Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 52
JteWiiát
-setur brag á sérhvern dag!
Föstudagur til fjár
Körfuboltar
ÍWOTÖMlÍ
í KRINGLUNNI
MOKGUNBLAÐID, KRINCLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTllÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Böm meina-
tækna fá
ekki vistun
í verkfalli
RÍKISSPÍTALAR hafa ákveðið
að vista ekki börn meinatækna á
barnaheimilum sínum fyrr en
verkfalli lýkur. Undanþága er
veitt vegna starfa við bráðaþjón-
ustu.
Martha Hjálmarsdóttir, formaður
verkfallsstjórnar meinatækna, segir
aðgerðirnar taktlausar og lýsa litl-
um samstarfsvilja ríkisins. Davíð
Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspít-
ala, segir að eðlilegt hafi þótt að
fella niður barnaheimilisvistun á
?ama hátt og laun til meinatækna
enda væru plássin hluti af kjörum
þeirra.
Fyrirframgreiðsla
endurgreidd
Martha sagði að meinatæknum
með böm á barnaheimilum Ríkis-
spítala hefði verið tilkynnt ákvörðun
Ríkisspítala á miðvikudag. Ekki
hefði verið tekið við börnunum, sem
væru um 20, á barnaheimilunum
og svo yrði ekki fyrr en verkfalli
Jyki. Undanþága yrði aðeins veitt
vegna starfa við bráðaþjónustu.
Hvað viðbrögð meinatækna varð-
aði sagði Martha að félagið hefði
krafist þess að fyrirframgreiðsla
vegna vistunar barnanna á heim-
ilunum yrði endurgreidd og hefði
verið gengið að því. Martha sagðist
ekki vita hvort áður hefði verið grip-
ið til aðgerða af þessu tagi af hálfu
Ríkisspítala.
Hægt miðar til lausnar í
kjaradeilunni
Sáttafundur hefur verið boðaður
í kjaradeilunni í dag. Edda Sóley
Óskarsdóttir, formaður Meina-
tæknafélags Islands, sagði að afar
hægt hefði miðað á fjögurra tíma
sáttafundi hjá ríkissáttasemjara í
vikunni Viðræður hefðu átt sér stað
en hvorki hefðu tilboð né aðrir papp-
írar verið lögð fram. Hún sagðist
ósammála því að hætta væri á óbæt-
anlegum óhöppum á spítölum, eins
og fram kom í ályktun læknaráðs
Landspítala á þriðjudag. „Ég er
ekki sátt við að slíkt komi til af
okkar völdum því við sinnum bráða-
þjónustu og vinnum það sem sér-
fræðingamir meta.“
Snjóflóð
úrKirkju-
bólshlíð
SJÖ snjóflóð féllu
úr Kirkjubólshlíð
fyrir ofan flugvöll-
inn á ísafirði síð-
degis á miðviku-
dag. Fyrsta snjó-
flóðið lokaði veg-
inum að flugvellin-
um, næsta fór að
veginum en hin
styttra. Pétur Ás-
valdsson, starfs-
maður Vegagerð-
’ ar ísafjarðar,
sagði að vegurinn
að flugvellinum
hefði verið opn-
aður að nýju í
gærmorgun. Hvað
líkur á fleiri snjó-
flóðum varðaði
sagðist hann gera
- sér vonir um að
það mesta væri
búið í nágrenninu.
Þorskaflinn
ekki minni í
marsmánuði
í tæp 30 ár
ÞORSKAFLI í marsmánuði reynd-
ist vera með minnsta móti og á
tímabilinu frá 1967 hefur hann
aldrei reynst vera minni. Alls
veiddust 24.204 tonn af þorski í
mánuðinum, en á sama tímabili i
fyrra veiddust 37.413 tonn.
Af heildarþorskaflanum í mars
veiddu togarar 6.250 tonn, bátar
16.248 tonn og smábátar 1.706 tonn.
Heildarbotnfiskaflinn í mánuðinum
reyndist vera 57.404 tonn. Af ýsu
veiddust 7.892 tonn, af ufsa veidd-
ust 9.336 tonn, af karfa veiddust
10.546 tonn, af steinbít veiddust
1.307 tonn, af grálúðu veiddust
1.735 tonn, af skarkola veiddust 598
tonn og af öðrum botnfisktegundum
veiddust 1.786 tonn.
Oddaleikir framundan
Morgunblaðið/Kristinn
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni, sækir að marki Valsmanna í leik liðanna í gærkvöldi, en honum lauk með
sigri Stjörnunnar, 18:15. Hvort lið hefur unnið einn leik og þarf oddaleik til að skera úr um hvort þeirra
komist í undanúrslit íslandsmeistaramótsins í handknattleik. Sama er uppi á teningnum í viðureign Víkings
og FH, en annarri viðureign þeirra í gærkvöldi lauk með sigri FH, 24:22. í kvöld lýkur annarri umferð átta
liða úrslita á Islandsmótinu með leik KA og Selfoss á Akureyri og Aftureldingar og Hauka í Mosfellsbæ.
