Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 43 Fjölmennasta Bridgehátíðin frá upphafi verður sett annað kvöld á Hótel Loftleiðum Um 400 spilarar keppa um Flug- leiðabikarinn Syngjandi Norðmenn NORSKA landsliðið söng norska þjóðsönginn hástöfum við verðlaunaafhendinguna á Evrópumótinu sl. sumar en fjórir liðsmenn þess spila um helgina á Bridgehátið. A myndinni eru Helgi Jóhannsson stjórn- armaður í Bridgesambandi Evrópu, Jón Sveindal, Glen Grötheim, Tor Helness, Panos Gerantopoulos stjórnarmaður í Evrópusambandinu, Arild Rasmussen, Geir Helgemo, Terje Á og Runar Lillevik. _________ Brids_______________ Guðm. Sv. Hermannsson BRIDGEHÁTÍÐ 1994 hefst á morgun á Hótel Loftleiðum. Þetta verður fjölmennasta bridsmót sem haidið hefur verið hér á landi því 82 sveitir eru skráðar til leiks í Flugleiðamótinu, sem þýðir að um 400 spilarar verða þar saman- komnir. Á Bridgehátíð verða að þessu sinni keppendur frá sex þjóðum. Að ís- lendingum meðtöldum eru Norðmenn íjölmennastir og í fararbroddi þeirra fer sveitin sem vann silfurverðlaunin á heimsmeistaramótinu í Chile í haust. íslendingar geta nú skoðað norska undrabamið Geir Helgemo en hann spilar á Bridgehátíð við Tor Helness. Helgemo, sem er 24 ára gamall, er eini atvinnumaðurinn f norska liðinu og hann gefur út bridsblað i' Þránd- heimi þar sem hann býr. Á síðasta ári vann Helgemo til silfurverðlauna, bæði í keppninni um Bermúdaskálina og í heimsmeistarakeppni spilara 25 ára og yngri. Hann fékk bronsverð- laun á Evrópumótinu í Menton og vann þar að auki fullt af Noregs- meistaratitlum. Og þetta ár byijaði ekki dónalega hjá þeim Helness því þeir unnu firnasterkt boðsmót í Hol- landi, Cap Volmac, sem áður hét Cap Gemini Pandata. Glen Grötheim og Teije Á búa báðir í Þrándheimi þar sem Grötheim er verkfræðingur og Á vinnur hjá Póstinum. Þeir spila biðsagnakerfi sem Grötheim hefur þróað og spilað með ágætum árangri, meðal annars við Helgemo. Grötheim hefur spilað áður á Bridgehátíð eins og Helness. Frá Noregi koma þijú önnur pör, þar á meðal Even Uifen og Tor Eivind Hoyland sem urðu í 2. sæti í tvímenn- ingskeppni Bridgehátíðar í fyrra. Þá er Roy Christiansen meðal keppenda en hann spilaði í norskum landsiiðum fyrir nokkrum árum og vann meðal annars Norðurlandamótið í Reykja- vík 1978. Kvennasveit í fyrsta sinn I fyrsta skipti hefur erlendri kvennasveit verið boðið á Bridgehá- tíð. Það eru sænsku Evrópumeistar- arnir og bronsverðlaunahafar frá síð- asta heimsmeistaramóti kvenna í Chile í haust. Raunar voru sænsku konurnar ekki langt frá því að kom- ast í úrslitaleikinn í Chile en þær töpuðu fyrir Þjóðverjum í undanúr- slitunum í lokaspilunum. Hingað koma Lisa Áström, Bim Ödlund, Linda Lángström og Catar- ina Midskog. Ödlund er efnafræðing- ur að mennt og aldursforseti liðsins. Áström er framkvæmdastjóri inn- flytjendabúða, Lángström er mynd- listarmaður og Midskog er brids- kennari. Lángström og Ödlund hafa spilað hér á Norðurlandamóti. Pakistaninn Zia Mahmood kemur að venju með sveit frá Ameríku. Hann spilar við Russ Ekeblad sem lengi hefur verið í fremstu röð banda- rískra spilara. Hitt parið mynda Kanadamaðurinn Mark Molson sem oft hefur spilað á Bridgehátíð og unnið bæði tvímenninginn og sveita- keppnina; og Bandaríkjamaðurinn Bart Bramley. Bramley var meðal annars í bandaríska Iiðinu sem Island sló út í 8 liða úrslitum á heimsmeist- aramótinu í Yokohama. Loks kemur sveit frá írlandi, skip- uð Keith Singleton, Robin Burns, Heidi Lillis og Michael McGlouchlin. Tvímenningskeppni Bridgehátíðar hefst klukkan 19 á föstudagskvöld og verður spilað til tæplega 1. Á laugardegi hefst spilamennska klukkan 11 og lýkur um kl. 20. Svei- takeppnin hefst klukkan 13 á sunnu- dag og aftur klukkan 13 á mánu- dag. Bridgehátíð lýkur síðan um kvöldmatarleytið á mánudag en þá verður verðlaunaafhending fyrir bæði mótin. Eins og í