Morgunblaðið - 12.01.1994, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1994
Skipting skatttekna árið 1994
*
Utsvarsprósenta
verður 9% á árinu
Sorphreinsigjald lagt á í fyrsta sinn
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
samþykkti á fundi í gær
skiptingu skatttekna á árinu
1994.
Útsvarsprósenta í staðgreiðslu
opinberra gjalda verður á árinu
9% af útsvarsstofni og álagningar-
prósenta fasteignaskatts af at-
vinnuhúsnæði verður 1,4%, sem
er fullnýting þess skatts.
Fráveitugjald verður 0,18% af
álagningarstofni og þá verður nýtt
heimild til innheimtu sérstaks fast-
eignaskatts, 1,25% á álagningar-
stofn verslunar- og skrifstofuhús-
næðis.
Loks var samþykkt að legga á
sorphreinsigjald á íbúðarhúsnæði,
1.000 krónur á hveija íbúð. Þetta
er í fyrsta sinn sem slíkt gjald er
innheimt á Akureyri, en Akur-
eyrarbær hefur verið einn fárra
bæja á landinu sem ekki hefur
lagt á sérstakt sorphreinsigjald
fram til þessa.
Félag áhugamanna um heimspeki
Málstofufyrirlest-
ur Páls Skúlasonar
PÁLL Skúlason flytur mál-
stofufyrirlestur í Deiglunni,
sal Gilfélagsins í Grófargili,
föstudagskvöldið 14. janúar
kl. 20.30. og hefst þar með
vetrarstarf Félags áhuga-
manna um heimspeki á Akur-
eyri.
Fyrirlesturinn heitir: Hvemig
verður mannheimur til? og í honum
verður íjallað um reynslu okkar
af veröldinni og leitast við að skýra
hvernig hugsun, trú og tjáning
skapa forsendur mannlífs og
menningar. Innangengt verður á
Kaffi Karólínu þar sem fjölbreytt-
ar veitingar verða falar, bæði í
hléi og að fyrirlestri loknum.
Síðar í vetur verður málstofa í
Deiglunni um atvinnu og atvinnu-
leysi í umsjón Jóns Bjömssonar
og Þrastar Ásmundssonar. Þórg-
nýr Dýrfjörð heimspekingur mun
kenna á námskeiði sem hann kall-
ar „Afturgöngunámskeið" en heit-
ið sækir hann til Henriks Ibsens.
Fjallað verður um siðfræðikenn-
ingar, einkum skyldukenningar og
nytjastefnu, og eru dæmin m.a.
sótt í verk Ibsens. Þá munu Guð-
mundur Andri Thorsson og Gísli
Sigurðsson halda málstofu um
bókmenntir frá sjónarhóli þess
sem skrifar þær annars vegar og
þess sem les þær. Málstofuna kalla
þeir „Ábyrgð höfunda og lesenda“.
(Fréttatilkynning.)
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Rafmagnsveitustjórar
INGÓLFUR Árnason sem verið hefur rafmagnsveitustjóri Raf-
magnsveitna ríkisins á Akureyri í hartnær fjóra tugi ári lét af
störfum um síðustu áramót. Við starfi hans tók Tryggvi Þór Har-
aldsson. Starfsfólkið kvaddi Ingólf í samsæti í húsakynnum Raf-
magnsveitna ríkisins við Óseyri fyrir helgi og voru honum færðar
þakkir fyrir farsælt starf. Á myndinni eru þeir Tryggvi Þór og
Ingólfur.
Miðstöð fólks í at-
vinnuleit
Nýtt átaks-
verkefni til
umræðu
OPIÐ hús verður í Miðstöð fólks
í atvinnuleit í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju í dag, miðviku-
dag. Gestir á samverustundinni
sem hefst kl. 15 verða Heimir
Ingimarsson, formaður atvinnu-
málanefndar Akureyrarbæjar, og
Bjarni Guðleifsson ráðunautur.
Stjórn Atvinnuleysistryggingar-
sjóðs hefur samþykkt að veita Akur-
eyrarbæ styrk til að ráða 120 manns
í vinnu í tvo mánuði og er nú verið
að leita að verkefnum til að nýta
þennan möguleika, en augljós vand-
kvæði fylgja árstímanum og tíðarf-
arinu. Heimir mun ræða atvinnu-
málin almennt og þau átaksverkefni
sem framundan eru og svara fyrir-
spurnum.
Bjami Guðleifsson ráðunautur
mun taka á ýmsum málum en hann
er kunnur fyrir að slá á létta strengi.
Veitingar verða á borðum á þess-
ari samverustund eins og áður og
ýmsar upplýsingar liggja frammi,
en einnig eru upplýsingar gefnar í
síma milli kl. 15 og 17 á þriðjudög-
um og föstudögum.
Ágreiningur milli Akureyrarbæjar og Vátryggingafélags íslands um verktryggingu
Bærínn telur sig eiga 12 millj.
inni hjá tryggingafélaginu
Verið að skaða hagsmuni bæjarsjóðs, segir formaður bæjarráðs
ÁGREININGUR um greiðsluskyldu og fjárhæð vegna verktrygginga Bréfið finnst ekki
vegna Helgamagrastrætis 53 milli Akureyrarbæjar og Vátrygginga-
félags íslands var til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
í gær. Tryggingafélagið hafði óskað eftir að ágreiningurinn yrði
lagður fyrir gerðardóm, en bæjarráð taldi sig ekki geta orðið við
þeirri beiðni. Verktakafyrirtækið Híbýli var að byggja fjölbýlishúsið
við Helgamagrastræti þegar það var gjaldþrota árið 1989 og hefur
bærinn reynt að fá greidda út verktryggingu sem Híbýli keypti en
kaupandi flestra ibúðanna var Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar.
