Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 38

Morgunblaðið - 10.02.1994, Síða 38
38 MQRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 fólk í fréttum VARNARLIÐSMENN Heiðraðir fyrir afreksverk Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra heiðr- voru skipveijar Goðans og fleiri. Eins og skýrt var aði þyrluflugbjörgunarsveit vamarliðsins sl. frá hér í blaðinu fyrir skömmu voru varnarliðsmenn fímmtudagskvöld fyrir það afrek að bjarga áhöfn nýlega heiðraðir af Björgunarfélaginu hf., sem gerði Goðans af strandstað í Vöðlavík. Meðal viðstaddra út Goðann. í fremri röð sitja skipsbrotsmennimir (f.v.) Kristbjöm Guðlaugsson, Níels Hansen, Sigmar Ægir Björg- vinsson, Krislján Sveinsson, Ómar Sigtryggsson og Marijan Marino Krajaccic. í aftari röð era Michael D. Haskins flotaforingi og yfirmaður vamarliðsins, Richard B. Cross, Gary Copsey flugmaður í Vöðla- víkurferð, Matt Wells sem seig niður á Goðann, flugstjórinn Cariene Blumentritt, James A. Sills yfirmað- ur björgunarsveitarinnar og flugstjóri í ferðinni, Jeff Frembling flugvélstjóri og spilmaður í ferðinni, Gary Henderson flugmaður, Bill Payne flugvélstjóri og spilmaður, Greg Reed sigmaður, Jesse Goerz sem seig niður á Goðann og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. L Harry Hamlin ásamt nýju kærastunni Lisu Rinna. STJÖRNUR Binst alltaf leikara Leikarinn Harry Hamlin, sem þekktur er úr sjón- varpsþáttunum Lagakrók- um, hefur ekki góða reynslu af því að vera kvæntur leik- konum. í það minnsta hefur hann tvisvar skilið við slíkar, en það eru þær Laura John- son og Nicolette Sheridan. Þrátt fyrir að vinir hans hafi ráðlagt honum að bindast ekki leikkonu aftur lét hann það eins og vind um eyru þjóta og hefur tekið saman við Lisu Rinna, sem lék síð- ast í Days of Our Lives. Hamlin svarar gagnrýninni á þann veg, að væri hann gift- ur lögfræðingi hvernig gæti hann þá ætlast til þess að eiginkonan skildi vonbrigðin þegar honum hefði verið neit- að um hlutverk? FJ OLSKYLDULIF Bulger-hjónin hafa eignast barn að nýju Foreldrar James litla .Bul- gers, sem myrtur var á svo hroðalegan hátt í Liver- pool fyrir um það bil ári, hafa nú eignast lítinn dreng að nýju. Drengurinn, sem tekinn var með keisaraskurði þremur vikum fyrir tímann rétt fyrir áramótin, hefur fengið nafnið Michael. Þrátt fyrir að foreldr- arnir séu ungir að árum, eða 25 ára, er Michael þriðja bam þeirra, en fyrsta bamið, stúlka, fæddist andvana. For- eldramir gleðjast að sjálfsögðu yfir hinu nýfædda bami, en segja að enginn komi í staðinn fyrir James og þau fínni enn til sársauka og hræðslu vegna atburðarins. Denise og Ralph Bulger með Michael. Morðið á James Bulger hafði mikil áhrif á fólk um allan heim. Morgunblaðið/Arni Sæberg Davíð Oddsson forsætisráðherra les úr bók Matthíasar Johannessen um Jónas Hallgrímsson. Morgunblaðio/Þorkell Birta Rós Arnórsdóttir ásamt kærasta sínum, Vilhjálmi Vagni Steinarssyni. Hún segist eiga marga framtiðardrauma, en reikn- ar fastlega með að söngurinn taki sinn skerf. SÖNGUR Trúbadorinn sem spilar fótbolta Birta Rós Amórsdóttir 17 ára kvennaskólanemi hefur ekki komið fram sem trúbador nema í einkasamkvæmum hjá hinum ýmsu félagasamtökum, en þar hefur hún líka vakið verðskuldaða athygli fyr- ir söng sinn og framkomu. Nýlega kom hún fram á konukvöldi Lions- klúbbsins Engeyjar á Ömmu Lú og áttu konumar ekki orð yfir hversu vel hún stóð sig, enda er stúlkan sögð hafa farið að syngja áður en hún fór að tala. Þá er henni í blóð borið að vera fijálsleg og leika það sem hún er að syngja. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom fram á svona stórri skemmtun," sagði Birta Rós í samtali við Morgunblað- ið og viðurkenndi að hún hefði ver- ið örlítið stressuð. „Það var bara áður en ég kom fram. Um leið og ég er komin á svið hverfur allt óöryggi. Ég syng líka bara þau lög sem mér fínnast skemmtileg,“ sagði hún. Birta Rós hóf nám í Tónlistar- skóla Gerðahrepps 7 ára gömul og söng einsöng árið eftir með kóm- um. Þegar hún fann síðar meir gamlan gítar móður sinnar ásamt gítarbók dundaði hún sér við að læra á hann. Árangurinn lét ekki á sé standa, því í 9. bekk vann hún hæfileikakeppni í Gerðaskóla í Garði þar sem hún býr. Eftir það fór boltinn að rúlla og hún varð eftirsóknarverð hjá bamastúkum, Kiwanisklúbbum, kvenfélögum, Li- onsklúbbum og fleirum. Þá hefur hún einnig sungið þrívegis í brúð- kaupum og segir það hafa gengið vel. Þegar hún var spurð hvort hún hafí sungið fyrir félaga sína í Kvennaskólanum kvaðst hún hafa sungið „karaoke" á Eplaballinu í fyrra. „Ég tók einnig þátt í for- keppni í söngvakeppni framhalds- skólanna. Hafnaði þar í þriðja sæti og varð alveg bijáluð, því ég stefni hátt,“ sagði Birta og ljóst er að keppnisskapið er mikið. „Ég var reyndar búin að lýsa því yfír að ég tæki aldrei aftur jþátt í henni af því ég vann ekki. Eg skipti svo um skoðun og hafði hugsað mér að vera með, en æfíngar hafa verið svo fáar með hljómsveitinni, að ég efast um að ég láti verða af því.“ Þrátt fyrir að Birta stundi skól- ann, sönginn og kærastann gefur hún sér tíma til að spila fótbolta með meistaraflokki Víðis í Garði. „Ég hef spilað með þeim í um það bil ár og finnst það alveg rosalega gaman,“ sagði hún og var ekki á því að það væri of tímafrekt. Sagði þó að framundan væm miklar æf- ingar vegna íslandsmeistaramóts- ins í vor. Birta Rós hyggst leggja frekari rækt við tónlistina og byijaði í haust í einkatímum hjá Mörtu Hall- dórsdóttur söngkonu. „Við emm að reyna að finna út hvaða rödd ég hef, því ég hef yfírleitt sungið dægurlög eingöngu,“ sagði hún. „Ég held alveg tvímælalaust áfram hjá Mörtu, ef hún vill hafa mig, því hún er frábær."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.