Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 30

Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 Af misheppnuðu ástarlífi stóðhests Stöðugt færist í vöxt, að hryssum sé haldið á húsi, en þá er mikil- vægt að eigandi hryssunnar fylgist með gangferli hryssunnar. ^^Vaskhugi íslenskt bókahaldsforrit! Fjárhags-, sölu-, launa-, birgða-, viðskiptamannakerfi og margt fleira er í Vaskhuga. Einfalt og öruggt í notkun. Vaskhugi hf. Sími 682 680 ÖRYGGIS OG GÆSLUKERFI FRÁ ELBEX SPARIÐ TÍMA FÉ OG FYRIRHÖFN og skapið öruggari vinnu og rekstur með ELBEX sjónvarpskerfi. Svart hvítt eða í lit, úti og inni kerfi. Engin lausn er of flókin fyrir ELBEX. Kynnið ykkur möguieikana. Einar Farestveit & co hf. Borgartúni 28, sími 91-622900 Hestar Valdimar Kristinsson I síðasta þætti var fjallað um tískusveiflur í hrossaræktinni sem veldur hrossaræktarsamböndum og öðrum stóðhestaeigendum oft erfiðleikum í kaupum og sölum á kynbótagripum. En það er ýmis- legt annað sem vert er að huga að þegar fjallað er um hrossarækt í víðu samhengi. Til dæmis má leiða hugann að því hvort ekki sé tímabært að semja vinnureglur sem segja til um hvernig skuli standa að málum þegar hryssur fyljast ekki hjá stóðhestum. í seinni tíð hefur borið nokkuð á því að ýmsir stóðhestar hafi skilað fáum folöldum og margir hryssu- eigendur setið eftir með sárt ennið, greitt folatollinn en ekkert fengið í staðinn. Eru dæmi um að fyljunar- prósenta einstakra stóðhesta hafi farið allt niður í tíu prósent sem er að sjálfsögðu með öllu óviðun- andi. Hafa ýmsir hestar verið út- hrópaðir vegna þessa. Nú hefur komið í ljós að gæði sæðisins í hest- unum eru mjög mismunandi' frá einum tíma til annars, en svo virð- ist að oftast sé um tímabundið ástand að ræða hjá hveijum hesti. Vaknað hafa upp spurningar hvort ekki sé eðlileg krafa að könnuð séu gæði sæðis hjá vinsælum og dýrum stóðhestum í upphafi hvers tíma- bils. Vissulega væri best að vita um ástandið í upphafi hvers gangmáls, en á því eru annmarkar sem útiloka það. Þegar fyljunarprósenta er talin léleg hjá einstökum hestum koma fram kröfur hryssueigenda um að fá að leiða hryssur sínar á nýjan leik undir viðkomandi hest að ári eða endurgreiðslu tollsins. En ekki er öll sagan sögð því fyljunarpró- senta hefur yfirleitt verið reiknuð út frá fæddum folöldum að ári liðnu sem er engan veginn rökrétt. Sam- kvæmt erlendum rannsóknum láta frá 15 og upp í 30% hryssanna fóstri og þar á stóðhesturinn að sjáifsögðu enga sök að máli. Þá er það alltaf spurning, hvort hryssur sem ekki fyljast hafi verið í lagi þegar þær fóru til stóðhests. Af þessu má sjá að stóðhestarnir eru ekki einu söku- dólgamir þegar færri folöld fæðast en búist hafði verið við. Góð meðferð mikilvæg Heilbrigði og hreysti stóðhest- anna skiptir verulega miklu máli og að sjálfsögðu er það skylda hvers eiganda að hugsa sem best um sinn eðla grip. Meðferð stóðhesta hefur reyndar verið kapítuli út af fyrir sig á liðnum árum. Hefur hún oft og tíðum verið með þeim ósköpum að undrun og hneykslun sætir. Eru til margar ljótar sögur um slæma meðferð þeirra eftir að hlutverki þeirra lýkur síðsumars. Hafa sumir þeirra hreinlega gleymst í skjól- og graslitlum girðingum og jafnvel leg- ið við horfelli þegar þeir hafa loks- ins verið teknir úr girðingunum síðla hausts eða í byijun vetrar. Þarna hafa átt hlut að máli verð- mætir gripir, jafnvel stóðhestar með 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Vonandi er að meðferð í þessum dúr heyri fortíðinni til. Mikilvægt er að stóð- hestarnir séu skynsamlega fóðraðir og hryssufjöldi sé jafnvel ákveðinn í samráði við dýralækni. Það er tvímælalaust réttmæt krafa