Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
ÍÞRÖmR
FOLK
P GRINDVÍKINGAR hömpuðu
Islandsmeistaratitli í íþróttahúsinu
í Njarðvík í gærkvöldi þó ekki
væri það í meistaraflokki karla.
Fyrir þann leik léku sömu félög
úrslitaleik í Lávarðadeildinni og
Grindavík vann 80:86.
■ ÞAÐ var mikið tilstand fyrir
leikinn í gærkvöldi því Sjónvarpið
var mætt á staðinn með sófann
góða úr Dagsljósi og var brot úr
þættinum sendur beint frá Njarð-
vík.
■ BIKARINNvar auðvitað á sín-
um stað og óneitanlega minnti
ástandið á úrslitakeppnina árið
1991. Þá léku UMFN og ÍBK.
Keflavík hafði 2:1 yfir og liðin
mættust í Keflavík.Bikarninn var
fyrir augum leikamanna allan leik-
inn og Njarðvikingar unnu og
sigruðu síðan í fimmta leik í Njarð-
vík.
■ AC Milan leikur án Angelo
Carbone og Paolo Maldini gegn
Mónakó í undanúrslitum Evrópu-
meistaradeildarinnar. Carbone
var rekinn af leikvelli í leik gegn
FC Porto og Maldini fékk sitt
annað gula spjald.
■ DIETER Höness, fram-
kvæmdastjóri Stuttgart var í
Madrid í vikunni, en hann hefur
mikinn hug á að kaupa Iván Za-
morano, landsliðsmanns frá
Chile, frá Real Madrid.
H ULI Stielike, fyrrum landsl-
iðsmaður Þýskalands og landsl-
iðsþjálfari Sviss, verður að öllum
líkindum næstu þjálfari Frank-
furt.
■ BA YER Leverkusen fær mið-
vörðinn Markus Miinch til liðs við
sig frá Bayern Miinchen næsta
keppnistímabil. Hann er 21 árs.
■ ÞÝSKU handknattleiksliðin
Göppingen og Stuttgart Schar-
arnhausen verða sameinuð fyrir
næsta keppnistímabil. Margir ís-
lenskir landsliðsmenn hafa leikið
með Göppingen.
KNATTSPYRNA
Kaiserslautern
skellti Bayern
Kaiserslautern vann stórsigur, 4:0,
á Bayem Múnchen í þýsku úr-
valsdeildinni í gærkvöldi og munar
nú aðeins tveimur stigum á liðunum
þegar þrjár umferðir era eftir. Wagn-
er skoraði fyrst fyrir Kaiserslautern
á 58. mín., en- síðan bætti Kuka
tveimur mörkum við og Sforza einu
við mikinn fögnuð 40 þús. áhorfenda.
BLAK
93 STIG 65
11/20 Víti 8/13
8/20 3ja stiga 2/15
38 Fráköst 28
25 (vamar) 19
13 (sóknar) 9
12 Bolta náð 6
10 Boltatapað 12
24 Stoðsendingar 6
18 Villur 23
IMyberg á
Akureyri
Sænski skíðakappinn Fredrik
Nyberg er kominn til landsins
og tekur þátt í mótum á Akureyri
í dag og á morgun. Nyberg er mjög
snjall stórsvígsmaður. Tveir skíða-
menn frá Slóveníu, sem hafa verið
hér síðustu daga, keppa einnig. Það
eru þeir Uros Pavalovcic, sem vann
mót í Bláfjöllum um sl. helgi og á
Dalvík á miðvikudaginn, og Mates
Stare.
HK vann fyrsta leikinn
Islandsmeistarar HK mættu grimm-
til leiksins gegn Reykjavíkur Þrótt-
úrum í gærkvöldi, og leikmenn liðsins
gáfu tóninn strax með því að skella
gestgjöfunum 15:13. Þróttarar náðu
sinum besta kafla í annari hrinunni
þegar sterkar uppgjafir þeirra settu
móttöku meistaranna úr skorðum og
þeirjöfnuðu 15:8. HK-ingartóku síð-
an leikinn í sínar hendur og kláraðu
dæmið öragglega, unnu þriðju hrin-
una 15:6 og þá fjórðu 15:2.
Skynsamir Njarðvfldngar
Fjórði úrslitaleikur liðanna i
úrvalsdeildinni, Leikið ÍNjarðvik.
en Njarðvík 93:65 núna. Fimmtíu
og eins stigs sveifla milli leikja er
rosalega mikið. En þegar tvö jöfn
lið mætast og leikinn er hraður
körfuknattleikur þarf ekki mikið að
fara úrskeiðis til að mótheijinn stingi
hreinlega af. Sú varð rauninn í gær-
kvöldi. Grindvíkingum voru mislagð-
ar hendur í síðari hálfleiknum og
heimamenn gengu á lagið. Grindvík-
ingar gáfust allt of fljótt upp og
þeir gerðu aðeins 20 stig í síðari
hálfleik og það er allt of lítið.
