Morgunblaðið - 12.01.1994, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
10
Tríó Reykjavíkur
FRÉTTIR
ITC-deildin Melkorka heldur
fund í Gerðubergi í kvöld kl. 20.
Stef fundarins er: „BHndur er
- bóklaus maður“. Uppl. veita
Fanney í s. 687204 eða Sólveig í
s. 674561. Fundurinn er öllum
opinn.
JC-FÉLAGAR. Ársreikningar
hreyfingarinnar fyrir tímabilið 1.
júní til 31. desember 1992 liggja
frammi tii skoðunar miðvikudag-
inn 12. janúar milli kl. 10 og 14
í Hellusundi 3.
HANA NÚ, Kópavogi: Fundur
verður í bókmenntaklúbbi á Les-
stofu bókasafnins kl. 20 í kvöld.
FÉLAGSMIÐSTÖÐ aldraðra,
Bólstaðarhlíð 43. í dag kl. 10-14
byijar vefnaður að nýju.
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
fer í kvöldgöngu í kvöld kl. 20 frá
Hafnarhúsinu suður í Nauthól-
svík. Komið við í Slökkvistöðinni
í bakaleiðinni.
BÚSTAÐASÓKN. Félagsstarf
aldraðra í dag kl. 13.
SILFURLÍNAN - sími 616262.
Síma- og viðvikaþjónusta fyrir
eldri borgara alla virka daga milli
kl.16 og 18.
BÓKSALA Félags kaþólskra
leikmanna er opin á Hávallagötu
14 kl. 17-18.
NESSÓKN. Opið hús kvenfélags-
ins í safnaðarheimili í dag kl.
13-17. Leikfimi, kaffi, spjall. Fót-
snyrting og hárgreiðsla á sama
tíma. Kóræfíng Litla kórsins í dag
kl. 16.15.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Gerðubergi. Fimmtudagur: Kl.
10.45 helgistund, umsjón sr.
Hreinn Hjartarson.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA. 10-12 ára starf í
safnaðarheimili í dag kl. 17.
DÓMKIRKJAN: Hádegisbænir
kl. 12.10. Orgelleikur frá kl. 12.
Léttur hádegisverður á kirkjulofti
á eftir. Opið hús í safnaðarheimili
í dag kl. 13.30-16.30.
HALLGRÍMSKIRKJA: Opið hús
fyrir foreldra á morgun, fimmtu-
dag, kl. 10-12.
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld- og
fyrirbænir í dag kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA. Aftan-
söngur kl. 18.
NESKIRKJA: Bænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
KÁRSNESSÓKN. Mömmumorg-
unn í dag kl. 9.30-12 í safnaðar-
heimilinu.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimili.
Aðalsafnaðarfundur verður í
kirkjunni sunnudaginn 16. janúar
nk. að lokinni messu kl. 11.
ÁRBÆJARKIRKJA: Mömmu-
morgunn í fyrramálið kl. 10-12.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12 á hádegi. Tónlist,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Unglingastarf (Ten-
Sing) í kvöld kl. 20.
DIGRANESPRESTAKALL.
Kirkjufélagsfundur verður í safn-
aðarheimilinu Bjarnhólastíg 26 á
morgun, fimmtudag, kl. 20.30.
Spiluð verður félagsvist. Kaffi-
veitingar. Helgistund.
HJALLAKIRKJA: Opið hús fyrir
eldra safnaðarfólk á morgun,
fimmtudag, frá kl. 14-17.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi og
léttur hádegisverður í safnaðarat-
hvarfinu, Suðurgötu 11 að stund-
inni lokinni.
FELLA- og Hólakirkja: Helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30.
Umsjón sr. Hreinn Hjartarson.
SAFNAÐARFÉLAG Áspresta-
kalls. Sameiginlegur fundur
kven- og safnaðarfélaga Ás-,
Langholts- og Laugarnessókna
verður haldinn á morgun, fimmtu-
dag, kl. 20.30 í safnaðarheimili
Langholtskirkju. Spiluð verður
félagsvist. Kaffiveitingar.
________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
Hafnarborg var ekki vettvang-
ur tónleika Tríós Reykjavíkur
eins og venja hefur verið, heldur
reyndi tríóið sig að þessu sinni í
Víðistaðakirkju og voru það fróð-
leg umskipti. Kirkjan hefur að
mörgu leyti góðan hljómburð fyr-
ir kammermúsík og umgjörð
Baltasar á veggjum kirkjunnar
geta áheyrendur glímt við að
tengja tónlistinni sem flutt er,
ef hugurinn á
annað borð skyldi
verða eitthvað
reikull. Tríó
Reykjavíkur, sem
allt að því eins
gæti heitið Tríó
Hafnarfjarðar
þar sem allir, eða
flestir, tónleikar
þess fara fram í
Hafnarfirði, er
orðinn samhæfð-
ur hópur sem
ekki er spurning
um að geri vel
heldur, hvort ekki
sé hægt að gera
ennþá betur. Á
efnisskrá tónleik-
anna að þessu
sinni voru „að-
eins“ tvö verk, Tríó í Es-dúr op.
