Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 23 Á Siglufirði var tollfrjálst svæði fyrir vini sýslumanns - segir saksóknari - verjendur krefjast sýknu og gagnrýna rannsóknina MÁL ákæruvaldsins gegn Erlingi Óskarssyni fyrrverandi sýslumanni á Siglufirði, Gunnari Guðmundssyni, fyrrverandi yfirlögregluþjóni bæjar- ins, sem ákærðir eru fyrir brot í opinberu starfi, og gegn tveimur mönnum, sem ákærðir eru í sama máli fyrir tollalagabrot, var í gær tekið til dóms í Héraðsdómi Norðurlands vestra að loknum yfirheyrsl- um, vitnaleiðslum og málflutningi. Egill Stephensen saksóknari sagði, að sýslumaðurinn hefði gerst sekur um alvarlegt trúnaðarbrot gagn- vart ríki og almenningi, hann hefði hyglað kunningjum sínum og sjálf- um sér og vanrækt starfsskyldur sínar. „Segja má, að það hafi verið tollfrjálst svæði á Siglufirði fyrir vini sýslumanns," sagði saksóknari. Verjendur sakborninganna kröfðust sýknu af ákærum og fóru hörðum orðum um rannsókn málsins og ákæruna, sem þeir sögðu einkennast af því, að hátt hefði verið reitt til höggs án þess að fyrir hendi væru gögn, sem styddu þær alvarlegu sakir, sem hinir ákærðu embættismenn væru bornir. Sýslumanni er m.a. gefið að sök, að hafa sem uppboðshaldari áskilið sér samtals 1,3 milljónir króna á árun- um 1989-1993 við meðferð uppboðs- mála sem greiðslur frá uppboðsbeið- endum fyrir að sjá til þess að mætt væri af þeirra hálfu við fyrirtökur málanna og hafi hann sjálfur gætt hagsmuna þeirra í málunum. Einnig hafi hann nýtt sér frumrit greiðslust- implaðra kvittana embættisins til gerðarbeiðenda fyrir viðtöku þeirra greiðslna sem runnu til hans fyrir mætingarnar, þannig að misræmi hafi orðið milli frumrita og afrita sem fóru í bókhaldsskjöl embættisins. Egill Stephensen, sækjandi máls- ins, lagði ríka áherslu á að hér væri um að ræða refsiverðan verknað. Sýslumaður hefði engan rétt á svona þóknun og Erlingi hefði í mörg ár tekist að leyna þessu fyrir starfs- mönnum embættisins, sem væri til marks um að hann hefði gert sér grein fyrir að athæfið væri ólöglegt og hann hefði blekkt greiðendur með því að gefa kvittun fyrir greiðslurnar á eyðublöð embættisins. Sýslumaður hefur borið, að hann hafi talið þær tekjur sem hann hafði með þessum hætti fram til skatts, en saksóknari sagði að skoðun á skattframtölum staðfesti ekki þá fullyrðingu. Þijú ákæruatriði varða innflutning til Siglufjarðar frá Þýskalandi á fjór- um hestakerrum frá apríl 1991 til maí 1993, en þar eru sýslumaður og í þremur tilvikum yfirlögregluþjónn sakaðir um ýmis brot, bæði hvað varð- ar ranga útfyllingu aðflutnings- skýrslna, afhendingu kerranna án tollskoðunar og tollafgreiðslu og þátt- töku í því að koma reiðtygjum, 31 hnakk, 91 beisli, auk annars varnings undan tollskoðun. í einu tilvikanna er yfirlögregluþjónninn sakaður um, að hafa þegið mútur með því að þiggja að gjöf undirvagn sem var í einni kerranna gegn því að hann tilgreindi ekki undirvagninn við matsgerð sem honum var falið að gera á verðmæti varningsins. Loks eru yfirlögregluþjónninn og sýslumaðurinn ákærðir fyrir að hafa ekki sinnt þeirri lagaskyldu sinni að afhenda ÁTVR 249 lítra af smygluðu áfengi og 96 dósir af bjór sem lögregl- an á Siglufirði hafði lagt hald á held- ur að eigin sögn farið með áfengið á hauga bæjarins og hellt því þar nið- ur. Um þessi ákæruefni sagði sak- sóknari, að þau væru byggð á frá- sögnum mannanna sjálfra af því hvernig að þessu hefði verið staðið, en saksóknari sagði þann framburð afar ótrúverðugan og skoðun ákæru- valdsins væri sú, að áfenginu hefði verið ráðstafað með allt öðrum hætti. Gjörningaveður Jón Magnússon hrl., veijandi Erl- ings Óskarssonar, krafðist sýknu fyr- ir hönd skjólstæðings síns af öllum refsikröfum ákæruvaldsins. Hann sagði, að við upphaf rannsóknarinnar hefði það verið kynnt á þann veg í fjölmiðlum, að sýslumaður væri stjórnandi smyglhrings og embætti hans miðstöð spiliingar, þyrlað hefði verið upp gjörningaveðri. Sýslumaður hefði lengi gegnt embætti með sóma en hefði orðið að þola neikvæða um- fjöllun og ástæðulausan áfellisdóm og mál hans ekki fengið eðlilega rann- sókn fyir en