Morgunblaðið - 10.02.1994, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
43
Fjölmennasta Bridgehátíðin frá upphafi verður sett annað kvöld á Hótel Loftleiðum
Um 400 spilarar
keppa um Flug-
leiðabikarinn
Syngjandi Norðmenn
NORSKA landsliðið söng norska þjóðsönginn hástöfum við verðlaunaafhendinguna á Evrópumótinu sl.
sumar en fjórir liðsmenn þess spila um helgina á Bridgehátið. A myndinni eru Helgi Jóhannsson stjórn-
armaður í Bridgesambandi Evrópu, Jón Sveindal, Glen Grötheim, Tor Helness, Panos Gerantopoulos
stjórnarmaður í Evrópusambandinu, Arild Rasmussen, Geir Helgemo, Terje Á og Runar Lillevik.
_________ Brids_______________
Guðm. Sv. Hermannsson
BRIDGEHÁTÍÐ 1994 hefst á
morgun á Hótel Loftleiðum. Þetta
verður fjölmennasta bridsmót sem
haidið hefur verið hér á landi því
82 sveitir eru skráðar til leiks í
Flugleiðamótinu, sem þýðir að um
400 spilarar verða þar saman-
komnir.
Á Bridgehátíð verða að þessu sinni
keppendur frá sex þjóðum. Að ís-
lendingum meðtöldum eru Norðmenn
íjölmennastir og í fararbroddi þeirra
fer sveitin sem vann silfurverðlaunin
á heimsmeistaramótinu í Chile í
haust.
íslendingar geta nú skoðað norska
undrabamið Geir Helgemo en hann
spilar á Bridgehátíð við Tor Helness.
Helgemo, sem er 24 ára gamall, er
eini atvinnumaðurinn f norska liðinu
og hann gefur út bridsblað i' Þránd-
heimi þar sem hann býr. Á síðasta
ári vann Helgemo til silfurverðlauna,
bæði í keppninni um Bermúdaskálina
og í heimsmeistarakeppni spilara 25
ára og yngri. Hann fékk bronsverð-
laun á Evrópumótinu í Menton og
vann þar að auki fullt af Noregs-
meistaratitlum. Og þetta ár byijaði
ekki dónalega hjá þeim Helness því
þeir unnu firnasterkt boðsmót í Hol-
landi, Cap Volmac, sem áður hét Cap
Gemini Pandata.
Glen Grötheim og Teije Á búa
báðir í Þrándheimi þar sem Grötheim
er verkfræðingur og Á vinnur hjá
Póstinum. Þeir spila biðsagnakerfi
sem Grötheim hefur þróað og spilað
með ágætum árangri, meðal annars
við Helgemo. Grötheim hefur spilað
áður á Bridgehátíð eins og Helness.
Frá Noregi koma þijú önnur pör, þar
á meðal Even Uifen og Tor Eivind
Hoyland sem urðu í 2. sæti í tvímenn-
ingskeppni Bridgehátíðar í fyrra. Þá
er Roy Christiansen meðal keppenda
en hann spilaði í norskum landsiiðum
fyrir nokkrum árum og vann meðal
annars Norðurlandamótið í Reykja-
vík 1978.
Kvennasveit í fyrsta sinn
I fyrsta skipti hefur erlendri
kvennasveit verið boðið á Bridgehá-
tíð. Það eru sænsku Evrópumeistar-
arnir og bronsverðlaunahafar frá síð-
asta heimsmeistaramóti kvenna í
Chile í haust. Raunar voru sænsku
konurnar ekki langt frá því að kom-
ast í úrslitaleikinn í Chile en þær
töpuðu fyrir Þjóðverjum í undanúr-
slitunum í lokaspilunum.
Hingað koma Lisa Áström, Bim
Ödlund, Linda Lángström og Catar-
ina Midskog. Ödlund er efnafræðing-
ur að mennt og aldursforseti liðsins.
Áström er framkvæmdastjóri inn-
flytjendabúða, Lángström er mynd-
listarmaður og Midskog er brids-
kennari. Lángström og Ödlund hafa
spilað hér á Norðurlandamóti.
Pakistaninn Zia Mahmood kemur
að venju með sveit frá Ameríku.
Hann spilar við Russ Ekeblad sem
lengi hefur verið í fremstu röð banda-
rískra spilara. Hitt parið mynda
Kanadamaðurinn Mark Molson sem
oft hefur spilað á Bridgehátíð og
unnið bæði tvímenninginn og sveita-
keppnina; og Bandaríkjamaðurinn
Bart Bramley. Bramley var meðal
annars í bandaríska Iiðinu sem Island
sló út í 8 liða úrslitum á heimsmeist-
aramótinu í Yokohama.
Loks kemur sveit frá írlandi, skip-
uð Keith Singleton, Robin Burns,
Heidi Lillis og Michael McGlouchlin.
Tvímenningskeppni Bridgehátíðar
hefst klukkan 19 á föstudagskvöld
og verður spilað til tæplega 1. Á
laugardegi hefst spilamennska
klukkan 11 og lýkur um kl. 20. Svei-
takeppnin hefst klukkan 13 á sunnu-
dag og aftur klukkan 13 á mánu-
dag. Bridgehátíð lýkur síðan um
kvöldmatarleytið á mánudag en þá
verður verðlaunaafhending fyrir
bæði mótin. Eins og í Kauphallarmót-
inu í vetur ber karlkynskeppendum
í tvímenningsmótinu skylda til að
klæðast jakkafötum og kvenspilarar
eiga að klæðast samsvarandi klæðn-
aði.
