Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
Morgunblaðið/J úlíus
Stúdentsefni
Morgunblaðið/Sverrir
skemmta sér
STÚDENTSEFNI eru þessa dagana að byrja á próflestri,
en áður en lesturinn hefst sletta þau ærlega úr klaufunum.
Þessar glaðlyndu nunnur urðu á vegi Morgunblaðsins í vik-
unni, en þær voru á leið í bíó til að sjá myndina „Sister Act 2“
í Sambíóunum, sem fjallar einmitt um nunnur. Núna hafa
þessir nemendur svipt sig nunnuklæðunum og sitja nú yfir
námsbókunum og búa sig undir próf. Tæplega 200 nemend-
ur stefna að því að útskrifast úr Verslunarskólanum í vor.
Stúdentar 1 MR dimmiteruðu einnig í gær og klæddu sig
meðal annars upp eins og maríuhænur. Mikil gieði ríkt í
stúdentshópnum, en allir höguðu sér prúðlega eins og sönn-
um maríuhænum sæmir.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 14. APRIL
YFIRLIT: á vestanyerðu Grænlandshafi er 995 mbl leegð sem fer norðaustur.
Skammt vestur af írlsndi er kyrrstæö 1038 mb hæð.
SPÁ: Væg suðvestan gola eða kaldi. Skúrlr eða slydduél við norð- og vesturströnd-
ina en annars þurrt. Hiti 1-8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðvestan- og vestanátt, nokkuð hvöss
á Vestfjörðum og Norðurlandi. Þar má búast við snjókomu um tíma úti við strönd-
ina, en inn til land3ins verður þurrt og nokkuð bjart. Sunnanlands og vestan má
reikna með skúrum, en á Austurlandi verður léttskýjað. Hiti verður vfðast á bilinu
1-7 stig yfir daglnn.
HORFUR Á MÁNUDAG: Otlit er fyrir hæg8n vind, sennilega af norðri. Bjart veður
um mikinn hluta landsins, en þó stydduél norðaustanlands.
Heiðskfrt
r r r * / *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él = Þoka
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjóöur er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
j
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Góð færð er á öllum helstum þjóðvegum landsins en þó er lítillega farið að bera
á umbleytu og til dæmis á Norðausturlandi er sjö tonna öxlþungi a Brekkknaheiði
og Sandvikurheiði.
Upplýsingar um færð eru velttar hjá Vegaeftirliti f sfma 91-631500 og í grænm
línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í gær
Akureyri
Reykjavfk
hití
8
6
UM HEIM
að ísl. tíma
veður
aiskýjað
rígning
Bergen 3 léttskýjað
Helsinki 6 alskýjað
Kaupmannahöfn 5 rigning
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk +9 snjókoma
Ósló 6 alskýjaö
Stokkhólmur 4 súld
Þórshöfn 4 léttskýjað
Algarve 15 skýjað
Amsterdam 4 skúr
Barcelona 9 súld
Berlín 6 rigning
Chicago 8 heiðskírt
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 6 skýjað
Glasgow 5 skýjað
Hamborg 5 skýjað
London 5 skýjað
LosAngeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Madrid 3 léttskýjað
Malaga 11 rigning
Mallorca 10 skýjað
Montreal 8 skýjað
New York 12 skýjað
Orlando 22 skýjað
París 4 skúr
Madeira 14 léttskýjað
Róm 12 þokumóða
Vín 7 skýjað
Washington 13 léttskýjað
Wlnnipeg 6 skýjað
Heimild: Veöuistofa íslands
(Byggt ó veöurspá kl. 16.15 í gær)
/ DAG kl.
ihoa "
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Landanir í russn-
esk vinnsluskip
koma til greina
„AÐ MÍNU mati á að kanna hvort heimila beri landanir á síld og loðnu
úr íslenzkum skipum yfir borðstokk til vinnslu i rússnesk vinnsluskip
gegn því að íslenzk vinnsluskip fái heimild til kaupa á þorski eða veiða
á þorski í rússneskri landhelgi. Atriði af þessu tagi hafa komið til
umfjöllunar islenzkra og rússneskra stjórnvalda, en deilan um Smug-
una hefur hindrað að frekari árangur næðist í slíkum viðræðum," sagði
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, meðal annars á aðalfundi
íslenzkra sjávarafurða í gær.