fyrir dómi. Hátt hefði verið reitt til höggs og miklu til kost- að við rannsóknina, en miðað við þau gögn sem fyrir lægju væri málið lítil- fjörlegt. Varðandi greiðslur þær sem sýslumaður hefði fengið fyrir störf í þágu uppboðsbeiðenda, sagði lögmað- urinn, að sýslumaður hefði ekki sýnt af sér neina refsiverða, ólögmæta háttsemi. Eins og í öðrum umdæmum þar sem lögfræðingar væru ekki starf- andi, hefði það tíðkast um árabil á Siglufirði að lögmenn bæðu sýslu- menn að annast mætingar í uppboðs- málum. Sigluflörður hefði þar ekki skorið sig úr og vísaði lögmaðurinn til framburða lögmanna sem borið hefðu vitni fyrir dóminum um það. Greiðendur hefðu fengið fullnægjandi kvittanir en bókhaldsgögn, sem byggst hefðu á afritum, hefðu ekki verið rangfærð enda hefðu þessar greiðslur ekki staðið í sambandi við embættisstörf sýslumanns og því eng- inn verið blekktur. Lögmaðurinn sagði, að skjólstæð- ingur sinn hefði ávallt neitað vitn- eskju um, að sendandi hestakerranna hefði í tveimur tilvikum sett í þær reiðtygi og annan varning áður en þær voru sendar til íslands. Lögmað- urinn sagði, að í málinu hefði enginn borið um það, að sýslumaðurinn hefði vitað af reiðtygjunum og fullyrðingar um annað í ákæru væru getgátur sem styddust hvorki við framburð sendandans né sonar hans. Hinn raun- verulegi innflytjandi kerranna, sem útfyllt hefði tollskjöl og innflutnings- pappíra, væri ekki ákærður í málinu, en án sönnunargagna væri sýslumað- urinn sakaður um rangfærslu þeirra skjala þrátt fyrir að ekkert í málinu styddi þá kenningu, að hann hefði átt þátt í að útbúa þau. Um ákærur fyrir að skila ÁTVR ekki haldlögðu áfengi sagði lögmaður- inn, að nær daglega gæfí að líta í fjölmiðlum myndir af lögreglumönn- um að hella niður heimabruggi og öðru áfengi án þess að ÁTVR kæmi þar nærri. Þær myndir bentu ekki til, að haldlögðu áfengi væri almennt skilað til ÁTVR. Jónatan Sveinsson hrl. krafðist sýknu fyrir hönd Gunnars Guðmunds- sonar yfírlögregluþjóns og sagði mál þetta óvenjulegt, einkum fyrir þá sök hvernig staðið hefði verið að frum- rannsókn og fyrir það hvaða stefnu dómsmálaráðuneyti hefði tekið í mál- inu, einkum eftir að yfírlögregluþjón- inum var vikið frá um stundarsakir. í október sl. hefði honum svo verið vikið endanlega úr starfí með því að ráðuneytið hefði virt að vettugi réttar- reglur um að stíga ekki slíkt skref fyrr en að lokinni frumrannsókn og fellt dóm yfír yfirlögregluþjóninum í bréfí, þar sem fullyrt væri, að hann hefði gerst sekur um refsiverðan verknað og brotið gegn starfsskyldum sínum. Lögmaðurinn kvaðst sann- færður um, að niðurstöður rannsókn- arinnar hefðu í raun ekki gefíð tilefni til ákæru og kvaðst telja að ákæru- valdið hefði aðeins ákært til að ómerkja ekki fyrrgreind ótímabær og fordæmalaus skref, sem dómsmála- ráðuneytið hafði þá stigið. Lögmaður- inn kvaðst telja, að málflutning sak- sóknara varðandi meintar ávirðingar yfirlögregluþjónsins í sambandi við innflutning kerru og undirvagns, mætti draga saman í orðunum „ég gefst upp“, en þau hefðu verið skila- boð saksóknara til dómsins. Yfírlög- regluþjónninn væri sakaður um, að hafa vísvitandi tilgreint rangt mats- verð kerrunnar og leynt að hún inni- hélt tollskyldan varning, undirvagn, sem hann hefði síðan þegið að gjöf. Þar með væri lögreglumaðurinn sak- aður um mútur, sem væru alvarleg- ustu sakargiftir sem hægt væri að bera á opinberan starfsmarm. Ákæru- vald þyrfti að búa vel til ferðar með svo alvarlegt ákæruefni og leggja fram sönnunargögn þegar játningu væri ekki til að dreifa. Hér væri eng- um gögnunm til að dreifa, sem styddu þær sakargiftir. Þá rakti lögmaöurinn m.a., að hlýðniskylda væri grundvallarskylda opinbers starfsmanns og í þeim atrið- um sem yfirlögregluþjóninum væri gefíð að sök hefði hann einatt verið að framfylgja fyrirmælum yfírboðara síns í góðri trú og samkvæmt bestu samvisku án þess að nokkuð, hvorki vitnisburður, skjöl né önnur gögn, hefði komið fram, sem gegn neitun hans gerði sennilegt, að hann hefði breytt gegn betri vitund eða haft ásetning um, að brjóta af sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.