Nýjar kennslubækur
Tvær íslenskar bækur um brids
komu út fyrir skömmu. Önnur er
Kennslubók í brídge fyrír byijendur
eftir Guðmund Pál Amarson og hin
er Precisionsagnkerfið eftir Viðar
Jónsson.
Það er vandaverk að skrifa að-
gengilegar kennslubækur um brids.
Guðmundur Páll, sem hefur raunar
haft bridskennslu að atvinnu í nokk-
ur ár, kann þá list vel og bókin hans
virðist fyllilega jafnast á við þær
erlendu kennslubækur sem helst hef-
ur verið hampað. Bókin er vel sett
upp og aðgengilega, oft er stoppað
við að rifja upp það sem áður hefur
verið farið yfir og lærdómurinn
styrktur með æfingadæmum. Byij-
endur sem lesa bókina hafa því ör-
ygglega bæði gaman af og verða
orðnir vel rúbertufærir í bókarlok.
Betri meðmæli er varla hægt að
gefa kennslubók og að auki kostar
bókin aðeins 1.500 krónur.
Þeir sem hafa lokið við bók Guð-
mundar Páls geta sem best rennt
yfir í bók Viðars Jónssonar um Prec-
isionkerfið. Þar lýsir Viðar uppbygg-
ingu þessa sagnkerfis, sem fór eins
og eldur í sinu um bridsheiminn fyr-
ir um aldarfjórðungi en hefur nú
heldur iátið undan síga. Aðalkostur
Precision er hvað grunnkerfið er ein-
falt og það hentar því ágætlega spil-
urum sem eru að feta sig af stað í
keppnisbrids og þeir sem lengra eru
i komnir geta síðan bætt við sagnvenj-
um og breytt útfærslum eftir smekk.
Bókin skiptist í þijá hluta. í þeim
fyrsta er farið yfír grunnkérfið, í
þeim næsta er farið yfir algengustu
viðbætur, svo sem spurnarsagnir, og
í þriðja hlutanum lýsir Viðar uppá-
haldsútfærslu sinni á kerfínu. Með
þessu móti fær lesandinn ágætis
vitneskju um það hvernig sagnkerfi
eru uppbyggð og hvernig hægt er
að breyta uppbyggingu þeirra þótt
grunnurinn sé sá sami.
Helsti gallinn við bók Viðars er
uppsetningin og prentunin. Bókin er
prentuð á venjulegan tölvuprent-
arara í stað geislaprentara og upp-
setningin er alls ekki nægilega að-
gengileg. Verðið er 1.500 krónur.
Ertu orðinn of seinn
með skattframtalið?
Frestur til að skila inn skattframtali fyrir einstaklinga renn-
ur út í dag. Hafðu þín mál á hreinu.
- Sæki um frest til skattstjóra.
- Tel fram fyrir einstaklinga og rekstraraðila.
- Áætla skatta.
Hafðu samband.
Halldór Lárusson, hagfræðingur,
Hafnarstræti 19, sími 624061.
Síðustu sætin - 2 vikur ókeypis
Eldriborgaraferð
til Kanarí
13. apríl - 40 dagar
Doncel seldist upp -
viðbótsrhús á Duna Beach
Okkur er það ánægja að kynna sérstaka
eldriborgaraferð þann 13. apríl til Kanarí, þar sem veðrið
er á þeim tíma einstaklega gott. Með frábærum
samningum höfum við samið við gististaði okkar um
ótrúleg kjör, þú dvelur í 40 daga á Kanarí, borgar það
sama og fyrir þriggja vikna ferð og færð því 2 vikur
ókeypis. Undirtektir við Kanaríferðum Heimsferða hafa
verið einstakar í vetur og æ fleiri íslendingar kynna sér
þessa heillandi paradís.
Aðeins kr. 59.900
pr. mann m.v. 3 í smáhýsi, Duna Beach.
Kr. 67.400,-
pr. mann m.v. 2 í smáhýsi, Duna Beach.
Flugvallarskattar: 3.660 fyi-ir fullorðna
Frábær aðbúnaður
Duna Beach gisitstaðurinn hefur verið einstaklega
vinsæll meðal farþega okkar í vetur og í fyrra.
Stórgóð aðstaða með mjög fallegum garði og 4
sinnum á dag er ókeypis rúta inn í miðbæ Ensku
strandarinnar.
íslenskur hjúkrunarfræðingur
Við tryggjum þér örugga þjónustu í friinu og
íslenskur hjúkrunarfræðingur verður með hópnum
allan tímann.
Þjónusta Heimsferða
1. Beint leiguflug án millilendingar
2. Þrif 5 sinnum í viku á gististað
3. Spennandi kynnisferðir
4. Islenskir fararstjórar
5. Isienskur hjúkruanrfræðingur
air europa « TURAVIA
HEIMSFERDIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
ÚTSALAN í FULLUM GANGI
Ath: Tökum upp nýjar vörur á hverjum degi
rinn
VELTUSUNDI • SÍMI 21212