í körfuknattleiknum þarf fimmta leikinn í úrslitaeinvígi Grindavíkur og Njarðvíkur.
Sjá íþróttir bls. 50 og 51.
Hannes eínn
í efsta sæti
HANNES Hlífar Stefánsson er
einn efstur á alþjóðlegu skákmóti
sem nú stendur yfir í Kópavogi.
Hannes er með 5 vinninga eftir 6
umferðir. Næstur kemur Ungverjinn
Almasi með 4,5 vinninga.
A
Þyrlukaupamál Islendinga eru nú komin í algjöra óvissu
Bandadkjamenn tóku tilboð
aftur og báðust afsökunar
ÍSLENSK sljórnvöld óskuðu eftir frekari staðfestingu, á æðri stjórn-
stigum bandaríska stjórnkerfisins, á þeim verðhugmyndum á Sikor-
sky-þyrlum bandaríska sjóhersins, sem bandarísk stjórnvöld kynntu
þeim með tilboði í símbréfi í síðustu viku. Þessi ósk var samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins borin fram vegna þess að íslensk sljórn-
völd töldu að verðtilboð Bandaríkjamanna væri ótrúlega hagstætt.
Bandaríkjamenn báðust afsökunar og sögðu að um misskilning væri
að ræða. Mistök hefðu átt sér stað við sendingu símbréfsins og tölurn-
ar sem þar væru stæðust ekki. Þeir drógu því verðtilboð sitt til
baka og ítreka nú fyrri verðhugmyndir sinar, sem eru í þá veru að
nýleg Sikorsky-þyrla verði seld hingað fyrir um 800 milljónir króna.
Buðu þyrlur á spottprís
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins gerði símbréf banda-
rískra stjórnvalda frá því í síðustu
viku ráð fyrir því' að grunnurinn í
viðræðum íslenskra stjórnvalda og
bandarískra um framtíð þyrlubjörg-
unarsveitarinnar yrði sá að Islend-
ingar keyptu þrjár nýlegar Sikor-
sky-þyrlur á 140 milljónir íslenskra
króna hveija um sig, þannig að
þessar þijár þyrlur ásamt tveggja
ára þjálfunarprógrammi fyrir ís-
lenska starfsmenn þyrlusveitarinn-
ar kostaði íslendinga samtals 420
milljónir króna.
Sjá bls.
þyrlur..."
26-27: „Þijár nýjar
; - -- *hy?7
Morgunblaðið/Ragnar Th. Sigurðsson
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun íslenska ríkisstjórn-
in bíða með frekari ákvarðanir í
þyrlukaupamáli þar til afstaða
Bandaríkjamanna liggur ljós fyrir,
en áætlað er að það verði innan
þriggja vikna. Því verður engin
ákvörðun tekin á fundi ríkisstjórn-
arinnar í dag um það hvort Super
Puma-þyrlan verður keypt, eins og
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra hefur lagt til.
Parker Borg, sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, staðfesti í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að um
misskilning hefði verið að ræða, en
nú hefðu bandarísk stjórnvöld sent
þeim íslensku nýjar upplýsingar,
jafnframt því sem Bandaríkjamenn
væru reiðubúnir til þess að senda
hingað viðræðu- og kynningarnefnd
innan skamms, ef íslensk stjórnvöld
óskuðu eftir því. Borg var í gær
kvaddur á fund Sighvats Björgvins-
sonar, starfandi utanríkisráðherra,
þar sem þess var farið á leit við
bandarísk stjórnvöld að þau skýrðu
afstöðu sína til samninga um ís-
lenska verktöku að því er varðar
rekstur bandarísku þyrlubjörgunar-
sveitarinnar.
Víðtæk leit við Vestmannaeyjar
Alda þreif dreng
með sér á haf út
VÍÐTÆK leit stóð yfir í gærkvöldi að 13 ára göinlum dreng
sem sogaðist út við Stafnes í Vestmannaeyjum. 20 bátar auk
kafara tóku þátt í leitinni og þyrla Landhelgisgæslunnar leit-
aði drengsins fram í myrkur. Leitin liafði engan árangur
borið er blaðið fór í prentun.
Pilturinn var ásamt tveimur
10 ára gömlum drengjum að leik
í klettum þar sem heitir Stafnes,
norðvestan við Heijólfsdal, þegar
alda tók tvo þeirra út. Ánnar
þeirra náði að krafla sig í land,
en hinn bar frá landi. Tveir ferða-
menn voru þar nærstaddir, ís-
lensk kona og erlend, og sendu
þær piltana tvo yfir fjallið í bæ-
inn eftir hjálp. Annar piltanna
var blautur eftir að hafa lent í
sjónum. Það tók piltana um 45
mínútur að komst til byggða og
gera viðvart um slysið, að sögn
lögreglu, sem fékk tilkynninguna
um kl. 18.30. Þá þegar hófst
víðtæk leit.
Konurnar tvær gátu ekkert
aðhafst þar sem drenginn hafði
borið rúma 20 metra frá landi.
Töluverður sjógangur og sog var
við nesið að sögn lögreglu og
ekkert vit í, að hætta sér út eft-
ir honum.