Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C 33. tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR10. FEBRÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sátt um sjálfstjórn og brottför Israela frá Gaza og Jeríkó Norska kirkjan gagnrýnir setningu Lillehammer-Ieikanna Óguðlegt að lofsyngja Seif Ósló. Rcuter. NORSKIR kirkjuleiðtogar gagnrýndu fyrirhugaða setningarathöfn Vetrarólympíuleikanna í Lillehammer harðlega í gær, sögðu hana óguðlega og ekkert annað en lofgjörð til fornra grískra guða. Sextán æðstu menn norsku kirkj- unnar, þar á meðal þrír biskupar, skrifuðu framkvæmdaraðilum leik- anna í Lillehammer og hvöttu til þess að Olympíuóðurinn yrði ekki leikinn við setning'arathöfnina næstkomandi laugardag þar sem hann stangaðist á við kristinn boð- skaj). Oðurinn var saminn fyrir einni öld og er bæn til Seifs, Ólympíu- guðsins, þar sem hann er beðinn að blessa leikana. Stór kór sem í verða bæði fullorðnir og börn munu syngja lofsönginn við setningarat- höfnina. Talsmaður framkvæmdar- aðila leikanna sagði að ósk klerk- anna yrði ekki tekin til greina og óðurinn hefði ekki valdið vanda til þessa á fyrri leikum. Vinsælasti íþróttamaður Noregs, skíðagöngumaðurinn Vegard U!- vang, gagnrýndi Juan Antonio Samaranch, forseta Alþjóðaólymp- íunefndarinnar (IOC), í fyrradag, sagði slæmt fyrir íþróttirnar að hann stýrði nefndinni en Samar- anch var ráðherra í einræðisstjórn Francos á Spáni á sínum tíma. Ummælin þóttu koma á óvart þar sem Ulvang hafði verið útnefndur til að sveija Ólympíueið fyrir hönd keppenda við setningarathöfnina. Framkvæmdastjóri IOC gagnrýndi ummælin í gær en ekki er gert ráð fyrir öðru en Ulvang sverji eiðinn. Kaíró. Reuter. SHIMON Peres utanríkisráðherra Israels og Yasser Arafat leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO) undirrituðu í gærkvöldi sam- komulag um fyrirkomulag sjálfstjórnar PLO á Gazasvæðinu og Jer- íkó og um brottflutning Israelshers þaðan. Reuter Deng kemur fram DENG Xiaoping, fyrrum leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, kom í gær fram í kínversku sjónvarpi í fyrsta skipti í eitt ár. Mátti á mynd- unum sjá hvar Deng gekk inn í veislusal í Shanghai, studdur af tveim- ur dætrum sínum, til að fagna nýju kínversku ári. Hann heilsaði gest- um og brosti en ekki mátti heyra rödd hans. Leiðtoginn gamli var mjög hrörlegur að sjá en fréttastofan Xinhua lagði mikla áherslu á við hve góða heilsu hann væri. A myndinni má sjá Deng heilsa fram- kvæmdastjóra Kommúnistaflokksins í Shanghai og borgarstjóranum. Arafat og Peres undirrituðu sam- komulagið eftir tveggja daga samn- ingaviðræður í Kaíró og tókust síð- an í hendur við mikinn fögnuð við- staddra. Athöfnin fór fram í for- setahöllinni undir stjórn Hosni Mu- baraks forseta Egyptalands. Hvorugur samningsaðilanna vildi gefa upp um hvaða atriði téður samningur væri. ísraelar og Palestínumenn hafa Stöðva úr- anþjófnað Moskvu. Reuter. JÚRÍ Jefímov, yfirmaður sér- sveita rússneska innanríkisráðu- neytisins, sagði í gær að á síð- asta ári hefði 11 sinnum verið komið í veg fyrir úranþjófnað í Rússlandi. Að sögn Jefímovs er hér um mikla aukningu að ræða því næstu tvö ár á undan voru einungis gerð- ar þijár tilraunir til úranþjófnaðar, að sögn /íar-Tass-fréttastofunnar. Auk þessa voru 900 tilraunir til að komast inn á kjarnorkuvinnslu- svæði í fyrra stöðvaðar og 700 sinn- um voru starfsmenn kjarnorku- stöðva stöðvaðir er þeir reyndu að smygla leynilegum skjölum út úr stöðvunum. Að sögn