Liðsheild UMFN var sterk. Teitur
að venju gríðarlega sterkur í vörn-
inni, Rondey í stuðu undir körfunni
og þeir Rúnar og Valur sterkir. Jón
Júlíus kom einnig skemmtilega inn
undir lokin. Hjá Grindvíkingum var
það eiginlega aðeins Nökkvi Már
sem lék vel.
ÚRSLIT
UMFIM-UMFG 93:65
Iþróttahúsið Njarðvík, 4. úrslitaleikur um
íslandsmeistaratitilinn, fimmtudaginn 14.
apríl 1994.
Gangur leiksins: 0:2, 6:11, 12:17, 19:17,
27:22, 29:2937:35, 46:35, 48:43, 53:45,
60:47, 68:51, 75:53, 82:58, 85:65, 93:65.
Stig UMFN: Rondey Robinson 26, Rúnar
ámason 14, Valur Ingimundarson 14, Teit-
ur Örlygsson 9, Jóhannes Kristbjörnsson
8, Jón Júlíus Árnason 8, Friðrik Ragnarsson
6, Ástþór Ingason 5, ísak Tómasson 3.
Stig UMFG: Nökkvi Már Jónsson 16, Wa-
yne Casey 14, Guðmundur Bragason 10,
Pétur Guðmundsson 9, Marel Guðlaugsson
7, Unndór Sigurðsson 6, Hjörtur Harðarson
2, Bergur Eðvarðsson 1
Dómarar: Helgi Bragason og Leifur Garð-
arsson. Góðir.
Áhorfendur: 1.005 að sögn starfsfólks
hússins og hafa eldrei verið fleiri.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Atlanta - Cleveland..........110: 95
Boston - Detroit.............109: 96
Miami - Chicago.............. 90: 96
Philadelphia - Indiana....... 87:115
Milwaukee-NewJersey..........105:107
San Antonio - Denver......... 78: 83
Phoenix - LA Lakers..........117: 88
Stjarnan-Valur 18:15
Iþróttahúsið í Garðabæ, úrslitakeppnin í
handknattleik, 2. leikur, 8-liða úrslit,
fimmtudagur 14. mars 1994.
Gangur leiksins: 0:1, 2:3, 4:3, 6:6, 7:6,
7:7, 8:8, 10:8, 12:10, 13:13, 16:15, 18:15.
Mörk Stjörnunnar: Patrekur Jóhannesson
5, Konráð Olvason 5/2, Magnús Sigurðsson
3, Sigurður Bjamason 3, Skúli Gunnsteins-
son 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Vals: Valgarð Thoroddsen 5, Finnur
Jóhannsson 3, Dagur Sigurðsson 2, Ólafur
Stefánsson 2/1, Rúnar Sigtryggsson 2/1,
Jón Kristjánsson 1.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarara: Lárus H. Lárusson og Jóhannes
Felixson. Leyfðu full mikla hörku og vom
ekki alltaf samkvæmir sjálfum sér.
Áhorfendur: 625.
FH-Víkingur 24:22
Kaplakríki:
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 6:2, 7:3, 9:4,
10:6. 12:8, 16:10, 16:14, 17:16, 18:17,
19:18, 22:19, 22:22, 24:22.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 11/4, Gunn-
ar Beinteinsson 5, Sigurður Sveinsson 3,
Guðjón Árnason 2, Atli Hilmarsson 1, Hálf-
dán Þórðarson 1, Knútur Sigurðsson 1.
Utan vallar: 8 mln.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 8/3,
Gunnar Gunnarsson 3, Birgir Sigurðsson
3, S. Cvijovic 3, Friðleifur Friðleifsson 2,
Árni Friðleifsson 2, Kristján Ágústsson 2.
Utan vallar: 2 mín.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán
Amaldsson.
Badminton
Evrópumeistaramótið I Hollandi:
Guðrún Júlíusdóttir og Birna Petersen
unnu Emmu Duggan og Sonyu McGinn frá
írlandi I 1. umferðinni í tvíliðaleik. Þær
unnu Sundberg og Sarnesto frá Finnlandi,
15:10, 15:10 í 2. umferð og eru komnar í
16-manna úrslit.
Árni Þór Hallgrímsson og Broddi Krist-
jánsson töpuðu I tvílialeik.
Broddi og Birna topuðu í 2. umferð í
tvenndarleik. Vigdís Ásgeirsdóttir tapaði I
2. umferð í einliðaleik og Guðmundur
Adolfsson tapaði í 1. umferð i einliðaleik.
