Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 9 SIEMENS STÓRSKEMMTILEG STÆÐA Á MJÖG GÓÐUVERDI! Geislaspilari • Tvöfalt segulbandstæki • Alvöruútvarp • Tónjafnari • 2 x 30 W • Gæðahátalarar • Fullkomin fjarstýring AHtþetta fyrir aðe/ns kr.: 37.810,- Bjóðum einnig fleiri gerðir af hágæða hljómtækjum. Komið og skoðið! Munið umboðsmenn okkar um land allt. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 Víljir þú endingu og gæði velur þú SIEMEIUS Fólk er alltaf að vinna í Gullnámunni: 65 milljónir Dagana 7. apríl til 13. apríl voru samtals 65.007.200 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þar bar hæst Gullpottinn en einnig voru greiddir út veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum. Gullpottur í vikunni: Dags. Staður: Upphæð kr.: 13. apríl Háspenna, Laugavegi.......9.539.116 Silfurpottar í vikunni: Dags. Staður: Upphæð kr.: 7. apríl Flughótel, Keflavík........ 134.611 7. apríl Café Romance............... 110.039 8. apríl Háspenna, Laugavegi....... 107.755 8. apríl Ölver....................... 57.160 9. apríl Öiver...................... 179.010 9. apríl Kringlukráin................ 54.170 10. apríl Kringlukráin................ 157.642 11. apríl Háspenna, Hafnarstræti.... 94.302 12. apríl Ölver........................ 74.740 12. apríl Mónakó...................... 136.360 12. apríl Mamma Rósa, Kópavogi...... 57.346 13. apríl Háspenna, Laugavegi....... 62.184 13. apríl Mamma Rósa, Kópavogi...... 101.769 Staða Gullpottsins 14. apríl, kl. 13:00 var 2.064.123 krónur. Q Q Aðild í höfn en hvað svo? Svíar hafa náð, aðildarsamningum við Evrópusambandið og í haust verður hald- in þjóðaratkvæðagreiðsla um samning- inn. Til þessa hefur öll umræðan um ESB í Svíþjóð snúist um það hverju Svíar urðu að ná fram í samningaviðræðunum. Fred- rik Arnander, sem starfar hjá ráðgjafafyr- irtæknu SMG, ritar grein í Svenska Dag- bladet, þar sem hann segir orðið tíma- bært að umræða hefjist um það, hvernig Svíar hyggist starfa innan ESB. Eðli aðildar I greininni segir Am- ander: „Fullveldi okkar skerðist, þegar við verð- um aðilar að Evrópusam- bandinu, og við verðum að ná samkomulagi um ýmis mál við liin aðildar- ríkin. Þetta er eðli aðild- arinnar og um árabil hefur verið deilt um það í Svíþjóð hvort þetta sé kostur eða galli. Menn hafa hins vegar fyrst og fremst verið að karpa um það hversu stóran hluta af fullveldinu við verðum að láta af hendi og hvað við fáum í staðinn. Hveiju maður fómar og hvað maður græðir. Það er hins vegar ekki lengur áhugavert að ræða það, hvað verður um fullveldi Svíþjóðar á mismunandi sviðum við aðild. Það sem skiptir máli er hvemig við getum öðlast völd og áhrif innan ESB.“ Hver eru markmið okk- ar? Áfram segir: „Til að öðlast áhrif verðum við fyrst að gera okkur grein fyrir markmiðum okkar. Við verðum að skilgreina sænska hagsnumi. Þegar aðildarviðræðurnar hóf- ust í febrúar 1993 vom mörg sænsk hagsmuna- svið kynnt: Umhverfis- vemd, opið stjórnkerfi, virðing fyrir landfræði- legum og menningarleg- um sérkennum o.s.frv. Svíar hafa náð flestum kröfum sínum í gegn. Það hefur verið á hreinu hveiju við vildum ná fram og um það hefur ríkt breið samstaða. Fastai’ timasetningar og aðrar aðstæður, sem tengjast samningavið- ræðunum, hafa líka verið til staðar. En hvað gerist síðan í hinu daglega starfi eftir að við emm orðnir aðilar? í raun verða Svíar að móta stefnu, sem hefur almennan stuðning í þinginu, fyrir hvern fund ráðherraráðsins. í hveiju einstöku máli og hinum umfangsmiklu pólitísku spumingum verður að kynna hagsmuni Svía. Hvað þetta varðar getur það komið okkur til góða að Svíþjóð er lítið land, þar sem löng hefð er fyr- ir almennri samstöðu um mál. Það er hugsanlegt að aðild geti leitt til auk- innai- samvmnu innan- lands, rétt eins og aðild- arviðræðumar stuðluðu að sláandi pólitískri sam- stöðu stjórnmálaflokk- anna. Sverker Gustafs- son, sljórnmálafræðing- ur við Uppsalaháskóla, hefur haldið þvi fram að sænsk aðild geti jafnvel orðið til þess að á stund- um kæmist hér til valda þjóðstjóm allra flokka." Olátabelgur eða fyrir- myndarþegn? Amander segir að það hvei-su mikil áhrif Sviar