Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
Fjórir Akureyringar hefja veitingarekstur á Spáni
Leigja þekktan íslend-
ingastað á Torremolinos
mun stýra rekstrinum á Spánar-
ströndum og flytja þangað ásamt
Qölskyldu sinni.
Fjórmenningarnir taka við rekstr-
inum 1. apríl næstkomandi og leigja
hann til eins árs til að byija með.
Reksturinn hefur að sögn Andra
gengíð vel og var hann bjartsýnn á
að svo yrði áfram, enda væri búist
við allt að 50% aukningu ferðamanna
til Torremolinos í sumar miðað við
það sem var í fyrra. „Þessi staður
er að ná sér upp úr nokkurri lægð
og þeir aðilar í ferðaþjónustu sem
ég ræddi við ytra spáðu sprengingu
í sumar,“ sagði Andri.
Starfsemi
Dýraspítal-
ans hafin
DÝRASPÍTALINN Lögmanns-
hlíð hefur tekið til starfa, en
hann var formlega opnaður um
síðustu helgi. Það eru Elfa Ág-
ústsdóttir dýralæknir og Hös-
kuldur Jónsson tamingamaður
sem reka dýraspítalann.
Húsið er um 300 fermetrar að
stærð og er í hesthúsahverfinu í
Lögmannshlíð ofan Rangárvalla.
Dýraspítali hefur ekki verið rekinn
norðan heiða áður, en á spítalanum
er aðstaða til gæludýralækninga,
sérstök aðstaða er til hestalækninga
og eru 22 básar í hesthúsi auk þess
sem tamningastöð er í húsinu.
Dýralæknar hafa nógu að sinna
hvað gæludýralækningar varðar,
en því starfi hefur Elfa fram til
þessa sinnt heima hjá sér. Aðstaðan
verður því önnur og betri í kjölfar
þess að spítalinn er risinn.
FJÓRIR Akureyringar, flestir eig-.
endur veitingastaðarins Greifans,
munu taka við rekstri veitinga-
staðarins Pink Elefant á Torre-
molinos á Spáni, en þeir taka stað-
inn á leigu til eins árs frá 1. apríl
næstkomandi. Þetta er þekktur
„Islendingastaður*1, að söng
Andra Gylfasonar eins fjórmenn-
inganna, en hinir eru Hlynur Jóns-
son, Páll Jónsson og Sigurbjörn
Sveinsson.
Pink Elefant er um 300 fermetrar
að stærð og tekur um 200 til 250
manns í sæti. Þar er auk veitingaað-
stöðu diskótek og stórt dansgólf, en
staðurinn er þekktur meðal íslenskra
gesta á þessari sólarströnd, sem sótt
hafa hann í ríkum mæli, að sögn
Andra.
íslenskt
Andri sagði að ekki hefði verið
lögð mikil áhersla á veitingaþáttinn
upp á síðkastið, en breyting yrði þar
á fljótlega eftir að þeir tækju við
rekstrinum. „Við bytjum á að bjóða
upp á samlokur og fleira í þeim dúr,
en síðan ætlum við að fikra okkur
áfram hægt og rólega í matseldinni
og sjá fivernig þetta þróast. Ég á
von á að við munum bjóða upp á
pizzur og þá ætlum við að leggja
áherslu á íslenskan mat og treystum
á að fá gott hráefni héðan yfir sumar-
mánuðina," sagði Andri, en hann
Nýmeti
RAUÐMAGI,
hrogn og lifur hafa
eflaust verið víða á
borðum í gær, en
þetta nýmeti rann
út í Fiskbúðinni við
Strandgötu á Ak-
ureyri. Viðar
Gunnarsson hamp-
ar rauðmaganum
hinn ánægðasti,
enda er hann í hug-
um margra tengd-
ur vorkomunni og
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r hækkandi SÓI.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Flutningamiðstöð Norðurlands hefur tekið til starfa, en á myndinni
eru Baldur Guðnason, Einar Þorsteinsson úr stjórn félagsins, ásamt
Hólmari Svanssyni framkvæmdasljóra þess í húsakynnum fyrirtækis-
ins.
Ný aðstaða hjá FMN
FLUTNINGAMIÐSTÖÐ Norðurlands opnaði nýja afgreiðslu og vöru-
móttöku að Fiskitanga nýlega, en fyrirtækið tók við rekstri sem
Skipaafgreiðsla KEA hafði haft með höndum.
Hólmar Svansson framkvæmda-
stjóri Flutningamiðstöðvar Norður-
lands sagði að fyrirtækið hefði tek-
ið til starfa um áramót, en síðan
hefur verið unnið að endurbótum á
húsnæði og breytingum.
Flutningamiðstöð Norðurlands er
í eigu Samskipa sem eiga 80% hlut
og KEA sem á 20%, en að sögn
Hólmars er stefnt að því að auka
hlutáfé í framtíðinni og færa það
meira yfir til norðlenskra aðila.
Margs konar þjónusta er í boði hjá
fyrirtækinu og býðst það til að út-
vega viðskiptavinum flutninga alla
leið heim að dyrum sé þess óskað
og þá sama hvaðan er.
„Við stefnum að því að auka
umsvif okkar og ætlum m.a. að
tengja sjó- og landflutninga betur.
Við erum bjartsýnir og þetta fer
vel af stað,“ sagði Hólmar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Nýr dýraspítali
ELFA Ágústsdóttir dýralækn-
ir og Höskuldur Jónsson hafa
tekið í notkun dýraspítala á
Akureyri, en hann er i hest-
húsahverfi við Lögmannshlíð.
MIÐA-
OG BORÐA-
PANTANIR
ISÍMA 96-22770
OG 96-22970
KQNUNGUR
SVEIFLUNNAR
FRUMSYNING 12. FEBRUAR
„IATUM
SON,GINN
HbJOMA
Mli )AVi;m ) S.VUO. SFRTIl.KOn 1 IIÓPA
SVNT A I.AIK'.ARI TA( iSKVOU M IM I VI I UR
Þú hefur aldrei verið nær því
að hljóta 54 milljóna króna vinning.