ráða
nýjan seðlabankastjóra fyrr en
seðlabankafrumvarpið hefði verið
afgreitt. „Það er ljóst að málefni
bankans hafa verið í mikilli deiglu
og að ijúka núna til og ráða banka-
stjóra áður en málið er afgreitt er
furðulegt,“ sagði Ólafur.
Framsókn styður
þrjá bankastjóra
Steingrímur Hermannsson sagði
að framsóknarmenn hefðu oft lýst
sig mótfallna því að seðlabanka-
stjórum yrði fækkað í einn. Sagði
hann að Framsóknarflokkurinn
myndi væntanlega styðja þessa til-
lögu en vildi þó ekki fullyrða um
afstöðu sína fyrr en hann hefði séð
frumvarpið.
Aðspurður hvort framsóknar-
menn gerðu tilkall til stöðu Tómasar
Árnasonar sagði Steingrímur: „Það
á enginn flokkur ákveðna stöðu í
Seðlabankanum og við eigum ekk-
ert frekar þessa stöðu heldur en
stöðu Jóns eða einhveija aðra. Þeg-
ar hún verður auglýst verður bara
að koma í Ijós hveijir sækja um.
Hins vegar tel ég Seðlabankann svo
mikilvæga stofnun í ríkiskerfínu og
efnahagsmálum að það þurfi að
ríkja trúnaður á milli ríkisstjómar
og Seðlabankans en ég hef ekki
verið hlynntur þessum svokallaða
sjálfstæða seðlabanka. Ég held að
menn ættu að forðast að apa það
eftir stórveldum eins og Þýska-
landi. Það er ekkert óeðlilegt að
þama séu menn sem njóta trúnaðar
stjórnmálaflokkanna," sagði Stein-
grímur.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
þingflokksformaður Kvennalistans,
segir það afstöðu Kvennalistans að
bankastjórar eigi að vera þrír en
þær vilji jafnframt fjölga fulltrúum
í bankaráði Seðlabankans. „Aftur á
móti hefur viðskiptaráðherra ekkert
rætt við okkar þingflokk, hvorki
formann eða aðrar þingkonur. Það
er því ekki rétt að hann hafí rætt
við formenn allra þingflokka," sagði
hún.
Skipulagsnefnd Reykjavíkur
Bensínafgreiðsla við
Gagnveg verði flutt
MEÐ hliðsjón af auknum umsvif-
um á íþróttasvæði Fjölnis og at-
hugasemdum sem borist hafa
mælir skipulagsnefnd með þvi
við borgarráð að fyrirhuguðum
söluturni og bensínafgreiðslu við
Gagnveg við Fjallkonuveg í Graf-
arvogi verði fundinn annar stað-
ur. Borgarráð vísaði erindinu til
umsagnar borgarritara.
í bókun skipulagsnefndar kemur
fram að lagðar voru fram á fundi
nefndarinnar að nýju athugasemdir
vegna auglýsingar um breytta land-
notkun við Gagnveg, þar sem gert
er ráð fyrir að almennu útivistar-
svæði verði breytt í þjónustulóð.
Ný tillaga
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður nefndarinnar og fulltrúi
Sjálfstæðisflokks, lagði fram tillögu
sem samþykkt var samhljóða. Þar
segir að; „Umsvif á íþróttasvæði
Fjölnis hafa aukist frá upphaflega
samþykktu skipulagi. Gert er ráð
fýrir heimaleikjum í íþróttahúsi sem
tekur allt að 850 áhorfendur og
leikjum utanhúss, bæði í knatt-
spyrnu og frjálsum íþróttum.
Þröngt er um stæði inni á svæðinu
og því er enn meiri þörf á bílastæð-
<r m A 0 J\ s
) (J? E L
/ Borgarholt x * / S
/ Gagnvegur-j / ? / Æ
SGrafarvogur 7 riHEL/ ! R
Lagt er til að
Árbær bensínstöð og
C) sölutum verði
í Höllum
um þeim, sem liggja norðan Gagn-
vegar, á því svæði sem um ræðir.
Bílastæði þessi voru hugsuð sem
aukabílastæði fyrir íþróttasvæðið á
álagstímum.
I þessu ljósi og með. hliðsjón af
athugasemdum, sem borist hafa,
mælir skipulagsnefnd með því við
borgarráð að þessari starfsemi verði
fundinn annar staður, þar sem
skipulag gerir ráð fyrir slíkri þjón-
ustu, t.d. á þjónustusvæði við Suð-
urlandsveg undir Hamrahlíð sem
nefnt er Hjallar á aðalskipulagi."