Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1994
13
Ofleikur Olafs Ragnars
eftir Björn Bjarnason
Framganga Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, formanns Alþýðubandalags-
ins, vegna bréfs Arthúrs Björgvins
Bollasonar til formanns Stéttarsam-
bands bænda um málefni Ríkisút-
varpsins hefur verið með ólíkindum.
Ætlaði flokksformaðurinn greini-
lega að nota þetta furðulega tiltæki
fyrrverandi aðstoðarmanns Heimis
Steinssonar útvarpsstjóra til að
skáka Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra. Ólafur Ragnar hélt hins vegar
þannig á málum, að nú hljóta flokks-
menn hans og stjórnarandstæðingar
á Alþingi að velta fyrir sér, hvers
virði sé að lúta forystu hans. Davíð
Oddsson lýsti yfir því í þingræðu,
að hann myndi aldrei sitja sem for-
sætisráðherra í skjóli Ólafs Ragnars.
Þegar Ólafur Ragnar efnir til póli-
tísks upphlaups er það eitt helsta
einkenni á málflutningi hans, að
hann hörfar úr einu vígi í annað.
Honum er sama, hvort hann fer með
rétt mál eða rangt, svo framarlega
sem hann getur látið eins og hann
sé að upplýsa einhvern stórasann-
leika og andstæðingurinn eigi erfitt
með að veijast. A sunnudag hélt
hann fast við þá skoðun, að daginn
eftir yrði forsætisráðherra að gera
Alþingi grein fyrir missögnum sínum
um fund með Heimi Steinssyni. Á
mánudag þegar hann átti í orða-
skiptum við ráðherrann á þingi sner-
ist málflutningur Ólafs Ragnars ekki
um þetta heldur hitt, að Davíð Odds-
son væri ósannindamaður vegna
einkabréfs, sem hann hefði ritað
Heimi Steinssyni í apríl 1993.
Krafan um að Davíð gerði grein
fyrir missögnum sínum var sett
fram, þegar forsætisráðherra var
fjarstaddur og gat ekki svarað fyrir
sig á staðnum. Dylgjurnar um bréfið
til Heimis Steinssonar voru hafðar
í frammi, þegar Heimir var íjar-
staddur og gat ekki staðfest um-
mæli forsætisráðherra um eðli þess.
Nú blasir við öllum, að jafneinföld
aðferð og að vísa til dagsetninga
sviptir stoðunum undan stóryrðum
Ólafs Ragnars. Er það ekki í fyrsta
sinn sem svo auðvelt reynist að af-
hjúpa loddarabrögðin.
Eyðimerkurgangan
Ólafur Ragnar Grímsson virðist
hafa áttað sig á því, að utanríkis-
stefna flokksins, sem hann veitir
formennsku, hefur gengið sér til
húðar. Honum er ljóst, að hann get-
ur ekki á trúverðugan hátt tekið
þátt í starfi á alþjóðlegum vett-
vangi, sé hann andvígur Atlants-
hafsbandalaginu (NATO) og meg-
instefnu aðildarþjóða þess í öryggis-
málum. Með framgöngu sinni í þess-
um málum hefur hann leitast við að
breyta ímynd Alþýðubandalagsins,
þótt hann hafi orðið að lúta í lægra
haldi á landsfundi flokksins, sem
ályktaði gegn NATO. Margir hafa
túlkað þessa afstöðu flokksform-
annsins á þann veg, að á fleiri svið-
um væri hann reiðubúinn til að
sveigja Alþýðubandalagið af leið for-
stokkaðs sósíalisma og afturhalds-
stefnu. Hann vildi gera flokkinn
gjaldgengan í borgaralegu sam-
starfi.
Þótt menn vilji líta á þessa við-
leitni flokksformannsins af fullri vin-
semd og meta hana á efnislegum
forsendum, er ekki unnt að treysta
á staðfestu, þegar á reynir. Yfirlýs-
ing forsætisráðherra, um að hann
muni aldrei sitja í embætti sínu í
skjóli Ólafs Ragnars, sýnir, að eyði-
merkurganga Alþýðubandalagsins
hefur alls engan enda tekið. Eru
Ólafi Ragnari nú ekki margir kostir
tækir, vilji hann að nýju verða gjald-
Björn Bjarnason
„Ólafur Ragnar hélt
hins vegar þannig á
málum, að nú hljóta
flokksmenn hans og
stjórnarandstæðingar á
Alþingi að velta fyrir
sér, hvers virði sé að
lúta forystu hans.“
gengur í alvöruumræðum um stjórn
lands og þjóðar.