Þorsteinn sagði, að innflutningur
á fiski til vinnslu væri vaxandi og
við þyrftum meðal annars að geta
jafnað sveiflur í okkar eigin afla með
þessum hætti. „Innflutningurinn hef-
ur aðallega verið frá Rússlandi og
er ekki ólíklegt að hann muni aukast
frá því, sem nú er. Við erum í sam-
keppni við aðrar þjóðir um þetta
hráefni og verðum að gera það, sem
hægt er, til að laða hráefnið hingað.
Við þurfum að reyna að ná í hluta
af þessum afla, en til þess að svo
megi verða, þarf að bjóða Rússum
þjónustu, sem stenzt samanburð við
það, sem bezt gerist hjá keppinautum
okkar. Olíuverð þarf að lækka með
því að fella niður ákvæði núgildandi
laga um flutningsjöfnun og gera
þarf úrbætur varðandi heilbrigðis-
og sóttvarnarmál, þannig að reglu-
gerð þar um skilgreini og samræmi
eftirlitið. Líkt og Norðmenn hafa
gert, þurfum við að leiðbeina Rússum
um hreinlætis- og gæðamál þannig
að fiskur, sem keyptur er frá þeim,
standist þær kröfur, sem við viljum
gera til físks sem framleiddur er hér
á landi,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn sagði síðar, er hann
svaraði fyrirspurnum, að hann teldi
það varasamt að fara að greiða niður
verð á innfluttu hráefni til vinnslu.
Við hefðum gert athugasemdir við
slíkar aðferðir hjá öðrum þjóðum og
gætum því tæpast farið að gera svo
hér. Stefán Guðmundsson, alþingis-
maður, hefur lagt til að sú leið verði
farin til að draga úr atvinnuleysi
meðal annars.
Fjórfaldur pottur í Víkingalottóinu
230-250 milljónir í
vinning í næstu viku
ENGUM vinningshafa áskotnaðist fyrsti vinningur þegar dregið var í
Víkingalottóinu á miðvikudag, en potturinn var þrefaldur, að upphæð
168 milljónir. Potturinn verður því fjórfaldur í næstu viku og er það
í fyrsta skipti sem það gerist, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, fram-
kvæmdasljóra íslenskrar getspár. Hann kveðst reikna með að vinnings-
upphæðin muni nema 230-250 milljónum í næstu viku, sem sé algert met.
Islendingar hafa tvívegis unnið 2,8% af heildarupphæð vinning-
fyrsta vinning í Víkingalottóinu, en
þurft að deila honum með öðrum
vinningshöfum og hafa upphæðirnar
sem hingað hafa runnið annars veg-
ar numið um 11 milljónum króna en
hins vegar um 14 milljónum króna.
Vilhjálmur segir að enn sé smávægi-
legur munur á þeirri upphæð sem
spilaglaðir íslendingar hafa greitt til
Víkingaiottósins og þess sem til baka
hefur komið, en ekki þurfi háan vinn-
ing til að breyta stöðunni íslending-
um í hag. Danir veija nú mestu fé
á hvem íbúa í lottóið og hafa tekið
forystu af íslendingum í þeim efnum,
en íslendingar, sem eru um 1% íbúa-
ljölda á Norðurlöndum, greiða um
spottsins.
Bent á fjármálaráðgjöf
Fleiri tíðindi eru að gerast hjá fs-
lenskri getspá, en fyrsti vinningur í
íslenska lottóinu er þrefaldur um
þessa helgi. Aðspurður um hvort ís-
lensk getspá myndi ráðleggja ein-
hvers konar sálfræðimeðferð eða
aðstoð, skyldi íslendingur hreppa
fyrsta vinning óskiptan í Víkinga-
lottóinu í næstu viku, kvaðst Vil-
hjálmur ekki gera ráð fyrir slíku, en
líkast til yrði vinningshafa bent á
einhvern hlutlausan aðila, s.s. verð-
bréfafyrirtæki, um leiðir til að veija
peningunum á skynsamlegan hátt.