70 nr. 2 fyrir píanó, fiðlu og selló
eftir Beethoven og Kvartettinn
um endalok tímans eftir Olivier
Messiaen. Kannske er ekki margt
líkt með þessum tveim höfundum
annað en að báðir voru þeir með-
al snillinga þjóða sinna. Annar
stendur föstum fótum í klassískri
tónlistarhefð sögunnar, með
form og hryn njörfað í nákvæ-
man og skipulagðan taktaljölda
eða nótnagildi sem heimta hárná-
kvæman og skipulagðan takta-
fjölda eða nótnagildi sem heimta
hárnákvæma meðferð ef toppur-
inn á að nást. Hinn virðist í fjótu
bragði brjóta upp formið, helga
sig eins konar „mystik", sem
hann neitar þó sjálfur að fyrir-
finnast í verkum sínum. Nýtt
hryn verður til, gömlu gildin öll
verða að víkja. En það skyldi þó
ekki vera að einmitt hrynið sé
þessum höfundum sameiginlegt,
að nákvæm meðferð á innra
hryni í verkum beggja höfunda
sé leyndarrómurinn að kjarnan-
um. Þrátt fyrir að margt væri
mjög fallega gert í Tríói Beetho-
vens var það kannske þetta hryn-
vandamál sem mér fannst stund-
um á skorta. Sagan um
Gieseking gildir enn, þá orðinn
frægur píanisti, en varð þó að
þjálfa heyrnina mánuðum saman
til að heyra eigin ónákvæmni og
hafði hann þó einhveija örugg-
ustu heyrn sem tónlistarmanni
er gefin. Þessa ónákvæmni þótt-
ist ég verða var við, og hún verð-
ur ekki bætt með fallegum tóni
eða miklu skapi. Að skrifa um
„Kvartett um endalok tímans“
eftir Messiaen er efni í langa rit-
gerð, sem ekki gefst tóm til hér.
Sem fangi Þjóðveija í Slesvík
skrifar Messiaen þessa stórfeng-
legu predikun sína. Textann tek-
ur hann úr Opinberunarbókinni,
vers 10, 5-7, segir í efnis-
skránni, réttara væri þó 10, 1-7,
en þar byijar tilvitnunin Messia-
ens sjálfs, að því ég best veit.
Eftir „Ljósbrot helgisiða", (fyrsti
þáttur) þar sem fuglarnir vakna
og „kliðurinn rennur saman við
ym himinsins“, og eftir annan
þátt, „Söng án orða“ þar sem
engillinn tilkynnir um endalok
tímans, byijar þriðji þáttur þar
sem einleiksklarinettið lýsir sorg-
um og vonbrigðum og á hinn
bóginn söng fuglanna og þrá
mannsins eftir eilífu ljósi. Osmo
Vanská, aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, lék á klari-
nettið. Þarna fékk hver nóta sína
nákvæmu lengd, hvert cresendo
og hvert decresendo sína ná-
kvæmu meðferð, hver hending
yfirveguð og yfir þessu nær því
óhugnanleg ró. Þetta var Messia-
en. Nr. 4, Intermezzo, eins konar
dans, eða ballett, ágætlega flutt-
ur í 5. þætti syngur sellóið lof-
söng sinn til eilífs Jesús. Þennan
söng söng Gunnar Kvaran svo
fagurlega og áhrifamikið á selló-
ið sitt að mér fannst sem látnir
væru ekki fjarri. Verður þetta
eftirminnilegur flutningur. Sjötti
þáttur verksins er ryðmaæfing,
þar sem hvergi má skeika. Þegar
Messiaen, í fangavistinni, fékk
að sjá og fylgjast með norðurjós-
unum hafði það sterk áhrif á
hann sem hann nýtir í gegnum
verkið. í sjöunda þætti lýsir hann
með hægum og löngum boga-
strokum hreyfingum norðurljós-
anna, þar sem hann lætur engil-
inn tilkynna lok tímans. í áttunda
og síðasta þætti lofsyngur fiðlan
upprisu og ódauðleika Jesú og
mannanna barna og lauk Guðný
þessum óð feikn fallega. Halldór
Haraldsson var að mestu í þjón-
ustuhlutverkinu við píanóið að
þessu sinni og er ekki lítið hlut-
verk að halda öllu saman og til
haga.
Góðar íbúðir
t
gott verð
Til sölu nokkrar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í Grafarvogi.
íbúðirnar eru seldar íullbúnctr og þú getur flutt inn við crfhend-
ingu. Húsin eru tveggja hceða og allar íbúðir með sér inn-
gctngi. Verðið kemur þœgilega á óvart 6.480 þús.-6.980 þús.
íyrir íullbúna íbúð!
Allar nánari upplýsingar gefa sölumenn okkar
á skrifstofunni á Funahöíða 19 í síma 813599.
Armannsfell ht.
Funahöfða 19 • Sími 91-813599
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmoastjori .
KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL, lögqiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
í gamla góða Vesturbænum
Glæsileg efri hæð í þríbýlishúsi um 155 fm. Allt sér. Tvennar svalir.
Innb. bílsk. með geymslu 37 fm. Húsið er byggt 1967. Ræktuð lóð 543
fm með háum trjám. Skipti möguleg á 3ja-4ra herb. góðri íbúð í borg-
inni. Tilboð óskast.
Á vinsælum stað á Nesinu
Glæsileg endurnýjuð 4ra herb. sérhæð tæpir 100 fm í tvíbhúsi við
Skólabraut. Sérinng. Góður bílskúr. Skipti æskileg á stærri íbúð í
Reykjavík. Gott verð.
Á söluskrá óskast:
í smíðum helst fokhelt einbhús, raðhús eða sérhæð á höfuðborgar-
svæðinu. Traustur kaupandi.
• • •
Háaleitisbraut - nágrenni.
2ja-3ja herb. íbúft óskast.
Opið á laugardaginn.
AtMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370