Veik stjórnarandstaða
Besta staðfestingin á því, hve vel
er haldið á málum af hálfu ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar, fæst með
að líta á það, sem stjórnarandstaðan
kýs að gera að ágreiningsefnum.
Þegar rætt er við Bandaríkjamenn
um varnir og öryggi þjóðarinnar,
beinir stjórnarandstaðan athygli
sinni að því, hvort utanríkisráðherra
skýri utanríkismálanefnd Alþingis
nægilega ítarlega frá gangi mála.
Þegar ríkisstjórnin stöðvar verkfall
sjómanna með bráðabirgðalögum,
býr stjórnarandstaðan það til að for-
sætisráðherra hafi blekkt forseta
íslands. Þegar út.varpsstjóri víkur
einkaráðnum aðstoðarmanni sínum
frá störfum, krefst stjórnarandstað-
an þess að forsætisráðherra segi af
sér.
Eg nota orðið stjórnarandstaða,
vegna þess að í þeim þremur tilvik-
um, sem hér eru nefnd, hafa tals-
menn Framsóknarflokksins og
Kvennalistans látið Ólaf Ragnar
Grímsson gefa sér tóninn og síðan
tekið undir með honum. Þegar þann-
ig er að málum staðið á Alþingi Is-
lendinga, hljóta að vakna efasemdir
í hugum margra um gildi þess starfs,
sem þar er unnið. Er þetta karp um
hugarburð miklu alvarlegri löstur á
störfum Alþingis en hitt, að þrískipt-
ing valdsins virki í reynd með því
að dómstólar láti í Ijós skoðun sína
á efni laga.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hef-
ur tekist á við mörg erfið viðfangs-
efni á ferli sínum. Stjórnin hefur
komist vel frá þessum málum. og
stuðningslið hennar á Alþingi hefur
sýnt, að það bognar ekki. Þingum-
ræðurnar á mánudag um hið dæma-
lausa bréf drógu skýrar fram en
áður muninn á milli ábyrgrar stjórn-
arforystu og óábyrgrar forystu
stjórnarandstöðunnar, sem er trausti
rúin.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisfiokksins.
Nýtt f rá
5S7SJ3
Sérbyggður þykktar-
hefill og afréttari
MEG frá ABET
UTAN ÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
£8 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
STORU
Á STURTUKLEFUM, BAÐINNRÉTTINGUM,
HREINLÆTISTÆKJUM OG HURÐAHANDFONGIN
AZUR m/öryggisgleri
Klefi kr. 23.778,- stgr.
ELBA m/öryggisgleri
Hurð 80 kr. 14.931,- stgr.
Hurð 90 kr. 15.771,- stgr.
Hlið 80 kr. 11.323,-stgr.
Hlið 90 kr. 12.542,- stgr.
Opið laugardag kl. 10-14
BYGGINGAVÖRUR
Skeifunni 11 b, sími 681570
SAN REM0 m/öryggisgleri
Sturtuklefi kr. 54.611,- stgr.
Sturtubotn kr. 13.000,- stgr.
CAPRI m/öryggisgleri
Sturtuklefi kr. 32.717,- stgr.
Sturtubotn kr. 13.000,- stgr.
Innihurðahandfög
fyrir Assa og
þýskar skrár.
Formfögur lína frá
Eurobrass.
Verð frá
kr. 1.771
Þýskar baðinnréttingar. Verð frá kr. 44.000,-.
NAPOLI
1200 mm kr. 9.445,- Stgr.
EURO
70—80 kr. 9.480,-
80—90 kr. 9480,- stgr.
Aquabella
baðherbergisáhöld úr
messing, krómi,
króm/hvítt og
króm/messing.
Glæsilegt úrval á
kjaraverði. 40% afsláttur.
mommmm