Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Bj örgunar beðið í V öðlavík
SKIPVERJARNIR sex af Goðanum sem fórst í Vöðlavík í
fyrradag biðu í rúmar níu klukkustundir eftir björgun.
Vegna óveðurs var ekki hægt að bjargajæim af sjó eða
landi og björgun með þyrlu eina vonin. Omar Sigtryggs-
son, einn skipveijanna, segir að þeir hafi áttað sig á aðstæð-
um og allt eins átt von á að þyrlur kæmust ekki á stað-
inn. Því hafi léttirinn verið mikill þegar björgunarmenn í
fjörunni gáfu þeim merki um að þyrla væri á leiðinni með
því að líkja eftir þyrluspöðum með handleggjunum.
Myndirnar voru teknar í Vöðlavík í fyrradag. Myndin til
vinstri var tekin um klukkan 15 þegar fyrri björgunarþyrla
varnarliðsins var komin yfir slysstað og björgunarmenn að
undirbúa sig niður í skipið við erfiðar aðstæður. Tveir menn
úr þyrlunni voru látnir síga niður og fjórir sk.ipbrotsmenn
voru hífðir upp í þyrluna. Síðan kom seinni þyrlan og tók
þá tvo sem eftir voru og þegar fyrri þyrlan hafði skilað
mönnunum í fjöruna náði hún í varnarliðsmennina tvo um
borð í Goðann. Björgunin sjálf tók 40 mínútur, lauk klukkan
15.40. Þá voru liðnar rúmar níu klukkustundir frá slysinu.
Á myndinni til hægri má greina skipbrotsmennirnir á brúar-
þakinu en þar náðu þeir að binda sig við reykháfinn og fleiri
fasta hluti. Vistin á brúarþakinu var erfið, því brimskaflarn-
ir gengu stöðugt yfir þá. Eftir slysið komust þeir í flotgalla
og segir Ómar að þeir hafi bjargað miklu. Hann væri þó
ekki fyllilega ánægður með gallana því líkaminn hafi ekki
náð að hita upp vatnið í þeim og þeir því verið blautir og
kaldir allan tímann sem þeir biðu björgunar.
Jöfnunargjöld og -tollar til hjálpar skipasmíðaiðnaði
Aðgerðir komi til
framkvæmda strax
TILLÖGUR nefndar á vegum iðnaðarráðuneytisins til þess að
rétta við samkeppnisaðstöðu skipasmíðaiðnaðarins voru kynntar
í gær og er lagt til að teknar verði upp niðurgreiðslur sem nema
13%. Einnig mun Sighvatur Björgvinsson, iðnaðarráðherra, leggja
til við ríkisstjórnina að lagðir verði jöfnunartollar á nýsmíði. Er
þetta gert til að jafna út áhrif ríkisstyrkja sem tíðkast í helstu
samkeppnislöndum íslands, segir í skýrslunni. Framkvæmdastjóri
Málms, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, leggur áherslu
á að þessar aðgerðir komi strax til framkvæmda.
Sighvatur segir að aðgerðirnar
nái ekki að bjarga öllum þeim fyr-
irtækjum sem standa illa. „Þetta
eru almennar aðgerðir til að jafna
samkeppnisstöðu greinarinnar,"
segir hann. Býst hann við að að-
gerðirnar kosti stjórnvöld um
30-40 milljónir króna.
Framkvæmdir strax
Viðræður sjómanna og útgerðarmanna
Fundi slitið og
nýr ekki boðaður
„ÞAÐ tókst ekki að leiða málið til lykta eftir þeim farvegi sem
lagður var á sameiginlegum fundi deiluaðila með sjávarútvegsráð-
herra á laugardag og nýr fundur hefur ekki verið boðaður," sagði
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, í samtali við Morgun-
blaðið skömmu eftir miðnætti, þegar hann hafði slitið fundi sínum
með fulltrúum sjómanna og útvegsmanna.
Guðlaugur sagði að deiluaðilar
hefðu lagt fram tillögur á víxl.
Undir miðnætti hefðu sjómenn
lagt fram tillögu, en viðbrögð út-
vegsmanna hefðu staðfest grund-
vallarágreining deiluaðila. Hann
kvaðst ekki geta upplýst einstök
efnisatriði þessara tillagna, sem
lutu að uppgjöri við sjómenn. „Það
var ekkert annað að gera en slíta
fundinum og nýr hefur ekki verið
boðaður,“ sagði ríkissáttasemjari.
„Þessar aðgerðir verða að koma
til framkvæmda strax og hefðu
átt að koma fyrr,“ segir Ingólfur
Sverrisson, framkvæmdastjóri
Málms. „Næsta skref er að endur-
skipuleggja greinina." Örn Frið-
riksson, varaformaður Samiðnar,
Sambands iðnfélaga, efast um að
þessar aðgerðir dugi til, það hefði
átt að stíga stærra skref en að
binda niðurgreiðslurnar við 13%
sem er upphæð ríkisstyrkja í Nor-
egi til skipasmíðaiðnaðarins.
Guðfinnur G. Johnsen, fulltrúi
Landssambands íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ) í nefndinni, tók ekki
afstöðu til jöfnunaraðstoðarinnar
sem mælt er með í skýrslunni, en
sagði í samtali að útgerðarmenn
væru almennt á móti ríkisstyrkj-
um.
Sjá bls. 21: „Ríkisstyrkir
erlendis...“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Við björgnnarstörf
BJÖRGUNARMENN unnu .við að loka þaki hússins við Þormóðs-
götu en þar urðu auk foktjónsins skemmdir af völdum bleytu.
Tugmilljóna Ijón
og2-3hús ónýt
FIMM hús á Siglufirði eru stórskemmd og 2-3 jafnvel talin ónýt
eftir að þak fauk af þeim í aftakaveðri sem geisað hefur bæði í
gær og í fyrradag á Siglufirði. Að sögn Björns Valdimarssonar
bæjarsljóra er Ijóst að tjón nemur tugum milljóna og einhverjir
þeirra 31 húseiganda sem orðið hefur fyrir teljandi tjóni hafði
ekki tryggingar sem bæta skaðann.
Um 55 menn úr björgunarsveit-
inni Strákum, lögreglu og vinnu-
flokkum bæjarins hafa átt annríkt
við að hefta fok, negla niður þak-
plötur, negla fyrir brotna glugga
og aftra því að bleyta skemmi enn
frekar.
Þak fauk í heilu lagi 4-500 m
leið af húsi Þorgríms Guðnasonar
og Ingibjargar Steinarsdóttur við
Eyrargötu 18 og er húsið talið stór-
skemmt eða jaínvel ónýtt að sögn
Ingibjargar, sem missti stóran
hluta eigna sinna í annað sinn því
hún missti allt sitt í bruna á ísafirði
fyrir 12-13 árum.
Hús við Þormóðsgötu sem
Magnús Þór Jónsson og fjölskylda
keyptu fyrir nokkrum mánuðum
og hafa endurbætt liggur undir
skemmdum eftir að stór hluti þaks-
ins fauk af. Hús Magnúsar var
ekki vátryggt en í síðustu viku fékk
hann tilboð í tryggingu sem bætt
hefði tjónið en hann hafði ekki
gengið frá viðskiptunum.
Sjá einnig miðopnu.