Morgunblaðið - 10.02.1994, Page 52
Whp1 hewlett
wLfÍM PACKARD
-----------UMBOÐIÐ
HP Á fSLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLADJD, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SlMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKVREYRh HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/RAX
Eins og tíu Esjur væru á ferðinni
SKRIÐIÐ í Síðujökli er nú í nær öllum jökl-
inum sem er í suðvesturhluta Vatnajökuls,
en magnið sem er á verulegri hreyfingu
með tilþrifamiklum hljóðmyndunum er um
200 milljarðar rúmmetra af ís, eða ámóta
magn og 10 Esjur á Kjalarnesi væru á sigl-
ingu. Jökulskriðið er á 350 ferkílómetra
svæði sem er þrisvar sinnum stærra en allt
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur að flatar-
máli og um 500 metra þykkt. Jökullinn sem
skríður fram er um 50 km langur og 5-10
km breiður.
Sérfræðingar frá Orkustofnun og Raun-
vísindastofnun Háskólans voru að störfum
við Síðujökul í gær og fylgdi Morgunblaðið
þeim í vélsleðaleiðangri. Á stórum hluta
jökulrandarinnar hrannast nú upp úfínn og
mikilúðlegur jökulruðningur tuga metra
hár. Meðal þess sem vísindamenn reyna að
kanna til hlítar eru allar mögulegar ástæður
fyrir slíkum náttúruhamförum sem tengjast
á engan hátt eldsumbrotum eða hitamynd-
unum svo vitað sé. Þar sem jökulskriðið var
hraðast í gær mældist það um 3 metrar á
klukkustund, en meðalhraðinn er um 20 m
á dag og reikna vísindamenn með að jökull-
inn skríði allt að 1,5 km fram.
Sjávarútvegsráðherra um hindranir á innflutningi fisks til Frakklands
Trúi ekki öðru en Frakkar
falli fljótt frá aðgerðum
Engar trúverðugar skýringar segir utanríkisráðherra,
en sendiherra Frakka voru afhent formleg mótmæli í gær
Handtek-
inn aftur
og aftur
LÖGREGLAN handtók í fyrri-
nótt pilt á 17. ári sem skömmu
áður hafði stolið bíl við Dreka-
vog. Sami piltur var handtekinn
ásamt félaga sínum i innbroti í
söluturn aðfaranótt þriðjudags-
ins. Almenn lögregla handtók
piltinn 13 sinnum á síðasta ári
og 14 sinnum árið þar áður. Á
síðasta ári kom hann við sögu
hjá RLR vegna rúmlega 20 af-
brotamála.
Eftir handtökuna aðfaranótt
þriðjudags var pilturinn færður í
<._.Héraðsdóm þar sem honum var
birt ákæra vegna sjö afbrota sem
verið er að taka til dómsmeðferð-
ar. Fyrir jól var til meðferðar fyrir
Héraðsdómi mál gegn honum
vegna 21 afbrots.
----» ♦ ♦---
Hannes í
efstasæti
TVEIR ungir skákmenn, þeir
Hannes Hlífar Stefánsson og
Rússinn V. Zvjagninsev, eru nú
efstir og jafnir á Reykjavíkur-
skákmótinu með 4'/2 vinning
hvor.
Zyjagninsev vann Sokolov í 5.
umferðinni í gær og Hannes vann
skák sína við Atalik seint í gær-
kvöldi. Hann færðist því upp fyrir
van der Sterren sem er í þriðja
sæti með 4 vinninga.
----♦ ♦ ♦
Vonskuveður
'víða um land
ROK OG rigning ganga yfir
landið árla dags í dag og er
búist við að veðrið nái hámarki
milli klukkan 6 og 9 fyrir há-
degi sunnan- og vestanlands.
Hjá Veðurstofunni fengust þær
upplýsingar að vindhraði færi upp
í 10 vindstig þegar mest Iætur.
Lægðin sem veldur veðrinu kemur
að landinu suðvestanverðu. Verst
verður veðrið til að byija með á
Suður- og Vesturlandi. Stór-
streymt er og verður háflóð við
suðurströndina um sjö-leytið. Þeg-
ar líður á daginn færist lægðin
* yfír landið og verður farið að
hvessa á austanverðu landinu þeg-
ar líður á daginn.
Sjá veðurkort og spá á bls. 4.
„ÞESSAR aðgerðir Frakka, inn-
flutningsbann á íslenskan fisk, eru
skýlaust brot á EES-samningnum.