Kauphallarmót- inu í vetur ber karlkynskeppendum í tvímenningsmótinu skylda til að klæðast jakkafötum og kvenspilarar eiga að klæðast samsvarandi klæðn- aði. Nýjar kennslubækur Tvær íslenskar bækur um brids komu út fyrir skömmu. Önnur er Kennslubók í brídge fyrír byijendur eftir Guðmund Pál Amarson og hin er Precisionsagnkerfið eftir Viðar Jónsson. Það er vandaverk að skrifa að- gengilegar kennslubækur um brids. Guðmundur Páll, sem hefur raunar haft bridskennslu að atvinnu í nokk- ur ár, kann þá list vel og bókin hans virðist fyllilega jafnast á við þær erlendu kennslubækur sem helst hef- ur verið hampað. Bókin er vel sett upp og aðgengilega, oft er stoppað við að rifja upp það sem áður hefur verið farið yfir og lærdómurinn styrktur með æfingadæmum. Byij- endur sem lesa bókina hafa því ör- ygglega bæði gaman af og verða orðnir vel rúbertufærir í bókarlok. Betri meðmæli er varla hægt að gefa kennslubók og að auki kostar bókin aðeins 1.500 krónur. Þeir sem hafa lokið við bók Guð- mundar Páls geta sem best rennt yfir í bók Viðars Jónssonar um Prec- isionkerfið. Þar lýsir Viðar uppbygg- ingu þessa sagnkerfis, sem fór eins og eldur í sinu um bridsheiminn fyr- ir um aldarfjórðungi en hefur nú heldur iátið undan síga. Aðalkostur Precision er hvað grunnkerfið er ein- falt og það hentar því ágætlega spil- urum sem eru að feta sig af stað í keppnisbrids og þeir sem lengra eru i komnir geta síðan bætt við sagnvenj- um og breytt útfærslum eftir smekk. Bókin skiptist í þijá hluta. í þeim fyrsta er farið yfír grunnkérfið, í þeim næsta er farið yfir algengustu viðbætur, svo sem spurnarsagnir, og í þriðja hlutanum lýsir Viðar uppá- haldsútfærslu sinni á kerfínu. Með þessu móti fær lesandinn ágætis vitneskju um það hvernig sagnkerfi eru uppbyggð og hvernig hægt er að breyta uppbyggingu þeirra þótt grunnurinn sé sá sami. Helsti gallinn við bók Viðars er uppsetningin og prentunin. Bókin er prentuð á venjulegan tölvuprent- arara í stað geislaprentara og upp- setningin er alls ekki nægilega að- gengileg. Verðið er 1.500 krónur. Ertu orðinn of seinn með skattframtalið? Frestur til að skila inn skattframtali fyrir einstaklinga renn- ur út í dag. Hafðu þín mál á hreinu. - Sæki um frest til skattstjóra. - Tel fram fyrir einstaklinga og rekstraraðila. - Áætla skatta. Hafðu samband. Halldór Lárusson, hagfræðingur, Hafnarstræti 19, sími 624061. Síðustu sætin - 2 vikur ókeypis Eldriborgaraferð til Kanarí 13. apríl - 40 dagar Doncel seldist upp - viðbótsrhús á Duna Beach Okkur er það ánægja að kynna sérstaka eldriborgaraferð þann 13. apríl til Kanarí, þar sem veðrið er á þeim tíma einstaklega gott. Með frábærum samningum höfum við samið við gististaði okkar um ótrúleg kjör, þú dvelur í 40 daga á Kanarí, borgar það sama og fyrir þriggja vikna ferð og færð því 2 vikur ókeypis. Undirtektir við Kanaríferðum Heimsferða hafa verið einstakar í vetur og æ fleiri íslendingar kynna sér þessa heillandi paradís. Aðeins kr. 59.900 pr. mann m.v. 3 í smáhýsi, Duna Beach. Kr. 67.400,- pr. mann m.v. 2 í smáhýsi, Duna Beach. Flugvallarskattar: 3.660 fyi-ir fullorðna Frábær aðbúnaður Duna Beach gisitstaðurinn hefur verið einstaklega vinsæll meðal farþega okkar í vetur og í fyrra. Stórgóð aðstaða með mjög fallegum garði og 4 sinnum á dag er ókeypis rúta inn í miðbæ Ensku strandarinnar. íslenskur hjúkrunarfræðingur Við tryggjum þér örugga þjónustu í friinu og íslenskur hjúkrunarfræðingur verður með hópnum allan tímann. Þjónusta Heimsferða 1. Beint leiguflug án millilendingar 2. Þrif 5 sinnum í viku á gististað 3. Spennandi kynnisferðir 4. Islenskir fararstjórar 5. Isienskur hjúkruanrfræðingur air europa « TURAVIA HEIMSFERDIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 ÚTSALAN í FULLUM GANGI Ath: Tökum upp nýjar vörur á hverjum degi rinn VELTUSUNDI • SÍMI 21212

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.