Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 15. APRIL 1994 Heimsþekktur skíðamaður í HUðarfjalU TVÖ FlS-mót í stórsvigi verða haldin í Hlíðarfjalli um helgina. Hið fyrra hefst í dag, föstudag, kl. 9.30 og seinna mótið er á morgun, laugardag, en keppt er bæði í kvenna- og karlaflokki. Erlendir þátttakendur á mótinu eru fimm taisins og þeirra lang- þekktastur er sterkasti stórsvigs- maður Svía, Frederik Nyberg, en hann sigraði tvívegis í stórsvigi á heimsbikarmótum sl. vetur. Auk hans eru tveir Slóvenar og tveir Bretar á meðal þátttakenda. Mót þetta er haldið að tilstuðlan SKÍ en í tilefni af 50 ára afmæli íþróttabandalags Akureyrar ákvað ÍBA að veita styrk til að mögulegt væri að bjóða besta stórsvigsmanni Svía á mótið. Fyrir tveimur árum tók hin þekkta sænska skíðakona Pemilla Viberg þátt í FlS-móti í Hlíðarfjalli. (Úr fréttatilkynningu.) Fundur Stafnbúa, félags sjávarútvegsnema við Háskólann á Akureyri, um fiskmarkaði Agaleysi í fjármálum meðan hægt er að treysta á reddingar AGALEYSI íslendinga í fjármálum er ein af ástæðum þess að kvóta- verð er svo hátt sem raun ber vitni, en ástæðu agaleysisins má m.a. rekja til þess að menn treysta sífellt á „reddingar", að málunum verði bjargað og ekki er krafist mikillar arðsemi í sjávarútvegi sem oft er litið á sem tæki til að viðhalda byggð í landinu. Þessi sjónarmið komu fram á fundi Stafnbúa, félags sjávarútvegsnema við Háskólann á Akureyri, í fyrrakvöld þar sem rætt var unt hvort binda ætti í lög að allur afli ætti að fara í gegnum fiskmarkaði. » ♦ Tónleikar Gospelkórsins GOSPELKÓRINN, sem er sam- kirkjulegur kór ungs fólks, syngur á Akureyri um helgina. Gospelkvöld verður haldið í Gler- árkirkju annað kvöld, laugardag- inn 16. apríl, kl. 20.30 auk þess sem kórinn syngur við fjölskyldu- messu í kirkjunni kl. 11 á sunnu- dag og á samkomu á Hjálpræðis- hernum, Hvannavöllum 10, kl. 14 á sunnudag. Kórinn hefur starfað í rúmt ár og eru að jafnaði 30-40 unglingar sem sækja æfíngar kórsins. Áhersla er lögð á létta og skemmti- lega tónlist með fijálslegri sviðs- framkomu. Stjórnandi kórsins er Ester Daníelsdóttir. (Fréttatilkynning.) Þorsteinn Már Baldvinsson fram- kvæmdastjóri Samheija á Akureyri sagði það sína skoðun, að við ættum að láta útlendingana hafa fyrir því að kaupa fískinn á okkar mörkuðum hér heima en með því mætti m.a. lækka kostnað útgerðanna umtals- vert. Samheiji hefur leitað eftir beinni sölu á afurðum sínum framhjá erlendum fískmörkuðum, sem hann sagði að hirtu ótrúlega stóran hluta af kökunni. I máli Olafs Þórs Jóhannssonar framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar Suðurnesja kom fram að mikil aukn- ing hefði orðið á framboði á íslensk- um fiskmörkuðum, en um 81% aflans á síðasta ári fór í gegnum slíka markaði, en magnið var 41% árið 1987. Olafur sagði að minnkandi munur á verði heima og úti væri meðal skýringa þess. Salan á ís- lensku fiskmörkuðunum skiptist þannig, að árið 1987 voru um 83% magnsins seld á slíkum mörkuðum í Reykjavík og 17% á landsbyggð- inni, en mikil umskipti hefðu orðið síðan þá, á síðasta ári voru 18% af heildarmagninu seld í Reykjavík og 79% á landsbyggðinni, en Fiskmark- að Suðurnesja taldi hann með lands- byggðinni. Skrattinn vorkenni þeim Logi Þormóðsson stjórnarformað- ur Fiskmarkaðar Suðurnesja sagði, að útgerðarmenn, kvótaeigendurnir, hefðu engar skyldur við samfélagið og væri tímabært að setja einhver lög þar um. Utgerðarmönnum væri úthlutað aflaheimildum úr sameigin- legri auðlind allra landsmanna en ÞEGAR ÞÚ NOTAR BOÐKERFIÐ HRINGIR ÞÚ FYRSTí 984 og í beinu framhaldi númer viðkomandi boðtækis. Þá heyrist rödd sem segir: ■i VELDU TALNABOÐ Þá átt þú að slá inn t.d. símanúmerið þitt eða það númer sem handhafi boðtækisins á að hringja í. Að lokum ýtir þú á # Röddin heyrist þá aftur og staðfestir: „ BOÐIN VERÐA SEND Leggðu síðan á. II gætu valsað um og gert hvað eina sem þeir vildu - það væri t.d. ekk- ert sem bannaði útgerðarmanni að aka með aflann beint á haugana ef honum byði svo við að horfa. Logi sagði hagsmunaaðila standa saman um þau mál sem þeir töldu sig best fallna til að sinna og hleyptu engum að öðrum. „Við komumst ekki í fisk- inn þeirra. Auðvitað hræðast þeir samkeppni - og skrattinn vorkenni þeim.