Morgunblaðið - 10.02.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.02.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1994 13 Ofleikur Olafs Ragnars eftir Björn Bjarnason Framganga Ólafs Ragnars Gríms- sonar, formanns Alþýðubandalags- ins, vegna bréfs Arthúrs Björgvins Bollasonar til formanns Stéttarsam- bands bænda um málefni Ríkisút- varpsins hefur verið með ólíkindum. Ætlaði flokksformaðurinn greini- lega að nota þetta furðulega tiltæki fyrrverandi aðstoðarmanns Heimis Steinssonar útvarpsstjóra til að skáka Davíð Oddssyni forsætisráð- herra. Ólafur Ragnar hélt hins vegar þannig á málum, að nú hljóta flokks- menn hans og stjórnarandstæðingar á Alþingi að velta fyrir sér, hvers virði sé að lúta forystu hans. Davíð Oddsson lýsti yfir því í þingræðu, að hann myndi aldrei sitja sem for- sætisráðherra í skjóli Ólafs Ragnars. Þegar Ólafur Ragnar efnir til póli- tísks upphlaups er það eitt helsta einkenni á málflutningi hans, að hann hörfar úr einu vígi í annað. Honum er sama, hvort hann fer með rétt mál eða rangt, svo framarlega sem hann getur látið eins og hann sé að upplýsa einhvern stórasann- leika og andstæðingurinn eigi erfitt með að veijast. A sunnudag hélt hann fast við þá skoðun, að daginn eftir yrði forsætisráðherra að gera Alþingi grein fyrir missögnum sínum um fund með Heimi Steinssyni. Á mánudag þegar hann átti í orða- skiptum við ráðherrann á þingi sner- ist málflutningur Ólafs Ragnars ekki um þetta heldur hitt, að Davíð Odds- son væri ósannindamaður vegna einkabréfs, sem hann hefði ritað Heimi Steinssyni í apríl 1993. Krafan um að Davíð gerði grein fyrir missögnum sínum var sett fram, þegar forsætisráðherra var fjarstaddur og gat ekki svarað fyrir sig á staðnum. Dylgjurnar um bréfið til Heimis Steinssonar voru hafðar í frammi, þegar Heimir var íjar- staddur og gat ekki staðfest um- mæli forsætisráðherra um eðli þess. Nú blasir við öllum, að jafneinföld aðferð og að vísa til dagsetninga sviptir stoðunum undan stóryrðum Ólafs Ragnars. Er það ekki í fyrsta sinn sem svo auðvelt reynist að af- hjúpa loddarabrögðin. Eyðimerkurgangan Ólafur Ragnar Grímsson virðist hafa áttað sig á því, að utanríkis- stefna flokksins, sem hann veitir formennsku, hefur gengið sér til húðar. Honum er ljóst, að hann get- ur ekki á trúverðugan hátt tekið þátt í starfi á alþjóðlegum vett- vangi, sé hann andvígur Atlants- hafsbandalaginu (NATO) og meg- instefnu aðildarþjóða þess í öryggis- málum. Með framgöngu sinni í þess- um málum hefur hann leitast við að breyta ímynd Alþýðubandalagsins, þótt hann hafi orðið að lúta í lægra haldi á landsfundi flokksins, sem ályktaði gegn NATO. Margir hafa túlkað þessa afstöðu flokksform- annsins á þann veg, að á fleiri svið- um væri hann reiðubúinn til að sveigja Alþýðubandalagið af leið for- stokkaðs sósíalisma og afturhalds- stefnu. Hann vildi gera flokkinn gjaldgengan í borgaralegu sam- starfi. Þótt menn vilji líta á þessa við- leitni flokksformannsins af fullri vin- semd og meta hana á efnislegum forsendum, er ekki unnt að treysta á staðfestu, þegar á reynir. Yfirlýs- ing forsætisráðherra, um að hann muni aldrei sitja í embætti sínu í skjóli Ólafs Ragnars, sýnir, að eyði- merkurganga Alþýðubandalagsins hefur alls engan enda tekið. Eru Ólafi Ragnari nú ekki margir kostir tækir, vilji hann að nýju verða gjald- Björn Bjarnason „Ólafur Ragnar hélt hins vegar þannig á málum, að nú hljóta flokksmenn hans og stjórnarandstæðingar á Alþingi að velta fyrir sér, hvers virði sé að lúta forystu hans.