Morgunblaðið - 12.01.1994, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1994
Langlífi Jónasar
MIKIÐ er skrifað um Jónas Hall-
grímsson, svo mikið að nálgast
býsn. Þetta tengist eflaust fræði-
legri heildarútgáfu verka hans
fyrir nokkrum árum (geta má
þess að önnur kom út í fyrra),
en ástæðan er líka sú að Jónas
ætlar að verða langlífastur
skálda.
í hausthefti Skírnis (ritstjórar
Vilhjálmur Árnason og Ástráður
Eysteinsson) er ritgerð eftir Svövu
Jakobsdóttur sem nefnist Paradísar
missir Jónasar Hallgrímssonar. Rit-
gerðin fjallar einkum um Grasaferð
og þær ályktanir sem draga má af
henni.
Túlkun Svövu sannar hve marg-
brotna sýn tiltölulega einföld saga
getur gefið. Þótt rækilega sé farið
í saumana á sögunni má ímynda
sér ótal fleiri leiðir til að nálgast
hana.
Fróðlegur er samanburður við
Paradísar missi Miltons í þýðingu
Jóns Þorlákssonar. Líkur eru leidd-
ar að allegórískum þáttum sögunn-
ar og algyðistrú víkur að nokkru
fyrir kristnum hugmyndum. Úti-
legumaður sögunnar verður dæmi
um brottvikningu úr Paradís, feg-
urð og friðsæld náttúrunnar, en
ekki hinn dæmigerði íslenski útlagi
eins og hann birtist í þjóðsögum.
Hjartavörðurinn
í nýrri bók sinni, Um Jónas, hafn-
ar Matthías Johannessen kenning-
um um algyðistrú Jónasar Hall-
grímssonar og leggur áherslu á
kristni skáldsins. I því Ijósi skoðar
hann eitt eftirminnilegasta kvæði
Jónasar, Alsnjóa, kvæði sem færir
Jónas beint inn í samtímann, í senn
ljóðlistarlega og tilvistarlega um-
ræðu.
Hjartavörður kvæðisins er Krist-
ur samkvæmt rökstuðningi Matthí-
asar. Þar með er fundin ný túlkun-
arleið kvæðisins án þess að dulúð
þess glatist.
Fleiri dæmi endurskoðunar og
endurmats eru í Um Jónas.
Á Bragabekk
Um Grím Thomsen og raunsæið
nefnist grein eftir Andrés Björnsson
í Andvara 1993 (ritstjóri Gunnar
Stefánsson). Meðal þess sem Andr-
és víkur að eru orð Þorsteins Erl-
ingssonar um Grím látinn að engin
þörf sé að „skrifa neina leiðbeiningu
fyrir þjóðina til að skilja skáldskap
Kynningarfundur
DALE
CARNEGIE®
Þjálfun
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69
Námskeiðið
Konráð Adolphsson
D.C. kennari
H1 Ey/corhæfni og árangur einstaklingsins
-■ Byggir upp leiðtogahæfnina
-■ Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn
-■ Skapar sjálfstraust og þor
■ Árangursríkari t j á n i n g
-■ Beislar streitu og óþarfa áhyggjur
-■ EykureIdmóðinn og gerir þig hæfari í
daglegu lífi
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
LM:
O
STJORNUNARSKOLINN
Konráó Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Cárnegie® námskeiðin.
Jónas Hallgrímsson í augum Ein-
ars Jónssonar.
hans eða meta hann, það hafi hún
þegar gert, hann fái ekki meira lof
dauður en lifandi, flest gullkorn
hans sé búið að grafa upp og sýna
á honum allar hliðar".
Andrési Björnssyni þykir fullyrð-
ing Þorsteins undarleg og bætir
við: „Ekki lítur svo út frá nútíman-
um séð. Grími sýnist hafa gengið
treglega að koma sér fyrir á Braga-
bekk, og kvæði hahs eru ekki ræki-
lega könnuð enn í dag.“
Grímur vildi kenna mönnum að
forðast ofhól og oflast yfirleitt, en
einkum í eftirmælum. Viðvaranir
hans eru enn í fullu gildi.
Það er vissulega góðs viti að
Jónas Hallgrímsson skuli njóta jafn
mikillar athygli og aðdáunar og
raun ber vitni. En hvernig væri að
hvíla Jónas, að minnsta kosti um
skeið, og snúa sér til dæmis að
Grími Thomsen.
Jóhann Hjálmarsson
»ií
STANDEX
Almnréttingar
Hönnum og smíðum eftir
þínum hugmyndum
t.d. skápa, afgreiðsluborð,
skilti, auglýsingastanda,
sýningarklefa o.mfl.
OIjíIÍlCO í
Faxafeni 12. Sími 38 000
Monteverdi
_________Tónlist_____________
Jón Asgeirsson
Það eru margar ástæður fyrir
því að tónverk eftir höfunda, sem
voru uppi á 15., 16. og fyrri hluta
17. aldar, féllu í gleymsku, jafn-
vel tónverk sem nutu frægðar í
tónlistarsögubókum, voru ekki
leikin og það var fyrst fyrir
nokkrum áratugum, er áhugi
vaknaði fyrir endursmíði á göml-
um hljóðfærum, að farið var að
flytja þessi gleymdu listaverk.
