Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.02.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 25 Vinir Stephens Milligans harma niðurlægjandi dauða hans Ekki talið að hann hafi verið myrtur Líklega um slys að ræða við afbrigðilega kynlífsathöfn London. The Daily Telegraph. LÖGREGLAN í London telur, að breski þingmaðurinn Stephen Milligan hafi verið einn í íbúð sinni þegar hann lést og hann hafi ekki verið myrtur. Er helst hallast að því, að hann hafi með afbrigði- legum hætti verið að leita eftir kynferðislegi'i fullnægingu, sem hafi meðal annars falist i eins konar sjálfkyrkingu og hugsanlega inntöku örvandi lyfja. Komið var að Milligan látnum á heimili sínu í Hammersmith í Vest- ur-London á mánudag og var hann nakinn að öðru leyti en því, að hann var í kvenmannssokkum og með plastpoka yfir höfðinu. Um háls hans var rafmagnssnúra, sem bund- in hafði verið í snöru, og í munni hans fannst appelsínubiti. Talið var hugsanlegt, að hann hefði haft að geyma öi’vandi lyf, sem ekki er ólöglegt en er stundum notað af samkynhneigðum karlmönnum til að auka á kynnautnina. Samkvæmt, fréttum Sky-sjónvarpsins bentu fyrstu rannsóknir þó ekki til, að um lyfjanotkun hafi verið að ræða en það var ekki fullkannað. Nautnina er þar að auki unnt að skerpa með því minnka súrefnisflæði til heilans, annaðhvort með því að þrengja að hálsinum með snöru eða setja poka yfir höfuð sér og jafnvel með hvoru tveggja samtímis. Fuilnaðarrannsókn á dauða Miiligans var ekki lokið í gær en hugsanlegt var talið, að banameinið hefði verið kyrking, köfnun eða hjartabilun af völdum súrefnis- skorts og lyljanna. Nýtt Profumo-mál? Dauði Stephens Milligans og það, sem komið hefur í ljós um kringum- stæðurnar, er mikið áfall fyrir breska íhaldsflokkinn og óttast margir, að framtíð Johns Majors og ríkisstjórnarinnar sé í hættu vegna þess og hneykslismálanna að undanförnu. Stjórnarandstaðan hefur að vísu ekki reynt að notfæra sér Milligan-málið í pólitísku skyni en haft er eftir ýmsum, að það sé eins og allur vindur sé úr Ihalds- flokknum. Þykir ástandið nú minna mjög á Profumo-kynlífshneykslið 1963 en það átti þátt í að þáver- andi ríkisstjórn Ihaldsflokksins fór frá ári síðar. Major sjálfur reynir hins vegar að bera sig vel og í gær vísaði hann á bug sem „tómu þvaðri" vangaveltum um, að staða hans sem leiðtoga flokksins og for- sætisráðherra væri í hættu. Omurleg endalok Dauði Milligans er ekki aðeins áfall fyrir íhaldsflokkinn, heldur ekki síður fyrir vini hans og kunn- ingja. Milligan var maður mjög vel gefinn og hæfileikaríkur, fágaður í framkomu og einstaklega hjarta- hlýr. Vinir hans segja, að hafi ein- hver ekki átt það skilið að deyja með svona niðurlægjandi hætti, þá hafi það verið, Stephen Milligan. Ekki er ljóst hvort Milligan var samkynhneigður en svo virðist sem hann hafi átt í einhveijum erfiðleik- um í samskiptum sínum við hitt kynið. Þegar hann stóð í kosninga- baráttunni i Eastleigh var hann í tygjum við blaðakonu og héldu margir, að þar væri á ferðinni vænt- anleg þingmannsfrú. Kosningarnar voru þó ekki fyrr afstaðnar en Milligan sleit sambandinu og grun- ar hana, að hún hafi ekki haft ann- að hlutverk en auka líkur á kjöri hans. Tvisvar sinnum var komið að því, að Milligan gengi í hjónaband en í bæði skiptin snerist honum hugur. í seinna skiptið aðeins fáum dögum fyrir brúðkaupið og eftir að búið var að kaupa brúðarkjólinn og bjóða til veislunnar. Sagt er, að hann hafi tekið þá ákvörðun mjög nærri sér. Ólíkar náttúrur Milligans Stephen Milligan var 45 ára að aldri, fæddur inn í efri millistéttina og lagði stund á stjórnmál, heim- speki og hagfræði við Oxford- háskóla. Þótti hann bera af öðrum á skólaárunum fyrir gáfur og mælsku og það virtist alltaf ljóst, að hann stefndi að þingmennsku fyrir íhaldsflokkinn. Hann hafði áhuga á fuglaskoðun, golfi, skíða- iðkun og gönguferðum og honum þótti gaman að bjóða til sín fólki. Var hann þá jafnan hrókur alls fagnaðar. Vinir Milligans segja, að þetta hafi þó aðeins verið önnur hliðin á honum. Hin, sem kannski var rík- ari, vissi að einfaranum Milligan. Manni, sem naut þess að vera einn með sjálfum sér og augljóslega án þess að leiðast. Grófa beyglan er tilbúin! Grófu beyglurnar eru komnar á markabinn, svo aö nú geturöu valiö um þrjár geröir af beyglum frá Samsölubakaríi: Fínar, grófar og beyglur meö kanil og rúsínum. . Taktu grófa beyglu úr frystinum, kipptu henni í sundur, ristaöu hana, skreyttu meö áleggi og hún er tilbúin og alveg ómótstœöileg! Ný, ennþá fullkomnari skurbarvél tryggir oö beyglurnar eru jafnt skornar og því er nú léttara oö losa frosnar beyglur í sundur. Enginn fannst í vélinni Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins. CESSNA 425 vélin sem sökk í Bodensee í Sviss fyrir rúmum hálfum mánuði var dregin upp úr stöðuvatninu um helgina og flutt til Friedrichshafen í Þýskalandi. Vélin var mannlaus en klæðnaður fannst í henni. Talið er víst að tveir Þjóðverjar og tvær tékk- neskar konur hafi verið um borð ásamt flugmanninum þegar vélin fórst. Þýska lögreglan hefur nú rannsakað vélina og fullyrðir að henni hafi ver- ið nauðlent á vatninu. Flugmaðurinn lét þó ekki vita að eitthvað væri að áður en hann brotlenti vélinni í þoku hinn 24. janúar. Þjóðveijarnir, sem voru með vélina á. leigu, hafa stundað ólögleg við- skipti og óttast var að geislavirkt efni kynni að vera um borð þegar hún fórst. Svo reyndist þó ekki vera. Ekki er vitað hvað varð um farþeg- ana og flugmanninn. Fólkið hafði um fimm minútur til að komast út úr vélinni að sögn lögreglunnar. Eig- andi vélarinnar segir að engin björg- unarvesti hafi verið í henni. Það þyk- ir óliklegt að fólkið hafi getað synt til lands í 5 gráðu köldu vatninu. Ekki sást til neinna báta í kringum slysstaðinn eftir slysið. PABBI/MAMMA Allt fyrir nýfædda barnið ÞUMALÍNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.