Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 Minning Sigurrós Jónsdóttír frá Norðurfirði Fædd 1. nóvember 1910 Dáin 8. apríl 1994 Tengdamóðir mín, blessuð, lést síðdegis fimmtudaginn 6. apríl sl. og er útför hennar gerð frá Akra- neskirkju í dag. Engum er til þekkir kom lát hennar á óvart, því að sumarið var liðið og hið gráa haust og löngu- löngu sýnt að hveiju fór, svo að ég víki lítillega við ljóðlínum úr fögru kvæði Guðmundar Böðvarssonar á Kirkjubóli. Líkams- og og sálar- kraftar fyrir alllöngu þrotnir að mestu og líf hennar slokknaði eins og hinn veiki kertalogi sem brennur ofan í skarið, stillt og hóglega. Hartnær aldarþriðjungur er nú liðinn frá því að fundum okkar bar fyrst saman og ég þá í fylgd dóttur hennar, væntanlegrar eiginkonu minnar. Höfðum sett upp trúlofun- arhringa fyrir hádegi og síðan var haldið norður í Árneshrepp; flogið lágflug norður Húnaflóann með Strandafjöllin við vinstri væng- brodd og lent á flugvellinum á Gjögri. Þaðan síðan haldið á vöru- bílspalli að Norðurfirði þar sem til- vonandi tengdaforeldrar mínir bjuggu. Það hafði rignt nóttina áður og fram eftir degi og þoka var niður fyrir miðjar hlíðar. Vöxtur í lækjum. Rökkur aðvífandi hausts var að síga á þegar við náðum heim í Norðurfjörð, þar sem mættu okkur hljýjar kveðjur og heillaóskir fjöl- skyldu unnustu minnar. „Ég man það sem gerst hefði í gær.“ Morg- uninn eftir hafði létt til og sólin skein glatt á Krossnessijall og Kál- fatind og speglaðist í Trékyllisvík- inni með formfagra Reykjanes- hyrnu í bakgrunni. Mér finnst það hafa verið í ljósi þessa morguns sem ég sá Rósu, tengdamóður mína, fyrst og í því ljósi hef ég haft hana og mun hafa hana um mín ókomnu ár, létta og kvika á fæti; talandi við mig næstum ókunnan manninn um hvaðeina og gefandi mér góð ráð, bæði beint og óbeint. Og gott var morgunkaffið sem drukkið var við eldhúsborðið lúna. Svo fóru í hönd nokkrir sólbjartir dagar, með hey- skaparlokum, töðugjöldum og trúlof- unar„gilli“, þar sem nokkrir næstu nágrannar mættu og kynni mín tók- ust við þá og nánasta umhverfí. Ekki meira um það, en eftir að vegasamband komst á við Árnes- hrepp, um 1966, varð það að nokk- urri reglu okkar hjóna að ferðast norður þangað svo sem annað hvert ár með börn okkar og var það all- nokkurt fyrirtæki, á ekki beysnari farartækjum en við höfðum þá yfir að ráða. Á ég margs að minnast frá þeim ferðum. Rósa, en svo var hún alltaf nefnd, fæddist á Svans- hóli í Kaldrananeshreppi, fimmta í röð tólf alsystkina sem á legg kom- ust, dóttir hjónanna Jóns Kjartans- sonar og Guðrúnar Guðmundsdótt- ur. Var Jón faðir hennar frá Skarði í Bjarnarfirði, en Guðrún frá Kjós í Reykjarfirði. Áður hafði Jón verið kvæntur konu með nákvæmlega sama nafni frá Eyjum í Kaldrana- neshreppi og átt með henni tvö börn, en Guðrún sú lést við fæðingu síðara barns síns. Það er alger ofætlan að fara út í nánari ættrakn- ingu í knappri minningargrein og verður um það að vísa í mikið ætt- fræðirit sem út er komið fyrir skemmstu og nefnist Pálsætt. Er frá því að segja að árið 1915 fluttu þau hjón, Jón og Guðrún, að Aspar- vík og þar ólst Rósa upp frá fimm ára aldri og við þann stað kenndu þau sig gjarna systkini hennar mörg. I Asparvík, sem nú er fyrir löngu í eyði, er harðbýlla og hijóst- ugra til landsins en gengur og ger- ist og búskapur í nútíma skilningi vonlaus, en auðvitað var þar, eins og víðar á Ströndum, sjórinn sem stóð undir allri lífsafkomu fólksins. Þegar talinu var vikið að þessu var Rósa vön að taka málstað Ásparvík- ur með því að segja að það hefði nú verið kjarngott grasið þar á milli steinanna í Asparvík. Sem og var. Og grösugur var Asparvíkur- dalurinn, og er enn. Segja má að