Ikvöld
Handknattleikur
Úrslitakeppni karla:
Varmá: UMFA - Haukar.........20
KA-húsið: KA - Selfoss.......20
Körfuknattleikur
Urslitaleikur kvenna, 5 leikur:
Keflavík: ÍBK-KR.............20
NJARÐVÍKINGAR höfðu skynsemina að leiðarljósi í gærkvöldi
þegar þeir sigruðu Grindvíkinga 93:65 ífjórða úrslitaleik liðanna
um íslandsmeistaratitilinn. Þar með er Ijóst að krnýning meistar-
anna fer fram í íþróttahúsinu í Grindavík á laugardaginn, en
hvort það verða Njarðvikingar eða Grindvíkingar sem hampa
biknarum eftirsótta er ómögulegt að spá um. Allir leikirnir hafa
hingað til unnist á heimavelli.
Njarðvíkingar hafa leikið illa í
fyrri hálfleikjum í úrslita-
rimmunni en í gær var allt annað
að sjá til iiðsins. Bar-
Skúli Unnar áttan var til staðar
Sveinsson og leikmenn náðu
skrifar meira að segja sókn-
arfrákasti á fyrstu
mínútunum bara með baráttunni.
Þeir grænklæddu höfðu skynsemina
að leiðarljósi að þessu sinni, léku sem
liðsheild og unnu vel fyrir hvern
annan, ekki eins og í síðasta leik
þar sem einstaklingsframtakið átti
að fá að njóta sín, en gerði ekki.
Sóknir þeirra voru langar og það
kom meira að segja fyrir hvað eftir
annað að menn hættu við hraðaupp-
hlaup þegar þeir voru einir á móti
þremur Grindvíkingum. Skynsemin
í fyrirrúmi og það borgaði sig svo
sannarlega. Njarðvík var yfir í leik-
hléi, 53:45, og það er nýlunda í leikj-
um liðanna.
Varnarleikur UMFN var aliur
annar en að undanförnu. Teitur var
settur til höfuðs Casey og Hyrti til
skiptis og gekk alveg ljómandi vel
að eiga við eitt _öflugasta bakvarð-
arpar landsins. I sókninni var bolt-
anum komið inní teiginn þar sem
Rondey var gríðarlega sterkur og
skoraði grimmt. Stöku sinnum örlaði
þó á óþolinmæði í sókninni líkt og
í fyrri leikjum en með ísak sem leik-
stjórnanda gekk vel að róa menn.
Sveiflan milli leikja er ótrúleg.
Grindavík vann 90:67 á þriðjudaginn
Morgunblaðið/Bjarni
Rondey Robinson lék vel í gær og hér reynir Guðmundur Bragason að
stöðva hann án árangurs. Yfirburðir UMFN voru miklir og fékk Rondey að
hvíla sig síðari hluta síðari hálfleiks, eins og fleiri lykilmenn liðsins.
Njarðvíkingar iéku bæði vel og
skynsamlega í þessum leik.
Þeim tókst að stöðva skyttur Grind-
■■■■■■I víkinga sem eru
Björn þeirra beittasta vopn
Blöndal og í sókninni sóttu
skrifarfrá þeir inn í teig í stað
Njaróvík þess ag taka skQþjn
fyrir utan,“ sagði Ingvar Jónsson
þjálfari Hauka úr Hafnarfirði sem
fylgdist með leik Njarðvíkinga og
Grindvíkinga í Ljónsgryfjunni í
Njarðvík í gærkvöldi. Ingavar sagði
að Njarðvíkingar væru erfiðustu and-
stæðingar sem lið hans hefði leikið
gegn þegar sá gállinn væri á þeim.
„Það var annað hvort að duga eða
drepast og við vorum virkilega
ákveðnir í að sigra. Vörnin var mjög
sterk og gaf varla þumlung eftir.
Sóknarleikurinn var iíka mun beitt-
ari þar sem liðið náði vel saman. En
ég held að það verði engin 30 stiga
munur á liðunum í fímmta leiknum
í Grindavík þegar liðin berjast til
þrautar," sagði Teitur Örlygsson
leikmaður Njarðvíkinga.
„Við misstum þá of langt frá okk-
ur í upphafi síðari hálfleiks og þá
var eins og liðið brotnaði hreinlega
niður,“ sagði Guðmundur Bragason
þjálfari og leikmaður Grindvíkinga.
„Það virtist allt ganga upp hjá þeim
á meðan hvorki gekk né rak hjá
okkur. Við þetta brotnuðu menn
hreinlega og ég verð að segja að við
gáfumst allt og fljótt upp. Fimmti
leikurinn er staðreynd og við munum
að sjáflsögðu gefa allt í hann. Við
stöndum betur að vígi þar sem við
njótum heimavallarins þar sem við
höfum ekki tapað leik í marga mán-
uði svo ég vil vera bjartsýnn," sagði
Guðmundur Bragason ennfremur.
vcu av uuga
eða drepast
KORFUKNATTLEIKUR
SKIÐI