Eg trúi ekki öðru en Frakkar falli
fljótt frá þessum aðgerðum. Það
er því of snemmt að segja til um
hvort það gæti komið til þess að
karfakvóti Frakka hér við land
verði afturkallaður,11 sagði Þor-
steinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, í gær. Þá höfðu islensk
yfirvöld afhent sendiherra Frakka
formleg mótmæli við hindrunum
þeim sem fiskinnflutningur hefur
verið beittur í Frakklandi sl. tvo
daga. Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, sagði að
Frakkar hefðu engar trúverðugar
skýringar gefið á afstöðu sinni.
Sendiherra Frakklands, Francois
Rey-Coquais, sagði að sér virtist
sem aðgerðirnar væru byggðar á
misskilningi.
Þorsteinn Pálsson sagði að Frakk-
ar hefðu birt auglýsingu um nýja
reglugerð, sem hafí falið í sér bann
við innflutningi frá öðrum löndum en
þeim, sem höfðu uppfyllt tiltekin skil-
yrði um að senda inn lista yfir viður-
kenndar vörutegundir. „í reglugerð-
inni kom fram að fímm þjóðir upp-
fylltu þessi skilyrði, en Island var
ekki þar á meðal,“ sagði hann. „Þó
sendum við slíkan lista inn fyrir rúmu
ári, en Evrópubandalagið bað hins
vegar um að ekki yrði farið að vinna
eftir þessum nýju gæðareglum fyrr
en eftir mitt þetta ár. Það er því alfar-
ið vegna EB sem þessi tilhögun hefur
ekki byijað og þessar aðgerðir
Frakka eru því eins skýlaust brot á
EES-samningnum og hugsast getur.“
Jón Baldvin sagði m.a. að ein sú
skýringa, sem nefndar hefðu verið á
aðgerðum Frakka, væri að EES væri
ekki komið í gildi vegna þess að það
væri undanþága að því er varðaði
gildistöku reglugerðar um heil-
brigðiseftirlit til 1. júlí. Það væri auð-
vitað engin skýring, þarna væri um
undantekningu frá gildistökunni að
ræða. Þá hefði einhver nefnt örygg-
isákvæði samningsins sem skýringu.
„Það er fjarstæða,“ sagði utanríkis-
ráðherra. „Ákvæðið er á þann veg
að ef um er að ræða meiriháttar þj<?ð-
félagslega röskun, hvort heldur er
efnahagslega, félagslega eða á um-
hverfissviði, þá geti samningsaðilinn,
sem er EB en ekki einstök aðildar-
ríki, tekið málið upp til samráðs inn-
an EES-nefndarinnar.“ Jón Baldvin
bætti því við, að hann teldi skýring-
una á málinu einfalda, þ.e. franska
ríkisstjórnin hefði látið undan þrýst-
ingi sjómanna þar í landi.
Sendiherra Frakklands sagði að
sér virtist sem aðgerðirnar væru
byggðar á misskilningi og að um
væri að ræða erfiðleika við að fram-
fylgja nýju reglugerðinni. Um leið og
starfsmönnum tollyfirvalda yrði gerð
grein fyrir hvernig framfylgja skyldi
hertum kröfum muni erfiðleikar við
tollafgreiðslu íslensks fisks verða úr
sögunni.
Sjá bls. 4: „Skýlaust brot..“
Aukning í útlánum bóka
ÞÓRDÍS Þorvaldsdóttir borgarbókavörður segir að útlánum
hafi fjölgað um 10% milli áranna 1992 og 1993. Þá þurfi að
leita allt til ársins 1987 til að fá sambærilega útlánstölu og
fyrir nýliðinn janúar.
„Það er eðli safna að mest er
að gera yfir vetrarmánuðina eða
frá september og fram í maí,“
sagði Þórdís. „Þá er mjög mikið
lánað út. Starfsfólkið hefur merkt
að meira er um útlán auk þess sem
meira er leitað eftir upplýsingum
miðað við síðustu ár.“
Sagði hún hugsanlegt að fólk
væri að verða leitt á myndböndum
en einnig væru fleiri á ferðinni í
atvinnuleysinu og gæfu sér þá
tíma til að koma í safnið. Það
væri reynslan erlendis þar sem
ríkir atvinnuleysi.
„Mér sýnist við verða að fara
allt til ársins 1987 til að fá sam-
bærilega útlánstölu í janúarmán-
uði,“ sagði Þórdís. Allt árið 1993
voru lánaðar nær 760.000 eining-
ar að meðtöldum plötum og mynd-
böndum en lesefni var 744.000
einingar.
Sagði Þórdís að fram til ársins
1987 hafi árleg útlán verið frá
800.000 einingum upp í eina millj-
ón. „Þetta var áður en Stöð 2 kom
til sögunnar," sagði hún. „Með
henni kom mikið af léttum kvik-
myndum, en ég held því fram að
lestur sé farinn að aukast á ný
og fólk er farið að koma aftur í
söfnin."