hryssu- eigenda að nýting hestanna sé inn- an skynsemismarka. Þá er mikið atriði að forða hestunum frá streitu því hún kemur niður á afkastagetu þeirra. Til gamans má geta stóð- hestsins Svips frá Akureyri sem var í eigu Haralds Þórarinssonar skóla- stjóra á Laugalandi, en meðferð hans og umönnun á hestinum var til mikillar fyrirmyndar. Haraldi var að sögn svo annt um hest sinn að þegar hann var Ieigður til fjarlæg- ari staða fylgdi hann hestinum og fylgdist grannt með framgangi mála. Skráði hann hjá sér fyljunar- daga og ef svo færi að hesturinn vildi ekki einstakar hryssur var að sjálfsögðu ekki greiddur folatollur. Breytt viðhorf með nýrri tækni Með tilkomu sónartækninnar hafa möguleikar og viðhorfin í þess- um rnálum breyst verulega. Telja má eðlilegt allra hluta vegna að SKÓVERSLUN, BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 677267 Tími hinna þurru hófa genginn í garð NÚ hafa flestir hestamenn tekið hross sín á hús, búið að járna, hrossin búin að jafna sig á fóður- breytingum og útreiðar hafnar af fullum krafti. En nú gengur einn- ig í garð sá tími sem fer að bera á ofþornun í framhófum sem getur haft afdrifaríkar afleiðingar sé ekkert að gert. Þeir sem járna hrossin verða varir við þennan ofþurrk en í mörg- um tilvikum gera hestamenn sér ekki grein fyrir vandamálinu fyrr en í óefni er komið. Þegar hrossin eru járnuð standa þau um átta til tíu millimetrum hærra en fyrir járningu og eru því ekki í eins náinni snertingu við rakann í bás- unum. Þá fá hross sem höfð eru á básum afar litla hreyfingu sem þýðir að blóðstreymi minnkar til hófsins og þar með eykst hætta á ofþornun. Til að gera sér grein fyrir réttu eða röngu rakastigi hófsins er gott að lyfta fótum öðru hveiju og athuga málið. Sé hóf- tungan mjúk og fjaðrandi eins og gúmmí er allt í góðu lagi en sé hún hörð er ofþornun komin af stað og því harðari sem hún er því meiri hætta á að hófurinn springi að aftanverðu. Sér i lagi á þetta við þegar þurrkviðrasamt er og hart undir fót eins og nú er á Suður- og Vesturlandi og ef til vill víðar. Mikii hætta á hófsprung- um getur skapast undir þessum kringumstæðum, sér í lagi ef hratt er riðið. Mikii hreyfing er í aftan- verðum hófnum og því getur reynst erfitt að fá sprungur þar til að gróa og dæmi eru til um að orðið hafi að fella hesta sem hafa orðið fyrir slíku. Þegar kemur að því að járna þessa þurru hófa lenda menn oft í vandræðum, bæði hófhnífar og hófjárn bíta illa á hófana og jafnvel getur reynst erfitt að klippa þá með hófklippum. Eggin á þess- um tólum slævist fljótt og tálgun eða klipping verður oft með öðrum og verri hætti en menn hafa ætlað sér. En hvað er til ráða? kann ein- hver að spyija. í Eiðfaxa fyrir um ári var bent á gott ráð til að mýkja harðan hóf á stuttum tíma þar sem segir að til þurfi svamp og plast- brúsa eða fötu. Klippt sé spöng út úr plastflöskunni eða fötunni þannig að hún nái undir brúnir skeifunnar að innanverðu, svamp- urinn er gegnvættur og settur á hófbotninn og spöngin spengd und- ir skeifnabrúnirnar þannig að hann ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ Námskeið í ættfræði hefjast í næstu viku (5-7 vikna grunnnámskeið). Kennsla, þjálfun og leiðsögn í ætt- arleit og uppsetningu á ættarskrám, með rannsókn- araðstöðu í heimildasafni um þorra íslendinga fyrr og nú. Einnig helgarnámskeið úti á landi. Eldri nem- endur geta fengið einstök rannsóknarkvöld á vægu verði og notað sér stóraukið heimildasafn. Uppl. í s. 27100 og 22275. Ættfræðiþjónustan tekur að sér að semja ættartölur o.fl. rannsóknarverkefni. VISA* JEttfræðlDifinustan, sími 27100.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.