Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
Upptaka ríkissjóðs á
eignum sjávarútvegsins
eftir Steingrím J.
Sigfússon
Fyrir Alþingi liggur nú stjórnar-
frumvarp um að leggja niður Verð-
jöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Um
það getur mönnum sýnst sitt hveij-
um og verður ekki frekar rætt hér
heldur sú ráðstöfun eigna sjóðsins,
þ.e. innistæðna sem þar standa
eftir frá fyrri tíð, sem frumvarpið
gerir ráð fyrir. Það er einfaldlega
ætlun ríkisstjómarinnar að hirða í
ríkissjóð þær u.þ.b. 200 milljónir
króna sem standa eftir í Verðjöfn-
unarsjóði. Þessar innistæður hafa
að sjálfsögðu myndast með iðgjal-
dagreiðslum sjávarútvegsfyrir-
tækja og eru því eign greinarinnar
sem slíkrar. Sá skollaleikur að
merkja ráðstöfun þessa fjár rekstr-
arkostnaði Hafrannsóknarstofnun-
ar, sem greiddur hefur verið úr
ríkissjóði, er gamalkunnur eða hef-
ur farsinn með sölu veiðiheimilda
hagræðingarsjóðs ekkert kennt
mönnum.
Óþarft er að taka fram að ekki
stendur til að auka hafrannsóknir
á nokkurn hátt með tilkomu þess-
ara peninga heldur einfaldlega
draga úr framlögum ríkisins að
sama skapi.
í umræðum á Alþingi þann 15.
desember sl. um frumvarp sjávar-
útvegsráðherra um Verðjöfnunar-
sjóð sjávarútvegsins gerði ég þetta
mál að umræðuefni og sagði þá
m.a.:
„Hæstv. forseti. Svo vil ég segja
nokkur orð um áformaða ráðstöfun
eigna sem eru inn í sjóðnum. Það
tel ég mikið metnaðarleysi, svo
ekki sé meira sagt, að ætla að
leggja það til að gera þessar eign-
ir, nánast eins og þær leggja sig,
upptækar — í hvað? í rekstur Ha-
frannsóknarstofnunar. í rekstur
sem ríkissjóður hefur fram að
þessu kostað sjálfur. Ég segi alveg
eins og er að ég trúi því ekki fyrr
en ég tek á því að hagsmunaaðilar
í sjávarútvegi séu sáttir við þessa
ráðstöfun á eignum, á sjóði, sem
greinin hefur sjálf staðið undir.
Af hveiju gera ekki hinir eiginlegu
eignaraðilar þessa verðmæta, sjáv-
arútvegurinn, kröfur um að þau
fari til uppbyggingar og til nýrra
verkefna, til viðbótarverkefna
a.m.k. í hafrannsóknum, en ekki
bara beint í daglegan rekstur batt-
erísins og gufi þannig upp. Mér
finnst það metnaðarleysi, ég segi
alveg eins og er. Mér finnst það
algjört metnaðarleysi og ég tel að
það yrði erfitt að standa gegn kröf-
um af hálfu hinna eiginlegu eig-
enda þessara innstæðna, sem er
sjávarútvegurinn, um að þær
rynnu til slíkra verkefna og ég hef
tillögu i því efni.“
Ráðstöfun eigna
Verðjöfnunarsjóðs
Tillaga mín um ráðstöfun inni-
stæðna Verðjöfnunarsjóðs, að
slepptu því sem tekið yrði af inni-
stæðu rækju- og hörpudisksdeildar
til markaðsátaks í þágu þeirra
greina er eftirfarandi eins og fram
kom_ í umræðunni.
„Ég legg til að þessi sjóður
gangi í byggingasjóð skipa hjá
Hafrannsóknastofnun. Fyrir því
eru þau rök að þar er framundan
mikið átak sem þarf að ráðast í,
að endumýja skipakost Hafrann-
sóknastofnunar. Það verkefni mun
vefjast verulega fyrir mönnum,
nema stofnunin fái tekjur af því
tagi sem hér væru til ráðstöfunar.