Itar-Tass er líklegast talið að tilraunir til úranþjófnaðar og sölu leynilegra skjala megi rekja til lélegrar afkomu starfsmanna sem séu að reyna að auka tekjur sínar. deilt um stærð sjálfstjórnarsvæðis- ins við Jeríkó, um öryggi ísraelskra landnema á Gaza-svæðinu og landamæraeftirlit. Ekki var ljóst í gær um hvaða deiluatriði hefði náðst samkomulag. Hefur einn embættismanna PLO sagt að aðal- hindrunin sé sú að ísraelar neiti að láta yfirráð sín á svæðinu af hendi. ísraelar minni sífellt á að sjálf- stjórnarsvæði Palestínumanna sé ekki sjálfstætt ríki heldur aðeins bráðabirgðaríki. Reuter Auka umsvif í Sarajevo ÍBÚAR í Sarajevo ganga og hjóla framhjá skriðdreka gæslusveita Sameinuðu þjóðanna á aðalgötu borgarinnar í gær. Hafa sveitir SÞ aukið viðbúnað í borginni og verið þar meira á ferli undanfarna daga. Vantrú á samkomulag múslima og Serba um brottflutning stórskotasveita Brussel. Sarajevo. Reuter. SAMKOMULAG tókst á fundi fastafulltrúa Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel um að veita Bosníu-Serbum 10 daga frest til að flylja stórskotavopn sín a.m.k. 20 kilómetra frá Sarajevo ellegar yrði loftárásum beitt til að stöðva umsátur þeirra um borgina. Ágreiningur var um hvort sagt skyldi opinberlega að Serbum hefðu verið settir úrslitakostir, eins og Frakkar og Bandaríkjamenn lögðu til. Um tíma var talið að samkomulag tækist ekki um aðgerðir gegn Serbum vegna andstöðu Grikkja og Kanadamanna við hernaðarað- gerðir en um síðir féllu Kanadamenn frá andstöðu sinni og Grikkir sátu þjá. Á sama tíma og fulltrúar NATO funduðu náðist samkomu- lag í Sarajevo um að gæslusveitir Sameinuðu þjóðanna (UNPRO- FOR) taki við stórskotaliðsstöðvum Bosníu-Serba umhverfis borgina. Með hótun um loftárásir yfir höfð- um sér gengu Bosníu-Serbar til vopnahléssamninga við múslima sem fela í sér að þeir hverfi með stór- skotasveitir sínar frá íjöllunum og svæðum umhverfis Sarajevo. Sam- komulagið var gert fyrir tilstilli breska hershöfðingjans Sir Michael Rose, sem er nýtekinn við yfirstjórn gæslusveita Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Bosníu. í ljósi þess að urmull vopnahléssamninga milli aðila Bosn íudeilunnar hafa farið út um þúfur varaði Sir Michael við of mikilli bjart- sýni. Héldu Serbar áfram skothríð á Sarajevo eftir að yfirmenn hersveita þeirra höfðu staðfest samkomulagið en á því er engin undirskrift. Jovan Divjak, hershöfðingi í sveit- um múslima sem tók þátt í samkomu- lagsgerðinni, sagðist efast um að það héldi. „Þetta er enn ein leikfléttan af hálfu Serba til að vinna sér tíma. Við gengum til samninga svo okkur yrði ekki kennt um að vilja ekki stuðla að friði,“ sagði Divjak. Vopnahléssamkomulagið tekur gildi á hádegi í dag og gert er ráð fyrir að innan viku hafí Serbar flutt stórskotavopn til svæða sem yfir- menn UNPROFOR velja og eru það langt frá Sarajevo að vopnin draga ekki til borgarinnar. Háttsettur breskur embættismað- ur sagði að vopnahlé múslima og Serba á Sarajevo-svæðinu gæti aldr- ei komið í staðinn fyrir aðgerðir af hálfu NATO. Á það bæri einungis að líta sem viðbótaraðgerð. Rétt áður en tilkynnt var um samkomulagið sagði Radovan Karadzic leiðtogi Serba að ekki kæmi til greina að hverfa með stórskotaliðssveitirnar frá fjöllunum við Sarajevo og hótaði hann að flugvélar NATO sem kæmu til loftárása yrðu skotnar niður. Samkomulag um loftárásir vegna umsáturs Serba um Sarajevo Serbar fá 10 daga til að aflétta umsátrinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.