Morgunblaðið - 12.01.1994, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Góð dómgreind stuðlar að
hagstæðum viðskiptum.
Sumir fá óvænt tilboð um
vinnu, aðrir íhuga að hefja
eigin rekstur.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (f%
Einhver ber umhyggju fyrir
þér og gefur þér góð ráð í
dag. Nú reynist þér auðvelt
að komast að samkomulagi
við aðra.
Tvíburar
(21. maí - 20. jBní) «1
Einbeiting færir þér árangur
í vinnunni. Viðræður við
kunnáttumenn geta leitt til
þess að afkoma þín fari
batnandi.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlf) H$í
Gættu þess að styggja ekki
þína nánustu með óþarfa
stjórnsemi. Sumir hefja mik-
ilvægar samningaviðræður í
dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tilætlunarsemi vinar getur
komið þér í vanda. Þú kemst
að góðu samkomulagi við
ættingja. Einbeittu þér í
vinnunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Láttu ekki draumóra villa
þér sýn og hafa áhrif á gerð-
ir þínar í dag. Þú færð mik-
inn áhuga á nýrri tóm-
stundaiðju.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Sumir eignast góða bók í
dag. Þú sinnir góðum gesti
sem kemur í heimsókn og
íhugar miklar umbætur á
heimilinu.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér berast óvæntar fréttir
símleiðis eða í pósti. List-
rænir hæfileikar njóta sín
og sumir helja tónlistamám
á næstunni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Einkaframtak þitt getur leitt
til aukinna tekna. Farðu
ekki út í öfgar við innkaup-
in. Ný tómstundaiðja heillar
þig-
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þú ræður ferðinni í dag og
þér miðar vel að settu marki,
en gættu þesss að taka einn-
ig tillit til óska annarra.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú ert hjálpfús í dag og vilt
gjaman gera öðrum greiða.
Farðu leynt með fyrirætianir
þínar þar til þær eru fullmót-
aðar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) !«£<
Þú skynjar þarfir vinar og
veitir honum þá uppörvun
sem hann þarfnast. Nú er
að hegast annatími í sam-
kvæmislífínu.
Stjömusþána á aö lesa sem
dœgraávól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
ÖVeCNTA WA/Z'
AE> MSS STN/NG/N,
v/>te æoNG!
'r/tTA HÉLTMé^ t>AE> HEF&t kTTAÐZOMA
af HVtzfnjU ffvercj
SVOHA PAPU& ?____
OVÆNTA AFM/€US[ þÉR NöTALE6A 'A 'OVAKi
V O&SLU V '---------77_______
UÓSKA
'LTÓSkrA VtLL AÐBStíOMt
/nee>s*n » alþtóðlpga
R'AOSrBFNU Ve/SLUHALD.
AKA
MÓR MTNPt LE-tOASTSVO AÞUKLMSA SV/CFt é<3 , JtLL AN ÞA CHNN BiPDU NÚ VtO! EF ÉtS SEl* ALLAN DAGtNN <S/CTt é& Alvbg ertNS vsriðhér!
1/ sn N
SMÁFÓLK
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Þórður Sigfússon var að blaða f
gömlum bridstímaritum og rakst þá
á neðangreint spil í sænska ritinu
Bridgetidningen frá 1970. Spilið er
frá EM í Estoril sama ár og það er
Eric Jannersten sem greinir frá því,
en hann var ritstjóri Bridgetidningen
á þessum árum. Þórður þýðir Jann-
ersten svo:
„Alslemmur eru skemmtilegar -
fyrir annan hvorn aðilann. Þetta spil
er úr leik íslands og Tyrklands:
Vestur
♦ 762
V K652
♦ K1085
♦ 82
Norður
♦ Á
♦ D4
♦ ÁK97432
♦ G95
Austur
♦ D10983
♦ G983
♦ G6
♦ D10
Suður
♦ KG54
♦ Á107
♦ -
♦ ÁK7643
Tyrkir eru hugaðir karlar, enda
flestir þungavigtarmenn. („Heppni að
þetta var ekki glíma,“ sagði sænski
fyrirliðinn.) Hér fóru þeir f 7 lauf,
samning sem reyndar er fyrirfram
dæmdur, þar sem vestur á trompslag
Það kom spaði út. Sagnhafi henti
strax spaða og hjarta niður í ÁK í
tígli. Fór svo heim á hjartaás og henti
hjarta úr blindum í spaðakóng og
stakk hjarta. Nú þurfti hann að kom-
ast aftur heim til að geta stungið
spaðann. Hann spilaði tígli úr borði,
en Ásmundur Pálsson var eldsnöggur
að trompa með tíunni, og það kostaði
kónginn. Nú var spaðinn stunginn
með nfunni, og loks var að taka
trompin; gosinn út, drottning og ás,
en eftir stóð átta vesturs sem hæsta
tromp!
Tyrkir eru góðir í glímu, en upp-
færsla (,,uppercut“) Ásmundar tij-
heyrir ekki þeirri íþrótt."
Að sögn Ásmundar lá Tyrkinn í
suður andvaka næstu nótt. Sem
kannski er engin furða, því hann gat
unnið samninginn með því að breyta
örlítið tfmasetningunni á spila-
mennskunni. Hann varð að byija á
því að trompa tígul í stað þess að
fara heim á hjartaás. Ef Ásmundur
stingur þá með tíunni, fást tvær inn-
komur á lauf til að fría og nota tígul-
inn.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp á PCA-
úrtökumótinu í Groningen í Hol-
landi um daginn. Vladimír Mal-
anjuk (2.590) var með hvítt en
Rússinn Aleksei Vyzmanavín
(2.610) var með svart og átti leik.
Hvítur lék síðast 42. Rf3-el.
42. - Hd2! Malanjúk þurfti ekki
að sjá meira og gafst upp. Lokin
hefðu orðið 43. Bxd2 - Hxd2, 44.
Df3 - Bd5, 45. Db3 - Hb2, 46.
Dd3 - Bxel og hvítur tapar miklu
liði.
Um helgina hefst fyrsta umferð
FIDE-áskorendakeppninnar í
Wijk aan Zee í Hollandi. Tefld eru
útsláttareinvígi og mætast inn-
byrðis Timman og Lautier, Kam-
sky og Van der Sterren, Anand
og Júsupov, Kramnik og Júdasín,
Gelfand og Adams, Salov og Khal-
ifman. Timman, Kamsky, Anand
og Kramnik verða að teljast mjög
líklegir til sigurs í sínum einvígj-
um, en erfiðara er að spá um hin
tvö. Þar má búast við sigri Adams
og Salovs.