Það liggur alveg fyrir að Hafrann-
sóknarstofnun er í raun vanmegn-
ug þess að sinna hafrannsóknum
á þeim svæðum umhverfis landið
sem mest er þörfin eða margir
telja að mest sé þörfin nú um
stundir, á djúpmiðunum, vegna
þess að gömlu hafrannsóknaskipin
hafa ekki toggetu og búnað til
þess að stunda þar rannsóknir. Það
hefur staðið til að fara í mikla leið-
angra á djúpmiðin og kanna þar
vannýttar tegundir og ókannaðar
togslóðir, en það hefur strandað á
því að Hafrannsóknastofnunin
sjálf hefur ekki skipakost til þess
og leiga á stórum og öflugum tog-
skipum sem ráða við aðstæður er
svo dýr að hún er ofvaxin greiðslu-
getu stofnunarinnar. Það er upp-
lýst að það kosti um 1,5 millj. kr.
á dag að leigja stóran frystitogara
sem ræður við aðstæður á 700-
1.000 m dýpi eða hvað það nú er,
hefur togkraft og útbúnað til þess
að gera þar rannsóknir.
Þess vegna hlýtur að koma til
álita og á mínu mati að undirbúa
að stofnuninni verði gert kleift að
bæta úr þessu ástandi með því að
auka eða endurnýja skipakost sinn
að þessu leyti. Þarna er tækifæri
til þess að auðvelda það með því
að ráðstafa þessum fjármunum til
uppbyggingar af því tagi. Það
munu vera þar einhveijir peningar
í sjóði frá því að hafrannsóknar-
skipið Hafþór var selt og þá mundu
þessir ijármunir koma þar til við-
bótar.
Ef menn kyngja þessari ráðstöf-
un, þessari upptöku á eignum
Verðjöfnunarsjóðs í rekstrarhít
ríkissjóðs, því það er auðvitað ekki
verið að gera neitt annað en að
gera þessa eign upptæka í ríkissjóð
sem heur fjármagnað Hafrann-
sóknarstofnun, þannig að það má
nákvæmlega eins flytja um það
tillögu að þetta renni í ríkissjóð
„Þessi sjóður gangi í
byggingasjóð skipa hjá
Hafrannsóknastofnun.“
eins og að vera að þeim skollaleik
að merkja þetta Hafrannsókn, þá
verða menn algjörlega af þessum
möguleikum.
Þá er það auðvitað ekki annað
en skattlagning á sjávarútveginn
sem hefur borgað í formi iðgjalda
inn í sjóðinn, lagt til þessa fjár-
muni. Það er ekkert' annað en enn
einar álögurnar á greinina.
Þetta vona ég að verði tekið til
rækilegrar skoðunar í hv. sjáútvn.
Það vill svo til að þegar sjáútvn.
fór yfir tekjuhlið fjárlagafrv. þá
fjallaði hún ítarlega um stöðu haf-
rannsóknanna og reyndar kemur
það sérstaklega fram í umsögn
sjútvn. til fjárln. að sjútvn. hafi
haft áhyggjur af þessum lið.“
Svo mörg voru þau orð og nú
hefur Arnar Sigurmundsson, for-
maður samtaka fiskvinnslustöðva,
riðið á vaðið og gert þessa upptöku
að umtalsefni í áramótablaði Morg-
unblaðsins. Ég hvet fleiri forsvars-
menn sjávarútvegsins til að beita
sér í þessu máli.
Höfundur er varaformaður
Alþýðubandalagsins og á sæti í
sjá varútvegsnefnd.
NYROG
BREYTTUR
IMYTT UTLIT.
Framhlutinn hefur veriö
endurhannaöur meö nýju
grilli og svuntu. Vindskeiö
er staöalbúnaöur á 3ja dyra
Sunny. Nýir hjólkoppar.
IMÝ IIMIMRÉTTIIMG.
Nýtt áklæöi er komiö á sæti
og er breytt, þannig að sætin
aölagast líkamanum en betun.
Mjóhryggsstuöningur en stillanl.
Nýtt og þægilegra stýrishjól og
mælum hefur einnig verið breytt,
einnig hefur útihitamælir bæst viö.
NISSAN SUNNY 3JA DYRA
HL/vÐBAKUR VERÐ 1.007.000 KR.
FJÖLIIMIMSPRAUTUIM:
Nú er 160Q cc vélin
búin fjölinnsprautun
og 16 ventlum, sem
eykur aflið upp í
102 hestöfl.
IMISSAIM
BILASYNIIMG
LAUGARD. /SUNNUD. KL. 14-17
Ingvar
ig
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
sfma 91-674000