Bjarni bróðir hennar hafi síðast búið í Asparvík, því að eftir að hann flutti þaðan og Laufey, kona hans, með sinn barnahóp, að stór- býlinu Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi, varð búskapur þar lítill og stopull og féll síðan með öllu niður. Um Rósu og systkini hennar vildi ég í stuttu máli fella þann dóm að þau auðkennast af góðvild og mannkær- leika og þá eðliskosti átti Rósa í ríkum mæli. „Ég held ég hefði bara orðið kommúnisti hefði það hugtak verið til á mínum yngri árum,“ sagði hún eitt sinn og átti þá við meiri jöfnuð á milli ríkra og fátækra, en þann jöfnuð vildi hún sjá. Atvikin höguðu því svo að sumar- ið 1936, og nú tek ég það fram að hér er ekki um vísindalega grein að ræða, fór Rósa sem kaupakona að Norðurfirði í Árneshreppi, en þar var þá liðs vant og er ekki að orð- lengja það að þar tókust kynni hennar við bóndasoninn, Sveinbjörn Valgeirsson, sem varð síðan hennar lífsförunautur. Þar, í Norðurfirði, átti hún síðan sitt lífsstarf við hús- móðurhlutskipti og barnauppeldi, við þau kjör sem þá tíðkuðust og væri að bera í bakkafullan læk að lýsa og eru sem óðast að verða ill- skiljanleg nútímafólki. Heilsubrest- ur ýmiss konar var og ekki til að létta kjörin og ekki heldur þröng- býli né umönnun við nákomna. Samt komst allt af. Sveinbjörn var skapríkur maður, en ég held að hann hljóti að fyrirgefa mér þótt ég segi þann grun minn að oft hafi hvesst, en aldrei hrikt í sambúð þeirra hjóna og víst er það að mik- il var umhyggja hans fyrir Rósu sinni undir lokin. Sjö áttu þau börn- in, sem á legg komust, og eru: Guðrún, gift Júlíusi Veturliðasyni frá Isafirði og eiga þau fimm börn; Þorgerður, gift Erlendi Halldórs- syni í Dal og eiga þau fjögur börn; Gestur Ármann, kvæntur Kristínu Jónsdóttur frá Reykjavík og þau eiga fjögur börn; Sesselja, gift Hlöðver Sigurðssyni frá Djúpavogi og eiga þau fjögur böm; Heiðrún, gift Jóni Valgarðssyni á Miðfelli, þau eiga þijú böm; Guðjón, ókvænt- ur; og Valgerður, gift Lárusi Olafs- syni og eiga þau fimm börn. Síðan komu barnabörn og barna- barnabörn og það var helsta gleði gömlu hjónanna, eftir að líkams- krafta þraut, að fylgjast með vexti og viðgangi afkomenda sinna og fagna velgengni þeirra og þroska. Eflaust hefur blundað með þeim sá draumur, og þá einkum með Svein- birni, að eitthvert barnanna tæki við jörð og búi í Norðurfirði, en hafí svo verið, þá rættist sá draum- ur ekki, enda tæplega þess að vænta á tímum óðfleygra breytinga sem þá gengu yfír og ekki er enn séð fyrir endanum á. Jörð og bú seldu þau sumarið 1976 og fluttu á Akranes, þar sem þau festu kaup á húsinu Vesturgötu 77, sem þau bjuggu í næstu tíu árin. Húsið er tvílyft og fljótlega gekk Valgerður, yngsta dóttirin, inn í kaupin og flutti með fjölskyldu sína á neðri hæðina. Önnur böm þeirra hjóna voru þá flest orðin búsett á Akra- nesi eða í nærsveitum og nú orðið öll nema kona þess er þetta ritar og á þó ekki nema rúmlega klukku- stundar leið að sækja á Akranes. Hús þetta stórbætti Sveinbjörn með einangrun og klæðningu og fleiri viðgerðum meðan þau bjuggu þar og var með réttu „síríkur af þeirri framkvæmd sinni“. Það var svo á sumardaginn fyrsta 1987 að þau fluttu á dvalarheimili aldraðra á Höfða og hafa búið þar siðan í góðu yfirlæti og við bestu aðstæður sem hugsast geta fyrir gamalt fólk, enda nefndu þau oft guðs hand- leiðslu gegnum æviárin og ekki síst þau efstu. Starfsfólki á Höfða, sem annast hefur þau í nokkuð þungri elli, færi ég fyrir þeirra hönd meiri þakkir en orð fá rúmað. Framanritað hripa ég í minningu tengdamóður minnar, konu sem ævinlega tókst á við hvern dag, virkan sem helgan, af æðruleysi og rósemd og ól upp sinn barnahóp í guðsótta og góðum siðum, blöndu af mildi og aga. Mér er sem ég heyri börnin taka undir með Emi Arnarsyni þegar þeirra efri ár fara í hönd: Er syrtir af nótt, til sængur er mál að ganga, - sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga - þá vildi.