fái muni að hluta til ráð- ast af því hvemig þeir hagi sér innan ESB. „Eiga Svíar að vera „ólátabelg- ir“ líkt og hefur reynst Dönum vel eða eigum við leika hlutverk „fyrir- myndar-Evrópubúans" eins og til dærnis Belgar, einnig með góðum árangri? Hingað til virðist stefnan hafa verið sú sama og einkennt hefur Svíþjóð frá þri eftii- stríð: Að vera til fyrirmyndar. En það að rið getum hugsanlega verið leiðandi á ákveðnum sviðum og jafnvel verið ESB verð- mætir í hinni sameigin- legu stefnumótun getur ekki verið stefna i sjálfu sér heldur miklu frekar æskilegt markmið ... Það væri einnig hugsanlegt að framfylgja þeii-ri stefnu að lyfta sér upp úr þjóðarhagsmununum í þágu æðra markmiðs. Srium Iiefur oft áður tek- ist, ekki síst innan Sam- einuðu þjóðanna, að hafa áhrif Iangt umfram stærð landsins og efnahagsleg- an mátt. Innan Evrópu- sambandsins gæti slíkt markmið til dæmis verið að vera í forystu barátt- unnar fyrir aukinni frí- verslun. Til lengri tíma litið gætum við átt þátt í þri að rífa niður gamla 1 verndarsinnaða tolla- bandalagið, EB, og í stað þess styrkja pólitíska samrunann, ESB. Ástæð- an liggur í augum uppi. Aukin fríverslun er til lengri tíma litið það eina er getur aukið samkeppn- ishæfni og velmegun Evr- ópu, Evrópu í heild sinni. Aukin pólitísk samvinna er til lengri tíma litið það eina er getur tryggt ör- yggi innan Evrópu, sem sífellt er að missa áhrif á alþjóðavettvangi. En sú draumsýn að vera „for- ystuþjóð" inuan ESB er líklega Svium ofvaxin. Hún þjónar hugsanlega ekki heldur hagsmunum okkar. Oháð því hvaða augum aðildarríki líta á aðild sína þá munu þjóðarhags- munir ávallt skipta mestu máli. Það væri bamalegt að halda öði-u fram. Á meðan ESB byggir á milliríkjasamstarfi hlýtur hvert ríki að reyna að hámarka ávinning sinn. I þessari pólitísku og stofn- analegu samkeppni rikj- anna mun líklega vaxa fram sterkai'i Evrópa." ■ STRÁKURINN Sidorov nefnist kvikmynd sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10 nk. sunnudag 17. apríl kl. 16. Mynd þessi var gerð í Hvítarússlandi af Belarús-film á níunda áratugnum. Leikstjóri er Valentin Gorlvo. I myndinni segir frá atburðum sem gerast í sumarbúð- um unglinga, en þær eru til húsa í byggingu þjóðfræðasafns borgar einnar. Allir í búðunum bíða með skelfingu komu Sidorovs sem er al- ræmdur pörupiltur og þegar nafni hans Aljosa Sidorov kemur á staðinn er hann umsvifalaust talinn vera skúrkurinn. Ýmislegt óvenjulegt og ævintýralegt á eftir að gerast í þessu sérstæða umhverfi safnahúsanna, kyrrmyndir lifna við, dýr tala, blanda raunveruleika og ímyndunar í léttum tón, segir í fréttatilkynningu. Skýrin- gatal á ensku. Aðangur ókeypis og öllum heimill. ■ FUGLA VERNDARFÉLAG ís- lands^ stendur fyrir hreinsunardegi við Ástjörn ofan Hafnarfjarðar. Ástjörn er friðland og sérstaklega mikilvæg fyrir að vera síðasta at- hvarf flórgoðans á Suðvesturlandi. Brúðarkjólar, samkvœmiskjólar, kjólföt og smókingar og annar fatnaður. Fataviðgerðir og fatabreytingar. Garðatorgi, sími 656680. Flekar, spítnabrak, plast og annað drasl setur ljótan svip á friðlandið og þess vegna ætlar Fuglaverndarfé- lagið að standa fyrir hreinsunardegi við tjörnina. Allir áhugamenn um friðun Ástjarnar eru velkomnir. Fyrstu flórgoðarnir eru væntanlega komnir á svæðið. Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins verða til viðtals í Val- höll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10-12 f.h. Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum. Allir borgarbúar veikomnir. Laugardaginn 16. apríl verða til viðtals Sveinn Andri Sveinsson, formaður stjórnar- nefndar um almenningssamgöngur, í umferðarnefnd, íþrótta- og tómstundaráði og stjórn Dagvistar barna, og Ingólfur Sveinsson, í stjórn heilsugæsluumdæmis austurbæjar nyrðra, í heilbrigðisnefnd, og Katrín Gunnarsdóttir, í heilbrigðisnefnd, Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir 12.000.000 kr. og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta. íþrótta- og tómstundaráði og ferðamálanefnd. AmO l A.li -1 cll A klidKnnnoirJvitn^im^ Av_.fi f I u niklÍAKeraniMlV --l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.