Sigríður Stefánsdóttir formaður
bæjarráðs sagði það ekki umdeil-
anlegt að Akureyrarbær hefði orðið
fyrir tjóni af völdum gjaldþrots Hí-
býlis og því hefði verið farið fram á
það við Vátiyggingafélag íslands
sem fyrirtækið keypti af verktrygg-
ingu á sínum tíma að fá þ'á trygg-
ingu greidda út. Akureyrarbær teldi
sig eiga að minnsta kosti 12 milljón-
ir króna inni hjá félaginu, en trygg-
ingafélagið hefur vefengt rétt bæjar-
ins til að fá trygginguna greidda út.
Á fundi Sigríðar og Halldórs Jóns-
sonar bæjarstjóra með fulltrúum
VÍS var lagt fram bréf frá 11. októ-
ber 1989, degi áður en Híbýli var
lýst gjaldþrota, þar sem fram kom
að forsvarsmenn Híbýlis fóru fram
á að félagið yrði leyst undan verk-
framkvæmdum samkvæmt verk-
samningi, en formanni bæjarráðs og
bæjarstjóra var ekki kunnugt um
tilvist þessa bréfs. Þetta bréf hefur
hvergi fundist í skjalaskápum Akur-
eyrarbæjar að sögn Signðar.
Fyrir liggur álit fyrrverandi bæj-
arstjóra og bæjarlögmanns á Akur-
eyri. Bæjarlögmaður telur að ekki
hafí verið ætlun bæjarsjóðs Akur-
eyrar að falla frá kröfum í verk-
tryggingar vegna hugsanlegra
galla á verkum sem unnin hefðu
verið og í fyrrverandi bæjarstjóri
telur að umrætt bréf hafi verið rit-
að í tilefni af gjaldþroti Híbýlis hf.
Sigríður sagði að um alvarlegt
mál væri að ræða og verið væri að
skaða hagsmuni bæjarsjóðs. Hún
sagði að málið myndi nú hafa sinn
eðlilega gang fyrir dómstólum.
Lausar stöður við Háskólann á Akureyri
Til sölu
úr þrotabúi Járntækni hf.
M.a. plötusax, kantpressa, fjölklippur, raf-
suðuvélar (kolsýru, tic og transar), renni-
bekkir, fræsivél, plasmaskurðarvélar,
plötuvals, pressa, loftpressur, lofthreinsi-
búnaður, vinnupallar, gámar 20 og 40 feta,
ýmis önnur tæki og áhöld. Ennfremur hand-
verkfæri og skrifstofuáhöld.
Upplýsingar veitir:
Ágúst Karl Gunnarsson,
Draupnisgötu 3, Akureyri,
símar 96-12121 og 96-12122, fax 96-12123.
Óiafur Birgir Árnason, hrl.,
skiptastjóri.
Þijár umsóknir um
stöðu háskólarektors
ÞRJÁR umsóknir bárust um
stöðu rektors Háskólans á Akur-
eyri, en umsóknarfrestur rann
út á mánudag. Þá rann einnig
út frestur til að sækja um tvær
stöður forstöðumanna deilda við
skólann og barst ein umsókn um
hvora stöðu.
Þeir sem sækja um stöðu rektors
eru Fanney Kristmundsdóttir PhD,
lektor í líffærafræði við Háskólann
í Edinborg í Skotlandi, Haraldur
Bessason, núverandi rektor Háskól-
ans á Akureyri, og Þorsteinn Gunn-
arsson, vísinda- og menntamálafull-
trúi við sendiráð Islands í Brussel,
en hann er með PhD-gráðu á sviði
uppeldis- og menntamála.
Að sögn Stefáns Stefánssonar,
deildarstjóra í menntamálaráðu-
neytinu, verða umsóknir sendar
háskólanefnd Háskólans á Akureyri
sem skipa mun þriggja manna dóm-
nefnd sem síðan mun skila nefnd-
inni áliti sínu. Menntamálaráðherra
ræður rektor að fenginni tillögu frá
Háskólanefnd. Skipunartími núver-
andi rektors rennur út 31. maí
næstkomandi.
Þorsteinn sækir um
rekstrardeild
Einnig voru auglýstar til um-
sóknar stöður forstöðumanna við
rekstrardeild og heilbrigðisdeild við
Háskólann á Akureyri og rann
umsóknarfrestur út á mánudag.
Um stöðu forstöðumanns heilbrigð-
isdeildar sótti Sigríður Halldórs-
dóttir, núverandi forstöðumaður
deildarinnar, en hún hefur gegnt
stöðunni síðastliðin þijú ár. Þor-
steinn Sigurðsson vélaverkfræðing-
ur sótti um stöðu forstöðumanns
rekstrardeildar, en hann hefur síð-
asta ár verið staðgengill núverandi
forstöðumanns deildarinnar, Stef-
áns G. Jónssonar, sem verið hefur
í rannsóknarleyfi. Samkvæmt lög-
um um Háskólann á Akureyri ber
að auglýsa stöður forstöðumanna
deilda á þriggja ára fresti.
Ólafur Búi Gunnlaugsson, skrif-
stofustjóri Háskólans á Akureyri,
sagði að þessar tvær umsóknir
hefðu borist, en ekki væri útilokað
að fleiri væru á leiðinni í pósti.