“ gengur í alvöruumræðum um stjórn lands og þjóðar. Veik stjórnarandstaða Besta staðfestingin á því, hve vel er haldið á málum af hálfu ríkis- stjórnar Davíðs Oddssonar, fæst með að líta á það, sem stjórnarandstaðan kýs að gera að ágreiningsefnum. Þegar rætt er við Bandaríkjamenn um varnir og öryggi þjóðarinnar, beinir stjórnarandstaðan athygli sinni að því, hvort utanríkisráðherra skýri utanríkismálanefnd Alþingis nægilega ítarlega frá gangi mála. Þegar ríkisstjórnin stöðvar verkfall sjómanna með bráðabirgðalögum, býr stjórnarandstaðan það til að for- sætisráðherra hafi blekkt forseta íslands. Þegar út.varpsstjóri víkur einkaráðnum aðstoðarmanni sínum frá störfum, krefst stjórnarandstað- an þess að forsætisráðherra segi af sér. Eg nota orðið stjórnarandstaða, vegna þess að í þeim þremur tilvik- um, sem hér eru nefnd, hafa tals- menn Framsóknarflokksins og Kvennalistans látið Ólaf Ragnar Grímsson gefa sér tóninn og síðan tekið undir með honum. Þegar þann- ig er að málum staðið á Alþingi Is- lendinga, hljóta að vakna efasemdir í hugum margra um gildi þess starfs, sem þar er unnið. Er þetta karp um hugarburð miklu alvarlegri löstur á störfum Alþingis en hitt, að þrískipt- ing valdsins virki í reynd með því að dómstólar láti í Ijós skoðun sína á efni laga. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hef- ur tekist á við mörg erfið viðfangs- efni á ferli sínum. Stjórnin hefur komist vel frá þessum málum. og stuðningslið hennar á Alþingi hefur sýnt, að það bognar ekki. Þingum- ræðurnar á mánudag um hið dæma- lausa bréf drógu skýrar fram en áður muninn á milli ábyrgrar stjórn- arforystu og óábyrgrar forystu stjórnarandstöðunnar, sem er trausti rúin. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisfiokksins. Nýtt f rá 5S7SJ3 Sérbyggður þykktar- hefill og afréttari MEG frá ABET UTAN ÁHÚS FYRIRLIGGJANDI £8 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 STORU Á STURTUKLEFUM, BAÐINNRÉTTINGUM, HREINLÆTISTÆKJUM OG HURÐAHANDFONGIN AZUR m/öryggisgleri Klefi kr. 23.778,- stgr. ELBA m/öryggisgleri Hurð 80 kr. 14.931,- stgr. Hurð 90 kr. 15.771,- stgr. Hlið 80 kr. 11.323,-stgr. Hlið 90 kr. 12.542,- stgr. Opið laugardag kl. 10-14 BYGGINGAVÖRUR Skeifunni 11 b, sími 681570 SAN REM0 m/öryggisgleri Sturtuklefi kr. 54.611,- stgr. Sturtubotn kr. 13.000,- stgr. CAPRI m/öryggisgleri Sturtuklefi kr. 32.717,- stgr. Sturtubotn kr. 13.000,- stgr. Innihurðahandfög fyrir Assa og þýskar skrár. Formfögur lína frá Eurobrass. Verð frá kr. 1.771 Þýskar baðinnréttingar. Verð frá kr. 44.000,-. NAPOLI 1200 mm kr. 9.445,- Stgr. EURO 70—80 kr. 9.480,- 80—90 kr. 9480,- stgr. Aquabella baðherbergisáhöld úr messing, krómi, króm/hvítt og króm/messing. Glæsilegt úrval á kjaraverði. 40% afsláttur. mommmm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.