Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
25
Vinir Stephens Milligans harma niðurlægjandi dauða hans
Ekki talið að hann
hafi verið myrtur
Líklega um slys að ræða við afbrigðilega kynlífsathöfn
London. The Daily Telegraph.
LÖGREGLAN í London telur, að breski þingmaðurinn Stephen
Milligan hafi verið einn í íbúð sinni þegar hann lést og hann hafi
ekki verið myrtur. Er helst hallast að því, að hann hafi með afbrigði-
legum hætti verið að leita eftir kynferðislegi'i fullnægingu, sem
hafi meðal annars falist i eins konar sjálfkyrkingu og hugsanlega
inntöku örvandi lyfja.
Komið var að Milligan látnum á
heimili sínu í Hammersmith í Vest-
ur-London á mánudag og var hann
nakinn að öðru leyti en því, að hann
var í kvenmannssokkum og með
plastpoka yfir höfðinu. Um háls
hans var rafmagnssnúra, sem bund-
in hafði verið í snöru, og í munni
hans fannst appelsínubiti. Talið var
hugsanlegt, að hann hefði haft að
geyma öi’vandi lyf, sem ekki er
ólöglegt en er stundum notað af
samkynhneigðum karlmönnum til
að auka á kynnautnina. Samkvæmt,
fréttum Sky-sjónvarpsins bentu
fyrstu rannsóknir þó ekki til, að um
lyfjanotkun hafi verið að ræða en
það var ekki fullkannað. Nautnina
er þar að auki unnt að skerpa með
því minnka súrefnisflæði til heilans,
annaðhvort með því að þrengja að
hálsinum með snöru eða setja poka
yfir höfuð sér og jafnvel með hvoru
tveggja samtímis.
Fuilnaðarrannsókn á dauða
Miiligans var ekki lokið í gær en
hugsanlegt var talið, að banameinið
hefði verið kyrking, köfnun eða
hjartabilun af völdum súrefnis-
skorts og lyljanna.
Nýtt Profumo-mál?
Dauði Stephens Milligans og það,
sem komið hefur í ljós um kringum-
stæðurnar, er mikið áfall fyrir
breska íhaldsflokkinn og óttast
margir, að framtíð Johns Majors
og ríkisstjórnarinnar sé í hættu
vegna þess og hneykslismálanna
að undanförnu. Stjórnarandstaðan
hefur að vísu ekki reynt að notfæra
sér Milligan-málið í pólitísku skyni
en haft er eftir ýmsum, að það sé
eins og allur vindur sé úr Ihalds-
flokknum. Þykir ástandið nú minna
mjög á Profumo-kynlífshneykslið
1963 en það átti þátt í að þáver-
andi ríkisstjórn Ihaldsflokksins fór
frá ári síðar. Major sjálfur reynir
hins vegar að bera sig vel og í gær
vísaði hann á bug sem „tómu
þvaðri" vangaveltum um, að staða
hans sem leiðtoga flokksins og for-
sætisráðherra væri í hættu.
Omurleg endalok
Dauði Milligans er ekki aðeins
áfall fyrir íhaldsflokkinn, heldur
ekki síður fyrir vini hans og kunn-
ingja. Milligan var maður mjög vel
gefinn og hæfileikaríkur, fágaður í
framkomu og einstaklega hjarta-
hlýr. Vinir hans segja, að hafi ein-
hver ekki átt það skilið að deyja
með svona niðurlægjandi hætti, þá
hafi það verið, Stephen Milligan.
Ekki er ljóst hvort Milligan var
samkynhneigður en svo virðist sem
hann hafi átt í einhveijum erfiðleik-
um í samskiptum sínum við hitt
kynið. Þegar hann stóð í kosninga-
baráttunni i Eastleigh var hann í
tygjum við blaðakonu og héldu
margir, að þar væri á ferðinni vænt-
anleg þingmannsfrú. Kosningarnar
voru þó ekki fyrr afstaðnar en
Milligan sleit sambandinu og grun-
ar hana, að hún hafi ekki haft ann-
að hlutverk en auka líkur á kjöri
hans.
Tvisvar sinnum var komið að
því, að Milligan gengi í hjónaband
en í bæði skiptin snerist honum
hugur. í seinna skiptið aðeins fáum
dögum fyrir brúðkaupið og eftir að
búið var að kaupa brúðarkjólinn og
bjóða til veislunnar. Sagt er, að
hann hafi tekið þá ákvörðun mjög
nærri sér.
Ólíkar náttúrur Milligans
Stephen Milligan var 45 ára að
aldri, fæddur inn í efri millistéttina
og lagði stund á stjórnmál, heim-
speki og hagfræði við Oxford-
háskóla. Þótti hann bera af öðrum
á skólaárunum fyrir gáfur og
mælsku og það virtist alltaf ljóst,
að hann stefndi að þingmennsku
fyrir íhaldsflokkinn. Hann hafði
áhuga á fuglaskoðun, golfi, skíða-
iðkun og gönguferðum og honum
þótti gaman að bjóða til sín fólki.
Var hann þá jafnan hrókur alls
fagnaðar.
Vinir Milligans segja, að þetta
hafi þó aðeins verið önnur hliðin á
honum. Hin, sem kannski var rík-
ari, vissi að einfaranum Milligan.
Manni, sem naut þess að vera einn
með sjálfum sér og augljóslega án
þess að leiðast.
Grófa
beyglan
er
tilbúin!
Grófu beyglurnar eru komnar á
markabinn, svo aö nú geturöu valiö
um þrjár geröir af beyglum frá
Samsölubakaríi: Fínar, grófar og
beyglur meö kanil og rúsínum. .
Taktu grófa beyglu úr frystinum,
kipptu henni í sundur, ristaöu hana,
skreyttu meö áleggi og hún er
tilbúin og alveg ómótstœöileg!
Ný, ennþá fullkomnari skurbarvél
tryggir oö beyglurnar eru jafnt
skornar og því er nú léttara oö
losa frosnar beyglur í sundur.
Enginn
fannst í
vélinni
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
CESSNA 425 vélin sem sökk í
Bodensee í Sviss fyrir rúmum
hálfum mánuði var dregin upp úr
stöðuvatninu um helgina og flutt
til Friedrichshafen í Þýskalandi.
Vélin var mannlaus en klæðnaður
fannst í henni. Talið er víst að
tveir Þjóðverjar og tvær tékk-
neskar konur hafi verið um borð
ásamt flugmanninum þegar vélin
fórst.
Þýska lögreglan hefur nú rannsakað
vélina og fullyrðir að henni hafi ver-
ið nauðlent á vatninu. Flugmaðurinn
lét þó ekki vita að eitthvað væri að
áður en hann brotlenti vélinni í þoku
hinn 24. janúar.
Þjóðveijarnir, sem voru með vélina
á. leigu, hafa stundað ólögleg við-
skipti og óttast var að geislavirkt
efni kynni að vera um borð þegar
hún fórst. Svo reyndist þó ekki vera.
Ekki er vitað hvað varð um farþeg-
ana og flugmanninn. Fólkið hafði um
fimm minútur til að komast út úr
vélinni að sögn lögreglunnar. Eig-
andi vélarinnar segir að engin björg-
unarvesti hafi verið í henni. Það þyk-
ir óliklegt að fólkið hafi getað synt
til lands í 5 gráðu köldu vatninu.
Ekki sást til neinna báta í kringum
slysstaðinn eftir slysið.
PABBI/MAMMA
Allt fyrir nýfædda barnið
ÞUMALÍNA