Mörg af þeim hljóðfærum, sem
Monteverdi samdi fyrir, voru orð-
in „úrelt“ á síðari hluta 17. aldar.
Ný leik- og söngtækni, nýjar
gerðir hljóðfæra og miklar breyt-
ingar á sviði tónsmíði, gerði
gamla tónlist „ónothæfa" og um
1750, þegar sinfóníuhljómsveitin
er stöðluð, hafði það m.a. þau
áhrif, að ekki þótti tilhlýðilegt
að leika verk eftir barokkhöfunda
eins og t.d. Bach. Það var ekki
fyrr en Mendelssohn braut ísinn
með uppfærslu Masttheusarpass-
íunnar 1829, að tekið var að
endurvekja gamla tónlist, sem
þó gekk ótrúlega seint framan
af og voru t.d. einleikssónötur
Bachs fyrir selló, fyrst flutta af
Casals á opinberum tónleikum
árið 1931.
Nú standa málin þannig, að
ófullnægja sú sem nútíma tónlist
hefur skapað hjá hinum almenna
hlustanda, fær svölun í mjög
gamalli tónlist og má segja, að
leitin að frumleikanum hafi þar
með umturnast í fortíðarþrá.
Stríð og friður var yfirskrift
tónleika, sem fóru fram í Foss-
vogskirkju sl. laugardag, en þar
var fluttir nokkrir madrigalar
eftir Monteverdi, undir stjórn
Gunnsteins Ólafssonar. Tónverk-
in voru Tempo la cetra og La-
mento d’Arianna, sem Rannveig
Sif Sigurðardóttir söng af þokka
og þó nokkurri tilfinningu fyrir
sérstæðum stíl þessa tímabils.
Fimmradda kammerkór, undir
stjórn Gunnsteins, söng sjö madr-
igala og þó margt væri fallega
gert, vantaði nokkuð á öryggi
og tilfinninguna fyrir stíl.
Aðalverk tónleikanna var
Combattimento di Tancredi et
Clorinda (brot úr kvæðabálki éft-
ir Tasso), sem markaði tímamót
í leikrænni túlkun og notkun
strengjahljóðfæra, þar sem
Monteverdi kemur fram með leik-
tækninýjungar eins og „pizicato“
og „tremolo". Meginþungi verks-
ins hvílir á sögumanni en hlut-
verk hans söng Michael Jón
Clarke af glæsibrag. Einar
Clausen, efnilegur tenór, og Þór-
unn Guðmundsdóttir sungu
ágætlega bardagahetjurnar, sem
áttu aðeins smá innskotssetning-
ar hér og þar í verkinu.
Tónleikunum lauk með tveim-
ur madrigölum, fyrir sex og átta
raddir, glæsileg tónverk sem voru
um margt vel fluttir. Flutningur
ungu tónlistarmannanna, undir
stjórn Gunnsteins, er virðingar-
verður og fór hið besta fram, þó
nokkuð vantaði á að hinn sér-
stæði stíll verkanna kæmi nægi-
lega vel fram, sem er ekki að
furða, því slíkt er ekki á færi
annarra en þeirra sem sérstak-
lega hafa kynnt sér og æft þessa
tónlisLum langan tíma. I tónlist
Monteverdis er margt að finna,
sem er meira og minna óljóst og
ólíkt því, sem tíðkast nú til dags.
Hvað sem þessu líður geta þessir
tónleikar verið upphafið á frekari
flutningi verka eftir Monteverdi
og er það vel, því tónlist hans
er mögnuð list, gædd galdri hins
eilífa og óskilgreinanlega.
Nýjar bækur
■ Út er komin bókin Réttindi
og skyldur á vinnumarkaði eftir
Láru V. Júlíusdóttur. Bókin fjall-
ar um þær reglur sem gilda í sam-
skiptum starfsmanna og atvinnu-
rekanda, um ráðningu til starfa,
skyldur atvinnurekanda og starfs-
manna, orlof, aukahelgidaga, líf-
eyrissjóði og tryggingar, sjúkdóma
og slys, fæðingarorlof, atvinnu-
leysisbætur, breytingar á ráðning-
arkjörum, uppsagnir, brottrekstur
úr starfi og reglur sem tengjast
gjaldþrotum fyrirtækja svo nokk-
uð sé nefnt. Hún skiptist í þrjá
hluta, upphaf ráðningar, réttindi
og skyldur starfsmanna og lok
ráðningar.
„Réttindi og
skyldur á
vinnumarkaði
nýtist öllum
þeim sem fást
við að túlka lög
og kjarasamn-
inga á vinnu-
markaði, lög-
fræðingum,
starfsmanna-
Júlíusdóttir. haldi fyrir.
tælga og
launafólki,“ segir í kynningu
útgefanda.
Útgefandi er Alþýðusamband
íslands. Bókin er 280 bls. og
innbundin. Menningar- og
fræðslusamband alþýðu sér um
dreifingu. Verð til félagsmanna
ASÍ er kr. 1.200.
Lára V.