“ 800 milljónir Ingimar Jónsson rekstrarstjóri Fiskiðjunnar Skagfírðings sagði físk- markaði hafa margt til síns ágætis, en fyrir Norðlendinga, sem byggðu einkum á togaraútgerð, sem væri iðulega samtvinnuð fískvinnslu, gengju slíkir markaðir ekki upp. Vinnslumar þyrftu stöðugt og gott hráefni og gætu ekki treyst á mis- jöfn gæði fiskmarkaðanna. Þá nefndi hann, að LÍÚ-menn hefðu staðið sig afspyrnu illa í að ná niður kostnaði við fískmarkaði og að gera mætti ráð fyrir að greiða þyrfti mörkuðunum um 800 milljónir króna árlega í umsýslukostnað og fleira, yrði allur fiskur seldur í gegnum markaði. I umræðum eftir framsöguræður kom fram í máli Þorsteins Más Bald- vinssonar, að agaleysi íslendinga í fjármálum hefði m.a. leitt af sér hátt kvótaverð, sem væri ekki í neinu samræmi við afurðaverð, og sjómenn væru síðan látnir taka þátt í að greiða herkostnaðinn. Hann nefndi dæmi af útgerðarfyrirtækjum á Vestfíörð- um, sem var hjálpað myndarlega með opinberum framlögum, sem síð- an voru m.a. notuð til að kaupa báta á háu verði sem önnur fyrirtæki er ekki nutu slíkrar aðstoðar treystu sér ekki til að greiða. „Aðstoðin fór beint út í verðlagið." Svanfríður Jónasdóttir kennari á Dalvík tók undir með Þorsteini hvað agaleysið varðar og að það myndi ríkja áfram svo lengi sem reddingar tíðkuðust í íslenskum sjávarútvegi. „Það er í lagi að voga, manni verður hvort eð er bjargað,“ sagði hún að væri algengur hugsunarháttur og reddingarnar myndu viðgangast svo lengi sem lög stemmdu ekki stigu við. Þá sagði hún einnig að fram til þessa hefði ekki verið beðið um miklá arðsemi af rekstri sjávarútvegsfyrir- tækja. „Menn hafa tilhneigingu til að horfa á sjávarútveginn svipað og margir horfa til landbúnaðar, fyrst og fremst sem tæki til að viðhalda byggð á ákveðnum stöðum,“ sagði Svanfríður, og spurði hvort rétt væri að nota undirstöðuatvinnuveg þjóð- arinnar sem félagsmálastofnun í leið- inni. „Reiknum við með, að það muni færa okkur þau lífskjör sem við munum kreijast í framtíðinni?" Morgunblaðið/Rúnar Þór Leikskóli í Glerárkirkju TVEIR leikskólar verða sameinaðir í einn sem verður til húsa í kjallara Glerárkirkju en þar standa nú yfir framkvæmdir við nauðsynlegar breytingar. Krógaból er þar fyrir og voru krakkarnir úti að leika sér í góða veðrinu. Tveir leikskólar sameinast FRAMKVÆMDIR standa yfir í kjallara Glerárkirkju en í sumar verður starfsemi leikskólans Sunnubóls flutt þangað. Skóladag- heimilið Hamarkot verður í kjölfarið flutt í húsnæði Sunnubóls. Með þessum ráðstöfunum verður reksturinn hagkvæmari og leik- skólaplássum fjölgar. Sigrún Sveinbjörnsdóttir, for- maður félagsmálaráðs, sagði að Sunnuból yrði sameinað leikskólan- um Krógabóli sem fyrir er í kjall- ara Glerárkirkju en húsnæðið yrði það rúmt að unnt yrði að fíölga leikskólaplássum með þessum breytingum. Skóladagheimilið Ha- markot sem nú er starfandi í leigu- húsnæði í félagsheimili Þórs, Hamri, verður flutt í húsnæði Sunnubóls við Sunnuhlíð. „Með þessum ráðstöfunum náum við fram verulegri hagkvæmni í rekstrinum, við sameinum tvo litla leikskóla sem voru fremur óhag- stæðar einingar og af því hlýst sparnaður," sagði Sigrún. Glerárkirkja greiðir kostnað við framkvæmdir á húsnæðinu, en fé- lagsmálaráð hefur til ráðstöfunar sjö milljónir króna vegna breyting- anna og verður hluta upphæðarinn- ar varið til að stækka útileiksvæðið og eins til kaupa á lausum búnaði. Bújörðtil sölu Jörðin Dagverðartunga í Hörgárdal, Eyjafjarð- arsýslu, er til sölu. Á jörðinni eru: 35 hektarar ræktað land, íbúðar- hús byggt 1938, fjós fyrir 14 kýr, fjárhús fyrir 250 kindur, aðstaða fyrir 25 geldneyti og hey- hlöður við fjárhús og fjós. Framleiðsluréttur er 58 þús. lítrar af mjólk, og 2.700 kg af kindakjöti. Bústofn 14 kýr, 15 geldneyti og 100 kindur. Selst í einni heild, eða í fleiri einingum. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Tilboð leggist inn hjá Búnaðarsambandi Eyja- fjarðar, pósthólf 120, merkt: „Bújörð", fyrir 1. maí nk. Nánari upplýsingar eru veittar í símum 96-27150 og 96-24446. ■ POPPHLJÓMS VEITIN Plá- hnetan leikur í veitingahúsinu 1929 á Akureyri föstudagkvöldið 15. apríl. Ýmis skemmtiatriði verða í boði, s.s. tískusýning og vínkynn- ingar. Á laugardagskvöldið 16. apríl leikur hljómsveitin í Valaskjálf á Egllsstöðum. á kvöldi sem helgað verður konum á Austurlandi. (Fréttatilkynning.) Wterkurog KJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.