ég, móðir mín, að miidin þín svæfði mig svefninum langa. Sveinbirni, tengdaföður mínum, sem nú situr eftir, sjóninni sviptur um nokkurra ára skeið, votta ég dýpstu samúð. Veit þó að með innri augum sér hann allt sem fyrr, fínn- ur ilm liðinna daga, vorkomuna norður á Ströndum hveiju sinni, ilm af haust- og vetrarbrimi „á skreip- um skeijum" og af búfé í húsum. Öðrum aðstandendum votta ég samúð, um leið og ég fagna því hvað dauðinn fór að með mildum og hógværum hætti í þetta sinn. fe Erlendur .Hallflórsson, t Útför BERGÞÓRU STEINSDÓTTUR frá IMeðra-Ási, sem lést 24. mars 1994, hefur farið fram. Gunnar Berg Björnsson, Sigrún Jóhannesdóttir, Steinar Berg Björnsson, María Árelíusdóttir. t Elskulegur faðir okkar, SIGMUNDUR KARLSSON síðast til heimilis á Kleppsvegi 32, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 13. þessa mánaðar. Börn hins látna. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI JÓNSSON skipstjóri, Staðarbakka, Arnarstapa, Snæfellsnesi, andaðist í Landspítalanum 13. apríl. Svanborg Tryggvadóttir, Guðrún Tryggvadóttir, Konráð Gunnarsson, Lárus Tryggvason, Ólöf Svavarsdóttir, Jón Tryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær konan mín, móðir okkar og dóttir, SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR, Bergstaðastræti 33, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. apríl kl. 13.30. Garðar Waage, Dýrleif Ólafsdóttir, Helga Dóra Ólafsdóttir, Linda Ólafsdóttir. Helga Ásgrímsdóttir og systkini, Helgi Gestsson. t Jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐLAUGS ELÍS JÓNSSONAR, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Gréta Fanney Guðlaugsdóttir, Jón Búi Guðlaugsson, Hlynur Guölaugsson, Einar Guðlaugsson, Vilhjálmur Guðlaugsson, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín og móðir okkar, ÁSTRÚN JÓNSDÓTTIR (RÚNA), er lést að kvöldi föstudagsins langa í sjúkrahúsi í Danmörku, verður jarðsungin frá Bessastaðakirkju laugardaginn 16. apríl kl. 13.30. Haukur Dór Sturluson, Tinna Hauksdóttir, Tanja Hauksdóttir. t Minningarathöfn um, KRISTJÁN K. JÓNASSON, frá ísafirði, verður í Fossvogskirkju, í dag föstudaginn 15. apríl, kl. 15.00. Hansína Einarsdóttir, Einar Valur Kristjánsson, Kristinn Þórir Kristjánsson, SteinarÖrn Kristjánsson, Ólöf Jóna Kristjánsdóttir, Guðmundur Annas Kristjánsson, Guðrún Aspelund, Berglind Óladóttir, Maria Valsdóttir, Björgvin Hjörvarsson, Svanhildur Ósk Garðarsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANDRÉS HALLMUNDARSON, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 16. apríl kl. 13.30. Aðalheiður Guðrún Elfasdóttir, Gunnar Andrésson, Ragnar Þór Andrésson, Ingibjörg Andrésdóttir, Guðbjörg Andrésdóttir, Hallmundur Andrésson, Jóakim Tryggvi Andrésson, Halldór Ingi Andrésson, Hafsteinn Andrésson, Guðrún Magnúsdóttir, Lilja Ólafsdóttir, Rögnvaldur H. Haraldsson, Gunnar Jónsson, Kristfn Tómasdóttir, Sigríður A. Jónsdóttir, Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir, Gunnhildur Vésteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. .1 t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN H. SIGURJÓNSDÓTTIR HLÍÐAR, sem lést 7i þessa mánaðar, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 18. apríl kl. 15.00. Guðrún J. Hlíðar, Jean Jensen, Brynja Hlfðar, Hildigunnur Hlfðar, Birgir Dagfinnsson, Jónína V. Hlfðar, Reynir Aðalsteinsson, Sigríður Hlíðar, Karl Jeppesen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.